Morgunblaðið - 03.09.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR sunnudagijr éi september 1969
C) 29
starf. Hann og Guðfinna voru búin
að reisa myndarhús í landi ætta-
róðalsins Mýrarhúsa. Þau kom
gjarnan í starfsmannahópinn á
árshátíðum og veit ég að gamlir
félagar hugsa nú hlýlega til Guð-
finnu. Hún stóð vel með manni
sínum og þau voru samrýnd hjón.
Björn var ótrúléga natinn við
vélar og held ég að hann hafi átt
margar ánægjustundir við mekan-
isma, t.d. í bílum sínum, eftir að
heim kom. Var hann snillingur í
höndunum, og vildi t.d. vélrita
sjálfur sína samninga fyrir ban-
kann.
Björn var jafnan stilltur mjög
og prúður, frekar dulur, en við-
ræðugóður og hann vinsæll í
starfsmannahópnum. Allar hans
athugasemdir um framvindu pen-
inga- og efnhagsmála voru nýstár-
legar og raunsæjar.
Hann reyndist samstarfsmönn-
um vel. Lagði hann sig í líma um
að leysa lögfræðimál fólksins í
bankanum, allt í sjálfboðavinnu.
Má segja að hann hafi oft borgið
t.d. húsnæðis- og lántökumálum
einstakra starfsmanna.
Er rík ástæða til að þakka alla
samfylgd Björns Ólafs við okkur
í bönkunum tveimur. Það var aldr-
ei komið að tómum kofunum hjá
Birni um góð ráð. Veit ég að eldri
viðskiptamenn Landsbanka og
Seðlabanka munu og geta tekið
undir þetta.
Ég flyt Guðfinnu, Skúla, Bjarna
og öðrum ættingjum hlýjustu sam-
úðarkveðjur mínar og samstarfs-
fólksins í bankanum.
Björn Tryggvason
Það var að morgni laugardags,
eins fegursta morguns sumarsins,
að okkur barst sú sorglega frétt,
að afi okkar hefði kvatt þennan
heim.
Með söknuði og jafnframt þakk-
læti riíjast upp þær stundir sem
við áttum með afa. Hann var allt-
af tilbúinn að aðstoða okkur ef
eitthvað bjátaði á. Hann var hrein-
skilinn og ráðagóður um hvað sem
var og verða ráðleggingar hans
okkur gott veganesti. Margs er
að minnast og ljóslifandi eru minn-
ingarnar úr bílskúrnum, þegar við
sátum þar hjá afa og hlustuðum
á sögur sem hann hafði að segja
meðan hann gerði við það sem
aflaga hafði farið hjá okkur á hjóli
eða bíl, Á þeim stundum lærðist
margt til hugar og handa — þar
var allt gert vel — og þar kom
best í ljós hve laginn í höndunum
afi okkar var, enda voru allar við-
gerðir á vélum honum sérlega
hugleiknar.
Margbrotinn og góður maður
er farinn. Við kveðjum elsku afa
með þökk fyrir allar þær stundir
sem við áttum með honum. Minn-
ing hans mun lifa í hjörtum okk-
ar. Guð veiti ömmu okkar styrk
og blessun á kveðjustund.
Gunnar, Jón Björn
og Jóhanna
Blómastofa
Friöfinns
Suöurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Minning:
Guðrún Jónsdóttir
Fædd 26. mars 1904
Dáin 18. ágúst 1989
Mig langar til að minnast móður-
systur minnar fáeinum orðum.
Guðrún Jónsdóttir fæddist á Pat-
reksfirði 26. mars 1904.
Foreldrar hennar voru Jón Mark-
ússon Snæbjörnsson símstjóri þar í
bæ og kona hans, Sigríður Bach-
mann Snæbjömsson. í foreldrahús-
um ólst hún upp í stórum systkina-
hópi. Nú eru öll systkinin látin, en
þau voru Hulda, Ruth, Marta,
María, Hanna, Ásta, Hallgrímur,
Sigurður, Knútur og Skúli.
Gurra frænka og maðurinn henn-
ar, Haraldur Valdimarsson, sem
lést fyrir allmörgum árum, bjuggu
lengi við Hlíðarveg í Kópavogi.
Þangað fannst okkur krökkunum í
fjölskyldunni alltaf yndislegt að
koma. Þá var þar enn sveit, með
dýrum og beijamó. Meðan frænka
mín bjó í Kópavogi, varð hún fyrir
sinni stærstu sorg, þegar hún missti
einkason sinn, Jón, sem fórst með
togaranum Júlí í febrúar 1959, að-
eins 16 ára gamall. Það tók hana
mörg ár að jafna sig eftir þennan
missi. Ekki er mér grunlaust um,
að þegar hún og Halli fluttu til
Reykjavíkur, hafi það ekki síst ver-
ið til að losna við sárar minningar.
Hún bjó síðan á Hringbrautinni þar
til hún flutti á dvalarheimilið Drop-
laugarstaði.
Á Droplaugarstöðum átti Gurra
gott ævikvöld, en starfsfólkið þar
voru vinir hennar frekar en þjón-
ustuaðilar. Þangað var gott að
koma, herþergið hennar var ein-
staklega vinalegt og samskipti öll
við starfsfólkið einnig. Mér er sér-
staklega minnisstæður síðasti af-
mælisdagur Gurru á páskadag, en
þá var ég einmitt stödd í Reykjavík
og hitti hana síðasta sinni. Hún var
þá farin að kröftum en vildi samt
halda upp á afmælið sitt og voru
þá bakaðar kökur og lagt á borð
svo afmælið yrði sem minnisstæð-
ast fyrir hana.
Gurra frænka mín átti auðvelt
með að eignast vini og meðan hún
gat, hélt hún sambandi við alla sína
ættingja og vini í gegnum símann
og með bréfaskriftum. Þegar hún
gat ekki lengur skrifað voru alltaf
einhveijir til að hjálpa, starfsfólkið
eða þeir sem komu í heimsókn.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég frænku í þeirri von og trú
að núna sé henni fagnað af Nonna
sínurn, Halla og öðrum ástvinum.
Steinunn Hjartardóttir
BOLHOLTI 6, SÍMAR 68-74-80 OG 68-75-80
Okkar dansar m spes
- þaú geta allir lært aú úansa
Þoó sem viö kennum í vetur:
JszzleÍkskéSÍnn
Spennandi leikdansarfyrir
yngstu börnin.
'amkvœmis __^
dansar
iiftY
bbMt
Srr T
V4>r
"vW>»/y |
Fyriralla, börn, unglinga,'
ungt fólkog fullorðna.
Merkjapróf DÍ:
Brons - silfur - gull.
Þjálfum fyrir danskeppni
vetrarins. Hagnýta heimskerfið
fyrirfullorðna.
Les Lancier
Sérflokkur fyrir pör fram á vor
í gamla franska dansinum og
fl. dönsum. Ljúkum með helgar-
dvöl á Hótel Örk í vor.
Takmarkaður fjöldi.
. ------------------
Fyrir stelpor og stráka, unga
jafnt sem gamla.
Ægilega gaman.
Híýtt - Nýtt
Suður amerískir dansar eins og
Salsa - Mambo - Boggie - Rock.
Tímar, sem enginn má missa
af, sem fylgist með.
Barnadansar
Undirstaða fyrir allan sam-
kvæmisdans og jólaballið.
Hringdansar og sungið með.
Gamlir og spiunkunýir dansar.
Jazzdans - Discodans - Freestyle
Fyrir krakka við öll nýjustu
lögin, t.d. BATDANS úr
kvikmyndinni
BATMAN.
Eldri borgarar
- Kaffikvörnin
er á mánudögum kl. 3 á sínum
stað. Dönsum létta og
skemmtilega dansa og hittum
félagana yfir kaffibolla.
- Innritun daglega frá kl. 10—20.
Kennslustaóir:
Bolholtó, 1. hæó, og Austurströnd 3, húsi SPRON.
BOLHOLTI 6, STIMAR 68-74-80 OG 68-75-80. * ^ ^