Morgunblaðið - 13.09.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1989
5
For sætisráðuneytið;
Helga Jónsdóttir ráð-
in skrifstofiistjóri
HELGA Jónsdóttir heftir verið
ráðin skrifstofustjóri í forsætis-
ráðuneytinu frá 1. september sl.
Helga er 36 ára, fædd 22. mars
1953. Hún lauk prófi í lögfræði frá
Háskóla íslands árið 1978 og starf-
aði að því loknu sem fulltrúi í dóms-
málaráðuneytinu og skiptarétti
Reykjavíkur. Frá 1983-1987 var
hún aðstoðarmaður forsætisráð-
herra og frá 1987-1988 aðstoðar-
maður utanríkisráðherra.
Helga tekur nú við nýju starfi
innan forsætisráðuneytisins og er
annar tveggja skrifstofustjóra þar,
en hinn er Gísli Árnason. Hún mun,
auk daglegra stjórnunarstarfa,
einnig vera ritari á ríkisstjórnar-
fundum, eins og verið hefur frá 1.
ágúst.
Helga Jónsdóttir er gift Helga
H. Jónssyni, fréttamanni, og eiga
þau þrjú börn.
Verkfall boðað í álverinu:
Starfsmenn ISAL
telja sig ekki hafa
fylgt launaþróun
STJÓRNIR og trúnaðarmannaráð tíu hlutaðeigandi verkalýðs-
félaga í álverinu í Straumsvík fúnduðu í gær og munu fúnda í dag
um boðun verkfalls, sem gert er ráð fyrir að taki gildi frá og með
fimmtudeginum 20. september hafí samningar ekki tekist fyrir
þann tíma. Gert er ráð fyrir að
til fúndar fyrir helgina.
Vinna stöðvast þó ekki fyrr en
tveimur vikum eftir að verkfall
skellur á samkvæmt samkomulagi
þar um. Á þessum tveimur vikum
er álhæðin í kerunum lækkuð og
straumurinn jafnfi'amt minnkaður
í þrepum. Það er gert til að draga
eins og kostur er úr skaða ef til
framleiðslustöðvunar kemur, en
við það storknar ál í kerjunum og
þau eyðileggjast.
Deilan snýst í meginatriðum um
viðmiðanir, en starfsmenn telja sig
hafa dregist aftur úr í launaþróun-
inni, auk þess sem fyrirtækið
standi mjög vel. Svonefnd ÍSAL-
vog var útbúin í tengslum við
kjarasamninga í álverinu 1986, en
hún samanstendur af launum sam-
anburðarstétta á almennum vinnu-
markaði. I viðræðum um kjara-
samninga 1988 höfnuðu vinnu-
veitendur ÍSAL-voginni alfarið þar
sem þeir töldu að hún feldi í sér
víxlverkunaráhrif. Þar stóð hnífur-
inn í kúnni, þar til bráðabirgðalög
þáverandi ríkisstjórnar bundu
enda á frekari viðræður, en þá
blasti framleiðslustöðvun við í ál-
verinu.
Vinnuveitendur hafa í engu
breytt afstöðu sinni í þessum efn-
um, en verkalýðsfélögin hafa viljað
halda sig við ÍSAL-vogina sem
viðmiðun. Þau telja að laun í álver-
ríkissáttasemjari boði deiluaðila
inu hafi dregist aftur úr launum
samanburðarhópa. Gylfi Ingvars-
son, aðaltrúnaðarmaður starfs-
manna i álverinu, sagði það hins
vegar samningsatriði hvað það
væri leiðrétt á löngum tíma, en
nú væri verið að ræða samning
til skemmri tíma en verkalýðs-
félögin hefðu lagt upp með í byrj-
un, enda hefðu þau talið að áhugi
væri hjá fyrirtækinu á því að semja
til lengri tíma. Ef menn héldu að
ÍSAL-vogin sem viðmiðun mældi
rangt, þyrfti að finna leiðir til að
lagfæra hana.
„Það er slæmt þegar menn ná
ekki saman, en það er ekki öll
nótt úti enn. Við vonumst til þess
að þrátt fyrir allt náist samningar
áður en til verkfalls kemur, en
staðan er vissulega orðin alvar-
leg,“ sagði Gylfi Ingvarsson enn-
fremur.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands Islands, en VSÍ fer með
samningsumboð fyrir íslenska ál-
félagið, sagðist vera mjög
áhyggjufullur yfir þeirri stefnu
sem deilan hefði tekið og það
skipti miklu máli hvernig til tæ-
kist með framhaldið. Deilan færi
nú til ríkissáttasemjara og Vinnu-
yeitendasambandið hlyti að vona
að þar næðist niðurstaða sem báð-
ir aðilar gætu unað við.
Forseti Islands hlýtur
friðarverðlaun kvenna
Á MÁNUDAG í næstu viku kemur hingað til lands Maria Pia
Fanfani, eiginkona Amintore Fanfani, sem árum saman var forsæt-
isráðherra Ítalíu og gegndi embætti forseta ítalska þingsins. Mar-
ia Pia Fanfani er forsvarsmaður friðarstofiiunar Women for Pea.ce
Together for Peace Foundation sem aðsetur hefúr í New York.
Kemur hún í þeim tilgangi að aíhenda með viðhöfii forseta Is-
lands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, friðarverðlaun fyrir störf í þágu
friðar á síðasta ári.
Þrjár konur í heiminum eru
heiðraðár með friðarverðlaunum
stofnunarinnar fyrir árið 1988, en
það eru auk Vigdísar Finnboga-
dóttur Raisa Gorbatsjova og Nan-
cy Reagan. Maria Fanfani, sem
er einn af forsetum alþjóða Rauða
krossins, kom til íslands fyrir réttu
ári með eiginmanni sínum, Amint-
ore Fanfani, fjárlagaráðherra, er
þau voru á leið til Kanada. Hún
hitti þá forystumenn Rauða kross-
deildar íslands og var þeim boðið
til hádegisverðar á Þingvöllum
ásamt forseta íslands og
Steingrími Hermannssyni sem þá
gegndi embætti utanríkisráðherra.
Frú Fanfani kemur hingað til
lands í einkaþotu frá Róm ásamt
átta manna fylgdarliði og hefur
sóiarhrings viðdvöl.
Smáskífa Sykur-
molanna í 55. sæti
SMÁSKÍFA Sykurmolanna, og menn bjuggust við.
Regína, sem út kom í Bretlandi Ein skýring sem gefin var var
4. september sl., fór í 55. sæti sú að smáskífan kom ekki út á
breska vinsældalistans og hafa geisladiski fyrr en sl. mánudag. I
hátt í 30.000 eintök selst af plöt- samtali við taismann útgáfufyrir-
unni. Samkvæmt söluspá sem tækis hljómsveitarinnar kom fram
gerð var um miðbik vikunnar að menn þar reiknuðu með að plat-
töldu menn að platan myndi an ætti eftir að fara þó nokkuð
lenda í 40. til 44. sæti, en salan hærra eftir að geisladiskurinn kom
í vikulokin var ekki eins mikil út.
Gæði og ending
Miele
heimilistækjanna
eru í rauninni
stórkostleg verðlækkun
Helga Jónsdóttir.
Miele