Morgunblaðið - 17.09.1989, Side 2

Morgunblaðið - 17.09.1989, Side 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989 ||lp| MmannasKarö REYKiAVÍK Kifkjubœjar^X Freysnes klaustur. / ■■■■■■■■ Rúnar bakkar flutn- Mnngo ingabíl sínum með ■ tU tengivagni að dyrum Þórhólsgötu 2, bústað Gísla Gylfa- sonar og Önnu Bjarnadóttur. Að- stæður eru erfiðar; gatan er þröng og í halla. Það gengur fljótt og vel að lesta jarðneskar eigur þeirra hjóna í tengivagninn. Norðfirðingar hafa verið orðaðir við ákveðna róttækni í stjórn- og skipulagsmálum. Þó er Ijóst að frjálsir samningar einstakl- inga um verð eru ekki óþekktir í „rauða bænum“ Neskaupstað. Milli Rúnars og Gísla spinnast nokkrar umræður um þyngd og umfang flutn- ingsins — og síðast en ekki síst verð. Að lokum verða þeir ásáttir um 16 þúsundir króna. ÞRIÐJUDAGUR Það er sól og blíðskap- |11 arveður á Norðfirði þegar bíl og tengivagni er lagt við fyrirtækið Mánaplast, Urðarteigi 22. Bíllinn var keyptur í vor en nú þegar sýnir akstursmælir- inn 27411 kílómetra. „MAN 362 ár- gerð ’89. Gírskiptingarnar 16 áfram og 2 afturábak. Kostaði 7 milljónir Við Djúpavog. Þeir mega ekki verða rúgbrauðslausir. legur þjóðflokkur. Jú, ég fór víst eitt eða tvö tonn fram yfir einu sinni eða tvisvar. Slapp með dómsátt. Öxultakmarkanir, jú þær voru í fimm vikur í vor, þar af voru 5 tonna takmarkanir í þijár vikur og ég gat ekkert farið.“ er lagt af stað. Nokkr- VI 1050 um mínútum og kíló- III. 10 metrum seinna grípur nokkurt fát Rúnar bílstjóra. „Eg hef Þórhólsgata 2, Neskaupstað. Gísli Gylfason og Anna Bjarnadóttir eru að flytja í fimmta sinn. NESKAUPSTAÐUR RuyfarfjörSur0jfc?>~-OMSskari Fáskrúðsfjörðui^^ Vallarnes Stöðvarfjörður^k^Kambanesskriöur Breiðdalsvík Bcrufjöróur Djúpivogur 'Álftafjöróur gleymt þeim! Ég verð víst að íjár- festa í nýjum sólgleraugum á Eski- firði.“ Milli Neskaupstaðar og Eskifjarð- ar er Oddskarðið, í 705 metra hæð yfir sjávarmáli en í 632 metra hæð hafa verið gerð jarðgöng undir há- skarðið, 626 metra löng: „Jú, skarð- ið er erfitt á vetrum. Snjóruðningar og Vegagerðin? Ég hringi stundum í þessa góðu menn. Svörin? Ýmist of þurrt, of blautt eða heflarnir bilað- ir. Og ef það er eitthvað verið að kvarta segja þeir: „Þú hefðir átt að sjá vegina fyrir þijátíu árum.““ Þrátt fyrir jarðgöngin og umtals- verðar vegabætur er leiðin um Odd- skarð snarbrött og öll hin hrikaleg- asta. „Ég vona að slitlagið komi seint í Oddskarðið; hálkan er stórhættu- leg.“ A Eskifirði eru keypt sólgleraugu og álgrindur afhentar á flutnings- og vöruafgreiðslu staðarins. Rúnar lítur á nótur og minnismiða frá Lindu. „Bílstjórar stjórna bílunum en það má segja að afgreiðsludömur stjórni bílstjórunum. Kannski eins gott; þær eru elskulegri, samvisku- samari og hafa betri röð og reglu á hlutunum." Kl 35 km frá Neskaup- 1CZ5 stað. Á Reyðarfirði er * 0 stöðvað við KK-mat- væli en nokkrar framkvæmdasamar konur þar í plássinu búa til kæfur og salöt undir forystu Kristbjargar Kristinsdóttur. Þessar framleiðslu- vörur senda þær til Hafnar í Horna- firði og til Reykjavíkur. Myndarlegur og þungur plaststampur vekur eftir- tekt. Þetta munu vera ber sem Krist- björg sendir dóttur sinni suður. Sprettan hefur verið góð þarna eystra í sumar. Meðfram vegakönt- SEXTÁN O AFRAM Rúnar Gunnars on hefur túrinn frá Neskaupstað suður til Reykjavíkur á þriðjudögum. — En ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Síðdegis á mánudög- um er Rúnar byijaður að sýsla við flutning morgundagsins. MÁNUDAGUR ■■■■■í^b Við Vöruafgreiðslu VI iqis Viggós. Vöruaf- Hl. 13 greiðslan er staðsett í í tveggja hæða húsi við Hafnarbraut ekki fjarri gömlum síldarplönum. Húsið er nokkuð komið til ára sinna. Hluti efri hæðarinnar er með sérinn- gangi, á dyrum þar er nafnspjald „Menningarnefndarinnar". Hljóm- sveitin „Sue Ellen“ er þar með æf- ingaaðstöðu. Þótt burðarbitar húss- ins séu traustir og undir- og yfirspil Sue Ellenar hljómfagurt, þá þykir Rúnari Gunnarssyni eiganda fyrir- tækisins aðstaðan nokkuð þröng og óhentug. Hann ætlar að byggja nýja vöruafgreiðslu á sama stað í sam- ræmi við skipulagsáætlanir bæjarins. — Hver verður flutningurinn suð- ur, annar en Morgunblaðsmenn? „Það kemur í ljós, þetta er að tínast inn núna. Menn eru slæmir með að koma á síðustu stundu. Hérna eru húsgögn, skelfilega illa innpökk- uð. — Svo verður fólk hissa ef eitt- hvað skemmist! Búslóðaflutningarnir eru mestir á vorin og haustin, þá er skólafólkið að flytja. Hann er t.d. í Vélskólanum hann Gísli. Ég sæki búslóðina til hans í kvöld. Hann má þó eiga það að hann kann að pakka, enda í fimmta sinn sem hann flytur.“ Nú kemur að maður og spyr Rúnar hvort nokkur möguleiki sé að koma nokkrum fiskkörum með ýsu suður á markað. Hér er á ferðinni Magnús „mínúta" Magnússon, framleiðslu- stjóri Síldarvinnslunnar. Viðurnefnið hefur hann öðlast fyrir áherslu sína á stundvísi og nákvæmni. Rúnar felst á að „þarfir markaðarins" verði að hafa forgang en nú er hleðsluplanið gengið úr skorðum; Ijóst er að fiskur og húsgögn geta ekki verið saman. Það verður farið suður með tengi- vagn líka. Á Eskifirði. Álgrindurnar er hægt að hafa á vagnþakinu. mm^mmma Við vöruafgreiðslu W 1(100 Viggós. Ýmsum pökk- ■ lu um er raðað inn í tengivagninn. Margháttuð pakka- vara, reiðhjól o.fl. — Hvað er það helst sem þú flyt- ur landshornanna á milli? „Sitt af hvetju tagi eins og þú sérð,“ svarar Rúnar. „Við erum komnir í dósaslaginn; þessir pokar þama eru fullir af tómum áldósum. En þeir komast ekki í Endurvinnsl- una í dag. Bíllinn er fullur. En dósirn- ar verða að fara fljótlega; húsið er að fyllast. Að sunnan kemur mat- og pakka- vara. — Og í fyrra ojinaði ríki og við flytjum vínið fyrir ÁTVR og bjór- inn og blandið frá ölgerðinni. Ég er umboðsmaður fyrir Egils hérna.“ Við kæligeymslu Síldarvinnslunnar. Ekki er hægt að senda nema 21 fiskikar suður; bíll, tengi- vagn og farmur mega ekki vera þyngri en 38 tonn samanlagt. „Það er leiðilegt að hitta vigtarana. Það eru menn frá vegaeftirlitinu og lög- reglunni, þeir sitja fyrir okkur út á vegum og vigta bíl og farm. Sketfi- á grind. Þetta er þægilegt tæki, hús- ið er á fjórum fjöðrum svo maður finnur ekki fyrir hristingi. Ég er far- inn að hugsa um sjálfan mig,“ segir Rúnar bílstjóri. Hjá fyrirtækinu Mánaplasti eru m.a. framleiddir plastborðar sem strengdir eru utan um pappakassa sem innhalda útflutningsvörur lands- manna. Árlega eru framleiddar um 4000 rúllur, það reiknast 40 tonn eða 10 þúsundir kílómetra af borð- um. Vegna hins óvænta fiskflutnings komast einungis 48 kassar með 192 rúllum suður, afgangurinn fer í næstu ferð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.