Morgunblaðið - 13.09.1989, Síða 36
SIÓVÁQgALMENNAR
ffgtmiritaMfe
FÉLAG FOLKSINS
wSuuiuföls^M^
BYSSUR OG SKOTFÆRI
Heildsöludreifing:
I.Guðmundsson,sími:24020
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Erró á Kjarvalsstöðum
Morgunblaðiö/Börkur
Listamaðurinn Erró er kominn til landsins tii þess
að sýna verk sín á Kjarvalsstöðum. A sýningunni
eru tvær syrpur sem hann vann að á síðastliðnum
fjórum til fimm árum. Erró hefur verið önnum kaf-
inn í kjallara Kjarvalsstaða við að strekkja og ramma
inn myndir sínar þá fjóra daga sem hann hefur
dvalið hér. „Þegar ég get grafið mig upp úr kjallaran-
um fer ég að hengja upp og svo svara ég því hvern-
ig mér líst á íslenska veðrið,“ sagði hann hressilega
er litið var inn til hans í gær. Fjögur ár eru síðan
Erró hélt sýningu hériendis, en hann kom síðast til
landsins í laxveiði á fyrra sumri. Odelscape heitir
myndin að baki listamannsins og er hijn í eigu
Reykj avíkurborgar.
Búistvið 13-14%
hækkun á kinda-
kjöti fyrir vikulok
Á FUNDI ríkisstjórnarinnar í gær var fjallað um nýtt verð á kinda-
kjöti sem ákveðið verður nú í vikunni, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er gert ráð fyrir að smásöluverð hækki um 13-14%.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin
leiti allra leiða til að koma í veg fyrir þessa hækkun, en þó sé ekki
á döfínni að setja bráðabirgðalög í því skyni.
Nýtt verð á kindakjöti þarf að
liggja fyrir í lok þessarar viku, þar
sem sauðfjárslátrun er hafin í flest-
um sláturhúsum og nýtt kjöt vænt-
anlegt á markað um næstu helgi.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er talið að óniðurgreitt
heildsöluverð á kindakjöti þurfi að
hækka um 8%, en það þýðir um
13,5% hækkun á smásöluverði mið-
að við óbreyttar niðurgreiðslur að
krónutölu. Sexmannanefnd hefur
ekki gengið formlega frá nýju
grundvallarverði til bænda, en að
sögn Guðmundar Sigþórssonar rit-
ara nefndarinnar er gert ráð fyrir
að það hækki um tæplega 8%. Fjall-
að verður um hækkun á slátur- og
heildsölukostnaði á fundi fimm-
mannanefndar í dag.
Fyrstu umferð
skákþings lokið
FYRSTA umferð í landsliðsflokki
á skákþingi íslands var tefld í
gærkvöldi. Jón L. Árnason vann
Þröst Árnason og Karl Þorsteins
vann Sigurð Daða Sigfiisson.
Þröstur Þórhallsson vann Ágúst
Karlsson, Tómas Björnsson vann
Hannes Hlífar Stefánsson, Björgvin
Jónsson Jón G. Viðarsson og Guð-
mundur Gíslason vann Rúnar Sigur-
pálsson.
Fundur iðnaðarráðherra og sjávarútvegsráðherra á Egilsstöðum:
Fjárfesting í fyrirhugaðri
stóriðju 120-130 milljarðar
Hugsanlegt að reisa hvalstöð á Austurlandi ef hvalastofnar verða fullnýttir
Egilsstöðum. Frá Steingrími Sigurgeirssyni,
JÓN Sigurðsson iðnaðarráðherra
segir að þau áform um stóriðju
og virkjunarframkvæmdir, sem
nú séu efst á baugi, geti haft í fór
með sér 120-130 milljarða króna
fjárfestingu á fímm til tíu árum
og tvöfoldun raforkuframleiðslu
landsmanna á sama tíma, úr 4.500
gígawattstundum í 9.000 GWh.
Þetta kom fram á sameiginlegum
fundi iðnaðarráðherra og Hall-
dórs Ásgrímssonar sjávarútvegs-
ráðherra um orku- og atvinnu-
mál, sem haldinn var í Valaskjálf
á Egilsstöðum í gærkvöldi.
Iðnaðarráðherra sagði þau áform,
sem nú væru efst á baugi, fyrst og
fremst vera stækkun álversins í
Straumsvík úr 90.000 tonna árs-
framleiðslugetu í rúmlega 200.000 t
ársframleiðslugetu. Einnig byggingu
nýs álvers með 185-240.000 t árs-
framleiðslugetu. Fjórföldun álfram-
leiðslu myndi hafa í för með sér að
stóriðja yrði næstum því hálfdrætt-
ingur á við sjávarútveginn hvað
gjaldeyrisöfiun varðar. Slíkar stór-
iðjuframkvæmdir hefðu í för með sér
nýjar virkjanir, þar á meðal á Þjórs-
ár-Tungnaársvæðinu og í Fljótsdal.
Taldi ráðherra þetta raunhæf áform..
Ráðherra að sérfræðinganefnd á
vegum iðnaðarráðuneytisins, í sam-
ráði við Byggðastofnun og Þjóð-
hagsstofnun, myndi skila í haust at-
hugun á áhrifum stóriðju- og virkjun-
arframkvæmda þessara. Hann sagði
að til samanburðar við hugsanlega
fjárfestingu í þeim mætti nefna að
fjárfesting á heilu ári í atvinnuveg-
um, íbúðarhúsnæði og opinberum
mannvirkjum væri á bilinu 50-60
milljarðar króna. Af 120-130 millj-
arða fjárfestingu yrðu væntanlega
bladamanni Morgfunblaðins.
40% í virkjunum og mætti reikna
með að til hennar yrði aflað erlendra
lána, en gjaldeyristekjur af henni
myndu gott betur en standa undir
endurgreiðslu þeirra.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra ræddi meðal annars um
nýja möguleika í sjávarútvegi. Hann
nefndi þar til hýtingu van- eða
ónýttra fiskstofna. Þá mætti koma
til bætt nýting og meðferð sjávar-
fangs. Ráðherrann nefndi einnig nýj-
ar og arðbærari söluaðferðir, svo sem
flug með sjávarafurðir frá Áusturl-
andi til meginlands Evrópu og út-
flutning ferskfisks með hraðskipi.
Ráðherra sagði að ef til þess kæmi
að fullnýta hvalastofnana þyrfti að
reisa nýja hvalstöð á Austurlandi.
Ein nægði ekki til. Hann sagðist telja
að yrðu stofnarnir fullnýttir mætti
afla eins milljarðs í tekjur af þeim á
Bylgjan rift-
ir samningi
við Stjörnuna
EIGENDUR útvarpsstöðvar-
innar Bylgjunnar hafa rift
samningi við eigendur
Stjörnunnar um sameiningu
útvarpsstöðvanna tveggja.
Samningur um sameining-
una var undirritaður fyrir um
hálfu ári, en skuldir Stjörnunn-
ar munu hafa verið mun meiri
en íslenska útvarpsfélagið hf.,
eigandi Bylgjunnar, hafði búist
við. Þar með munu forsendur
sameiningarinnar hafa brostið.
Forráðamenn beggja út-
varpsstöðvanna sátu á fundi
fram yfir miðnætti í gærkvöldi
en engar fregnir bárust af
fundinum.
Samvinnubankinn:
Óskað eftir traustsyfirlýs-
ingu frá bankaeftirlitinu
BANKASTJÓRI Samvinnubankans, Geir Magnússon, segir yfirlýsing-
ar Lúðvíks Jósepssonar, bankaráðsmanns í Landsbankanum, um að
Samvinnubankinn sé kominn í þrot, algjörlega óábyrgar og út í
hött. Hefúr hann af því tilefhi óskað eftir því við bankaeftirlit ið að
það lýsi því yfir að yfirlýsingar Lúðvíks hafi ekki minnsta grund-
völl. Þórður Ólafsson, forstöðumaður bankaeftirlitsins, kvaðst ekki
vilja staðfesta að slík beiðni hefði borist en sagði að verið væri að
kanna hvort ummæli, sem sveigt hefðu að fjárhagsstöðu Samvinnu-
bankans, væru í andstöðu við lagaákvæði.
Kjartan P. Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri fjárhagsdeildar Sam-
bandsins, sendi frá sér yfirlýsingu
í gær, þar sem rakin eru rri.a. til-
drög að því samkomulagi sem
bankaráð Landsbankans samþykkti
á fundi sínum á sunnudag. Þar
kemur fram að Landsbankanum var
boðinn til kaups eignarhluti Sam-
bandsins í Samvinnubankanum
þann 13. mars sl. Eðlilegur áskiln-
aður hefði hins vegar verið gerður
um áframhaldandi viðskipti, sölu-
möguleika annarra hlutafjáreig-
enda og atvinnuöryggi starfs-
manna. Þá segir í yfirlýsingu Kjart-
ans að fest hafi verið handsali að
um trúnaðarviðræður yrði að ræða
og yrði efnið ekki gert opinbert
fyrr en samningur væri undirritað-
ur, að því undanskildu að 828 millj-
óna króna söluverð 52% eignarhluta
Sambandsins pr. 31. desember sl.
skyldi birt, ef bankaráðið og Sam-
bandsstjórn samþykktu kaupverðið
og umræðugrundvöll áskilnaðarat-
riðanna.
Þá segir orðrétt: „Með skírskotun
til umsamins trúnaðar finnst Sam-
bandinu á sér brotinn réttur, auk
þess sem um lagabrot kann að vera
að ræða varðandi þagnarskyldu
manna í opinberu starfi. Þá vill
Sambandið staðfesta að ummæli
um lánamál þess eru ekki rétt og
því ámælisverðari, sem hlutaðeig-
andi bankaráðsmaður hefur greið-
ari aðgang að upplýsingum innan
sinna eigin vébanda. Auk lánafyrir-
greiðslu Landsbankans sem er tölu-
vert minni en af er látið, hefur
Sambandið ávallt séð iánveitanda
fyrir fullum tryggingum og veðum
og skal fullyrt að þau nema nú
verulegum ljárhæðum umfram lán-
veitingar."
í yfirlýsingu Kjartans segir enn-
fremur að verulega halli réttu máli
varðandi Iausafjárstöðu Sambands-
ins og að greiðsluvanhöld þess hjá
Landsbankanum séu óveruleg. Loks
segir varðandi samskipti Citibank
og Sambandsins að bankinn hafi
snemma á þessu ári tilkynnt inn-
köllun á öllum lánveitingum undir
svokallaðri „Corporate Finance".
Hefði Sambandið orðið við óskum
um að greiða 185 milljónir enda
væri það í samræmi við viðskipta-
hefðir og að jafnaði ekki talið til-
tökumál.
Sjá nánar í miðopnu.