Morgunblaðið - 17.09.1989, Síða 28

Morgunblaðið - 17.09.1989, Síða 28
28 C Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Veikleikar Sporö- drekans í dag ætla ég að fjalla um veikleika Sporðdrekans (23. okt.- 21. nóv.). Athygli er vakin á því að þó hér sé lögð áhersla á veikleika, að þá býr merkið yfir mörgum merki- legum verðleikum. Einnig er rétt að hafa í huga að við getum yfirunnið veikleika okkar og því þarf eftirfarandi ekki að eiga við um alla Sporðdreka. ímyndar sér Sporðdrekinn er tilfinninga- ríkur og hefur sterkt ímynd- unarafl. í því er fólginn einn af veikleikum hans. Hann á til að ímynda sér að þetta eða hitt geti gerst og lifa of mikið í eigin innri heimi en ekki nógu mikið í nútíðinni. Sporð- drekinn setur á svið atburði í eigin hugarheimi. Ef hann er kvíðinn málar hann gjarnan skrattann á vegginn og dreg- ur úr sjálfum sér. Bœlir niður Annar möguglegur veikleiki Sporðdrekans er fólginn í dulu eðli hans. Það þýðir að hann á stundum til að bæla niður í sér tilfinningar eða reiði, og loka á sjálfan sig. Það getur síðan leitt til þess að innra safnast upp vanlíðan. Sporð- drekinn lætur síðan vera að tala við aðra um málin. Það getur leitt til þess að smámál verður með tímanum að stór- máli. Magnar upp Þegar við tölum um að smá- mál verði að stórmáli setjum við fingurinn á eirin af veik- leikum drekans. ímyndunar- afl hans er það mikið að ef ekki er að gáð og stjórn höfð á ímyndunum þá býr hann til atburði úr litlu sem engu, t.d. þyí að ástvinurinn kemur of seint heim úr vinnunni eða öðru álíka. Rífur niöur Annar veikleiki, einungis mögulegur, er sá að Sporð- drekinn hefur tilhneigingu til niðurrifs. Hann á því til að bijóta sjálfan sig niður og vera neikvæður á umhverfið. Alvörugefinn Sporðdrekinn lifir sig sterkt inn í hvert einstakt mál og almennt má segja að hann sé alvörugefinn. Þetta háir hon- um stundum á þann veg að hann tekur það sem er að gerast í umhverfi sínu of nærri sér. Þeir Sporðdrekar eru því til sem alltaf virðast vera í styqöldum eða að tak- ast á við erfið mál. Svarísýnn Sporðdrekinn er að upplagi sálrænt merki. Hann sér i gegnum yfirborðið og þolir ekki hræsni eða fals. Þetta er ágætur eiginleiki en getur, ef hann gætir sín ekki, leitt til þess að hann verður svart- sýnn, kaldhæðinn og tor- trygginn. Lífssýn hans á því til að verða full dökk. Þetta gengur stundum það langt að Sporðdrekinn virðist oft vera að bíða eftir því að fólk geri eitthvað af sér og hefur því fullmikinn vara á sér gagn- vart fólki. Öfgafullur Sporðdrekinn er ákafur og skapstór og hefur góða ein- beitingu. Það er ágætt en getur í sumum tilvikum leitt til öfga, þess að hann fær ákveðin mál á heilann og úti- lokar annað. Hann getur því átt tii að vera þreytandi og fullkrefjandi á stundum. Að lokum má geta þess að drek- inn á til að vera full ráðríkur, frekur og stífur á sinni mein- ingu. Hann á til að bíta í sig ákveðnar skoðanir og viðhorf. MORGUNBLAÐIÐ MYNDASOGUR SUNNUDAGUR 17. SEFl’EMBER 1989 -------i--—----------------;--:-------------------:----:-------- BRENDA STARR LJÓSKA TH15 15 CALLEP ‘‘TRI&0LUMINE5CENCE ‘‘ Ég er búin að átta mig á þessu, herra. Tyggigúmmí kemur fram blossa vegna rafmagnsáhrifa. Þetta er kallað gegnumlýsing. |VE 60T IT FIGURED 0UT,5IR.. UUINTER6REEN CANC7T MAKE5 SPAKK5 BECAU5E OF ELECTRhLAL CMARSE5.. SMÁFÓLK Jæja, tyggðu betur, ég er að reyna að lesa kortið. Ég held að ég sé búin að missa allar tennur. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Það heitir „öfugur blindur" þegar slögunum er fjölgað með því að stinga oft á þeirri hendi sem lengri er í trompinu. Nafn- giftin kemur til af því að sagn- hafi á almennt fleiri tromp heima en í blindum. Nauðsynlegt skilyrði til að slík spilamennska gangi upp er að blindur eigi nægar innkomur, en oft kemur vömin til hjálpar í því efni. Norðurgefur; enginn á hættu. Vestur Norður ♦ K72 V10763 ♦ KD10 ♦ G72 Austur ♦ 1054 ♦ 83 V Á984 llllll ▼ DG52 ♦ G43 ♦ 95 + K65 ♦ D10843 Vestur Suður ♦ ÁDG96 ▼ K ♦ Á8762 ♦ Á9 Norður Austur Suður — Pass Pass 1 spaði Pass 2 spaðar Pass 3 tíglar Pass 4 spaðar Pass 4 grönd Pass 5 tíglar Pass 6 spaðar Pass Pass Pass Útspil: hjartaás. Stórkarlalega sagt af hálfu suðurs. Hann spurði um ása með fjórum gröndum og fékk upp einn af fimm (trompkóngurinn talinn með). Það var út af fyrir sig gott, en varla gat hann búist við að norður stoppaði upp í öll göt með réttum millispilum. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Vestur var ekkert óánægður með útspilið þegar hann sá að ásinn fangaði kóng- inn, og hélt ótrauður áfram með litinn. Það gat varla sakað, eða hvað? Með hagstæðri tígullegu á sagnhafi klippt og skorið 11 slagi og aðeins einn möguleika til að sækja þann tólfta — með öfugum blindum. Til þess þarf hann að trompa þijú hjörtu heima og komast inn á blindan til að taka síðasta trompið af andstæðingunum. Langsótt, en vestur gaf honum von með því að spiia hjarta í öðrum slag. Það var trompað, tígli spilað á kóng og hjarta aftur trompað. Nú var trompi tvisvar spilað og tígultíu síðan svínað! Loks var síðasta hjartað trompað og farið inn á biindan á tígul tii að taka spaða- kónginn og henda laufníunni heima. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á opnu móti stórmeistarasam- bandsins í Belgrad í desember kom þessi staða upp í skák Sovét- mannsins Avshalumov (2.420), sem hafði hvítt og átt.i leik, og Rúmenans Dumitrache (2.405). 31. Re6+!! - Bxf6, 32. Bxf6 - Hxe2, 33. Hxe2- Db5, 34. Hxe6 - Dxd7 (Eftir 34. - Dfl+, 35. Kh2 - Df4+, 36. Kh3 - Dh6+, 37. Kg3 sleppur hvítur úr skákun- um.) 35. Hxa6 (Hvítu mennirnir vinna svo vel i saman að svartur verður fyrirsjáanlega að láta drottningu sína fyrir hrók. Hann reyndi: 35. - Ddl+, 36. Kh2 - Dd5, 37. Hb6 - Da8, 38. Be5! (En alls ekki 38. Hd6?? - Db8.) 38. — 15, 39. Hb8+ og hvftur vann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.