Morgunblaðið - 17.09.1989, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGlllUÍtJfeBPTEMBER 1989
C> 2 3
VfíY'KDlAST/Gjafir eru kjami íslenskra
listasafna...
Stóífengleg lista-
verkagjöfErrós
I GÆR hófst á Kjarvalsstöðum mikil sýning á málverkum eins firemsta
núlifandi listamanns Islendinga, Errós. Við opnunina tilkynnti Davíð
Oddsson, borgarstjóri, að Iistamaðurinn hafí gefið Listasafni
Reykjavíkur stórkostlegt safti verka sinna til varðveislu. Er hér um
að ræða eina stærstu listaverkagjöf, sem íslensku safiii hefur nokk-
urn tíma verið færð. Af þessum sökum verður að telja laugardaginn
16. september 1989 einn af mestu happadögum íslenskrar listasögu.
Gjöfin samanstendur af hundruð-
um verka af ýmsu tagi. í henni er
mikill flöldi málverka, þar af mörg
úr þekktum flokkum verka sem
Erró hefur gert. Einnig eni í henni
grafísk verk og teikningar, allt mik-
ilsverð verk. Loks er að nefna sam-
klippur, en þær hafa löngum verið
grunnurinn að öllum stærri mál-
verkum hans. — Þessi verk Errós
eru allt frá æskuverkum til lista-
verka sem gerð hafa verið síðustu
ár og verða kjarni í Erró-safni, sem
væntanlega mun fljótlega stækka
umtalsvert og íslendingar munu
verða stoltir af í framtíðinni.
Gjöfina er auðvitað ekki hægt
að meta til fjár, en ljóst er að sam-
anlagt verðmæti verkanna er hið
minnsta myndarleg níu stafa krónu-
tala. Það er því mikið tráust sem
Erró sýnir Listasafni Reykjavíkur
með því að ákveða að þar skulu
verk hans varðveitt.
Með þessum verkum geta íslend-
ingar í fyrsta sinn státað af því að
listasafn hér á landi bjóði upp á
sýningar á alþjóðlegri samtímalist
úr eigin safni, því að listaverk Err-
ós eru fyrst og fremst hluti af
heimsmenningunni. Nú verður til
staðar í Reykjavík bæði hin sér-
stæða myndlist okkar kunnu meist-
ara, sem sumir eiga vart sinn líka
annars staðar, og alþjóðalist eftir
myndlistarmann, sem kemur úr
íslenskum jarðvegi og hefur haldið
fullum tengslum við land og þjóð,
en jafnframt þróað list sína inn í
Erró (Guðmundur Guðmunds-
son) er sá íslenskur iistamaður,
sem hefur náð hvað mestum frama
í hinum alþjóðlega listheimi. Hann
hefur náð að skapa sérstæðan stíl,
sem hann hefur
stöðugt þróað og
endurnýjað frá því
snemma á sjöunda
áratugnum. Auk-
inn hróður hans
hefur borist víða,
og má finna nýleg
dæmi þess að list
hans sé metin að
verðleikum víða um heim; verk hans
skipa mikilvægan sess á stórri yfir-
litssýningu á alþjóðlegri list, sem
nú er haldin í Moskvu, og nýverið
var Erró sæmdur hærri gráðu af
,Ordre des Arts et des Lettres“,
þekktu heiðursmerki fyrir lista-
menn í Frakklandi.
Verk Errós er að finna í listasöfn-
um víða um heim, og engin lista-
saga síðustu þriggja áratuga verður
samin án þess að verk hans hljóti
þar sinn sess. Hann hefur starfað
og sýnt víða, en mest í Frakklandi;
þar hefur Erró einnig unnið tals-
vert fyrir opinbera aðila, bæði ríki
og bæjarfélög, og er ekki að efa
að mörgum söfnum í Frakklandi
þætti mikill sómi að því að fá að
hýsa verk listamannsins. í ljósi
þessa er listaverkagjöfin ómetan-
legur heiður fyrir Reykjavík og
raunar alla íslendinga.
eftir Eirík
Þorlóksson
Erró — ómetanlegur heiður.
þá hringiðu heimslistarinnar, sem
við tengjumst sífellt sterkari bönd-
um.
Listaverkagjöf Errós leiðir hug-
ann að öðrum stórgjöfum, sem lista-
menn og listunnarar hafa fært þjóð-
inni. Ef grannt er skoðað, hafa
slíkar gjafir orðið upphafið að flest-
um listasöfnum hérlendis og mynd-
að kjarna þeirra. Vert að nefna
nokkrar af þessum merku gjöfum
í tilefni tilkynningar borgarstjóra í
gær. Safn Einars Jónssonar var
gjöf listamannsins til þjóðarinnar
og sömu sögu er að segja um Safn
Asgríms Jónssonar (gjöf Ásgríms
Jónssonar til þjóðarinnar, _sem nú
er undir stjórn Listasafns íslands).
Listaverkagjöf Ragnars Jónssonar
varð stofninn að Listasafni ASÍ, og
gjafir Ásmundar Sveinssonar og
Jóhannesar Kjarvals urðu að Safni
Ásmundar Sveinssonar og Kjarvals-
safni, sem Kjarvalsstaðir voru reist-
ir til að hýsa. — Einnig má nefna
að Gunnlaugur Scheving gaf fjölda
listaverka sinna til Listasafns ís-
lands og sömu sögu er að segja um
þann merka listaverkasafnara og
listvin, Markús ívarsson. Þá er ótal-
inn fjöldi gjafa frá listamönnum,
ættingjum þeirra svo og öðrum list-
unnendum, til safna á höfuðborgar-
svæðinu og ekki síður til héraðs-
og byggðasafna víða um land.
Þannig má landsmönnum vera
Ijóst, að myndlistin er almennings-
eign fyrst og fremst fyrir tilstilli
listaverkagjafa til hinna ýmsu
safna. Og þannig hlýtur það að
verða áfram. Listaverk hafa stigið
mjög í verði hin síðari ár og næsta
víst að opinber framlög til lista-
verkakaupa fyrir söfnin munu tæp-
ast ná að halda í við þá þróun hér
innanlands, hvað þá heldur þegar
boðið er í verk í samkeppni við söfn
og safnara erlendis. Því má segja
að gjafir listamanna og listvina
hafi verið og muni um ókomna
framtíð vera kjarni íslenskra lista-
safna.
En slíkar gjafir leggja einnig
miklar kvaðir á þá sem þær þiggja.
I fyrsta lagi þarf að hýsa þær sóma-
samlega, þannig að listin sé að-
gengileg. Jafnframt þarf að varð-
veita verkin við fullkomnar aðstæð-
ur, með tilliti til ytri aðstæðna, svo
sem lýsingar, lofthita og rakastigs.
Listaverk þarf að tryggja á öruggan
hátt og þau þurfa stöðugt eftirlit
og jafnvel viðhald, til að komandi
kynslóðir fái notið þeirra um
ókomna tíð; það er frumskylda allra.
listasafna að standa vel að þeim
málum. — Einnig er sú skylda lögð
á listasöfn, að í þeim sé aðstaða
fyrir fræðimenn og aðra til rann-
sókna og fræðistarfa, til að unnt
sé að auka stöðugt skilning fólks
og áhuga á þeirri myndlist, sem þar
finnst. Því miður er nú mjög mis-
jafnt, hvernig söfnum gengur að
uppfylla það síðastnefnda og kemur
þar þrálátur íjárskortur til. Það
fylgir því gjöfinni mikil ábyrgð og
er vonandi að borgaryfirvöld beri
gæfu til að sýna verkum Errós
þann sóma sem þau eiga skilið, og
nái að skapa þeim þær aðstæður,
að bæði listunnendur og fræðimenn
fái notið verkanna sem best, og þau
verði til þess að auðga íslenskt list-
alíf um ókomna tíð. Þá verður gam-
an að lifa fyrir íslenskt áhugafólk
um myndlist.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
WordPerfect II.
Útg. 5.0. 26.-28. sept. kl. 13-17
(Orðsnilld) fyrir lengra komna. Kafað enn dýpra í ritvinnsluna WordPerfect, t.d. er farið
í samsteypur, teiknun, reikning, textadálka, fjölva, kafiaham o.s.frv.
Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasdóttur
Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933.
ATH: VR og fleiri stéttarfélög styrkja félaga sina til þátttöku.
Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf.
V etr artrniiim
hjá SJÓVÁ-ALMENNUM
er frá níu til fimm
Haustið er komið og veturinn nálgast óðum.
Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM skiptum við yfir í
vetrarafgreiðslutíma sem er frá
klukkan níu til fimm. Vetrartíminn gildir
frá 15. september til 1. maí.
SJOVAOnuALMENNAR