Morgunblaðið - 07.09.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.09.1989, Blaðsíða 19
MpftpyrffiLAfilÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989 19 hefð, sem myndast hafði og aldrei keypt meira en 140-180 flöskur í hvert sinn, er forseti var erlendis. í tvö skipti átti hann engin áfengis- kaup á sérverði, að því er ég fæ best séð. Dómsforsetinn leitaði álits hjá for- sætisráðherra, en fékk þar enga vísbendingu, því forsætisráðherra hefur greinilega getað hagað þessum málum á miklu einfaldari hátt. Upplýst er að ráðherrar láta bílstjóra sína einfaldlega sækja áfengi eins og þeir vilja. Menn geta og leitt getum að hvað verði um af- gangana eftir opinberar veislur. Þannig hefur þesu verið háttað áratugum saman. Það féll í minn hlut, í nokkur skipti að panta áfengi fyrir yfirboðara mína, ráðherrana, t.d. er þeir kvöddu starfsfólk sitt í Stjórnarráðinu við stjórnarskipti. Ekki minnist ég þess að afgangsvíni hafi verið skilað aftur til áfengis- verslunarinnar, enda mun engum hafa dottið í hug að gera veður út af því. Varla hefur orðið breyting á þessu síðan. Dómsforsetinn var því engu nær um hvar mörk skyldu dregin önnur en þau, að hver kaup hans um sig fyrir þeim launum, sem hann fékk sem handhafi forsetavalds, voru lög- leg og með þeim væri hann hvorki að gerast brotlegur við lög né að rýra siðferðislegt álit sitt. Ekki gátu þessi kaup breyst við það eitt að magnið varð jafn mikið og það varð vegna þess hve oft forsetinn átti er- indi til útlanda. Vítaverð framkoma Qármálaráðherrans Það er staðfest í undirdóminum, að engar reglur eru til, sem tak- marka áfengiskaup dómsforsetans á sérverði sem handhafa forsetavalds. Þess vegna er það vítaverð fram- koma hjá fjármálaráðherranum að fullyrða í ríkisij'ölmiðlum að dóms- forsetinn hefði brotið einhveijar slíkar reglur. Einmitt á þeirri stað- hæfíngu fjármálaráðherrans byggð- ist hneykslan almennings. Þá er þess og að gæta að hvorki voru gerðar aðfinnslur né ábendingar af hálfu forstjóra ÁTVR við vínkaupum dómsforsetans. Hann fékk alla tíð sömu aðfinnslulausu afgreiðsluna. En strax daginn eftir hiri umtöluðu kaup tilkynnir forstjóri ÁTVR ríkis- endurskoðanda um þau með hinum dæmalausu afleiðingum, að þegar fjármálaráðherra fær að vita um kaupin eru það fyrstu viðbrögð hans að dómsforsetinn skuli höggvinn í herðar niður aftan frá. Mistök embættismanns Eins og áður er vikið að, var það ríkisendurskoðandi, sem færði for- seta Sameinaðs þings þau tíðindi, að dómsforsetinn hefði að hans mati misnotað aðstöðu sína til áfengis- kaupa. Samt hafði ríkisendurskoð- andi hvorki þá né síðar kunnað nein skil á því, hvar mörkin ættu að liggja. Ekki gat hann heldur sagt til um það eftir á. Því síður virðist hann hafa vitað um hefðina, sem myndast hafði um þessi kaup. I því efni brást ríkisendurskoðandi í mati sínu á því hvernig fara bæri að, þegar um það væri að ræða að embættismaður hefði brotið einhvetjar meintar reglur í kerfinu. Auðvitað bar honum að hafa fyrst samband við dómsmálaráðherrann og forseta Hæstaréttar sjálfan í stað þeirra vinnubragða, sem hann við hafði. Það má vissulega virða honum til vorkunnar að hafa ekki áttað sig á því hver mistök hann var að gera, einkum þegar hugsað er til þess hve ýmsir ráðherrar eru fjölmiðlafíknir og ekki síður hins hve stutt er síðan Alþingi veitti embætti hans þau miklu völd, sem hann telur því fylgja. Afglöp þingforseta Það sem næst gerist, er að forseti Sameihaðs Alþingis fer með málið til fjármálaráðherra, sem kemur því á einhvern hátt til ríkisljölmiðlanna með þeim orðum að dómsforsetinn hafi brotið reglur um innkaup á áfengi á sérverði. í fjölmiðlunum fær dómsforsetinn fyrst að vita hvað gerst hefur á bak við hann. Þingforsetinn brást almennu vel- sæmi, er látið var fyrirfarast að láta dómsmálaráðherra og sjálfan dóms- forsetann vita um málið. Það sem gerði yfirvegaða lausn þess torveld- ari en ella, var að það var komið í algjöran fjölmiðlahnút, þegar dóms- málaráðherrann fékk fyrst að vita um það. Áður en varði höfðu fjöl- miðlarnir lagst á dómsmálaráðher- rann með kröfum um refsingu ■ á hendur dómsforsetanum fyrir að hafa brotið reglur um kaup á áfengi á sérverði eins og fjármálaráðherr- ann orðaði það. M.ö.o. var dóms- forsetanum borið á brýn að hafa misnotað aðstöðu sína sjálfum sér til ávinnings. Slíkt athæfi er, ef rétt væri, brot á 139. gr. alm. hegningar- laga, þótt það væri ekki látið fylgja sögunni. Hér var um algjörlega rang- ar sakargiftir að ræða, eins og undir- réttardómurinn staðfesti. Mismunun í kerfinu Það alvarlegasta við mál þett er þó það, að með því er einn maður er tíndur út úr og sakaður um ólög- leg áfengiskaup, sem eru rangar sakagiftir, meðan aðrir, sem komist hafa yfir áfengi eftir krókaleiðum og vafalaust án þess að greiða neitt fyrir það, frekar en fyrri daginn, sleppa við allar ávirðingar. Hins veg- ar fæst sú hlið málsins ekki upplýst. Höfundurer hæstaréttarlögmaður. NÝJASTA DANSKA ORÐABÓKIN 887 BLAÐSÍÐUR KR. 2.350,- FÆST HJÁ BÓKSÖLUM Ja,hver þrefaldur! Þrefaldur fyrsti vinningur á laugardag! Þreföld ástæða til að vera með! Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511. Bladu) sem þú vaknar vió!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.