Morgunblaðið - 13.09.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.09.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1989 27 Alfreð Pálsson Akureyri — Minning Fæddur 16. janúarl911 Dáinn 20. ágúst 1989 Ég lít á það sem mikinn heiður að hafa átt Alfreð Pálsson sem kunningja og vin. Leiðir okkar lágu saman um það leyti sem ég varð þingmaður fyrir Norðurlandskjör- dæmi eystra árið 1978. Alfreð sýndi mér hlýju og ljúfmennsku, sem var mér mjög dýrmæt í nokkuð fram- andi heimi stjórnmálabaráttu á meðal fólks, sem margt hafði ástæðu til að vera á varðbergi gagn- vait „sendimönnum að sunnan". Alli Páls reyndist mér vel, en samverustundirnar hefðu mátt vera fleiri. Ég bar mikla og djúpa virð- ingu fyrir þessum ljúfa dreng og heiðursmanni, sem var svo vamm- laus í öllu sínu lífi að þar heyrðist aldrei falskur tónn né féll á skuggi. Myndin af honum er óvenjulega skýr í huga mér. Hann var hávax- inn, þéttur á velli og dagfarsprúð- ur. Framgangan var yfirveguð, en hann gat verið glettinn og spaug- samur, þó sjaldnast á kostnað ann- arra. I minningunni eru drættirnir sterkir og litirnir bjartir. Þegar við minnumst fólks á borð við Alla Páls, detta stundum á blað orð eins og „hetjur hversdagslífs- ins“ eða „hinn trausti alþýðumað- ur“. Hvorug kenningin hefði fallið honum í geð. Ég held að rauði þráð- Garðar Þormar Jóns son — Kveðjuorð Fæddur 20. júní 1969 Dáinn 21. ágúst 1989 Við viljum hér með minnast vinar okkar Garðars Jónssonar sem lézt aðfaranótt mánudags 21. ágúst. Það kom eins og reiðarslag yfir okkur þegar okkur var sagt að Garð- ar væri dáinn. Hvernig áttum við að trúa því að hann hafi verið burtkall- aður svo snögglega — hann sem var aðeins tvítugur og í blóma lífsins. Garðar var góður vinur vina sinna. Hann var alltaf svo hress og kátur og það er erfitt að sætta sig við að hann sé horfinn frá okkur öllum. Honum hefur greinilega verið ætlað stærra hlutverk annars staðar. Við eigum margar góðar minningar um Garðar og við söknum hans öll. Við viljum með þessum fátæklegu orðum okkar votta foreldrum hans og systkinum okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning hans. Hjördís, Steini, Jói, Kata og Heiða. urinn í lífi hans hafi verið sá, að skilja betur við hvern þann reit, sem honum var trúað fyrir, en þegar hann tók við honum. Þetta kom __ skýrt fram í öllum verkum hans; í vinnunni, í garðinum, og fjölskyldu- lífinu öllu. Hvorki barði Alli Páls bumbur né hrópaði á torgum. Hann var einn úr hópi þeirra þúsunda kjarnmiklu karla og kvenna, sem mótað hafa undirstöðu hins íslenska samfélags með vinnu sinni og trúmennsku, eljusemi og alúð við hvert handar- verk. Þessi hópur hefur sjaldnast borið úr býtum veraldlegar viður- kenningar, en hlýtur sína umbun í öðrum verðmætum. Alfreð Pálsson og kona hans Aðalheiður Oddgeirsdóttir unnu sín verk með heiðri og sóma.’ Þau skil- uðu til þjóðfélagsins stórum hópi mannvænlegra barna, skópu þeim gott heimili, veittu þeim ást og góð ráð. Betur verður ekki gert. Það verður tómlegra að hafa ekki Alla Páls í næsta húsi við Hamragerði 18. Veiðiferðirnar í Fnjóská verða ekki fleiri. Góður maður er genginn en líf hans allt verður óbrotgjarn minnisvarði um líf einstaklings, eins og við teljum að því verði hvað best lifað. Árni Gunnarsson FLUGBJORGUNARSVEITIN Reykjavik + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEFANÍA INGIBJÖRG ÞORLEIFSDÓTTIR, Sigtúni 39, Reykjavik, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju, miðvikudaginn 13. septem- ber kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Hjartavernd. Sigrfður Þórðardóttir, Björgvin Vilmundsson, Svala Þórðardóttir, Gisli Sveinsson, Sjöfn Þórðardóttir, Árni J. Sigurðsson og barnabörn. FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 ÞARABAKKI 3, SÍMI 670100 HOOVER Compact Electronic 1100 Burt með rykið fyrir ótrúlega lágt verð! k7.990, Stgr. ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA t Faðir minn, stjúpfaðir okkar, tengdafaðir og afi, AÐALSTEINN GÍSLASON, Hábergi 5, Reykjavík, sem andaðist 3. september sl., verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 14. september kl. 13.30. Fríða Björg Aðalsteinsdóttir, Guðmundur S. Guðmundsson, Leifur Jónsson, Anna A. Árnadóttir, Helga Jónsdóttir, Hallgrfmur T. Sveinsson, Ingimundur Jónsson, Kristin Andrésdóttir og barnabörn. t Eiginmaður minn, STEFÁN GEIR ÓLAFSSON, Kambsvegi 27, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 15. september kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigriður Árnadóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG PÉTURSDÓTTIR frá Flatey á Breiðafirði, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík, verður jarðsungin í Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 14. september kl. 15.00. Guðlaug Ólafsdóttir, Sigurþór Þorgrfmsson, Pétur Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og hlý- hug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, SÓLVEIGAR HALLDÓRSDÓTTUR, Kirkjubraut 18, Njarðvfk. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Við þökkum auðsýnda vináttu og samúð vegna fráfalls móður okkar, JÓHÖNNU GUÐLAUGSDÓTTUR. Jónas Kristinsson, Birgir Kristinsson, Guðlaugur Kristinsson. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföð- ur, afa og langafa, INGIMUNDAR BJARNASONAR, Blesugróf 4, Guðrún Guðlaugsdóttir, Ólöf Bára Ingimundardóttir, Guðlaugur Ingimundarson, Sigrfður Þ. Sigurmundsdóttir, Inga Ingimundardóttir, Þórarinn Guðlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför dóttur minnar, stjúpdóttur, móður, tengdamóður og ömmu, ESTHERAR JÓHANNSDÓTTUR, Unufelli 23. Anna B. Sigurðardóttir, Áki Jensson, Anna Ólafsdóttir, Jóhann Ö. Héðinsson, Helga Björnsdóttir, Kristján H. Antonsson, Anna R. Antonsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson, Guðrún Antonsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.