Morgunblaðið - 13.09.1989, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1989
33
VEL\AKANDI
SVAR/R í SÍMA
691282KL. 10-12
FRÁ NÁNUDEGt
TIL FCSTUDAGS
it riiiimáw/ww
Þessir hringdu .. .
Sýnum
ábyrgðartilfinningu
Guðrún S. Jóhannsdóttir
hringdi:
„í allt vor og sumar hafa birst
tilkynningar í Velvakanda og
dálkum fleiri blaða um týnda ketti
og kettlinga. Og í sömu dálkum
hafa svo birtst, jafnvel sama dag-
inn, tilboð um gefíns kettlinga.
Þetta er alltaf sama sagan ár eft-
ir ár. Þrátt fyrir upplýsingar til
fólks frá dýralæknum og öðrum
sem þekkja þessi mál eru læður
látnar gjóta aftur og aftur, og svo
er bara auglýst: „Sætar kisur
gefins, eru þrifnar og mannel-
skar“. Ég segi að meira máli
skipti að væntanlegir kattaeig-
endur séu dýravinir því flest hús-
dýr verða elsk að manninum ef
þeim er sýnt gott atlæti. Vonandi
fara menn að hugsa og fram-
kvæma af meiri ábyrgðartilfínn-
ingu í málum þessara gáfuðu og
fallegu dýra.“
Úr
Úr fannst í' höggmyndagarði
Einars Jónssonar fyrir nokkru.
Eigandi getur vitjað þess í Lista-
safninu.
Myndavél
Myndavél af gerðinni Pentax
varð eftir við Hnausapoll um helg-
ina. Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 31903.
Köttur
Grár og hvítur fressköttur tap-
aðist frá sumarbústað við Meðal-
fellsvatn í Kjós fýrir skömmu.
Þeir sem vita hvar hann er niður
kominn eru vinsamlegast beðnir
að hringja í síma 19802.
Gleraugu
Gleraugu fundust um miðjan
ágúst nálægt Austurbæjarbíói.
Upplýsingar í síma 21726.
Gróf orð prýða engan
Kæri Velvakandi.
Það er hart að þurfa að hlusta
á blótsyrði í morgunstund barn-
anna. Undanfarið hefur útvarps-
maður veriðað lesa framhaldssögu
fyrir böm. Ég held það hafí verið
í fyrsta eða öðrum lestrinum sem
blótsyrði kváðu við. Gróf orð prýða
engan mann og þau eiga síst við
þegar talað er við börn.
Því er ekki að leyna að hér blóta
margir, því miður. Það er varla
við bömin að sakast: Sumir for-
eldrar virðast ekki geta tjáð sig
um dagleg málefni, hvað þá eitt-
hvað sem þeir vilja leggja áherslu
Röng
ákvörðun
Kæri Velvakandi.
Ég get ekki þagað yfir óánægju
minni með orlof húsmæðra
Reykjavíkur á þessu sumri og ég
veit að ég tala fyrir munn margra.
Þær konur sem því réðu að farið
var til Spánar hafa ekki hugmynd
um öll þau vonbrigði sem þær
hafa bakað íjölda húsmæðra sem
hafa farið að Hvanneyri sér til
hvíldar og hressingar frá dagleg-
um störfum, en áttu engan veginn
tök á að fara til Spánar, bæði
vegna hita sem þar er um sumart-
ímann og peninganna. Það er
munur á að borga vem sína á
Hvanneyri, 8—10 þúsund krónur,
eða að fara til Spánar fyrir 30—40
þúsund.
Það er fjöldi kvenna em ekkert
hefur farið og á stjórn orlofsnefnd-
ar engar þakkir skilið fyrir þessa
breytingu. Það er ekki rétt að þær
hafi fengið inni á Hvanneyri. Ég
hefi kynnt mér það að aðeins var
afmælisveislan undanskilin. Þær
sem þessu stjórna verða að huga
að fleiru en einu og vona ég að
þessi ferð til Spánar verði ekki
endurtekin og þær haldi sig innan-
lands í framtíðinni.
Elísabet Helgadóttir
á, nema með blóti og formæling-
um.
Allt menningartah útvarpsins
verður hjáróma þegar fúkyrði eru
látin fjúka þess á milli, meira að
segja í bamaefninu.
Væri hægt að fá kristilegt efni
í barnatímanum, t.d. biblíusögurn-
ar sagðar við hæfi barna? Því
miður er það staðreynd að biblíu-
sögufræðslu í skólum hefur víða
farið stórlega aftur.
Ég tek jafnframt undir þá ósk
sem komið hefur fram hér í blað-
inu að á barnasíðum Morgunblaðs-
ins verði meira uppbyggilegt efni
og helst kristilegt og siðrænt. Ég
er alls ekki að hafa á móti þrautum
og gátum eða bréfum og myndum
frá bömunum. En það eitt skilur
svo lítið eftir. Lífið er miklu meira
en afþreying.
Lesandi
Gæti skapað árekstra
Til Velvakanda.
Ég las fyrir nokkram dögum
frétt í Morgunblaðinu þess efnis
að ungt og áhugasamt fólk hefði
í vor sl. stofnað með sér félag til
kvikmyndagerðar. Það er í sjálfu
sér ekki mjög fréttnæmt að fólk
stofni með sér hlutafélag og taki
að sér ákveðin verkefni. En það
sem vakti athygli mína í fréttinni
var nafn hlutafélagsins: Nýja Bíó
hf. _
Árið 1982 stofnaði ég hlutafé-
lag með þessu nafni. Ég verð að
játa að ekki er ég það vel að mér
að ég viti hvort hægt er að skrá
fleiri en eitt hlutafélag með sama
nafni, en 5 framhaldi af þeirri
vangaveltu langar mig ti! að bera
fram eina spumingu: Ef mér af
einhveijum hvötum dytti í hug að
setja auglýsingu í blað eða sjón-
varp með eftirfarandi texta, hver
yrðu viðbrögðin.
Nýja Bíó hf. vill koma eftirfar-
andi á framfæri:
1. Við eram ekki á nokkurn
hátt fær um að taka að okkur
verkefni í neinskonar kvik-
myndagerð, einfaldlega vegna
þess að við höfum ekki á að
skipa hæfu fólki né tækjakosti
til þeirra verka og viljum því
eindregið benda fólki á að leita
annað en til Nýja Bíós hf.
2. En ef þið finnið hæft fólk
til að vinna að kvikmyndagerð
fyrir ykkur, þá erum við fullfær
um að sýna afrakstur þeirrar
vinnu í kvikmyndahúsi okkar.
pr.pr. Nýja Bíó hf.
Steingrímur Kristinsson
Auðvitað mundi ég aldrei eyða
peningum í slíka auglýsingu,
a.m.k. ekki án tilefnis. Hver veit
annars hvort eitthvað tilefni gæti
komið upp sem skapað gæti
árekstra milli tveggja fyrirtækja
með sama nafni', því ekki er óvar-
legt að ætla að a.m.k. tveir aðilar,
hvor öðrum óviðkomandi hafi
prókúruumboð fyrir Nýja Bíó hf.
Steingrímur
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspurnir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnieyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Ást er...
0
... að láta allan heiminn
vita.
TM Reg. U.S. Pal OH.—all rights reserved
© 1989 Los Angeles Times Syndicate
Þú segir stað konunnar
vera í eldhúsinu. Þá er
þinn vettvangur sorpið ...
HÖGNI HREKKVÍSI
// HVEK /-ieyNTi NlPUf? BLÖMA-
POTTI ÚR 6LUGSAMUM?/"
1
’J
«
s
4