Morgunblaðið - 03.09.1989, Page 6
/
6 Ö
tóÖ'RGÚNBLÁÍÐIÐ SÚNNÚDAGUR ;i. SRPTEMRER 1989
í
TONLISTARFERHL
Jóns Siguróssonar spannar hálfa öld. hann
hefur samibyfir 200 dœgurlagatexta, á
annan tuglaga ogleikid meb hljómsveitum
íyfir fjórutíu ár. hann var bankamabur
í 35 ár en hefur nú látib afþeim starfa.
þrátt fyrirþab hefur aldrei veribjafn
mikib ab gera ognú.
eftir Urði Gunnorsdóttur. mynd: Börkur Arnorson
ÞAÐ ER fjöldi Jóna Sigurðssona í símaskránni.
Þeir eru líka margir í músíkinni og hafa því hlot-
ið viðurneftii til að greina megi þá í sundur.
Einn þeirra er Jón Sigurðsson í bankanum.
Hann hefúr verið í „bransanum“ í fimmtíu
ár; allt ft*á því hann stalst til að spila dægur-
*
lög á kirkjuorgelið í Asólfsskála undir
Eyjafjöllum flórtán ára gamall og þar
til nú, að sett hefúr verið upp dægur-
lagahátíð í Broadway, tileinkuð tón-
list og textum Jóns. Hann hefúr
samið á þriðja hundrað texta og
ellefú laga hans hafa verið gef-
in út. Sjálfúr hefúr Jón leikið
í hljómsveitum í meira en
íjörutíu ár og unnið í Bún- /
aðarbankanum í 35 ár.
Jón Sigurðsson, fæddur og
uppalinn undir Eyjafjöllum,
hefur verið viðloðandi tón-
list frá barnæsku. Faðir
hans var kirkjuorganisti og
orgelið freistaði Jóns
snemma. Þá hafa systkini
hans einnig „dundað“ sér í
músikinni. Jón sótti orgeltíma til
bóndans á næsta bæ, en sá kunni
ýmislegt fyrir sér. Síðar stalst hann
til að leika á kirkjuorgelið í Ásólfs-
skála, en þangað flutti íjölskyldan
eftir lát fjölskylduföðurins. Jón var
þá tólf ára. „Eg spilaði allt mögu-
legt á orgelið, sálma jafnt sem
dægurlög, og það amaðist enginn
við því. Fjórtán ára gamall samdi
ég svo mitt fyrsta lag og texta á
títtnefnt orgel, „Komdu í kvöld“,“
segir Jón en hann stakk upp á því
að dægurlagahátíðin í Broadway
skyldi kölluð eftir heiti lagsins.
Ekki segir hann lagið þó skipa
sérstakan sess í huganum.