Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 22
& .e5
áo&fiSMssM MENNINGARS IíWcUWÍÁII^tIíÍmIIMM^/^eptember mr
DÆGURTÓNLIST //iv7 hagnast á
íslenskum plötum?
PLÖTU-
REGN
ÞEIR eru ekki margir sem hagnast á því að gefa út plötur á Islandi,
ef það eru þá nokkrir. Eina vonin til að plata skili nægu til að borga
gerð hennar (hvað þá að skila hagnaði) virðist vera að gefa hana
út rétt fyrir jólin og eyða síðan stórfé í að sannfæra þá sem eru að
kaupa jólagjaSr um hver sé, jólagjöfin í ár“. Gildir þá einu hvaða
tónlist er að finna á plötunni, enda er verið að höfða til plötukaup-
enda fyrst og fremst en síður til hlustenda.
Ekki verður hér fjasað frekar
um það hve skaðlegt þetta
skipulag er íslenskri dægurtónlist
(og hvort það sé yfirleitt skaðlegt),
en reynt að gefa einhverja mynd
af því á hvetju
menn mega eiga
von þegar plötu-
regnið brestur á í
byijun október.
Við fyrstu taln-
ingu eru það um
tuttugu plötur sem
koma út fyrir þessi
jól og sú fyrsta
eftir Árna
Matthíasson
reyndar þegar komin út, en það er
Hallbjörn Hjartarson sem ríður á
vaðið með útgáfu á plötu sinni
Kántrý 5. Það eru „stóru“ útgáfu-
fyrirtækin Steinar og Skífan sem
flestar plötumar senda frá sér, eins
og yfirleitt áður.
Steinar
Steinar eru afkastamestir þetta
árið í íslensku útgáfunni og að
þessu sinni sendir fyrirtækið frá sér
átta hljómplötur hið minnsta: Ný
dönsk sendir frá sér sína fyrstu
breiðskífu, en sveitin átti lög á safn-
SÍGILD TÓNLIST/Getur söngur
samrýmst bókaútgáfu?
Viðar til Vínar
Nýlega barst mér til eyrna að
Viðar Gunnarsson bassasöngvari
væri á leið til Vínarborgar, því
þar hefði honum verið boðið að
syngja í Kammeróperunni hlut-
verk Sarastros í Töfraflautu Moz-
arts. Þetta kom skemmtilega á
óvart og gaman hefúr verið að
fylgjast með þessum vaxandi
söngvara síðustu árin.
Viðar var 28 ára er hann hóf
nám við Söngskólann hjá Garð-
ari Cortez 1978 en þá hafði hann
smitast söngdellunni í kór Lang-
holtskirkju undir stjórn Jóns Stef-
ánssonar. Viðar
nam í 3 ár við
Söngskólann en
síðan lá leiðin til
Stokkhólms;
þangað dreif hann
alla fjölskylduna
og var í námi
næstu 3 ár. Kenn-
hans var dr.
eftir Jóhönnu V.
Þórhallsdóttur
arr hans var
Folke Sállström en Viðar telur hann
tvímælalaust hafa haft mest áhrif
á sig sem söngvara öðrum fremur.
Þegar Viðar kom heim frá
Svíþjóð beið hans óöryggi í söng-
framanum svo hann fór að vinna
við bókaútgáfu hjá Vöku-Helga-
felli. Jafnframt því fór hann í kór
íslensku óperunnar og fékk sitt
fyrsta gestahlutverk, en það var
Zuniga liðsforingi í Carmen 1984.
Það má segja að síðan hafi varla
verið sett upp ópera á ís'landi án
Viðars. Hann hefur þó alltaf unnið
hjá Vöku-Helgafelli og hafa sam-
starfsmenn hans þar sýnt honum
fullan skilning og leyft honum að
hlaupa á æfingar eftir þörfum. Við-
ar hefur aðallega sungið í óperum
og einnig oratóríum en núna síðast
söng hann í Vikivaka, nýju sjón-
varpsóperunni hans Atla Heimis
Sveinssonar.
En hvaða hlutverk skyldi vera
minnistæðast?
„Án efa var það í Don Giovanni
Viðar Gunnarsson — Mozart-
hlutverkin komu á óvart.
eftir Mozart. Þá lék ég tvö hlut-
verk, Masetto og Hershöfðingjann.
Hershöfðinginn þóttist vera stytta
og ég þurfti að vera hreyfingarlaus
í 25 mínútur en samt að syngja
strófur inn á milli og svo hafði ég
eina og hálfa mínútu til að skipta
um gervi og vera Masetto. Mér er
það einnig minnnisstætt að við
Kristinn Sigurmundsson sungumst
á rétt áður en Don Giovanni fór til
vítis. Þessi samsöngur orkaði mjög
sterkt á mig og ég hafði mjög gam-
an af honum. Það kom mér á óvart
hversu gott mér þótti að syngja
hlutverk í óperum eftir Mozart.
Áður en ég prófaði að syngja þessi
hlutverk hafði ég sungið í þremur
óperum eftir Verdi og var nokkuð
viss um að þær óperur hentuðu mér
betur, en það var nú öðru nær.“
Og nú eru tvö hlutverk eftir
Mozart sem bíða Viðars. I haust
verða sýningar á Brúðkaupi Fíagrós
og síðan fer hann til Vínar í desem-
ber og heQast þá æfingar á Töfra-
flautunni. Sýningar verða svo fram
í miðjan mars. Við óskum Viðari
til hamingju og alls hins besta.
Bubbi Morthens og samstarfsmenn við gerð væntanlegrar plötu.
flokkurinn snýr aftur með nýrri
breiðskífu; Bjartmar Guðlaugsson
sendir nú frá sér þriðju breiðskífu
sínaá þremur árum með þriðja út-
gefandanum; Geirmundur Valtýs-
son sendir frá sér breiðskífu og
Jasssveit Tómasar R. Einarssonar
sendir frá sér plötu, sem tekin var
upp á tveimur dögum í Sýrlandi.
Sveitina skipa auk Tómasar þeir
Pétur Östlund, sem leikur í fyrsta
sinn á íslenskri jassplötu, Jens
Winter, Sigurður Flosason og Eyþór
Gunnarsson. Loks eru Mannakorns-
menn að bræða með sér hvort þeir
ljúki breiðskífu fyrir jólin, eða hvort
þeir bíði fram á næsta ár.
Hinir
Grammið gefur út eina plötu á
þessu ári; plötu með Bubba Morth-
ens. Bubbi átti söluhæstu plötur
áranna 1987 og 1988 og gerði
þriðju söluhæstu plötu síðasta árs
með Megasi. Væntanlega plötu
Síðan skein sól Vinnur með Tony Clark.
Langi Seli og Skuggarnir Fyrsta breiðskífan.
íjjosmynu/Djorg ovemsuoiur
Lengi von á einum Eiríkur Hauksson sendir frá sér rokkskífu.
vann hann með Christian Falk, sem
gerði með honum plötuna Frelsi til
sölu, og Hilmari Erni Hilmarssyni.
Smekkleysa gefur að þessu sinni
aðeins út eina plötu, fyrstu breið-
skífu rokksveitarinnar Bootlegs, en
fyrirtækið sendir einnig frá sér bók-
ina Miðnætursólborgin eftir Jón
Gnarr. Ég hef svo fyrir því öruggar
heimildir að Hálfur heimur, fyrir-
tæki Langa Sela og Skugganna
muni gefa út í samvinnu við Smekk-
leysu fyrstu breiðskífu sveitarinnar,
en hún hefur áður sent frá sér tvær
tólftommur.
Óhætt er að telja breska fyrir-
tækið One Little Indian með
íslensku fyrirtækjunum, því það
gefur út tvær hljómplötur með
íslenskum hljómsveitum, Sykurmol-
unum og Ham. Væntanleg breið-
skífa Sykurmolanna er önnur breið-
skífa sveitarinnar og hefur verið
alllengi í bígerð. Ham sendi frá sér
tólftommuna Hold á vegum Smekk-
leysu síðasta sumar, en komst á
samning hjá One Little Indian er
sveitin hitaði upp fyrir Sykurmol-
ana í Þýskalandi stuttu fyrir síðustu
jól. Væntanlega hljómplötu, Buffalo
Virgins, tók sveitin svo upp snemma
á þessu ári. Við þetta er svo að því
að bæta að One Little Indian gefur
út safnplötu til að kynna fyrirtækið
og munu Sykurmolarnir og Ham
eiga lög á þeirri plötu auk einnar
annarrar íslenskra sveitar.
Af gamalli reynslu varasamt að
ætla sér að setja saman tæmandi
lista yfir jólaútgáfuna þetta löngu
fyrir jól, því það eru alltaf ein-
hverjir sem bætast við: margur á
síðustu stundu. Þetta ætti þó að
gefa einhverja mynd af plötuhaust-
inu, en allir spádómar um sölu eru
ótímabærir að svo komnu.
plötu Steina, Frostlög, fyrir síðustu
jól og einnig á safnplötunni Banda-
lög sem kom út í sumar; Todmobile
er í sömu sporum og Ný dönsk og
sendir frá sér fyrstu breiðskífu sína
en Todmobile átti einnig lög á
Frostlög og Bandalög. Þess má
geta að sveitin hefur einnig unnið
lög sín á ensku til útgáfu ytra; Bítla-
vinafélagið sendir frá sér sína aðra
breiðskífu, sem er um leið fyrsta
skífa sveitarinnar með frumsömd-
um lögum, en eins og menn rekur
eflaust minni til átti sveitin sölu-
hæstu jólaplötuna á síðasta ári;
Sálin hans Jóns míns sendir einnig
frá sér sína aðra breiðskífu. Manna-
breytingar í sveitinni hafa verið það
miklar að líklega er réttara er að
telja væntanlega plötu fyrstu
breiðskífu sveitarinnar; Eiríkur
Hauksson sendir frá sér fyrstu
breiðskífu sína sem verið hefur í
vinnslu í á annað ár. Eiríkur var
langt kominn með plötuna á síðasta
ári, en annir vegna starfa hans í
norsku þungarokksveitinni Artch
(sem er um þessar mundir að hefja
vinnslu á annarri breiðskífu sinni)
urðu til þess, m.a., að platan klárað-
ist ekki. Hún hefur svo verið unnin
nær upp á nýtt á þessu ári og Eirík-
ur hefur bætt við nýjum lögum og
gert hana rokkaðri en hún var í
frumgerð sinni; Valgeir Guðjónsson
náði ágætum árangri með síðustu
plötu sinni, Góðir Islendingar, sem
var fyrsta „alvöru" sólóskífa hans
og sendir nú frá sér aðra plötu sem
hann vinnur með Eyþóri Gunnars-
syni og Ríó er á ferðinni með plötu,
en í lið með Ríódrengjum eru þeir
Gunnar Þórðarson, sem semur öll
lög, og Magnús Einarsson, sem leik-
ur á ýmis strengjahljóðfæri. Allir
textar á plötunni verða eftir Jónas
Friðrik, „hirðskáld“ þeirra Ríótríós-
ins. Þessu til viðbótar koma svo
plata harmonikkuleikarans snjalla
Órvars Kristjánssonar og, að öllum
líkum, sólóplata Friðrik Karlssonar,
sem slær gítar með Mezzoforte.
Skífan
Skífan gefur út í það minnsta
sex hljómplötur fyrir þessi jól: Síðan
skein sól sendir frá sér aðra breið-
skífu sína, sem sveitin vinnur nú
að með Tony Clark, þeim er tók
upp með sveitinni síðustu plötu
hennar; Hilmar Oddsson, sem lék
eitt sinn með Melchior og samdi lög
í kvikmynd sína Eins og skepnan
deyr, sendir frá sér fyrstu breiðsk-
ífu sína sem Skífan dreifir; HLH-