Morgunblaðið - 13.09.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1989
23
jtjörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Veikleikar Krabbans
í dag ætla ég að fíalla um
veikleika Krabbamerkisins
(21. júní—22. júlí). Það þýðir
að eftirfarandi umfjöllun
verður neikvæð, en þýðir ekki
að merkið búi ekki yfir já-
kvæðri hlið. Einnig er rétt
að geta þess að þar sem við
höfum frjálsan vilja, getum
við, ef við þekkjum veikleika
okkar, forðast þá og yfirunn-
ið, á sama hátt og við getum
eflt hæfileika okkar ef við
viljum og erum reiðubúin að
leggja á okkur vinnu.
ímyndunarveiki
Krabbinn er innhverft tilfinn-
ingamerki, sem þýðir að hann
lifir töluvert í innri heimi til-
fínninga og ímyndunarafls.
Hann hugsar mikið og dregur
þá gjarnan upp myndir af
fólki, atburðum, fortíðinni og
því sem gæti gerst í framtíð-
inni. Þetta er ágætur eigin-
leiki enda má t.d. geta þess
að flestir Nóbelsverðlauna-
hafar í bókmenntum eru í
Krabbamerkinu. Ef ekki er
að gáð getur þetta hins vegar
leitt til ákveðinna vand-
kvæða. Hættan er sú að of
mikill tími fer í ímyndunar-
aflið. Það þýðir að sumir
Krabbar eiga til að festast í
fortíðinni eða hugsa of mikið
um framtíðina í stað þess að
lifa hér og nú. ímyndunin
getur t.d. búið til mótspyrnu
þar sem engin er og fyrir
vikið þorir Krabbinn ekki að
framkvæma, eða verður
a.m.k. of varkár.
Feimni
Annar frægur veikleiki
Krabbans er feimni. (Það á
ekki síður við um þá sem eru
með Krabba rísandi). Senni-
lega stafar þessi feimni af
næmleika og varkárni.
Krabbanum er t.d. illa við að
særa aðra og því fer hann
varlega. Sterkum tilfinning-
um fylgir viðkvæmni og
hætta á að láta særa sig of
auðveldlega. Sumir Krabbar
eru og mislyndir og vorkenna
sjálfum sér þegar illa gengur
og eiga til að velta sér upp
úr vandamálum.
Öryggisþörf
Almennt þarf Krabbinn
öry'ggi. Það á síður við ef
Júpíter eða Úranus eru sterk-
ir í korti hans, en á við um
hinn dæmigerða Krabba. Það
getur leitt til þess að Krabb-
inn þorir ekki að breyta til
og festist í viðjum vanans.
Öryggisleysi
Sama öryggisþörf getur leitt
til aðhaldssemi og jafnvel
nísku. Ef hann er á einhvern
hátt óöraggur, þá þorir hann
ekki að eyða peningum eða
kasta frá sér gömlum hlutum
sem þó hafa gengið úr sér.
Fyrir vikið eru Krabbar
stundum haldnir all einkenni-
legri söfnunarnáttúru.
Safnarupp
Að lokum má geta einnar til-
hneigingar Krabbamerkisins.
Hún er sú að hann á til að
byrgja inni í sér tilfinningar
og safna upp óánægju. í stað
þess að ræða hvert atvik fyr-
ir sig á hann til að gusa allri
súpunni úr í einu, án raka
og skiljanlegs samhengis.
Krabbinn þarf því að læra
að koma hveiju einstöku
máli frá sér strax, án þess
að blanda tilfinningum og
rökum saman. Að endingu
vil ég ítreka það að framan-
greint á fyrst og fremst við
um veikleika hins dæmigerða
merkis. Hver maður á sér
mörg merki sem einnig hafa
áhrif og þó veikleikar séu
fyrir hendi þá eru margir sem
hafa yfirstigið þá.
GARPUR
A/Ú ER BANNSETT \
L JÓ SFZlTVHAfiVél- /N
BU-UÐ.'.-þAÐ J
EKkíl T/L K'E/MS g
GARPUR. 1//Ð F/NNUAjv
L/EPU ALOREI.
GRETTIR
BRENDA STARR
L ep <yy aONAPAR TE.
H/ETT/£> /}£> PElA Y/FKUg
GOSAR'
öokasafm
pohtwew-
THEBOOtcSl
vv
EN EFþEIR. B/RTa TAKTO 8ARA
/HYHOIP AFOKKUR I ^>-JÉVr/F
BLOSS/VJUM, LEpry
' J=F) l/EEE/UR ÞÚ
^Aldre/ R'AD/N
l’l l\Vv /OW Rníó' I
UÓSKA
ILr , Nji/ii „ . 1 Tllllí,
FERDINAND
(am.. 46 ^ | © 1939 v. | \ f fj / \ ''/NJ |
HEV(GUIPE! JU5T 50Y0U
KNOUJ..IF YOU 6ET U5 L05T,
UJE'RE 60NNA 5UEÍ
i 8»
-d-zz
Heyrðu, leiðsögnmaður! Bara svo
að þú vitir það, ef við höfum villst,
þá ætlum við að lögsækja þig.
Eg tek málið að mér.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Það er næstum því þess virði
að gera sér ferð til Reykjavíkur
til að fá tækifæri til að beita
slíkri brellu,“ segir Frank Stew-
art, bandarískur bridsbókahöf-
undur, í lok umfjöllunar sinnar ,
um spil, sem virðist hafa komið
upp á Flugleiðamótinu fyrir all-
mörgum árum. Sjálfur hefur
hann aldrei komið, og hlýtur þvi
að hafa fengið spilið frá ein-
hveijum samlanda sínum, sem
lagði á sig svo strembið ferða-
lag. Og uppskar þetta tækifæri:
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ ÁKG94
VÁIO
♦ 652
♦ DG5
Vestur
Austur
♦ 62 ♦ D1085
¥732 lllllí ¥ KG9
♦ K108 ♦ D73
♦ K108673 Suður ♦ 73 ¥ D8654 ♦ ÁG94 ♦ 942
♦ A8 -
Vestur Norður Austur Suður
— 1 spaði Pass 2 hjörtu
Pass 2 spaðar Pass 2 grönd
Pass Pass 3 grönd Pass Pass
Útspil: laufsexa.
Sögurmaður er í austur.
Sagnhafi átti fyrsta slaginn á
drottningu blinds og lagði niður
hjartaás. Hann hugðist prófa
hjartað fyrst, en snúa sér að
spaðanum ef það brygðist. Ágæt
áætlun, sem austur kæfði í fæð-
ingu með því að láta hjartakóng-
inn undir ásinn!
Frá sjónarhóli aústurs er dag-
ljóst að hjartaliturinn skilar
sagnhafa 4 slögum. Því verður
umfram allt að fæla hann frá
því að spila litnum áfram. Og
með G9 kostar ekkert að fórna
kóngnum.
Blekkingin gekk upp, því
sagnhafi spilaði næst tígli heim
á ás og svínaði spaðagosa. Ferð-
in hafði þá ekki verið til einskis.
SKÁK
Umsjón-Margeir
Pétursson
Á heimsmeistaramóti unglinga
20 ára og yngri, í Tunja í Kól-
umbíu, sem lauk um mánaðamótin,
kom þessi staða upp í skák Van
Wely, Hollandi, sem hafði hvítt og
átti leik, og Huda, Kanada.
30. Hxf2! — H8f6 (Svartur sættir
sig við mannstap og hefði eins get-
að gefist upp, en eftir 30. — Hxf2,
31. g6 - Hfl+, 32. Kg2 - H8f2+,
33. Kg3 getur hann ekki forðað
máti) 31. Hxf5 — Hxf5,32. Dh3
— g6,33. Dh6 og skömmu síðar
gaf svartur. Heimsmeistari ungl-
inga varð áður óþekktur Búlgari,
Wasil Spassov, sem hlaut 9% v. af
13 mögulegum og var hærri að
stigum en Pólveijinn Gdanski, sem
hlaut jafnmarga vinninga. Næstir
komu Sovétmennimir Ulybin og
Dreev og Svíinn Wessmann, sem
hlutu allir 9 v. Mótið var ekki nærri
eins sterkt og í fyrra og var ung-
verska stúlkan Zsusza Polgar, elsta
Polgarsystirin, talin einna sigur-
stranglegust Hún varð að láta sér
nægja TA v. og varð i 11,—16.
sæti. Ketevan frá Sovétríkjunum
sigraði í stúlknakeþpninni, hlaut
1 llá v. af 13 mögulegum, en Madl,
Ungvetjalandi varð önnur með 11
v. Þær tvær voru í sérflokki.