Morgunblaðið - 07.09.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.09.1989, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989 KARLMANNAFÖT Kr. 5.500,- til 9.990,- Terylenebuxur kr. 1.395,- til 2.195,- Gallabuxur kr. 1.195,- og 1.420,- Flauelsbuxur kr. 1.220,- og 1.900,- Sumarblússur kr. 2.390,- og 2.770,- Regngallar nýkomnir kr. 2.650,- Skyrtur, nærföt, sokkar o.fl. ódýrt. ANDRÉS, Skólavörðustíg 22, sími 18250. ELFA háfar úr stáli, kopar og í 5 litum Einar Farestveit&Co.hf BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI SIEMENS Góður og ódýr þurrkari! • Stórt lúguop og stór lósía. • Öryggislæsing og kæling í lok þurrkunar til að forðast krumpur. • Tekur 4,5 kg. að þvotti. Sérlega hagkvæmur og sparneytinn þurrkari. Verð: 33.980,- kr. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 - SlMI 28300 Rangar saJkargiftir eftir dr. Gunnlaug Þórðarson. Sérstæður þáttur var fluttur í ríkisútvarpinu mánudaginn 17. júlí sl. er Bjami Sigtryggsson stjórnandi síðdegisþáttar á Rás 1 lagði eftirfar- andi gátu fyrir viðmælanda sinn: „Hver væri munurinn á dauðum lög- fræðingi á hraðbrautinni og dauðu þefdýri“? Viðmælandi þessa „hátt- prúða útvarpsmanns" gat ekki svar- að spurningunni. Bjarni Sigtryggs- son kvað rétta svarið vera: „Framan við dauða þefdýrið eru bremsuför, en engin hjá dauða lögfræðingnum". Með öðrum orðum að lögfræðing- urinn væri réttdræpur, en þefdýrið síður. Þetta átti auðvitað að vera brand- ari, en í honum birtist óvild í garð lögræðinga, sem getur tekið á sig ótrúlegustu myndir. Dæmi slíks, er mál það, sem fjármálaráðherra Ólaf- ur Ragnar Grímsson hratt af stað í fjölmiðlum á hendur Magnúsi Thor- oddsen hæstaréttardómara, en ný- lega er genginn undirréttardómur í því máli. Mér er ómögulegt að verjast þeirri hugsun, að þar hafi embættismenn brugðist skyldum sínum um að upp- lýsa málin. Ráðuneytin hafa færst undan því, að gefa upplýsingar og æðstu menn í ýmsum embættum hafa orðið berir að því að fara ekki rétt með og bo- rið við óhaldbærum ástæðum um að ekki sé unnt að upplýsa málin, líkt og komið hefur berlega fram. Skýringin á þessu mun vafalaust vera sú, að hér hafi verið um svo mikil feimnismál að ræða, einkum eftir að farið hafði verið með áfengis- kaup dómsforsetans í fjölmiðla. Þess- um starfsmönnum hefur því þótt skylt að virða 32. gr. laga um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkisins, en í henni eru ákvæði um þagmælsku embættismanna. Sambærileg ákvæði eru í 136. gr. alm. hegningarlaga að viðlögðu allt að 6 ára fangelsi. Áfengiskaup ráðherra og þingfor- seta eru á margra vitorði t.d. á 60 kössum af áfengi í einu. Slíkar pant- anir eru án efa þess eðlis í augum flestra starfsmanna þess opinbera, að með þau verður að fara sem trún- aðarmál. Slík nýting á aðstöðu hlaut auðvit- að að vera þagmælsku bundin ekki síst í ljósi þess, sem nú hefur gerst. Fæstir ráðherrar myndu vilja að und- irmenn þeirra færu að upplýsa eitt- hvað um áfengiskaup þeirra. Brotalöm í kerfínu Afleiðingin hefur að sjálfsögðu eftirBjörn Dagbjartsson Um fátt er nú meira rætt en upp- boð Hraðfrystihúss Patreksfjarðar og skipa þess. Margir halda því fram og virðast trúa því, að núgildandi fiskveiðistefnu sé um að kenna: Að rekstur HPP hefði verið tryggður ef skipið „Sigurey" hefði ekki haft heimild til að veiða ákveðið magn af fiski. Ef öllum hefði verið heimilt að sækja að vild í fiskstofnana, hefði ekki þurft til þess skip á Patreksfirði. í sambandi við þess rökleysu er rétt að riija upp hluta af sögu „Sigu- reyjar". Fýrir 10 árum var Þórshöfn á Langanesi í nákvæmlega sömu sporum og Patreksfjörður er nú. Þeir misstu skip sitt, „Font“, vegna skulda til Siglufjarðar fyrir atbeina þingmanna þar. Frá Patreksfirði var um svipað leyti seldur togarinri „Guð- mundur í Tungu“ og nú vantaði Pat- reksfirðinga fisk. Togarinn „Sigu- rey“ var þá til sölu, enda Siglfirðing- ar komnir með meira en nóg af togur- um þá stundina. „Sigurey" var í einkaeign, skuldlítil og dýr. En það gerði ekkert til. Með feiknamikilli opinberri fyrirgreiðslu og erlendum Dr. Gunnlaugur Þórðarson „Það er staðfest í undir- dóminum, að engar reglur eru til, sem tak- marka áfengiskaup dómsforsetans á sér- verði sem handhafa for- setavalds.“ orðið sú, að málið fæst ekki upplýst. Það þykir mér alvarleg brotalöm í réttarfari okkar. Það var sjálfsögð skylda að upplýsa málið jafnt um innkaup ráðherra sem annarra, í stað þess að básúna út kaup nokkurra hæstaréttardómara. Allar upplýsing- ar um sérkaup skipta miklu í mál- inu, af því að þær hefðu getað haft áhrif á niðurstöðu þess. Almenningsálitið er ekki svo ósanngjamt, að það vilji að einn maður sé lagður í einelti líkt og hér hefur átt sér stað og sviptur ærunni, fyrir verknað sem ranglega var talinn brot á einhverri reglu um fríðindi. Ekki síst þegar aðrir hafa notfært sér slík fríðindi með krókaleiðum og vafalaust i ríkum mæli. Annars er það um þessi áfengis- kaup að segja, að ef þau eiga að haldast, þá eiga að gilda um þau ákveðnar reglur t.d. að handhöfum forsetavalds væri heimilt að kaupa tiltekið magn árlega, hvort sem for- seti leggst í ferðalög eða ekki. Þá er það og fráleitt að forstjóri Áfengis- verslunar ríkisins ráði því hveijir eigi að njóta sérkjara um áfengiskaup. Mistök á æðstu stöðum Það liggur í augum uppi að ríkis- endurskoðanda bar að fara hina embættislegu boðleið og freista' þess að fá leiðréttingu eða skýringu hjá „En hvernig í ósköpun- um getur það orðið til að minnka flotann, ef menn eða fyrirtæki, sem ekki eiga nein skip, geta keypt sér kvóta á uppboði?“ lánum var skipið keypt til Patreks- fjarðar. Enginn hafði þá áhyggjur af fjölskyldum áhafnarinnar. Margir muna svo, að Þórshöfn fékk „Stak- fellið“ og undi glöð við sitt í nokkur ár. Þetta gerðist allt löngu'fyrir daga kvótakerfisins, en í þá daga þurfti skip til að veiða fisk. Patreksfjarðarmálið hefur verið nefnt sem rök fyrir því, að selja þurfi kvóta hæstbjóðanda eða jafnvel binda fiskveiðiheimildir fasteignum í landi, t.d. fískverkunarstöðvum. Hver mundi kaupa fiskveiðiheimildir handa fiskvinnslustöð, sem skuldar þegar nokkur hundruð milljónir um- fram eignir? Fiskveiðiflotinn hefur tilhneigingu til að stækka, og svo hefur lengi verið. Aukning rúmlestatölu á kvóta- árunum 1984-1988 er þó líklega hlutaðeigandi embætti þ.e. dóms- málaráðherra og Hæstarétti, í stað þess að ijúka með þessa rosafrétt til þingforseta. Með því móti hefði mátt komast hjá því moldviðri í íjöl- miðlum, sem af þessu frumhlaupi hófst og þyrma orðspori dómsforset- ans. Hann var albúinn að leiðrétta málið, ef þess hefði verið óskað, eins og komið hefur fram. Akvörðun tekin í óupplýstu máli í bíaðagrein minni 9. des. sl. benti ég á hvílíku offari embættismennirn- ir, sem voru dómsmálaráðherra til trausts og halds, fóru í málinu. í þessu máli þurfti alls ekki að hraða aðgerðum enda voru hæg heimatök til leiðréttingar eins og málið horfði við. Mér er óskiljanlegt hvers vegna boði hæstaréttardómarans, um að víkja úr réttinum meðan mál hans væri í athugun, var ekki tekið. Með því að þiggja boð dómsforsetans liefði ekki komið til þess að 61. gr. stjórnarskrárinnar væri brotin með brottvikningu áður en endanlegur dómur í þá veru væri genginn. Hér var staðið að verki líkt og um manns- morð væri að ræða. í máli þessu liggur fyrir og hefur ekki verið andmælt, að forseti Hæstaréttar taldi sig hafa fylgt gefnu fordæmi um áfengiskaup á sérverði sem einn af handhöfum for- setavalds í fjarveru Forseta íslands. Um þessi kaup hefði myndast verk- lagsregla fyrir mörgum áratugum þess efnis, að honum væri heimilt a nota þau laun sín til áfengiskaupa á sama verði og forseti fengi það. Þegar tveggja ára tímabili hans í stóli dómsforseta var að ljúka og ljóst- var að hann myndi ekki verða í því embætti oftar, mun honum hafa far- ið líkt og mörgum alþingisforsetum og ráðherrum áður er þeir hurfu úr starfi sínu, að freistast til þess að nota þessa sérstöku innkaupaheimild til að birgja sig upp. Slík heimild hafði verið tekin af ráðherrum og þingforsetum með óformlegri ríkis- stjórnarsamþykkt árið 1971. Þá er Ijóst að dómsforsetanum, hefur farið að þykja nóg um vínkaup- in, sem tengst höfðu tíðum fjarverum forsetans. í stjómartíðindum eru tilkynning- ar um ijarverur forseta Islands vegna ferða til útlanda, en þær voru 6 árið 1987 og 8 árið 1988. Utanlands- ferðir forseta íslands höfðu aldrei verið fleiri en þijár á ári frá því 1974, er þær voru 5. Af þeim gögnum, sem ég hef að- gang að sést að dómsforsetinn hefur ekki notað heimildina til kauþa á áfengi á sérverði að fullu skv. þeirri Björn Dagbjartsson minni en á nokkru öðru fimm ára tímabili frá stríðslokum, að undan- teknum kreppuárunum 1968-72. Kvótakerfið eitt sér hefur enn ekki getað minnkað flotann þar sem lán- veitingar og fyrirgreiðsla til skipa- kaupa hafa verið alltof rúm. En hvernig í ósköpunum getur það orðið til að minnka flotann, ef menn eða fyrirtæki, sem ekki eiga nein skip, geta keypt sér kvóta á uppboði? 30. ágúst Höfumlur er formaður málcfnanefndar SjálfstæðisOokksins um sjávarútvegsmál. RÖKVILLUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.