Morgunblaðið - 17.09.1989, Síða 7
Heimilið á Öldugötunni ein-
kenndist af heiðríkju og ró. Þegar
dætur mínar fóru að venja komur
sínar til langafa og langömmu
fundu þær einnig þennan kærleik
og hlýju sem ríkti á þessu fallega
heimili. „Litlir fætur“ voru ekki
seinir á sér að taka sprettinn upp
tröppurnar því þar beið þeirra ætíð
opinn faðmur. Er ég hugsa um
Guðna kemur mér ávallt í hug setn-
ingin: „Leyfið börnunum að koma
til mín ...“
Kveðjustundin er við fórum af
landi brott til náms var afar erfið.
En myndina af langafa geymdum
við í brjósti okkar, og þegar við
komum heim í frí var það okkar
fyrsta hugsun að komast á Öldugöt-
una, og þá var allt eins og það átti
að vera. í sumar kvöddumst við
eins og svo oft áður, en það var í
síðasta sinn. En myndina fallegu
varðveitum við.
Guðni var gæddur góðum gáfum
og hafði mikinn áhuga á þjóðmálum
og öllu sem laut að velferð lands
þjóðar. Hann var víðlesinn og átti
mikinn fjölda bóka sem hann hélt
mikið upp á. Hann ferðaðist oft til
ókunnra landa og fræddist þannig
um lönd og lýði, en las sér til um
það sem upp á vantaði. Frásagnar-
gleði hans var mikil og ánægjuleg-
ustu stundir okkar áttum við í stof-
unni á Öldugötunni, þegar Guðni
miðlaði okkur sem yngri vorum af
visku sinni. Þar sat kætin og létt-
leikinn í fyrirrúmi og glettnin var
aldrei langt undan þegar Guðni átti
í hlut. í sorgum okkar og gleði
nutum við þess að eiga hann að,
sem ávallt var tilbúinn að hlusta
og gefa góð ráð. Sárin urðu bæri-
legri og gleðin stærri eftir heim-
sóknirnar á Öldugötuna til Guðna
og Jónu.
Guðni var af kynslóð sem gengið
hafði í gegnum margt, kynslóð sem
hafði tíma til að gefa. Þetta fundu
litlu stúlkurnar mínar. Þegar þær
fréttu að langafi væri daínn sögu
þær „Við höfum átt hann svo stutt“,
en ég veit að á vissan hátt fylgir
hann þeim alla ævi, hann hefur
gefið þeim svo mikinn kærleik að
hann er orðinn hluti af þeim.
Auður Alfreðsdóttir
Nú er hann elsku afi minn dáinn.
Sem mér þótti svo vænt um. Það
er svo erfitt að sætta sig við að
missa hann. En endurminningarnar
geymast alltaf í huga mér. Afi minn
var glettinn og gamansamur. Ég
gat alltaf leitað til hans þegar mér
lá eitthvað á hjarta. ■
Ég vil votta elsku ömmu minni
samúð mína á hennar erfiðu stundu.
Guð blessi minningu afa míns.
Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum.
Ég undur mikið sé.
Þú stýrir vorsins veldi
Og vemdir hveija rós
Frá þínum ástareldi.
Fá allir heimar ljós.
(D. Stefánsson)
Þórunn Jónína
Tyrfingsdóttir, dótturdóttir.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDÁGUR 17. SEPTEMBER 1989
C 7
■V
/5
Hallandi diskar eru með
móttökubúnað, sem skyggir
á útsendinguna, auk þess aö
safna í sig snió
Loðréttir diskar
ná sterkara „merki
en hallandi diskar
á EchoStar gervihnattadiskum
mánudaginn 18. til föstudagsins 22. september.
Yfir 30 sjónvarpsrásir sneisafullar af fréttum, kvikmyndum,
barnaefni, framhaldsþáttum, fræbsluefni,
gamanmyndaflokkum,spurningakeppnum, tónlistarefni,
íþróttum og mörgu fleira, á fjölmörgum tungumálum.
Vegna milliliöalausra magninnkaupa
getum viö boöiö lóörétta EchoStar
gervihnattadiska á frábœru veröi!
E
IUROCARD V MHfMiiii Samkort
greiðslukjör til allt að 12 mán.