Morgunblaðið - 13.09.1989, Side 28
1 MORGUNBLftÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1989
í^8
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Skiptinemar þeir sem voru á námskeiði á Selfossi á vegnm AFS á íslandi þar sem þeir voru búnir
undir ársdvöl hjá íslenskum fjölskylduni.
NÝTT LAND
Skiptinemar á námskeiði
Undirbúningsnámskeið fyrir
skiptinema, sem dvelja hér á
landi á vegum AFS á íslandi næsta
árið, var haldið í Gagnfræðaskólan-
um á Selfossi fyrir skömmu. Nem-
arnir dvöldu allir hjá fjölskyldum á
Selfossi meðan á námskeiðinu stóð.
25 skiptinemar frá Bandaríkjun-
um, Mexíkó, V-Þýskalandi, Belgíu
og Ghana verða hér á landi næsta
árið á vegum AFS á íslandi. Þeir
verða hjá fjölskyldum út um allt land
og munu allir stunda nám í fram-
haldsskólum.
A námskeiðinu á Selfossi fengu
skiptinemarnir íslenskukennslu,
þeim voru kynntir siðir og venjur
Islendinga, lærðu um skólakerfið og
farið var yfir reglur AFS. Þar fengu
þeir einnig tækifæri til að kynnast
hveijir öðrum.
Halldóra Kristín Gunnarsdóttir á
Selfossi sá að mestu um að finna
„fósturfjölskyldur" þær sem nemarn-
ir voru hjá námskeiðsdagana en
starfsfólk og sjálfboðaliðar AFS sáu
um framkvæmd námskeiðsins að
öðru leyti.
Tuttugu og sjö íslenskir unglingar
hafa verið á vegum félagsins á suður-
hveli jarðar frá því í byijun þessa
árs og 64 verða næsta árið í Banda-
ríkjunum og Evrópu. íslendingarnir
búa allir hjá fjölskyldum og ganga
í skóla eins og nemamir gera sem
eru hér.
Sig.Jóns.
BLOMABAÐ
Danadrottning
blómum skreytt
Margrét Þórhildur Danadrottning er list-
ræn kona og þekkt fyrir sköpunargleði
og smekkvísi. Hún er afskaplega hrifin af blóm-
um og er gjarnan í kjólum með blómamynstri.
A þessari mynd hefur hún ekki látið það nægja
heldur skreytt hár sitt með lifandi blómum,
hvítum rósum og grænum blöðum.
Angela og Tony Ijá hvort öðru
ást sína í þáttunum „Hver á að
ráða?“
RÓMANTÍK
*
Ahorfendur
vildu
ástar-
samband
Gamanþættirnir „Hver
á að ráða?“ sem sýnd-
ir eru í ríkissjónvarpinu
eiga sinn trygga áhorf-
endahóp. Margir hafa gam-
an af að fylgjast með sam- Leikannn Tony Danza er giftur og á
bandi söguhetjanna Angelu dótturina Katie sem er tveggja ára með
og Tonys, en þau laðast eiginkonu sinni Tracy.
greinilega hvort að öðru en
hafa hingað til ekki þorað að láta tilfínningar sínar í ljós. Framleiðendur
þáttanna hafa fylgst vandlega með bréfum þeim sem bandarískir sjón-
varpsáhorfendur senda þeim og þeir hafa tekið eftir að nú finnst áhorfend-
um kominn tími til að eitthvað fari að gerast í ástarmálunum á heimil-
inu. Því hefur verið ákveðið að í þeim þáttum sem verða framleiddir í
vetur muni Angela auglýsingaforstjóri og heimilishjálpin hennar, hann
Tony, tjá hvort öðru ást sína. En þar sem Tony vill mennta sig og fara
í háskóla þá verður ekkert úr hjónabandi þeirra strax.
SJÓNVARP
Hin
velklædda
Murphy Brown
Candice Bergen sem leikur
Murphy Brown í samnefndum
sjónvarpsþáttum þykir ein best
klædda konan í bandaríska sjón-
varpinu. Murphy er sjónvarpsfrétta-
kona sem hefur munninn fyrir neðan
nefið og þættirnir um hana njóta
mikilla vinsælda vestan hafs. Margar
raunverulegar fréttakonur hafa tekið
fatastíl hennar til fyrirmyndar og
klæðast rúllukragabolum, jökkum í
sterkum litum og eru með stóra ein-
falda skartgripi. Þættirnir um Murp-
hy Brown verða á dagskrá Stöðvar
2 síðar í þessum mánuði.
Morgunverðarfundur fimmtud. 14. sept.
Atvinnulíf ið í samdrætti
Á morgunverðarfundi VÍ fimmtudaginn 14. sept.
kl. 8.00-9.30, í Skálanum, Hótel Sögu, verðurfjall-
að um ástand og horfur í íslensku atvinnulífi.
Frummælendur verða:
- Sigurður B. Stefánsson, er flytur framsögu er
nefnist „Fjármagnsmarkaður: Lækkar fjár-
magnskostnaður?"
- Einar Oddur Kristjánsson, „Vinnumarkaður: Eru
raunhæfir samningar mögulegir?"
- Vilhjálmur Egilsson: 1990, samdráttar og verð-
bólguár?
Að loknum framsöguerindum verða umræður, en
fundinum mun Ijúka kl. 9.30.
Þátttökugjald kr. 500, morgunverður innifalinn.
Þátttaka tilkynnist til Verslunarráðs íslands, sími
83088.
VERSLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
FRAMHJÁHALD
Tom Jones
orðinn einn á báti
Söngvarinn og hjartaknúsar- konum sem vilja óðar og upp-
inn Tom Jones er nú einn á vægar hugga hann eftir skilnað-
báti eftir að eiginkona hans, inn.
Linda, sagði skilið við hann eftir
32 ára hjónaband. Hún sætti sig
ekki við framhjáhald eiginmanns-
ins og krefst nú helmings eigna
þeirra hjóna eða um 750 milljóna
króna.
Fyrr í sumar var Tom Jones
dæmdur faðir lítils drengs í New
York og byggðist sá dómur á nið-
urstöðu blóðprufu en söngvarinn
neitaði því að hafa nokkurn
tímann hitt móðurina. Með konu
sinni átti Tom þrítugan son, sem
er umboðsmaður föður síns og
barnabörnin eru orðin tvö. Flestir
töldu að söngvarinn væri ham-
ingjusamlega giftur fjölskyldufað-
ir en sú ímynd hans er nú hrunin.
Tom Jones segist nú vera búinn
að fá nóg af kvenfólki og skeytir
ekkert um blóm og bréf sem hon- Heimili þeirra Toms og Lindu var í Englandi en starfí hans fylgdu
um berast daglega frá miðaldra mörg ferðalög til Bandaríkjanna.