Morgunblaðið - 07.09.1989, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 07.09.1989, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTÚDAGUR 7. SEPTEMBER 1989 5f Þessir hringdu . . . Góður þáttur á Rás 2 Konráð Friðfinnsson hringdi: „Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, er með þátt á sunnudögum á Rás 2 sem mér finnst skemmtilega fram settur. Þar fjallar hann um Bob Dylan á mjög svo smekklegan hátt. Þessi þáttur er mjög fagmannlega unn- inn. Hér er hinn ágætasti útvarps- maður á ferð. Hann truflar ekki með óþarfa masi og allt sem hann segir er hnitmiðað og vel orðað.“ Slasaðir kettir Kona hringdi: „Fyrir nokkru fann ég litla læðu sem var keyrt hafði verið yfir og skreið hún upp tröppurnar heima hjá mér. Ég fór með hana til dýra- læknis en hann ráðlagði mér að fara með hana á dýraspítalann og láta ióga henni og gerði ég það. Ég spurði hvað þetta kostaði en þeir vildu ekki taka neitt fyrir. Ég vil beina því til þeirra sem finna slasaða ketti að koma þeim á dýraspítala til að láta lóga þeim eða hringja í lögregluna. Það er vont að vita til þess að þessi grey séu að kveljast meira en þörf er á.“ Köttur Síamsköttur, fress, fannst á flækingi 31. ágúst. Upplýsingar í síma 23959. Hjól Silfurlitað þriggja gíra Kalk- hoff-reiðhjól var tekið við Skelja- granda 1 sl. sunnudagskvöld. Finnandi vinsamlegast hringi í Valborgu í síma 20144. Myndavél Myndavél af gerðinni Ricoh tapaðist á mótinu við Galtarlæk um verslunarmannahelgina. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 26828. Kasetta TDK-kasetta með eigin upptök- um m.a. stefi, tapaðist sl. laugar- dag á leið frá Kópavogshálsi til Hafnarfjarðar, ef til vill í Hafnar- fjarðarstrætó. Finnandi er vin- samlegast. beðinn að hafa sam- band við Hans í síma 41612 eða 671882. Gleraugu Brún og gulskræpótt karl- mannsgleraugu týndust í miðbæ Reykjavíkur síðastliðið laugar- dagskvöld. Finnandi er vinsam- legast beðinn að' hringja í síma 10406. Ymist talin barn eða sjálf- stæður einstaklingur Til Velvakanda. Mig langar til að vekja athygli á máli mínu í sambandi við skattamál og fleira. í nóvember 1988 þurfti ég að gangast undir aðgerð vegna fæðingargalla á fótum. Ég var í hjólastól og gifsi í tvo og hálfan mánuð. Eftir að ég losnaði úr gifs- inu þurfti ég að læra að ganga upp á nýtt, og nú, rúmlega hálfu ári eftir að ég steig í fæturna eftir aðgerðina, þurfti ég að læra að ganga. Ég var bæði frá skóla og vinnu þennan tíma og ákvað að athuga hvort ég ætti ekki rétt á sjúkradagpeningum. Þá kom í ljós þar sem ég var ekki orðin 17 ára fengi ég ekkert. Þetta finnst mér óréttlátt. Ég var hvorki í skóla né vinnu og mátti bara gjöra svo vel að sætta mig við það. En þá kom að skattinum. Þegar ég gerði skattaskýrsluna mína tók ég þetta fram, í von um að ég fengi að minnsta kosti að halda persónu- 1 afslættinum. En því miður gekk það ekki í gegn og hann var felldur niður. Persónuafslátturinn sem var nákvæmlega 119.849 krónur. Og þegar ég byijaði að vinna á þessu ári, kringum 8. apríl, þá hélt ég að ég ætti uppsafnaðan persónuaflsátt það sem af væri árinu. En því mið- ur reyndist það ekki rétt, ég átti bara uppsafnaðan persónuafslátt það sem af var mánuðinum. Og sökum þess að ég var ekki í skóla hafði ég ekki námsmannaskattkort, sem hefði getað veitt mér litla sem enga skatta. Eg er með mitt eigið sjúkrasam- lagskort, þannig að ég er ekki nefnd sem „barn“ á korti móður minnar, en samkvæmt lögum er ég ýmist talin barn á framfæri foreldris eða sjálfstæður einstaklingur. Nú spyr ég og vonast eftir svari, hvernig stendur á því að lögin stangast á? Af hveiju er ég ekki annaðhvort barn á framfæri for- eldris eða sjálfstæður einstaklingur, en ekki bæði eftir hentisemi lag- anna. Mér þykir þetta fáránlegt að 16 ára krakkar skuli „detta“ út úr kerfinu, tapa rétti sínum, þrátt fyr- ir það að þau borgi fulla skatta. Ég vonast sannarlega eftir góðum viðbrögðum við þessu bréfi mínu, og helst sem allra fýrst. Svandís Rósa Reynisdóttir Sumar- auki frákr. 25.300,' Fáðu þér sumarauka á Spáni og notfærðu þér síðustu sætin í sólina á þessu sumri. Vikuferð til Benidorm Njóttu frábærrar aðstöðu, 28 stiga hita og einnar fegurstu baðstrandar Evrópu á einstökum kjörum. *Verð kr. 25.300,' hjón m/2 börn. Kr. 36.200,- pr. mann, 2 í íbúð. CostadelSol eða Benidorm ' heim um London fyrir sama verð Lengdu sumarið á Costa del Sol eða Benidorm og komdu við í heimsborginni London í bakaleiðinni fyrir sama verð. BROTTFÖR 19. SEPTEMBER Costa del Sol - 8 sæti laus Benidorm - 1 1 sæti laus 5 sæti laus til Benidorm 12. september vegna forfalla FERÐAMÖGULEIKAR HAUSTSINS □Stórborgir □ Florida □ Kanríeyjar □ Karabíska haf- ið □ Suður-Ameríka □ Thailand FERBAMI1ISI0BIII Þú ættir að líta til okkar - hvort sem þig vantar húsgögn eða ekki - og skoða fjölbreytt úrval góðra og glæsilegra húsgagna í smekklegu umhverfí. Húsgagnahöllin hf. er hluthafi í tveimur stórum, erlendum innkaupasamsteypum sem tryggja okkur bestu vörurnar og bestu verðin. IDE MÖBLER A/S, stærsti innkaupahringur Danmerkur opnar okkur milliliðalaus viðskipti við 120 framleiðendur á Norðurlöndum. REGENT MÖBEL GmbH í Þýskalandi gerir okkur á sama hátt möguleg bein og milliliðalaus viðskipti, með ströngu gæðaeftirliti, við 400 þekkta framleið- endur húsgagna á meginlandi Evrópu. (Velta Regent Möbel gmbh 1988 var 2.855 milljónir DM eða ríflega 90 milljarðar ísl. króna). Húsgagna*höllin REYKJAVÍK k.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.