Morgunblaðið - 07.09.1989, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.09.1989, Blaðsíða 46
fclk í fréttum MÓNAKÓ Khrystyne búin að gefa jáyrði sitt Frá því var greint hér nýlega að Albert Mónakóprins hefði beðið bandarískrar leikkonu að nafni Khrystyne Haje.. Khrystyne sem er aðeins tvítug að aldri vildi ekki svara bónorðinu strax, því hún vissi að mikil breyting myndi verða á lífí hennar ef hún yrði furstynja í dvergríkinu Mónakó. En nú hefur hún gefið Alberti jáyrði sitt. Að sögn er Rainer fursti mjög ánægður með þennan ráðahag og hefur gefið par- inu blessun sína. Talið er að Albert og Khrystyne muni opinbera trúlofun sína í nóvember þegar Khrystyne fer til Mónakó. Pað var mikið um að vera í skólagörðum Reylqavíkur á dögunum þegar börn buðu foreldr- um sínum að skoða garðana og gæða sér á nýju grænmeti. Blaða- maður brá sér í tvo garða, við Stekkjarbakka og Þorragötu, og ræddi við nokkur börn og foreldra þeirra sem komnir voru í heimsókn. Við Stekkjarbakka voru mæðg- urnar Sigurbima Hafliðadóttir og Þórey Sigurðardóttir að virða fyrir sér sýnishom af fersku grænmeti. Sigurbirna hefur átt garð í skóla- görðunum í þijú sumur. Hún var spurð að því hvort hún eyddi mikl- •um tima í garðinum. Borða allt nema steinselju „Fyrsta sumarið sem ég var með garð kom ég á hveijum degi tii að reyta arfa. Nú kem ég þrisvar í viku,“ segir Sigurbirna. „Það er líka alveg nóg því ég er með góðan garð. Sums staðar vex svo mikill arfi að krakkarnir hafa ekki við að reyta. Ég er að passa garð frænda míns núna og þar vex miklu meiri arfi en í mínum garði.“ Sigurbirna segist borða flestar tegundir grænmetis. „Það eina sem ég borða ekki er steinselja,“ segir Viún. „Grænmetið sem ég rækta fer ég með heim og stundum gef ég afa og ömmu. Þau eru hrifín af radísum og káli.“ Þórey, móðir Sigurbimu, sagði fjölskylduna eiga fullt í fangi með að borða grænmetið sem hún kæmi með heim. „Þetta er svo sannarlega búbót,“ sagði Þórey. Hún var innt eftir því hvernig henni litist á for- eldradaga í skólagörðunum. „Mér fínnst þetta mjög gott framtak," segir Þórey. „Vonandi eiga sem flestir foreldrar eftir að koma hing- að og kynnast því sem hér er um að vera.“ Á sundnámskeið næsta sumar i í skólagarðinum við Skorragötu bogruðu þrír feðgar yfír kálplöntum v Við nánari eftirgrennslan kom í ljós I að þar voru bræðumir Bjami og MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989 Foreldradagur í skólagörðunum Morgunblaðið/Bjarni Sigurbirna Hafliðadóttir og Þórey Sigurðardóttir vitja um uppskeru sumarsins. Morgunblaðið/Einar Falur Bjarni og Ólafur Torfasynir önnum kafnir í garöin- um. RÆKTUN Myndin sem hér birtist er sú fyrsta sem tekin var af Khrystyne og Albert saman en það var fyrir þremur árum í veislu í Hollywood. Ólafur ásamt föður sínum, Torfa Magnússyni. Þrátt fyrir að Bjarni væri önnum kafinn við að reyta arfa gaf hann sér tíma til að líta upp og ræða við blaðamann og ljós- myndara. „Yfirleitt er ég í garðinum frá kl. 1-3 á daginn,“ segir Bjarni. „Ég á heima í Sörlaskjólinu og er enga stund að hjóla hingað. Stundum kemur Óli með mér og reytir arfa en oftst er ég einn. Þá tölum við stundum saman, ég og strákurinn í næsta garði.“ Bjarni er ekki eins hrifinn af grænmetinu og Sigur- birna. „Flest grænmetið finnst mér vont. Þó eru rófurnar góðar.“ Ólaf- ur, sem er fimm ára, er ekki langt undan og leiðréttir bróður sinn. „Þér finnst franskar kartöflur líka góðar, er það ekki?“ Ólafur er stað- ráðinn í að fara í skólagarðana eft- ir þijú ár þegar hann er orðinn átta. Bróðir hans er ekki jafn áhugasam- ur. „Ég veit ekki hvort ég kem aft- ur næsta sumar,“ segir hann. „Þetta er svo mikil vinna. Ætli maður fari ekki bara á sundnám- skeið." Skemmtilegast að borða grænmetið í öðrum garði eru Sif Jóhanns- dóttir og mamma hennar, Guðrún KVENNARÁÐ Brigitte vill að Mark sláist við Mike Tyson BBrigitte Nielsen sem eitt sinn var gift kvikmyndaleikaranum Sylvester Stallone, er enn jafn hrif- in af kærastanum sínum Mark Gastineau. Hún hefur oft lýst að- dáun sinni á Mark opinberlega og lýst Stallone sem hálfgerðu peði við hliðina á nýja kærastanum. Brigitte og Mark eru nú á förum til Van- couver í þeim tilgangi að koma honum á framfæri sem boxara. Ekki er vitað til þess að Mark Gast- ineau hafi nökkurn tímann tekið þátt í hnefaleikakeppni en hann hefur hins vegar mikið stundað íþróttir. En Brigitte er hvergi smeyk. „Ég tel að Mark sé eini hvíti maðurinn á þessari jörð sem geti sýnt Mike Tyson í tvo heim- ana. Vegna þess að ég elska Mark myndi ég auðvitað ekki vilja vita af honum í hringnum með Tyson ef ég hefði ekki trú á honum,“ sagði Brigitte í samtali við dagblað í Vancouver. HOLLYWOOD Teiknimynd um litla haftneyju r Ivetur heíjast sýningar á nýrri teiknimynd frá Disney kvikmyndaverinu. Þetta er æv- intýramynd um raunverulegan prins og litla hafmeyju sem verða ástfangin. Faðir hennar er konungur sjávarins og hann sættir sig ekki við samband þeirra. Auk þess er í myndinni nom sem bruggar hafmeyjunni launráð. En öll ævintýri enda vel og ástin sigrar að lokum. Morgunbladið/Einar Falur Guðrún Sigfúsdóttir og Sif Jóhannesdóttir. Sigfúsdóttir, að taka upp grænmeti og snyrta til. „Það er nóg að gera í garðinum því við höfum verið í sumarfríi," segir Sif. „Ég var í Rif- túni, svo fórum við norður og tvisv- ar í sumarbústað." Sif á ekki heima í nágrenninu svo mamma hennar ekur henni í skólagarðana. „Svo fer ég stundum í strætó,“ segir Sif sem er átta ára. „Yfirleitt er ég í garðin- um frá kl. 1-3 alla virka daga.“ Sif finnst skemmtilegast að borða grænmetið. „Við borðum mikið af grænmeti heima. Mest pabbi og mamma, ég og Egill bróðir minn. Litli bróðir borðar eiginlega ekk- ert.“ Þegar Guðrún, móðir Siijar, er spurð að því hvað henni finnist um foreldradaga sem þennan segist hún mest sjá eftir að hafa ekki komið oftar. „Það er yndislegt hérna og gott að fá ferskt græn- meti,“ segir hún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.