Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 8
e___□ 8 C' 6861 H3aM3Tqa3 .yf HUDAQUHMUa GIGAja'/tUOaOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989 IKILSI TIL AÐ VEUA VIÐ FÆMMGl! Kona fæðir í fæðingarstól. Frá sextándu öld. eftir Jóhannes Kóra Kristinsson SÍÐUSTU þrjár aldir hefur konum á Vesturlöndum verið valin sú stelling við fæðingar að liggja á bakinu. Flestum þykir þessi stelling eðlilegasta fæðingarstellingin enda er raunin oft sú að sé eitthvað gert nógu lengi skapast hefðir og er þá hætta á að gagnrýni sé umhugsunarlaust vísað á bug. Fæstir vita þó að til eru skráðar heimildir fyrir því að fram að átjándu öld völdu konur sér sitjandi stöður við fæðingar og voru fæðingarstólar algengir. Það var um miðja átjándu öld að konur fóru að fæða útafliggjandi á bakinu, fyrir tilstuðlan fransks fæðingarlæknis, Francois Mauriceau, og byggðust rökin fyrst og fremst á því að gera aðstöðuna þægilega fyrir þann sem tók á móti barninu. Nú, tveimur öldum síðar, hafa ýmsar rannsóknir leitt í ljós að þessi stelling er ekki talin sú ákjósanlegasta fyrir móður og barn. Franskur fæðingarlæknir, Michel Odent er einn af þeim sem hef- ur velt þessu fyrir sér. Hann starfaði í Pithiviers í Frakklandi um langt árabil en býr nú í Bretlandi og sinnir jöfiium höndum fæðingarhjálp og ritstörfúm. Hugmyndir hans þykja nýstárlegar og hafa rutt sér til rúms víða um heim. Undanfarna mánuði hafa íslenskar ljósmæður rætt aðferðir hans og annarra sérfræðinga og telja margar þeirra tímabært að íslenskar konur fái aukið valfrelsi við fæðingar. Til að kynnast nánar þessari nýjung í fæð- ingarhjálp var rætt við ljósmæðurnar Guðrúnu Olöfii Jónsdóttur og Hrefhu Einarsdóttur en þær hafa frá byrjun júnímánaðar haldið námskeið fyrir verðandi foreldra sem byggð eru á þessari fyrirmynd, þar sem þeim er meðal annars bent á nýjar fæðingar- stellingar. Fyrstu skráðu heim- ildir af konu fæð- andi útafliggjandi á bakinu eru af Mad- ame de Montespan, hjákonu Sólkon- ungsins Loðvíks fjórtánda", sagði Hrefna. „Hún var látin fæða á þennan hátt tii að hann gæti fylgst með, falinn bak við tjöld.“ Hrefna sagði að í kjölfar þessa, um miðja 17. öld, hefðu Chamber- lenbræður fundið upp fæðingar- tangir. Þessi stelling hefði reynst heppilegust fyrir tangarfæðingar og urðu þær vinsælar. Þetta hefði síðan markað upphaf nýrrar fæð- ingarstefnu, eða tísku sem breiddist út um Vesturlönd og fæðingarlækn- irinn hefði tekið við af ljósmóður- inni í fæðingarherberginu. „Á þessum tíma var Francois Mauricéau leiðandi í franskri fæð- ingarfræði. Hann lýsti fyrirlitningu sinni á fæðingarstólnum og hvatti konur til að ala börn sín liggjandi og vinsældir fæðingarstólsins dvínuðu. Fæðingarstóllinn var ómissandi hluti af útbúnaði flestra ljósmæðra fram á 18. öld og áttu vel efnaðar fjölskyldur sinn eigin fæðingarstól, stundum útskorinn og demöntum skreyttan, en hjá efnaminna fólki voru fæðingarstól- ar fluttir milli húsa,“ sagði Hrefna. „Á 19. öld var Viktoría Englands- drottning fyrst kvenna til að nota klóroform við fæðingar og í kjölfar þess varð notkun lyfja almenn og konur urðu æ hlutlausari í fæðing- unni,“ sagði Guðrún Ólöf. „Reyndar var farið að nota glaðloft við fæð- ingar þegar á átjándu öld.“ — Hvað felst í þessarí nýju stefnu og hugmyndum Michel Odent? „Pjöldi rannsókna hefur sýnt fram á óhagkvæmni þeirra fæðingarstell- inga sem tíðkast hafa undanfarna áratugi," sagði Hrefna. „Þegar kon- an Iiggur á bakinu, þrýstir þungi barnsins og legsins á aðalæðar líkamans sem liggja með hryggsúl- unni og veldur þannig minnkuðu blóðflæði um líkamann og til barns- ins.“ Hrefna sagði að stefnan und- anfarin ár hefði verið sú að konan væri meira á fótum á verkjatímabil- inu, sem bæði stytti verkjatímabilið auk þess sem verkirnir yrðu reglu- legri og þörfin fyrir verkjalyf minnkaði. „Afturhvarf til gömlu fæðingar- stellinganna eða hinna fjögurra aðalstellinga sem konur hafa valið sér í gegnum aldirnar, þ.e. að sitja á hækjum sér, liggja á fjórum fót- um, standa eða halla sér fram, virð- ist vera af hinu góða,“ sagði Hrefna. „I rannsókn sem gerð var FAGFÓLK á að hjálpa konum að fœða á þann hátt sem þcer sjálfar kjósa, segja GUÐRÚN ÓLFÖF JÓNSDOTTIR ogHREFNA EINARSDÓTTIR sem undanfarið hafa kynnt verðandi foreldrum nýjungar í fœðmgarhjálp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.