Morgunblaðið - 13.09.1989, Side 1
40 SIÐUR B
207. tbl. 77. árg.______________________________MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1989______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Austur-Þýskaland:
Kreijast þess að ung-
versk stjómvöld stöðvi
flóttann til Vesturlanda
Austur-Berlín. Moskvu, Búdapest, Prag, Vín. Reuter.
AUSTUR-ÞÝSKA ríkisstjórniu krafðist þess í gær að ungversk stjórn-
völd stöðvuðu flótta austur-þýskra þegna frá Ungverjalandi til Aust-
urríkis og Vestur-Þýskalands. Samskipti rikjanna hríðversnuðu þegar
Ungverjar ákváðu að rifta samkomulagi sínu við austur-þýsk stjórn-
völd og leyfa Austur-Þjóðverjum að fara um landamæri sín til Aust-
urríkis án vegabréfsáritunar. Gennadíj Gerasíniov, talsmaður sovéska
utanríkisráðuneytisins, sagði að ákvörðun Ungverja væri „afar óvenju-
leg“. 10.516 flóttamenn hafa farið til Vestur-Þýskalands frá því að
Ungveijar opnuðu landamæri sín á miðnætti sunnudags, að sögn tals-
manns austurríska utanríkisráðuneytisins. Svo virðist sem nú hafi
dregið úr flóttamannastrauminum.
„Austur-þýsk stjórnvöld vænta
Reuter
Austur-þýskir flóttamenn staldra við til að líta á atvinnutilboð á skilti sem hefur verið komið upp í
flóttamannabúðunum í Vilshofen i Vestur-Þýskalandi.
þess að ungverska ríkisstjórnin dragi
tafarlaust til baka einhliða ákvörðun
um að rifta hluta samkomulags s'íns
við austur-þýsku ríkisstjórnina um
vegabréfsáritanir," sagði í opinberu
mótmælaskjali sem embættismönn-
um í ungverska utanríkisráðuneyt-
inu var afhent og AKAT-fréttastofan
austur-þýska sendi frá sér.
ADN sendi frá sér frétt á mánu-
dag þar sem Ungveijar voru sakaðir
Cárl I. Hagen, formaður norska F ramfaraflokksins, í viðtali við Morgunblaðið:
Minnihlutaslj órn Bnmdt-
land verður áfi'am við völd
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgnnblaðsins.
CARL I. Hagen, formaður Framfaraflokksins i Noregi, segir í samtali
við Morgunblaðið að viðræður borgaraflokkanna þriggja, Hægriflokks-
ins, Miðflokksins og Kristilega þjóðarflokksins, í næstu viku verði
„látalætin ein“. Hann telur Miðflokkinn þegar hafa ákveðið að veita
minnihlutastjórn jafiiaðarmanna áfram stuðning á þingi. Gro Harlem
Brundtland, forsætisráðherra minnihlutastjórnar jafnaðarmanna, hef-
ur lýst því yfir að hún muni ekki segja af sér af fúsum og frjálsum
vilja og enn er eftir að ná samkomulagi um stjórnarsáttmála mögulegr-
ar minnihlutasfjórnar þriggja borgaraflokka. Flokkarnir þrír munu
hefja viðræður í næstu viku.
um að hafa þegið fé af vestur-
þýskum stjórnvöldum fyrir að veita
austur-þýskum flóttamönnum farar-
leyfí. Guyla Horn, utanríkisráðherra
Ungveijalands, sagði í viðtali við
útvarpið í Búdapest að slíkar árásir
væru ekki svaraverðar. Hann sagði
að austur-þýsk stjórnvöld lægju sjálf
undir þeim áburði að þiggja greiðsl-
ur fyrir að leyfa austur-þýskum
þegnum að fara til Vestur-Þýska-
lands.
A meðan þúsundir flóttamanna
flýja til Vesturlanda hafa andófs-
menn í Austur-Þýskalandi stofnað
fyrstu stjórnarandstöðuhreyfinguna
í landinu sem hlotið hefur nafnið
Nýr vettvangur. Yfir eitt hundrað
manns skrifuðu undir stofnskrá
hreyfingarinnar þar sem hvatt er til
viðræðna við kommúnista um lýð-
ræðisumbætur í landinu.
230 Austúr-Þjóðveijar, sem dvalið
hafa í vestur-þýska sendiráðinu í
Prag í Tékkóslóvakíu á fimmta mán-
uð, gáfu í gær upp von um að kom-
ast til Vestur-Þýskalands. Þeir ák-
váðu að snúa aftur til Austur-Þýska-
lands að áeggjan austur-þýskra
embættismanna sem hétu þeim að-
stoð við að komast frá heimalandi
sínu á löglegan hátt.
Sjá: „„Það sem sýnt er í Leipz-
á bls. 16.
Kristilegir demókratar:
Sennilegt er að borin verði fram
vantrauststillaga á stjórn Brundt-
land er stefnuræða stjórnarinnar
verður rædd í Stórþinginu þegar
fundir þess hefjast á ný eftir þijár
vikur. Sigurvegari kosninganna,
Framfaraflokkurinn, hyggst greiða
vantrauststillögu atkvæði sitt. Þar
með ætti meirihlutinn að vera
tryggður og Brundtland hlyti að
víkja.
Enn er hins vegar óljóst hvort
tekst að samræma sjónarmið hægri-
manna og Miðflokksins sem hefur
undanfarin þijú ár verið styrkasta
stoð minnihlutastjórnar Brundtland
á þingi. Flokkurinn hét því á hinn
bóginn fyrir þingkosningarnar á
mánudag að reyna að mynda borg-
aralega samsteypustjórn. „Þetta
verður erfitt en ekki ókleift. Fólk
krefst þess að við leggjum hart að
okkur,“ sagði Jan P. Syse, formaður
Hægriflokksins, er kosningaúrslit
voru kunn. Johan J. Jakobsen, for-
maður Miðflokksins, tók undir þetta
en benti á að styrkleikahlutföll á
þingi gerðu stjórnarmyndun mjög
erfiða.
í símaviðtali Morgunblaðsins við
Carl I. Hagen í gær var liann spurð-
ur hvort hann teldi líkur á að hægri-
menn legðu á hilluna yfirlýsingar
sínar um að hafna allri samvinnu
við Framfaraflokkinn. „Það hef ég
ekki hugmynd um, ég bíð eftir við-
brögðum þeirra, en sem stendur
andar mjög köldu í okkar garð og
fuíjtrúar hinna borgaraflokkanna
hafa ekkert rætt við okkur í dag.
Það fer ekkert á milli máia að við
viljum taka þátt í viðræðum um
stjórn borgaraflokka en þá sem jafn-
ingjar." Formaðurinn sagði að
Framfaraflokkurinn væri reiðubúinn
að slaka á kröfum sínum til að ná
samkomulagi við hina flokkana og
sýna að flokkurinn vildi axla ábyrgð,
engir úrslitakostir yrðu settir. Að-
spurður viðurkenndi Hagen að þetta
gæti að vísu valdið því að flokkurinn
glataði einhveiju fylgi, einkum svo-
nefndum „óánægjukjósendum", en
þá yrði að taka því; þriðji stærsti
flokkur landsins yrði að sýna
ábyrgðartilfinningu. „En ég hef
enga trú á því að viðræður flokk-
anna þriggja í næstu viku beri nokk-
urn árangur, Miðflokkurinn hefur
alltaf haft í hyggju að styðja stjórn
jafnaðarmanna eftir sem áður. Þess-
ar viðræður verða þess vegna til-
gangslaus látalæti og stjórn Brund-
tland mun halda völdum nieð stuðn-
ingi Miðflokksins," sagði Hagen.
Sjá ennfremur: „Spáð óvissu
... “ á bls. 16.
Kohl end-
urkjörinn
formaður
Bremen. DPA. Reuter.
HELMUT Kolil, kanslari, var end-
urkjörinn formaður flokks Kristi-
legra demókrata á landsþingi
flokksins, sem nú stendur yfir.
Hlaut hann 77,4% atkvæða eða
minna fylgi en nokkru sinni frá
því hann tók við formennsku í
flokknum fyrir 16 árum.
í umræðum fyrir kjörið var Kohl
gagnrýndur fyrir þá ákvörðun sína
að reka Heiner Geissler úr starfi
framkvæmdastjóra flokksins. Kohl
varðist og hvatti til einingar vegna
væntanlegra þingkosninga.
Helsti andstæðingur Kohls, Lothar
Spáth, forsætisráðherra Baden-
Wiirttembergs, lýsti því yfir í gær
að kanslarinn hefði farið með sigur
af hólmi í valdabaráttu innan flokks-
ins. Spáth, sem þykir fijálslyndur,
hafði gagnrýnt stefnu kanslarans
harðlega en hann gekk þó ekki svo
iangt að bjóða sig fram gegn honum.
Carl I. Hagen, formaður Framfaraflokksins, fagnar sigri í norsku
þingkosningunum á mánudag. Flokkur hans tífaldaði fylgi sitt.
Alræði júgóslavneskra
kommúnista afiiumið?
Bclgrad. Keuter,
STJORNVÖLD í Júgóslavíu
hyggjast fylgja fordæmi Pólverja
og Ungverja á stjórnmálasviðinu
og afiiema alræði eins flokks,
kommúnistaflokksins, í landinu.
Ivan Birgic, sem á sæti í stjórn-
máladeild júgóslavneska komm-
únistaflokksins, skýrði frá þessu í
ræðu er hann flutti á íúndi mið-
stjórnar flokksins á mánudag.
Birgic sagði í ávarpi sínu að um-
bætur þessar yrðu leiddar \ lög í
nýrri stjórnarskrá Júgóslavíu. í henni
yrði m.a. kveðið á um að kommúni-
staflokkurinn hefði engu sérstöku
forystuhlutverki að gegna á vett-
vangi hugmyndafræði og stjórnmála.
Svo sem alkunna er hafa nú bæði
Pólvetjar og Ungveijar hafnað þess-
ari skilgreiningu á hlutverki komm-
únista í mannlegu samfélagi.
Ivan Birgic sagði að þess í stað
væru ráðamenn flokksins tilbúnir til
að keppa við „hugmyndafræðileg öfl
í samfélaginu" á jafnréttisgrundvelli.
Kommúnistar hafa verið við völd
í Júgóslavíu allt frá lokum síðari
heimsstyijaldarinnar en stjórnvöld
þar í landi hafa þó ætíð fylgt sjálf-
stæðri stefnu og standa Júgóslavar
þannig m.a. utan Varsjárbandalags-
ins.