Morgunblaðið - 09.09.1989, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER Í989
Guðlaug M.
Hraunbæ -
Fædd 4. september 1903
Dáin 2. september 1989
Dauðinn kemur alltaf á óvart og
skilur eftir sig sár og sársauka.
Gildir þá einu, hvort sá, sem frá
feilur, er ungur að árum eða aldrað-
ur og farinn að heilsu og kröftum.
Eftirsjáin og tómai-úmið verður hið
sama. Skarð er fyrir skildi, sem
ekki reynist auðvelt að fylla í eða
bæta.
Svo er a.m.k. við fráfall Guðlaug-
ar í Hraunbæ. Fáir hefðu megnað
að feta í fótspor hennar. Sárt er
hennar saknað og hennar er minnst
með virðingu og þökk af öllum
þeim, sem henni kynntust.
Guðlaug fæddist í Norðurhjá-
leigu í Álftaveri, dóttir hjónanna
Þóru Bi-ynjólfsdóttur og Gísla
Magnússonar, bónda og hreppstjóra
þar. Systkini hennar voru Anna,
húsfreyja í Reykjavík, Matthildur,
búsett á Grímsstöðum í Vestmanna-
eyjum, og Jón, bóndi og alþingis-
maður í Norðurhjáleigu. 011 eru þau
nú látin.
Guðlaug ólst upp í Norðurhjá-
leigu til fullorðinsára, en fór þá til
vinnu til Vestmannaeyja og
Reykjavíkur.
Hinn 5. nóvember 1927 giftist
hún Þorbergi Bjamasyni frá Efri-
Ey í Meðallandi. Þau vom i hús-
mennsku í Meðallandi til ársins
1928 að þau fluttu að Hraunbæ í
Álftaveri og þar var heimili hennar
til dauðadags.
Þorbergur og Guðlaug eignuðust
14 börn, eitt þeirra fædddist and-
vana en hin eru öll á lífi. Þau eru:
Þóra, búsett í Vík í Mýrdal, gift
Hjálmari Böðvarssyni. Þau bjuggu
lengi í Bólsstað í Mýrdal. Bjarni,
bóndi í Hraunbæ. Gísli Guðni, bif-
vélavirki og brúarsmiður, búsettur
á Seltjarnarnesi, kvæntur Sigur-
björgu Valmundsdóttur, kennara
við Hagaskóla í Reykjavík. Vil-
hjálmur, verslunarmaður, búsettur
í Vogum á Vatnsleysuströnd. Kona
hans er María Henley, læknaritari.
Gísladóttir,
Minning
Guðrún Erla, matráðskona í Skóg-
um, gift Albert Jóhannssyni, kenn-
ara við héraðsskólann og búsett
þar. Tvíburarnir Fjóla og Einar.
Fjóla er gift Ásgeiri P. Jónssyni.
Þau bjuggu áður á Jórvíkurhryggj-
um í Álftaveri en em nú búsett á
Kirkjubæjarklaustri. Einar er bóndi
á Gilsbakka í Axarfirði. Kona hans
er Arnþrúður Halldórsdóttir. Guð-
laug, gift Böðvari Kristjánssyni.
Þau bjuggu á Skaftárdal á Síðu en
eru nú flutt að Kirkjubæjarklaustri.
Jón Þór, lögregluvarðstjóri í
Reykjavík, kvæntur Margréti Guð-
mundsdóttur. Anna Sigríður, gift
Guðgeiri Sumarliðasyni. Þau búa í
Austurhlíð í Skaftártungu. Guðrún,
býr í Reykjavík. Hennar maður er
Metúsalem Björnsson, húsasmíða-
meistari. Kjartan, húsasmiður, nú
búsettur í Neskaupstað. Kona hans
er Ásta Hjaltadóttir. Sigurveig
Jóna, matráðskona á Hvolsvelli,
gift Kristjáni Hálfdánarsyni, versl-
unarstjóra þar.
Börn Hraunbæjarhjóna urðu eins
og áður segir 14, barnabörnin eru
50 og barnabarnabörnin 42 svo að
alls eru afkomendur þeirra 106, þar
af 103 á lífi.
Þetta er hin ytri umgerð um ævi
og störf þessarar merkiskonu eins
og hún blasir við sjónum Samferða-
mannanna. Við, sem áttum því láni
að fagna að kynnast henni náið,
þekkjum þá hlið ævisögu hennar,
sem öðrum og ókunnugum er hulin.
Við vitum, að hún var glæsileg
kona, búin skapfestu og dugnaði.
Við vissum, að hún var iðin, sam-
viskusöm og traust og hún var
vandvirk og handlagin. Allt þetta
skóp henni virðingu og aðdáun allra
þeirra, sem henni kynntust.
Strax ung að árum sýndi hún,
hvað í henni bjó. Mér kemur í hug
frásögn af því sem gerðist haustdag
einn árið 1918, þegar gamla Katla
byrjaði að dreifa eldi og ösku yfir
sveitina hennar. Öldruð nágranna-
kona hennar hafði farið ein á fjöru
og teymdi hest fyrir vagni. Svo sem
kunnugt er, voru flestir verkfærir
karlmenn sveitarinnar við smölun
þennan dag. Þegar sást hvað var í
vændum, var Guðlaug send ásamt
annarri unglingsstúlku til móts við
gömlu konuna, henni til aðstoðar
og hjálpar. Þætti það varla vera
fýsileg ferð fyrir unglingsstúlkur á
vorum dögum.
Ég sé hana líka í anda, þegar
hún flutti að Hraunbæ. Þá reiddi
hún dóttur sína, reifabarn, í fangi
sér yfir Kúðafljót. Það er um 5 km
breitt þar sem leið liggur milli.
Meðallands og Álftavers og eitt hið
stærsta og erfiðasta vatnsfall yfir-
ferðar á landi voru.
Ég sé hana ala önn fyrir stóra
barnahópnum sínum, fæða þau og
klæða við aðstæður, sem nútíma-
konunni þættu allt annað en auð-
veldar. Það er fremur harðbýlt í
Álftaveri og húsakynni í Hraunbæ
voru ekki stærri en hæfa þætti ein-
staklingi í dag. Nútíma þægindi
voru af skornum skammti, en komu
smátt og smátt. Við þessar aðstæð-
ur ólu þau upp börnin sín og komu
þeim vel til manns. Þau hlutu í
vöggugjöf góða hæfileika foreldra
sinna og traust uppeldi hefur orðið
þeim gott veganesti út í lífið.
Öllum sem þekkja, er það að-
dáunarefni hversu samhent þau
hjón voru í einu og öllu. Þar bar
aldrei skugga á. Dóttir þeirra brá
Náttúruverndarfélag‘ Suðvesturlands;
Skoðunarferðir á sjó
Náttúruverndarfélag Suðvesturlands og Eyjaferðir, Stykkishólmi
munu halda áfiram sjóferðum með líku sniði og voru farnar milli páska
og hvítasunnu í vor. Félagið skipulagði þessar ferðir í samvinnu við
Eyjaferðir. Megináherslan var lögð á að kynna lífríkið í sjónum og
áhrif vorkomunnar á það, en staðháttum og sögunni voru jafnhliða
gerð skil og útsýnisins notið af sjó. Farið var um firði, sund og út í
eyjar. Farþegabáturinn Hafrún, sem siglt var með, reyndist vel, enda
sérhannaður til skoðunarferða á sjó. Sjóferðirnar vöktu athygli almenn-
ings og skólar og dagheimili nýttu sér þær á virkum dögum til náms-
ferða.
Skipulagi ferðanna verður lítið
breytt, en fitjað upp á nýjungum.
Ferðirnar skiptast í blandaðar nátt-
úruskoðunar- og söguferðir um firði,
út í eyjar og með ströndinni og í
sérhæfðar náttúruskoðunarferðir,
söguferðir og ferðir þar sem siglinga-
leiðir og siglingatæki Hafrúnar verða
kynnt sérstaklega.
Ýmislegt verður gert til að gefa
ferðunum gildi, t.d. verða gerðar
ýmsar mælingar og athuganir sem
5 km-
sSJOFERÐIR
UM FIRÐI I
Kópavogur
i / Hafnarfjörð
OG SUND
fólk getur tekið þátt í. Farið verður
frá Grófarbryggju (Akraborgin legg-
ur að Grófarbryggju). Öllum er heim-
il þátttaka í ferðunum.
Sjóferðir hefjast nk. sunnudag, 10.
september, með farþegabátnum
Hafrúnu.
Klukkan 10 verður farið í náttúru-
skoðunarferð (ferð 1, sjá kort) um
sundin og að öllum eyjunum á Kolla-
firði. Gerðar verða ýmsar mælingar,
botndýralíf skoðað með botnskörfu,
skoðað verður í krabba- og fiskgildr-
ur og fjallað um haustkomuna í sjón-
um. Fargjald verður 1.100 krónur.
Sjóferðin tekur um eina og hálfa
klukkustund. Leiðsögumaður verður
Konráð Þórisson sjávarlíffræðingur.
Klukkan 14 verður farin Sketja-
fjarðarferð. Siglt verður fyrir Gróttu
og Suðurnes og inn á Seiluna, Arnar-
nesvog, Kópavog og Fossvog. Þetta
verður söguferð en jafnframt
skemmtileg útsýnisferð. Fargjald
verður 1.300 krónur. Sjóferðin tekur
um tvo klukkutíma. Leiðsögumaður
verður Páll Líndal.
Klukkan 17 verður farin náttúru-
skoðunar- og söguferð út í Engey.
Slysavarnadeildin Ingólfur mun ann-
ast flutning á fólki miili báts og eyj-
ar. Gengið verður um eyjuna en hún
er rík af mannvistar- og náttúruminj-
um, t.d. er á eyjunni að finna mjög
fallega stuðlað grágrýti (kirkjugólf).
Ferðin tekur um tvær klukkustundir.
Verð, krónur 800.
Klukkan 21‘verður boðið upp á
nýja ferð, sigling um sundin blá í
tunglsljósi. Ferðin tekur um klukku-
tíma. Fargjald verður 800 krónur.
Frítt verður í ferðirnar fyrir börn
sjö ára og yngri, hálft gjald fyrir
átta til tólf ára í fylgd með fuilorðn-
um. Farið verður í allar ferðirnar frá
Grófarbryggju (Akraborgin leggur
að Grófarbryggju).
- NVSV
upp hugljúfri-mynd af bernskuárun-
um. Jólin voru í nánd og á síðkvöldi
sátu foreldrar hennar hlið við hlið
við baðstofuborðið. Móðir hennar
var að sníða föt á hópinn sinn, en
faðir hennar snéri handsnúinni
saumavél til að iétta konu sinni
starfið. Minnstu börnin röðuðu sér
umhverfis og fylgdust spennt með
því, hvernig ný flík varð til. Þannig
hjálpuðust þau að í einu og öilu og
á efri árum, þegar sjón hennar tók
að daprast, sá hún eftir sem áður
um heimilishaldið í Hraunbæ með
snemma hönd að verki og léttu
störfin. Engu að síður var hún
bundin bænum sínum lága óijúf-
andi böndum. Þar vildi hún vera
og hvergi annars staðar. Þó að hún
þyrfti á síðari árum að dvelja um
skeið á sjúkrahúsum og væri tvisv-
ar, vetrarlangt, hjá dætrum sínum,
var hugurinn heima í Hraunbæ.
Um það leyti, sem vorfugl sást í
varpa, héldu henni engin bönd og
með krafti, sem enginn skildi, sigr-
aði hún alla sjúkdóma og erfiðleika
og hélt heim á ný.
því að segja manni sínum tii verka
og aðstoða hann eftir mætti. Á
þann veg hjálpuðust þau að, og
mér er ekki kunnugt, að aðrir, sem
komnir eru hátt á níræðisaldur,
hafi eftir leikið.
Á þeim árum, sem þau Hraun-
bæjarhjón voru að koma börnum
sínum upp, þekktust ekki barna-
bætur eða aðstoð samfélagsins í
þeirri mynd sem síðar varð.
Vissulega var ævi hennar ekki
alltaf dans á rósum og við getum
ekki annað en undrast hversu miklu
dagsverki hún skilaði. Það er auð-
velt að gera sér í hugariund, að oft
hefur starfsdagurinn verið langur
og lítið um svefn, þó að börnin legðu
Nú eru senn 35 ár síðan ég
kynntist Guðlaugu í Hraunbæ, sem
verðandi tengdasonur hennar. Frá
fyrsta degi var ég eins og einn af
stóra barnahópnum hennar og hún
mér sem önnur móðir.
Svo hygg ég, að einnig sé um
önnur tengdabörn hennar. Þetta vil
: ég þakka af heilum hug fyrir hönd
okkar allra.
Ég votta Þorbergi, tengdaföður
mínum, og öðrum aðstandendum
innilega samúð um leið og ég þakka
hinni látnu heiðurskonu allar sam-
verustundirnar.
Sú er best okkar huggun harmi
gegn, að hennar er gott að minnast.
Albert Jóhannsson
+
Jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hólmgarði 6,
fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 11. september kl. 13.30.
Sigríður Bjarnadóttir,
Kristín Bjarnadóttir, Guðmundur Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
SIGURJÓN HÁKONARSON
frá Hafþórsstöðum i Norðurárdal,
Haukshólum 6, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 11. sept-
ember kl. 13.30.
Hákon Sigurjónsson, Hanna Sampsted
og barnabörn.
+
Faðir okkar,
STURLA SÍMONARSON,
Kaðlastöðum,
Stokkseyri,
sem lést 5. september, verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju
mánudaginn 11. september kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast
hans er bent á Krabbameinsfélag islands.
Hilmar Sturluson,
Símon Sturluson,
og aðrir vandamenn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ást-
kærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR,
Nökkvavogi 2.
Ingólfur Sigurðsson, Elín Adolfsdóttir,
Ragnar Sigurðsson, Júlía Hrefna Viggósdóttir,
börn og barnabörn.
+
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð við fráfall
og útför foreldra okkar, tengdaforeldra, afa og ömmu, langafa
og langömmu,
SIGURLAUGAR HERDÍSAR FRIÐRIKSDÓTTUR
OGHERMANNS ÁRNASONAR
frá Látrum, Aðalvfk,
Drekavog, 20, Reykjavik.
Árni Hermannsson,
Friðrik Hermannsson,
Þórunn Hermannsdóttir,
Þorgerður Hermannsdóttir,
Gunnar Hermannsson,
Jónma Hermannsdóttir,
Guðný Hermannsdóttir,
Óli Hermannsson,
Ingi Karl Ingvarsson,
Gfsli Hermannsson,
Ingibjörg Hermannsdóttir,
Heiðar Hermannsson,
Anna Ólafsdóttir,
Davið Guðbergsson,
Gunnar Valdemarsson,
Hulda Þorgrfmsdóttir,
Jakob Sigurðsson,
Halldór Geirmundsson,
Guðri'ður Hannibalsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir,
Margrét Guðjónsdóttir,
Stefán Stefánsson,
Herdfs Gi'sladóttir, •
ömmu- og afabörn, langömmu- og langafabörn.