Morgunblaðið - 03.09.1989, Qupperneq 30
3(Si-€iL
-morguhb:
1989
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag eru það nokkur orð um
ástamál Tvíbura (21. maí -
20. júní) og Krabba (21. júní
- 22. júlí) í lokaumfjöllun um
stjörnumerkin.
Daður
Hinn dæmigerði Tvíburi er
daðurgjarn. í samkvæmum
gengur hann á milli manna,
talar mikið og brosir í allar
áttir. Hann hefur áhuga á
fólki en er samt sem áður
ekki lauslátur því áhugi hans
beinist fyrst og fremst að því
að ræða við fólk. Að vísu er
sagt að Don Juan hinn frægi
elskhugi hafi verið Tvíburi,
en það segir þó ekki margt.
Casanova var til dæmis Hrút-
ur.
Umrceða
Það sem skiptir Tvíbura aðal-
máli er að ná hugmyndalegu
sambandi við fólk. Hann vill
fyrst og fremst tala og segja
sögur. Hann er þegar allt
kemur til alls ekki líkamlega
sinnaður. Tvíburinn getur þvi
talað mikið um ástina og það
sem gerist þegar í rúmið er
komið. Hann vill ræða málin
og því komast ástvinir hans
iðulega seint í draumalandið
þegar ástarævintýri með hon-
um eru annars vegar.
Skemmtilegar sögur
Það sem heiilar Tvíbura eru
skemmtilegar sögur úr ólík-
um áttum. Ef við segjum
honum frá leit að demöntum
í Amazon-frumskóginum,
HstggaHSff! í New York, nýj-
um og spennandi skemmti-
stað í Hafnarfirði og bætum
við nokkrum nýjum sögum
úr stjórnmála-, íþrótta- eða
listalífinu, þá eigum við
Tvíburann. „Aha, þetta er
„sexý“ gæi, hann veit margt.
Frelsi
\ ástalífinu er Tvíburinn hress
og léttur. Hann vill tala um
. ástina, segja brandara og
prófa sig áfram með nýjar
aðferðir. Sagt er að við þurf-
um að gefa honum langt reipi,
eða varast að ætla okkur að
eiga hann eða hefta frelsi
hans.
Kertaljós
Krabbinn er tryggur í ást og
vináttu. A þeim sviðum sem
öðrum leitar hann öryggis og
varanleika. Það tekur nokk-
urn tíma að komast nálægt
honum. Þegar hann verður
ástfanginn er ástæðan yfir-
leitt sú að hann finnur já-
kvæðan tilfinningastraum
liggja á milli sín og væntan-
legs maka. Það sem átt er
við er að Krabbinn elskar
fyrst og fremst vegna tilfinn-
inga, en ekki vegna þess að
hann hrífist af gáfum, ætt-
erni, peningum eða vöðvum.
Krabbinn er tilfinningamerki
og er sem siíkur veikur fyrir
rómantík og kertaljósi.
Kelirí
Hinn dæinigerði Krabbi er
kelinn og töluvert gefinn fyr-
ir kossa og faðmlög. Sem
elskhugi er hann næmur,
nærgætinn og verndandi. Því
er vissara að skapa rólegt og
Ijúft andrúmsloft þegar koma
á Krabbanum til, setja þægi-
lega tónlist á fóninn og þá
helst gömul lög sem vekja upp
sælar minningar. Tunglið
hefur sterk áhrif á Krabbann
og því er pottþétt að bjóða
honum niður í fjöru á fuílu
tungli og flytja honum ástar-
ijóð. Þetta er kannski einum
of mikið af því góða en ætti
samt að varpa ljósi á ástalíf
Krabbans. Karlmenn í
Krabbamerkinu eru hijúfari
en konurnar og setja oft upp
skel til að vernda sig. Þeir
sem lenda í ástarævintýri með
Krabbanum geta þurft að
gæla sín. Krabbinn er ekki
merki sem stofnar til skyndi-
kynna heldur læsir klónum
fast í þá sem liann þráir. Það
er því hægara að komast í
en úr þegar hann er annars
vegar.
GARPUR
o/ee/! ee Y l/epa j
'eiöDAPAUOlÐÍ I £NGAN ASA --
Mi/ARexNúÞessi>6ÖLF!€> ep
MSKUP? L/ ÞehnbuWtt/ J
GRETTIR
BRENDA STARR
\HZFP HFLDUP 8.SA0BIT-.
í-> ^ ^ -r>. . . k i rr- /1 A A /* l C C=
BOT7Ö/VU-INF AE> HANN SE
AÐ SEGJA /HÚP AD E& .
MEG/EKK/ SKH/TA i-PAy
\SÖGN MInA OAi E/7tt£>
~-WZZFZAKÓNGí.
| HAfUM HELDUR. ADHANN SÉ E/6
■j/H E17U&-''
rannsóknaeblabamennska
HEZRtR FOAT/ÐlNNI T/L,, 6EENDA.
NÚ EPU ÞAÐ SK/S/r U/Uf
POpP7tíNL/sr 06 pess,
HATTA/ZSE/H ,--,
&/LD17S. / / /((I
If^t
LJOSKA
FERDINAND
SMAFOLK
TE5, MA'AM, |'P UKE T0
BUV A BOX OF VALENTINE
CANPV FOR A 6IRL WHO
(70E5N'T KNOU) I EXIST...
I LL NEVER HAVE
THE NERVE TO 6IVE IT
. TO HER ANVLUAV.
Já, kennari, ég vil kaupa sælgæti
fyrir stúlku sem veit ekki að ég er
til . . .
Nei, kennari, ekkert mjög dýrt...
Ég hef hvort sem er ekki kjark til
að gefa henni það ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Amarson
Bob Hamman var ánægður
með samninginn þegar blindur
kom upp, þótt hann hefði ýmis-
legt út á sagnir félaga síns að
setja.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ Á7654
V Á4
♦ 3
♦ KD985
Vestur Austur
♦ D2 ....... ♦ KG1098
V 98752 VKDG10
♦ K9652 ♦ G87
♦ 3 *2
Suður
♦ 3
V63
♦ ÁD104
♦ ÁG10764
Vestur Norður Austur Suður
— — Pass 1 lauf
Pass 1 spaði Pass 2 lauf
Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu
Pass 7 lauf Pass Pass
Pass
Utspil: hjartanía.
Kröftuglega meldað af hálfu
norðurs, því þrátt fyrir tvo ása
gat Hamman hæglega verið með
tvo hunda í spaða og þá er ekk-
ert til bjargar. En Hamman átti
réttu spilin; 12 slagi beint og
möguleika á þeim 13 með því
að fría spaðann eða svína í tígli.
Hamman drap á hjartaás og
tók strax spaðaás og trompaði
spaða. Spilaði svo laufi inn á
kóng blinds og trompaði annan
spaða. Vestur henti hjarta og
nú var ljóst að úrslitaslagurinn
yrði að koma á tígul.
Það virðist blasa við að svína
tíguldrottningunni, en Hammail
var fljótur að reikna út að sú
svíning gengi ekki. Fyrsti slág-
urinn benti til að aifetur ætti
mannspilin í hjarta. Og hann
hafði sýnt KG10 fimmta í spaða
til viðbótar. Ef tígulkóngnum er
bætt við þessa 5—4 í hálitunum
á austur orðið opnun. En hann
passaði í upphafi.
Aðeins einn möguleiki var
eftir og Hamman spilaði upp á
hann: Tígulás og drottning.
Kóngurinn á og trompað, og
síðan féll gosinn þegar tígull var
aftur trompaður. Hjartataparinn
fór því niður í tígultíu.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Það er ekki hægt að segja að
brella dagsins sé fyrir lengra
komna, en hún bar þó árangur á
heimsbikarmótinu i Skellefteá.
Við skulum skoða skákina frá
byijun: Hvítt: Hiibner, svart:
Korchnoi, Pirc vörn, 1. e4 — d6,
2. d4 - Rf6, 3. Rc3 - g6, 4. f4
- Bg7, 5. Rf3 - c5, 6. dxc5 -
Da5, 7. Bd3 - Dxc5, 8. De2 -
Bg4, 9. Be3 - Da5, 10. 0-0 -
0-0, 11. h3 - Bxf3, 12. Dxf3 -
Rc6, 13. Re2 (í fræðunum er 13.
a3 talið öllu nákvæmara) 13. —
Rd7i, 14. c3??
14. — Rde5 (Hvíta staðan er nú
töpuð. Við skulum þó líta á heiðar-
lega tilraun Ilúbners til að klóra
i bakkann:) 15. fxe5 — Rxe5, 16.
Dg3 - Rxd3, 17. Bg5 - Hfe8,
18. Bxe7 - Db6+, 19. Khl -
Hxe7, 20. Dxd3 — Hae8, 21. Rf4
— Hxe4, 22. Rd5 — Dxb2 og
þótt hvítur hafi ekki gefið fyrr en
í 61. leik, lék aldrei vafi á úrslit-
um. Þótt ótrúlegt megi virðast
féll Ljabojevic einnig í þessa ein-
földu gildru gegn Timmann í Til-
burg 1978.