Morgunblaðið - 09.09.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGA.RDAGUR 9, SEPTEMBER 1989
39
FRJALSARIÞROTTIR / SPJOTKAST
Spjót Sigurðar Ein
arssonar löglegt
Tækninefnd alþjóða frjálsíþróttasambandsins rannsakaði spjótin frá Ung-
verjalandi, sem Sigurður Einarsson keppir með
TÆKNINEFND alþjóða frjálsí-
þróttasambandsins kom sam-
an á fundi í Barcelona í gær-
kvöldi og dæmdi að spjót eins
og Sigurður Einarsson hefur
keppt með í sumar og eru
hönnuð í Ungverjalandi af Mik-
los Nemeth, fyrrum Ólympíu-
meistara í Montreal 1976, verði
lögleg næstu tvö árin. Þessi
spjót komu á markaðinn i sum-
ar og hafa orðið mjög umdeild.
Mike Gee, tækninefndarmað-
ur, segir í samtali við enska
blaðið The Times að margar
gerðir af spjótum væru í um-
ferð og væru sumar gerðirnar
ólöglegar og þar á meðal spjót
Nemeth.
Sagt er frá því að þrátt fyrir
að spjótkösturunum sem
kepptu á Grand Prix í Mónakó,
hafi verið tilkynnt að þeir mættu
ekki keppa með ungversku spjótin,
keppti Sigurður Einarsson með
ungverska spjótið sitt, eftir að reynt
var að slípa htjúfan flöt spjótsins
niður. Þetta hleypti illu blóði í spjót-
kastarana, þar sem var verið að
keppa um sæti og peninga. í The
Times er vitnað í Steve Backley og
Einar Vilhjálmsson, sem segja báð-
ir að ungversku spjótin sér vægast
sagt vafasöm og ólögleg.
Þess má geta að ungversku spjót-
in mjókka ekki jafnt til endanna
eins og ráð er gert fyrir. Þá er
30-40 sentimetra kafli á spjótinu -
fyrir aftan gripið, mjög htjúfur.
Með því nær spjótið meiri svifeigin-
leikum en viðurkennt hefur verið.
Þessi hijúfi flötur er til þess að
auka svifeiginlega spjótsins.
Flestir þeir spjótkastarar, sem
byrjuðu að keppa með spjótinu í
sumar, bættu sig verulega. Spjót-
kastarar sem köstuðu yfirleitt
77-78 m - fóru að kasta vel yfir
80 m og allt að 83 metra.
Sigurður fær að keppa með ung-
ATHLETICS
ISON
Throwers angered
at constructíon
ofíatestjavelln
From Pat Bntcher, Athletícs Correipoadeii* _
it 1S not a good ide. .. poMent» Monte Carlo
javejin throwers and get wffitin on ” *?duSome do not We
w.^gtnta. the overall grand
Morgunblaðiö/Einar Falur
Hér til hliðar sést fyrirsögnin á
greininni í The Times, sem fjallar um
spjótin frá Ungveijalandi. Á myndinni
fyrir ofan sést Sigurður Einarsson,
sem keppir í Barcelona á morgun.
verska spjótið sitt á heimsleikunum
í Barcelona, en hann keppir þar
með Evrópuúrvalinu og verður
spjótkastskeppnin á morgun.
TENNIS
Connor tapaði
fyrir Agassi
Ljóst er hveijir mætast í und-
anúrslitum í karlaflokki opna
bandaríska meistaramótinu í
tennis, sem fer nú fram í New
York. Það verða Andre Agassi,
sem sigraði Jimmy Connors, og
Ivan Lendl, sem sigraði Tim May-
otte. í hinum leiknum mætast
Boris Becker og Aaron Kricken-
stein.
Leikur Agassi og Connors í
8-inanna úrslitum var mjög
spennandi og skemmtilegur. Ag-
assi sigraði naumlega, 6:1, 4:6,
0:6,.6:3 og 6:4, í skemmtilegum
leik. Connors, sem tók þátt í mót-
inu 20. árið í röð, hafði leikið
mjög vel á mótinu og meðal ann-
ars sigrað Stefan Edberg með
nokkrum yfirburðum.
Ivan Lendl vann mjög auðveld-
an sigur á Tim Mayotte, 6:4, 6:0,
6:1. „Ég leik ekki til að komast
í úrslit. Eg leik til að vinna,“ sagði
Lendl eftir sigurinn. „Hann er of
góður og ég efast um að nokkur
eigi svar við þessum mikla krafti,“
sagði Mayotte.
Boris Becker hefur einnig leikið
vel og ætti ekki að verða í vand-
ræðum með að tryggja sér sæti
í úrslitum. Hann mætir Kricken-
stein og hefur sigrað í öllum þrem-
ur viðureignum þeirra.
John McEnroe og Ástralinn
Mark Woodforde urðu sigurvegar-
ar í tvíliðaleik. Þeir unnu Banda-
ríkjamennina Ken Flach og Ro-
bert Seguso í úrslitum: 6:4, 4:6,
6:3, 6:3
Martina Navratilova vann Zinu
Garrison í undanúrslitum í einliða-
leik kvenna - 7:6, 6:2. Martina
mætir Steffi Graf eða Gabriela
Sabatini í úrslitum.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Neil Webb f rá
í sex mánuði
E Webb hjá Manchester United
verður frá keppni í sex mánuði.
Haásin slitnaði í landsleik Englands
BHBi og Svíþjóðar og fór
FráBob Webb undir hnífinn
Hennessy á fimmtudagskvöld-
iEnglandi
„Þegar ég heirði
fréttina um Webb - var það sem
hnefahögg í andlitið á mér,“ sagði
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United.
Webb, sem var keyptur frá Nott-
ingham Forest á 1.5 millj. punda,
hefur aðeins leikið íjóra leiki með
United. Þetta er mikil bróðtaka
fyrir United, en Bryan Robson er
einnig meiddur og þá meiddist
Mark Hughes á mjöðm í landsleik
með Wales gegn Finnlandi.
„Mér fannst að eitthvað væri að
brenna í öklanum. Um leið vissi ég
að þetta væri alvarlegt. Fyrst hélt
ég að einhver hefði sparkað í mig,
en þegar ég leit við sá ég engann
mann nálægt mér,“ sagði Webb,
sem fór af leikvelli á 72. mínútu.
Reiknað er nú með að Axel
Neil Webb.
Ferguson reyni að fá Paul lnce
miðvallarspilara West Ham, til liðs
við United. Ferguson var búinn að
bjóða West Ham tvær millj. punda
í hann á dögunum, en hætti síðan
við.
íHémR
FOLK-
■ FORRÁÐAMENN AC Mílanó
hafa borið til baka sögur um að
meiðsli Ruud Gullit muni halda
honum frá keppni í fjora mánuði.
Hollenskt dagblað hafði eftir Gul-
lit að hann rrtyndi taka sér frí fram
yfir áramót. Stjórnendur AC 1
Mílanó segja hinsvegar að Gullit
sé við hestaheilsu og verði tilbúinn
innan tíðar.
■ ENGLENDINGAR hafa mikl-^
ar áhyggjur af framkomu enskra
áhorfenda á knattspyrnuleikjum. í
síðasta leik landsliðsins, gegn
Svíum í Stokkhólmi, voru 206
Englendingar handteknir.
Sænska lögreglan þótti standa sig
mjög vel og beitti ýmsum aðferðum
við að handsama ólátabelgina.
Rúmlega 30 áhorfendur voru hand-
teknir eftir að hafa látið ófriðlega
í miðbænum. Lögreglan stöðvaði
strætisvagn, skipaði farþegunum
út og Englendingunum inn. Síðar
var ekið beinustu leið í steininn.
Ekki fylgdi sögunni hvernig fólkið
í strætisvagninum komst heim.
■ ENGLENDINGAR hafa
ákveðið að fresta landsleik gegn
Hollendingum sem átti að fara
fram í Rotterdam. „Við fengum
símtal í dag og vorum beðnir um
að fresta leiknum um óákveðinn
tíma,“ sagði starfsmaður hollenska
knattspyrnusambandsins. Colin
Moynihan, íþróttamálaráðherra -
Breta, skrifaði bréf í fyrradag þar
sem hann fór fram á að leiknum
yrði frestað en Englendingar hafa
verið gagnrýndir fyrir slæma fram-
komu í Stokkhólmi í vikunni.
■ FRANSKA félagið Bordeaux,
hefur ákveðið að selja danska leik-
manninn Jesper Olsen til bæta
slæma fjárhagsstöðu félagsins.
Bordeaux hefur nú fjóra útlend-
inga en má aðeins nota þijá. „Við
vildum gjarna halda honum en get-
um það ekki. Því miður,“sagði for-
seti liðsins Claude Bez.
■ GEORGE Graham, fram-
kvæmdastjóri Arsenal, tilkynnti í
gær að hann myndi tefla fram
óbreyttu liði gegn Sheffield Wed-
nesday á Highbury
FráBob i dag. Sigurður
Hehnessy Jónsson verður
' En9landi varamaður.
■ MICHAEL
Thomas, bakvörður Tottenhari?**’
neitaði í gær að fara til Sheffield
Wed., sem var tilbúið að borga 500
þús. pund fyrir hann.
■ RON Atkinson, framkvæmda-
stjóri Sheffield Wed., fékk 90 þús.
pund í bónus fyrir að haida félaginu
í 1. deild sl. keppnistímabil. Hann
var 90 daga hjá félaginu og fékk
því eitt þús. pund, 100 þús. ísl. kr.,
á dag í bónus.
■ BIRMINGHAM keypti Nigel
Gleghorn frá Manchester City á
165 þús. pund í gær.
■ MARK Lawrenson, fyrrum
leikmaður Liverpool, gerðist fram-
kvæmdastjóri Petereborough í
gær.
■ OSSIE Ardiles, framkvæmda-
stjóri Swindon, keypti Shaun
Close frá Bornemouth í gær á 80
þús. pund. Close lék með Ardiles
hjá Tottenham.
■ DANINN Lars Elstrup, sem
Luton keypti á 650 þús. pund, mun
leika sinn fyrsta leik með félaginu
í dag - gegn Charlton.
■ LENNIE Lawrence, fram-
kvæmdastjóri Charlton, var út-
nefndur framkvæmdastjóri mánað-
arins í ágúst.
■ DREGIÐ hefur verið í 2. um-
ferð ensku deildarbikarkeppninnar.
Þar leika m.a. eftirtalin lið:
Tottenham — Southend
Grimsby — Coventry
Liverpool — Wigan
Arsenal — Plymouth
Nott. Forest — Huddersfield
Leyton Orient — Everton
Chelsea — Scarborough
Portsmouth — Man. United