Morgunblaðið - 13.09.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.09.1989, Blaðsíða 14
papf >;i 5fiTp / iy oiivoiv (iIíIAJÖMUOHOM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1989 Verzlunarráð mótmælir háum fjármagnskostnaði: Tekjur ríkis af stimpilgjaldi 6,3% af hagnaði atvinnulífs Áformum um skattlagningu vaxtatekna mótmælt Verzlunarráð íslands sendi í gær fjármálaráðherra bréf, þar sem varað er við skattlagningu á vaxtatekjur einstaklinga, enda muni hún leiða til hærri fjármagnskostnaðar. Þá minnir VI á að stimpilgjald sé skattur, sem leggist á fjármagnskostnað og tekjur af sparifé, hækki fjármagnskostnað og minnki vaxtatekjur sparifjáreigenda. I nýrri við- bót við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að stefht skuli að því að auka sparnað og lækka vexti og fjármagnskostnað. „Skattlagning vaxtatekna af sparnaði einstaklinga er alls ótíma- bær eins og ástandið er nú á íslenzk- um fjármagnsmarkaði," segir í bréfi Verzlunarráðs. Þar er einnig vikið að hugmynd um skattlagningu vaxtatekna lífeyrissjóða og hún köll- uð „ein skaðlegasta hugmynd sem fram hefur komið í umræðum um skattamál á íslandi frá því að íslenzk stjórnvöld hófu umfjöllun um skatta- mál.“ Verzlunarráð bendir á að stimpil- gjald skili á þesu ári 1710 milljónum króna í ríkissjóð samkvæmt fjárlög- um. „Bæði stimpilgjald og tekju- skattur á vaxtatekjur einstaklinga auka bilið milli þess sem atvinnulífið greiðir í fjármagnskostnað og þess sem sparifjáreigandinn fær til sín,“ segir í bréfinu. „Stimpilgjald er t.d. 2% af hluta- bréfum, sem hefur þær afleiðingar að mörg hlutafélög veigra sér við að gefa út hlutabréf. Stimpilgjald af skuldabréfum er 1,5% sem að sjálf- Skattur á lífeyrissjóðina; Tilræði við kjör aldr- aðra verkamanna - segir Karl Steinar Guðnason KARL Steinar Guðnason, alþingismaður, segist algerlega andvígur hugmyndum um að skattleggja iðgjöld og vaxtatekjur lífeyrissjóð- anna. Segir hann að slík skattheimta væri tilræði við kjör aldraðra félaga í verkalýðshreyfingunni. Nefnd, sem hefur fyrir hönd stjórnvalda fjallað um skattlagn- ingu fjármagnstekna, hefur reifað þá hugmynd, að skattur verði lagð- ur á vaxtatekjur og iðgjöld lífeyris- sjóða. Karl Steinar telur þessa hug- mynd fráleita og segir að skatt- heimta af þessu tagi muni ekki vera_ í bígerð. „Ég mun aldrei ljá máls á aðgerð- um af þessum toga,“ segir Karl Steinar. „Með' þeim væri verið að lækka eftirlaunatekjur almenns verkafólks á meðan opinberir starfsmenn hefðu fulla tryggingu fyrir sínum lífeyrisréttindum. Það þarf miklu frekar að auka lífeyris- rétt verkafólksins og breyta lífeyris- sjóðakerfinu þannig að það verði einfaldara og skilvirkara." sögðu hækkar fjármagnskostnaðinn og gjald af víxlum er 0,25%. Fyrir- tæki sem veltir skammtíma skulda- bréfi á sex mánaða fresti eða víxli mánaðarlega greiðir jafnvel yfir 4% á ári í skatt til ríkisins í formi stimp- ilgjalds. Þetta gjald er þannig stór hluti af kostnaði við íjármagn. Raun- vextir af fjármögnun á 30 daga við- skiptavíxlum er nú um og yfir 20%. Því er það verulega íþyngjandi fyrir atvinnulífið þegar um 20% af þessum raunvaxtaþætti getur verið skattur til ríkisins," segir í bréfi Verzlunar- ráðs. Bent er á að fyrirtæki sem mánaðarlega velti 100.000 króna víxli í eitt ár geti í raun ekki notað nema um 69.000 krónur af honum miðað við núverandi kjör. Um 31 þúsund fari í vexti og kostnað og þar af um 3.000 krónur í stimpil- gjöld, eða 4,3% af upphæðinni, sem nýtist fyrirtækinu. VI tekur annað dæmi. „Rekstrar- afgangur alls atvinnulífs á íslandi fyrir fjármagnskostnað verður á þessu ári væntanlega um 27.000 milljónir króna. Tekur ríkissjóðs af stimpilgjaldi eru 6,3% af þessari upp- hæð. Tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti einstaklinga á þessu ári samkvæmt fjárlögum eru 8.200 milljónir króna. aætlað er að öll laun og launatengd gjöld á íslandi í ár verði um 153.000 milljónir króna þannig að tekjuskatt- ur til ríkisins er 5,3% af þeirri upp- hæð. Stimpilgjaldið hefur því svipað vægi gagnvart tekjum af sparifé og íjármagnskostnaði atvinnulífsins og tekjuskattur einstaklinga hefur gangvart launatekjum heimilanna og launakostnaði atvinnulífsins." í bréfinu er loks bent á að sölu- skattur af innheimtukostnaði lög- manna leggist við fjármagnskostnað. „Það gleymist oft að þeir lögmenn sem stunda innheimtu eru í vinnu hjá þeim sem skulda," segir Verzlun- arráð. FYRSTI áfangi endurbyggingar Bessastaðastofú er hafinn. Rífa á þak- hæð og kvisti hússins og endurbyggja það í óbreyttri mynd, að því undanskildu að austurkvisturinn á að hverfa og vesturkvistinum verð- ur breytt nokkuð. Verkinu á að ljúka snemma næsta sumar. Síðastliðið vor voru samþykkt á Alþingi lög um endurbætur og framt- íðaruppbyggingu forsetasetursins á Bessastöðum. Þar segir meðal ann- ars að ljúka skuli viðgerðum og end- urbyggingu Bessastaðastofu fyrir árslok 1990. Fyrir þann tíma eigi einnig að ljúka gerð heildaráætlunar um nýtingu lands og uppbyggingu mannvirkja á staðnum.. Samþykkti Alþingi, að allt að 50 milljónum króna yrði varið til þessara verkefna í ár. Nú er áformað að rífa þakhæð og kvisti Bessastaðastofu og loft yfir fyrstu hæðinni, en burðarviðir eru illa famir af fúa og leki kominn að þaki og kvistum. Gert er ráð fyrir að vesturkvistur hússins verði hlað- inn að nýju nokkuð breyttur, en aust- urkvisturinn á að hverfa. Að öðru leyti á að endurbyggja þakið í óbreyttri mynd og verður rishæðin jafnframt innréttuð að nýju. Áætlað er að þessu verki ljúki snemma næsta sumar og hefur ístaki hf. verið falin framkvæmdin. í nefnd, sem annast áætlanagerð og framkvæmdir á Bessastöðum sitja Baldvin Tryggvason, Gunnar Hall og Helgi Bergs. Pétur Stefánsson, verkfræðingur, er verkefnisstjóri en arkítektar þeir Þorsteinn Gunnars- son og Garðar Halldórsson, húsam- eistari ríkisins. Borgarráð: Islenskt nafn á Broadway BORGARRÁÐ hefúr samþykkt til- lögu íþrótta- og tómstundaráðs um að efút verði til hugmyndasam- keppni um nýtt nafn á Broadway. I tillögunni segir: „Eins og kunn- ugt er hefur Reykjavíkurborg keypt veitingahúsið Broadway við Álfa- bakka. íþrótta- og tómstundaráð mun taka við rekstri hússins frá og með 1. nóvember næstkomandi. Hér með er auglýst eftir tillögu um íslenskt nafn á staðinn." Morgunblaöid/Bjarni Guðmundur Jónsson, verkstjóri við endurbæturnar á Bessastaða- stofú, sýnir skemmdir á þaki hússins. Endurbætur á Bessa- staðastofu hafiiar Nefiid menntamálaráðherra um innra starf framhaldsskóla: Allir nemendur útskrifist að loknu tveggja ára námi Hægt verður að skrá sig til framhaldsnáms til stúdents- eða sveinsprófs að því loknu SVAVAR Gestsson menntamalaráðherra kynnti í gær tillögur nefndar um innra starf framhaldsskóla og starfshóps um iðn- fræðslu, sem starfað hafa frá áramótum, um breytingar á fram- haldsskólakerfinu. í tillögum nefúdanna er meðal annars lagt til að reynt verði að bjóða upp á Qölbreyttara nám í framhaldsskólun- um, bæði að lengd og efni, þannig að fleiri finni nám við sitt hæfí. Nefndin leggur til að allir framhaldsskólanemendur útskrif- ist eftir tveggja ára nám, en síðan geti menn skráð sig til lengra náms ef þeir vilja. Á blaðamannafundi mennta- málaráðherra kom fram að nú eru um það bil 15.500 nemendur í öllum framhaldsskólum landsins, þar af um 40% á fyrsta námsári. Um þriðjungur skráðra nemenda í framhaldsskólum lýkur stúd- entsprófi og um fjórðungur sveinsprófi. Um 75% 16 ára ár- gangsins fara nú í framhalds- skóla. Ef allur árgangurinn færi. í framhaldsskóla og lyki námi án umtalsverðra. tafa, allir tveggja ára námi og tyeir þriðju fjögurra ára námi, yrðu nemendur í fram- haldsskólum um 16.000, að mati ráðuneytisins. í fyrra voru um 15.100 manns í framhaldsskólanámi. Um 19% hættu námi eftir fyrstu önn. Fram kom jafnframt að 16% skráðra eininga í framhaldsskólunum nýttust ekki þar sem nemendur féllu í faginu eða mættu ekki. Tíu af hundraði nemenda þurftu að sitja í sama áfanga tvisvar eða oftar. Þetta þykir meðal annars bera vott um að framhaldsskólakerfið henti ekki öllum eins og það er nú. Nefnd menntamálaráðherra leggur áherzlu á að framhalds- skólinn eigi að vera opinn öllum, sem lokið hafi grunnskólaprófi, og það þýði að allir þurfi að geta fundið nám við sitt hæfi. Nefndin leggur til að framhaldsskólanámi verði skipt í kjama og val. Kjarn- inn verði með þrennu móti og aukist að umfangi eftir því sem námið í heild verði umfangsmeira. Bæði verði hægt að velja um braut og einstaka áfanga. „Lögð er höfðuáherzla á að nemendur lendi aldrei í blindgötu í námi sínu,“ segir i skýrslu nefndarinnar. í náminu leggur nefndin til að verði þrenns konar kjami. Kjarni I í eins til þriggja anna námi sam- anstandi af sex einingum í „sam- skiptum og tjáningu" og sex ein- ingum í list- og verkgreinum, samtals tólf einingum. Kjarni II í fjögurra til sex anna námi verði alls 35-45 einingar. Við Kjama I bætist nám í íslenzku, stærfræði, erlendum tungumálum, samfé- lagsgreinum, náttúmfræðigrein- um og íþróttum. Kjami III í sjö til átta anna námi samanstandi af sömu greinum og Kjami II, en nám í hverri fyrir sig verði aukið þannig að kjarninn verði alls 81 eining. Valfög geta síðan verið mjög margvísleg, og em undir hverjum skóla um sig komin. í tillögum nefndarinnar er gert ráð fyrir því áð stúdentspróf verði áfram við lýði, en æskilegt sé að þróunin verði sú að þeir skólar, sem hingað til h afi skilgreint stúdentspróf sem inntökuskilyrði fari í meira mæli að skilgreina þau án tilvísunar í stúdentspróf. Nefndin leggur til að komið verði á eins til tveggja anna at- vinnulífsnámi þar sem um helm- ingur námsins verði starfsnám á vinnustað. Gerður verði samning- ur um starfsnámið á milli skóla, nemanda og vinnustaðar. Brautir af þessu tagi hafa þegar hafið starfsemi sína fyrir nokkmm dög- um, önnur í Fjölbrautaskóla Suð- urlands á Selfossi, og hin í Pjöl- brautaskóla Suðurnesja í Keflavík. Ef tillögur nefndarinnar ná fram að ganga verður í fyrsta lagi hægt að útskrifast úr fram- haldsskóla eftir einnar .eða tveggja anna atvinnulífsnám, með skírteini um atvinnulífsnám og lýsingu á þeirri leikni, sem nem- andinn hefur öðlast. í öðm lagi ljúki allir nema þeir, sem fara á atvinnulífsbraut, fjögurra anna eða sjötíu eininga námi. í sumum tilfellum verður þar um að ræða almennt bóknám, sem nýtist til áframhaldandi náms til stúdents- prófs, en í öðmm nám á skil- greindum brautum, sem litið sé á sem undirbúning fyrir ákveðin störf (sambærilegt við verzlunar- próf), eða sem inntökuskilyrði í sérskóla. í þrjðja lagi geta iðn- nemar sem stunda meira en 70 eininga nám innan skólans út- skrifast með skírteini um að hafa lokið þeim þáttum námsins, bók- legum og verklegum, sem fram fara í skóla, en sveinspróf á veg- um atvinnulífsins verði áfram lokapróf í iðnnámi. I fjörða lagi er svo hægt að Ijúka 140 eininga bóknámi til stúdentsprófs. í tillögum nefndarinnar er einn- ig lagt til að nám verði tekið upp í nýjum iðngreinum, þar á meða matvælaiðnaði, plast- og fjölliðu- iðnaði, vefjariðnaði, efnaiðnaði og fleiru. Hún gerir einnig tillögur um námsskrárgerð verði sam- ræmd í öllum framhaldsskólum, þar á meðal iðnskólum. Komið verði upp þjónustumiðstöð fyrir framhaldsskóla þar sem fyrir liggi til kynningar allt námsefni, sem er á boðstólum og kynnt verði þróunarstarf og nýjungar. Námsr- áðgjöf verði stóraukin þannig að einn námsráðgjafi verði á hveija 300-400 nemendur. Þá er lagt til að menntamálaráðuneytið fylgist grannt með þeirri þróun sem nú á sér stað í samræmingu náms í Evrópu á vegum Evrópubanda- lagsins og EFTA og leitist við að aðlaga þróuninga íslenzkum að- stæðum. í gær voru forráðamönnum allra framhaldsskóla kynntar til- lögur nefndarinnar. Fulltrúar menntamálaráðherra munu síðan fara í alla skólana og kynna þær nánar fyrir starfsliði þeirrá í dag verður fundað með fulltrúum Vinnuveitendasambandsins um þann hluta, sem snýr að atvinn- ulífinu. Menntamálaráðherra sagði á blaðamannafundinum að mikil umræða um tillögurnar væri nauðsynleg og þær ættu eflaust eftir að taka breytingum. Einnig væri ljóst að mikil samningavinna, til dæmis við fulltrúa atvinnulffs- ins, væri nauðsynleg ættu þær að ganga fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.