Morgunblaðið - 17.09.1989, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 17.09.1989, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989 14 e Davíð Oddsson um listaverkagjöf Errós: Fullkomnasta safii listaverka eftir einn listamann hér á landi Ekki hægt að taka við jafii stórkostlegri gjöf nema af stórhug HÉR fer á eftir ræða Davíðs Oddsonar, sem hann flutti á Kjarvalsstöðum í gær við opn- un sýningar á málverkum eftir Erró, en þar var tilkynnt um gjöf listamannsins til Reykjavíkur: Erró er kominn heim. Að þessu sinni með stóra sýn- ingu af sínum mögnuðu mynd- verkum. Þótt við fögnum honum vei kemur hann ekki heim eins og týndi sonurinn. Hann er okk- ur hvorki týndur né gleymdur. Við höfum fylgst stolt með frama hans og stórkostlegum árangri utan landssteinanna, árangri, sem engum manni þarf að koma á óvart. Snilld hans liggur í aug- um uppi, þegar horft er á verkin á veggjunum, en þau segja þó ekki alla söguna. Það vita ekki allir, að hér fer ekki aðeins mikill listamaður heldur maður, sem alla tíð hefur unnið að sínu verki rétt eins og hann ætti aðeins örfáar stundir ólifaðar. Vinnutíminn, sem hann skammtar sjálfum sér, yrði í þesu landi flokkaður sem þrælapískur af verstu tegund, og þar sem hann er sinn eigin vinnuveitandi væri ekki hægt að setja neinn annan en hann sjálf- an undir lás og slá fyrir að marg- bijóta öll ákvæði um hvíldartíma vinnandi manna. En nú er hann kominn heim á ný með dálítinn afrakstur þess- arar miklu vinnu og einstæðu sköpunargáfu, og við fögnum honum vel sem góðum landa og góðum gest.i í senn. Sýningar Errós hér á landi hafa aldrei verið neinn venjuleg- ur viðburður. Þær hafa risið hátt á menningarhimni okkar og ski- lið eftir varanleg spor í hvert sinn. En núna verða sporin stærri en áður, og kaflaskiptin einstæð. Og núna má jafnvel deila um, hvort Erró í rauninni fari burt aftur að loknum þessum dögum. Ljóst er orðið að stór hluti af honum verður a.m.k. kyrr. Erró hefur sem sagt ákveðið og tilkynnt að hann muni gefa Reykjavíkurborg myndir frá öll- um^ skeiðum ævi sinnar. Ég hef vitað um skeið að þetta gæti staðið til, og ég þóttist vita að Erró yrði ekki smár í sniðum. Hann gerði það sem hann gerði. Ég vonaðist jafnvel til að þessi gjöf myndi fela í sér tugi mynda hans. Ég mun aldrei gleyma þeirri stund, er ég átti með honum og nokkrum góðum vinum hans fyr- ir örfáum dögum, þegar hann kynnti fyrir okkur gjöfina. Ég hafði sem barn með ríkt ímynd- unarafl, eins og önnur börn, les- ið bækur um ævintýraferðir, sem enduðu oftar en ekki í fundnum íjársjóðum. Ég átti ekki von á, að á fullorðinsaldri myndi ég loksins upplifa slíkt. í gjöf Érrós felast 232 olíu- málverk, 406 vatnslitamyndir og þekjulitamyndir, 146 grafík- myndir, 1.200 teikningar, og 95 samklippur, eða collages. Ennfremur fær Reykjavíkur- borg til varðveislu skissubækur hans, dagbækur hans, bréfasafn, ljósmyndir, plaköt, greinar og bækur. Það er enginn vafi á, að hér er um að ræða fullkomnasta safn listaverka eftir einn listamann hér á landi. Fyrstu verkin gerði hann 10 ára gamall og síðan rekja þau sig gegnum árin, gegn- um tíðina, gegnum stefnurnar, gegnum hveija syrpu verka hans, en hinar frægu syrpur eru nú orðnar 42 talsins og þijú málverk að meðaltali úr hverri syrpu fylgja gjöfinni. Þessi gjöf verður aldrei að fullu metin til frjár. Ef tekið væri til viðmiðunar verð á myndum hans, sem selst hafa á uppboðum erlendis upp á síðkastið, þá er ljóst, að þessi gjöf er hundruða milljóna virði. Verkin eru yfir 2.000 og þau spanna sögu hans og feril sem Iistamanns af ein- stakri nákvæmni. Meðal mynd- anna í þessu mikla safni eru verk, sem erlendir safnarar leita með logandi ljósi og bjóða stórfé fyrir. Og Erró hefur jafnframt sagt, að hann muni gauka að okkur hinu og þessu til viðbótar eftir því sem tími og tækifæri gefast. Borgaryfirvöld taka þessari gjöf feginshendi, þakklátum huga. Gjöfin er óviðjafnanleg. Okkur er ljóst, að við jafn stór- kostlegri gjöf er ekki hægt að taka nema af stórhug. Gjöfín kallar á stórhug. Hún hreinlega æpir á stórhug. Og á þesum tíma fellur sú krafa vel að þeim hug- myndum, sem borgaryfirvöld hafa um næstu skref á menning- arsviðum. Nú, þegar Borgarleik- hús er senn fullbúið, þegar Við- eyjarstofa stendur loks reisuleg í góðu gildi og tvö önnur stór- hýsi eru langt komin í borginni, vill borgin snúa sér að því að gera upp með myndarbrag hið stórkostlega hús Thors Jensens, Korpúlfsstaði. Korpúlfsstaðir standa fallega í miðju nýbygg- ingarsvæða Reykjavíkurborgar. Það hús er sérstök standmynd um stórhug; stórhug, sem gnæfði upp úr öllu öðru á sínum tíma. Sá stórhugur minnir helst á gjöfina, sem við erum að veita viðtöku í dag. Reykjavíkurborg er um þessar mundir að byggja ráðhús og finnst sumum nóg um svo sem vonlegt er. En menn gera sér ekki grein fyrir því að húsið, sem Thor Jensen reisti yfir kúabú- skap sinn, er í fermetrum talið stærra en ráðhúsið, sem Reyk- víkingar eru að reisa, ef bíla- geymslur þess 'eru frátaldar. Ráðhúsið reisum við á góðæ- ristíma. Kúabúið mikla var reist þegar hér hékk allt í horriminni og kotungsbúskapur var land- lægur. Það er hugmynd borgaryfir- valda, að Korpúlfsstaðir verði gerðir upp; þar verði í framtí- ðinni menningin mjólkurkýrin og listin lífsmjólkin. Hugmyndin er að taka góðan hluta af því mikla húsi undir safn listamannsins Errós. Annars staðar í húsinu verður rými fyrir margvíslega aðra menningarstarfsemi, jafnt leiklist, höggmyndalist, ritlist og tónlist. Endurbygging þessa húss er mikið verk og kostnaðar- samt, og það blasir við að hún mun taka nokkurn tíma. En hug- myndin er sú, að frá og með næstu ijárhagsáætlun verði verkið hafið, þó hægt verði farið af stað, meðan við erum að ljúka þeim stórverkefnum, sem ég áð- an nefndi. Fyrir hönd Reykavíkurborgar og Reykvíkinga — ég vil segja landsmanna allra — sem eiga eftir að njóta, færi ég þér, Erró, alúðarþakkir fyrir þína einstæðu gjöf til höfuðborgar þjóðar þinn- ar. Við viljum vera menn tjl að taka við henni með reisn. Ég ætla ekki að gera þér þann óleik að hafa um þig mörg orð á þessari stundu, þótt tilefnið sé ærið. Ég er þakklátur fyrir að hafa eignast vináttu þína. I gjöf- inni þinni eru m.a. um 30 sjálfs- myndir frá æskuárunum, sem eru eins og annað ómetanlegar, en gjöfin öll er þó best dregna sjálfsmyndin af þér. Því nú á við að segja: „Hver er sínum gjöfum líkastur“. PRION QQQEQS OROi IIISEF II QBOud og þú hefur allt í hendi þér! PSION ORGANISER II - „Alvitur", er lítil handhæg tölva, varla stærri en venjulegur vasareikn ir sem vinnur sjálfstætt og er þar að auki tengjanleg við næstum hvaða tölvubúnað sem er. Margvíslegar nýjungar komnar, ★ 4 línu skjár ★ 64k minni * prentari * ýmsar hugbúnaðar breytingar ^ Hverfisgötu 33, s sími 623737. SKRIFSTOFUVELAR H.F. Nýr dýra- læknir í Gullbringu- og Kjósa- sýslu Steinn Steinsson héraðsdýra- læknir á Sauðárkróki hefúr verið skipaður í embætti héraðsdýra- læknir í Reykjavíkurumdæmi og jafn framt hefúr hann verið sett- ur í Hafúarflarðarumdæmi, en samkvæmt Iögum frá árinu 1982 eru þetta nú tvö umdæmi. Fjórtán dýralæknar sóttu um embættið. Það voru Björn Steinbjörnsson Reykjavík, Ólafur Jónsson hjá Rannsóknarstofnun Mjólkuriðnaðarins, Helgi Sigurðs- son á Keldum, Halldór Runólfsson hjá Hollustuvernd, Lars Hansen á Keldum, Gunnar Ö. Guðmundsson Borgarfirði, Gunnar Þorkelsson Kirkjubæjarklaustri, Einar O. Guð- mundsson ísafirði, Birnir Bjarnason Höfn, Þorvaldur H. Þórðarson Reykjavík, Guðbjörn A. Þorvalds- son Hólmavík, Þorsteinn Ólafsson Búnaðarsambandi Suðurlands og Rögnvaldur Ingólfsson sem er í endurmenntun. Og svo Steinn sem var skipaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.