Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989 C 35 Dan McCafferty söngvari og Pete Agnew bassaleik- ari á tónleikunum i Höllinni. Hafdís Hallgrímsdóttir, eiginkona Tonys, býr sig undir að þvo hár bassaleikarans Pete Agnew. Tony og Dan McCafferty söngvari ráðgast um hvernig hárgreiðsla hæfi best. SIMTALIÐ... SÍMTALIÐ ER FIÐ HEIÐAR JÓNSSONSNYRTI Offátari ? 623160 Hjá Heiðari góðan dag. — Góðan daginn, er þetta Heiðar? Jú, það er hann. Sæll vertu, Kristín Marja Bald- ursdóttir heiti ég, blaðamaður á Morgunblaðinu, þú hefur verið að litgreina konur undanfarið ... ... og menn. Nú þá líka já, en í hveiju er litgreining fólgin? Flestir litgreina eftir sama kerfinu, en hjá mér er þetta svo- lítið persónuleikapróf. Persónu- leikinn fer oft eftir litarhætti, framkomu og fasi, ég les úr skrift og augum og segi fólki dálítið mikið um það sjálft. En í stuttu máli þá er fólki skipt annars vegar í heitt og hins vegar í kalt eftir litarhætti, og eru þá nöfnin á árstíðunum not- uð. Síðan er þetta spurning um að klæða sig rétt, að allt í fata- skápnum hjá þér passi saman, þannig að litgreining er frekar spurning um skipulag og peninga heldur en útlit. - Þetta er þá ekki tómt „pjatt“? Nei, nei. Fólk sparar sér oft háar upphæðir með því að kaupa fatnað og fylgihluti í réttum lit- um. Svo hefur oft komið í Ijós við lit- greiningu að lit- irnir á heimili þínu klæða þig yfirleitt betur en fötin í fataskápnum. — Hvernig stendur á því? Að því þú kaup- ir hlutina á heimil- inu til tíu eða tutt- uga ára, og þá í litum sem höfða til þín. Fötin eiga aðeins að duga í eitt ár. Heiðar Jónsson — En er það nokkuð slæmt. að klæðast „röngum" litum? Já eftir að fólk eldist. Það lítur út fyrir að vera eldra í röngum lit. — Nú sagði maður nokkur að hann gæti alltaf þekk't íslenskar konur, t.d. á erlendum flughöfn- um því þær klæddust svo víðum fötum, — eins og þær væru að hylja eitthvað. Heiðar, erum við of feitar? Nei,íslenskar konur eru best klæddu konur í heimi. En þó er þetta rétt hjá honum að vissu leyti. Við erum í svo nánu sam- bandi við nágrannann þannig að við sýnum viss „penheit“. Það er hneppt dálítið hátt upp í háls, klaufar eru ekki háar og ekki hælar heldur, allt svona frekar laust til að hneyksla ekki Siggu á sautján! — Nú er alltaf rætt um „eleg- ans“ franskra kvenna, geturðu skilgreint hann fyrir mig? I rauninni nær bannorðið „sexy“ miklu betur yfir hugtakið. Franskar konur njóta þess að vekja athygli og áhuga karl- manna á sér, og þar í gegn kem- ur þessi „elegans“. Þetta er það sem íslenska konan þorir ekki. Ef þú sérð franska konu og svo íslenska á götu þá horfirðu miklu meira á þessa frönsku, hvernig hún klæðir sig og hreyfir, en upp- götvar síðan að íslenska konan er miklu fallegri, hún bara gerir ekkert til að vekja athygli á því. Vissi ég ekki, þær eiga ekki „sjens“ í okkur! En Heiðar, ég þakka þér kær- lega fyrir spjallið. Jú þakka þér sömuleiðis. ykir blaðinu það leitt, að at- hugunarleysi þess skuli hafa orðið til þess að skapa óþægindi þessum unga og mjög efnilega rithöfundi, sem virðist hafa miklu næmari siðferðistilfinningu og meira siðferðisþrek en títt er um menn á hans aldri, og það telur víst, að eigi eftir að vinna sjer orðstír á rithöfundabrautinni, ef FRÉTTALJÓS ÚR FORTÍD Synd - sem Nóbels- skáldið aftieit- aði 1923 honum endist líf og kraftar.“ Á hveiju var ritstjóri Morgunblaðs- ins, Þorsteinn Gíslason, að biðja Halldór Laxness afsökunar hinn sjötta október 1923? V anrækslusynd Þennan sama dag birtist opið bréf í Morgunblaðinu til íslenskra lesenda frá Halldóri Kiljan Lax- ness. Bréf þetta var í lengra lagi og var dagsett sjötta dag septem- bermánaðar 1923. Tilefni þessara skrifa voru: „Jeg hefi í dag feng- ið bijef frá Islandi. . . að í „Morg- unblaðinu“ hafi einhverntíma síðastliðinn vetur birtst mjög ósæmileg ritsmíð eftir mig og muni nú á ný vera komin fyrir almenningssjónir meðal annara smásagna minna í sjerstöku kveri. Vegna þess að af bijefinu má ráða að ritsmíð þessi hafi vakið alment hneyksli, og gert nafni mínu vanheiður, finn jeg mig knúðan til að greina opinberlega frá málvöxtum.“ í bréfi Halldórs er m.a. bent á að hin umrædda ritsmíð, nóvellettan „Synd“ hafi verið skrifuð árið 1919 þegar rit- höfundurinn var 17 ára að aldri. „Skýringin á því, að svo ungur maður skuli geta ritað slíkan óhroða, er sennilega sú, að eftir að hafa fjarlægst meir og meir hinar lútersku trúarskoðanir, sem mjer höfðu verið kendar í bernsku, var jeg um þessar mundir orðinn guðsafneitari. Þar að auki lifði jeg býsna ábyrgðarlitlu lífi (að segja „siðlausu“ væri aftur á móti ósanngjarnt), mestmegnis í fje- lagsskap við listakákara og skáldslæpinga... I fyrrasumar fjekk „Morgunblaðið" leyfi mitt til að prenta nokkrar af smásög- um mínum og sagnabrotum, og meðal þeirra var „Synd“ ... Eitt- hvað 3-4 mánuðum seinna fór jeg til Benediktínaklaustursins i Clervaux, til þess að kynna mjer nánar kaþólsk efni . . . Að íjettu lagi hefði mjer nú ekkert átt að verða fyr fyrir en endurkalla eða láta glata öllu sem væri kaþólsk- um manni ósamboðið, af því sem jeg hafði skrifað fyrir afturhvarf mitt... I klaustrinu Saint- Maurice hafði jeg um annað merkitegra að hugsa en þessi gömlu sögubrot; þau komu injer alls ekki framar í hug og ekkert varð til að minna mig á þau ... Fyrst nú, eftir að jeg er sjálfur sloppinn heilu og höldnu út úr pestarbælinu, þar sem bókmenta- skrílræði tuttugustu aldarinnar hefir slegið upp herbúðum sínum, — nú, eftir að það er orðin ein heitasta ósk mín, að jeg mætti bera gæfu til að vísa einhveijum veg þaðan, og út í hreina loftið á ný, — þá kemur þessi gamla rit- synd mín mjer alt í einu í koll, og jeg er áður en varir orðinn sá, sem höggur í stað þess að hlífa.“ Ósammála Eins og fram hefur komið þótti Morgunblaðinu leitt að hafa vald- ið Halldóri óþægindum með birt- ingu smásögunnar „Synd“ hinn fjórtánda dag júnímánaðar þetta sama ár. í Morgunblaðinu kom líka fram að dregist hefði um nokkurn tíma að birta grein Hall- dórs af „óviðráðanlegum orsök- um“. — En ritstjórinn og skáldið Þorsteinn Gíslason var ekki að öllu leyti sammála þessu tilskrifi Halldórs Laxness: „Það sjer ekki heldur að smásaga þessi eigi eins þungan áfellisdóm skilið og hún hefir hlotið, en ábyrgðin á birtingu sögunnar hvílir að sjálfsögðu eins mikið eða meira á blaðinu en höf- undi hennar." Ennfremur greindi ritstjórinn frá samtali sem hann hafði átt við: „Gáfuð og menntuð kona, sem farið hefir víða um lönd, og er alþekt fyrir starfsemi sína að guðræknis- og siðferðis- málum. — Hún tók svari höfund- arins og sagði, að smásagan ætti ijett á sjer, af því að „hún væri skrifuð út frá því ijetta hugar- fari“. — Þetta fannst blaðinu líka, og þess vegna feldi það ekki sög- una úr safninu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.