Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MANNUFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989 C 11 1 kg afvatnaður saltfiskur / 1 kg kartöflur / 2 laukar eða púrrur / 4 stórir tómatar (eða lítil dós afniður- soðnum) / 4 hvítlauksrif / þurrkað- ar kryddjurtir, s.s. basil, timjan og marjoram / 1/2-1 dl ólífuolía / 10-20 svartar ólífur (eftir smekk) / svartur nýmalaður pipar / 1 glas af hvítvíni eða mysu /1 dl rjómi. 1. Áður en þið matreiðið afvatnaðan saltfiskinn er vatnið látið drjúpa vel af honum, roð og bein fjarlægð og hann skorinn í jafnstóra bita. 2. Afhýðið kartöflurnar og skerið í vænar sneiðar. Afhýðið laukinn og saxið (eða sneiðið púrrurnar). Þvoið tómatana og skerið þá í fjórðuparta. 3. Hitið olíuna í potti, látið lauk- inn/púrruna meyrna í heitri olí- unni, bætið síðan kartöflum og tó- mötunum út í, minnkið hitann og leyfið þessu að malla í 10 mínútur og hrærið kröftuglega í af og til. 4. Setjið nú fiskbitana í pottinn ásamt mörðum hvítlauknum og kryddblöndunni, piprið vel. Hellið hvítvíninu/mysunni saman við ásamt dálitlu vatni (ef þið notið nýja tómata). Látið malla í u.þ.b. 20 mínútur. 5. Þá er rjómanum bætt út í, svo og ólífum, og rétturinn kryddaður frekar ef þurfa þykir. Berið fram með heitu hvítlauksbrauði eða rist- uðu brauði og smjöri. Salat úr hráum saltfiski — Esqueixada de Bacall’a Þá er það hrái saitfiskurinn sem Spánveijar nota mikið í salöt. Þetta er líkast til það þekktasta, ættað frá Katalóníu. Uppskrift handa fjór- um. 600 g afvatnaður saltfiskur / 200 g tómatar / 1 harðsoðið egg / 300-400 g laukur / 100 g svai-tar ólífur / 4 msk. ólífuolía / 1 msk. vínedik / 3 steinseljugreinar. 1. Getur ekki einfaldara verið. Þvo- ið saltfiskinn vel upp úr köldu vatni, látið drjúpa vel af honum, fjarlægið roð og bein og skerið í munnbita. Setjið í skál og hrærið helmingnum af olíunni saman við. 2. Afhýðið laukinn og saxið, eggið sömuleiðis. Skerið tómatana í litla bita og hrærið saman við afgangn- um af olíunni og edikinu. 3. Komið saitfiski, lauk og tómötum snyrtilega fyrir í salatskál eða fati, setjið yfir ólífur og að lokum stein- selju 'og egg. Berið fram með franskbrauði og rétt er að hafa pip- arstauk innan seilingar. Mörg afbrigði eru til af þessu salati. Eitt þeirra er Remojón - Ensalada de bacalao con naranjas. Það er frábrugðið að því leyti að við bætast 2-3 appelsínur, skornar í þunnar sneiðar og síðan í bita og 1-2 hvítlauksrif. Auk þess er gert ráð fyrir meiri olíu og ediki, svo og eggi til viðbótar. Þá er 1 dl af vatni hellt yfir tilbúið salatið, ef vill. En þessa uppskrift verður hver og einn að þróa eftir smekk. MINOUA Ljósritunar- vélar Nettar, sterkarog vandaðarvél- ar sem nánast ekkert fer fyrir. IVbiotta D-10 Lítil einföld og traust. Sú ódýrasta á markaðnum! tVlnoíta EP-30 Þægileg og sterk vél sem skilar hámarksgæðum. Ekjaran Síðumúla 14,108 Reykjavík, s:(91) 83022 ] s CJöföar til LXfólksíöllum tarfsgreinum! Jlt tfgmijHfifeffe GARÐASTAL Lausn á steypuskemmdum = HÉÐINN = STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000 KYUDO Japönsk bogfími Kennsla hefst 24. septemb- er nk. Getum bætt við tak- mörkuðum fjölda byrjenda. Upplýsingar og skráning í símum 33431 og 38111. Leiðbeinandi: Tryggvi Sig- urðsson 5. dan ZNKR (jap- anska kyudosambandið). Aldurstakmark 18 ár. \EG _ oltw\p\á 0 Cartera -margar vélar í einni Carrera erfullkomin ritvél með ótal sjálfvirkum vinnslum. Virkar einnig sem gæðaletursprentari sem tengja má við allar samhæfðar IBM-tölvur. Sannkölluð atvinnu-, heimilis-, ferða- og skólavél sem notuð er við kennslu í fjölmörgum skólum landsins. Carrera og Carrera S i eru fisléttar og fjölhæfar ritvélar sem hlotið hafa hin alþjóðlegu Q|f]-hönnunarverðlaun fyrir útlit og notagildi. E KJARAN Síðumúla14,108 Rvík.s: 83022 Útsölustaðlr: Bókabúð Brynjars, Sauðárkróki. Bókabúð Böðvars, Hafnarfirði. Bókabúðin Edda, Akureyrí. Bókabúð Jónasar, Isafirði. Bókaskemman, Akranesi. Fyrlrtœkjaþjónustan, Hvolsvelli. Kaupf. A-Skaftfellinga, Höfn. Kaupf. Árnesinga, Selfossi. Kaupf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Penninn, Hallarmúla 2, Austurstræti 10 og Kringlunni, Rvík. Prentverk Austuriands, Egilsstöðum. Stapafell, Keflavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.