Morgunblaðið - 03.09.1989, Page 15

Morgunblaðið - 03.09.1989, Page 15
C 15 HUSGOGN OG ISklNNRFTTINGAR SUÐURLANDSBRAUT 32 * 68 69 00 Verð frá kr. 24.900,- — og viö bjóðum þér góð kjör. SKRIFSH OFUVÉLAR H.F. Síminn hringdi að morgni mánu- dagsins 21. ágúst sl. Okkur er til- kynnt að Garðar frændi sé dáinn. Mann setur hljóðan — situr þögull og stjarfur. Hugurinn leitaði til lið- ins tíma. Minningamar hrönnuðust upp frá atvikum og atburðum með Garðari. Þessi tuttugu ár sem hann lifði. Fyrstu fjögur árin í Reykjavík þar sem hann dvaldi með mömmu sinni hjá Ellen-ömmu og afa í Nökkvavogi og síðan á Reyðarfirði með foreldmm sínum og systrum. Fyrst framan af vom þau frænd- systkinin bara tvö og vom og léku sér eins og tvíburar, en strax er það þriðja bættist við voru þau ein þrenning, oftast nefnd bara „þau“. Margs er að minnast þó stutt séu æviárin. Þau á reiðnámskeiði, þeir í Vatnaskógi, hringferð um ísland með öllum skemmtilegu ævintýrun- um. Síðastliðið sumar var farin ferð um Fjallabaksleið nyrðri og þá var gaman að keyra jeppann blæju- lausan. Þeir urðu svo óhreinir að það sást bara í bláu augun og hvítar tennurnar. Fyrir þrem vikum fannst Mumma og félögum hans gott að fá grillað kjöt hjá Garðari á Reyðar- firði á hringferð sinni um landið. Það var ánægjuleg stund þar. Garð- ar var alltaf svo blíður og góður við minnimáttar. T.d. þegar ég pantaði kjöt hjá Austmat, þá var alltaf einn aukapakki með afgangs- kjöti merktur „Frú Snúlla“ (hundur- inn). Nú að leiðarlokum þá drúpum við höfði í einlægri bæn. Biðjum góðan Guð að styrkja foreldra hans og systur í þeirra miklu sorg. Garð- ars er sárt saknað af öllum. Guð varðveiti hann. Rannveig Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni, að eigi geti syrt eins sviplega og nú; og aldrei er svo svart yfir sorgarranni, að eigi geti birt fyrir eilífa trú. (Matth. Jochumsson). Ellen amma Foreldrum, systkinum og öllum öðrum ættingjum og vinum, votta ég mína dýpstu samúð, guð styrki ykkur öll í sorg ykkar. Kalli töh/uprentarar Helstu söluoóilar: Akureyri: Tölvutæki Bókval, Kaupvangsstræti 4. Egilsstaðir: Traust, Miðósi II. Sauðórkrókur: Stuóull, Skagfiróingabraut 6. ísafjörður: Reiknistofa Vestfjarða, Aðalstræti 24. Akranes: P.C. tölvan, Kirkjubraut 2. Reykjavik: Einar J, Skúlason hf. Grensósvegi 10. Gunnar Asgeirsson, Suðurlandsbraut. Japís, Brautarholti 2. Ortölvutækni, Skeifunni 17. Penninn, Hallarmúla. Kópavogur: Gísli J. Johnsen sf., Nýbýlavegi 16. MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1989 (jraröar P. Jónsson Fæddur 20. júní 1969 Dáinn 21. ágúst 1989 A morgun, 4. september, fer fram frá Háteigskirkju útför elsku- legs vinar míns, Garðars Þormars Jónssonar. Hún er erfið sú þraut, að vita til þess að Garðar sé ekki lengur á meðal okkar. Ég kynntist Garðari haustið ’85 er við vorum báðir við nám í Verkmenntaskóla Austur- lands á Neskaupstað. Þá strax varð mikil vinátta á milli okkar sem ent- ist æ síðan. Garðar var þeim kostum gædd- ur, að Hann talaði ekki illa um fólk. enda átti hann ljölda vina, sem voru honum kærir. Hann skipti sjaldan skapi og ævinlega var stutt í glens og grín. A kveðjustundu er svo margs að minnast, sem ekki verður rakið hér. Ég mun alltaf vera þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Garðari. Minningin ein lifir um góð- an dreng. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan tárin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (T.G.) Finnskar veggskápasamstæður Bæsuð eik. stgr. verð 79.800 W Hverfisgötu 33, sími 623737. Tölvuprentarar fró STAR styðia þig í starfi. Þeir eru fram- leiddir af fagfólki, óreiðanlegir, hraðvirkir og með úrval vandaðra leturgerða. STAR prentarar tengjast öllum IBM PC, PS/2 tölvum og öðrum sambærilegum. STAR LC-IOC prentar í öllum regnboganslitum en kostar samt ekki nema 26.900,- kr. STAR prentarar fyrir heimili, fyrirtæki og skóla. - STAR ER STERKUR LEIKUR. Þ.ÞDRGRlMSSON&CO ‘■'ARMA PLAST ÁRMÚLA 16 OG 29, S. 38640

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.