Morgunblaðið - 17.09.1989, Side 33
cm iiaaMtmab ,;t c-actA-Wimoi
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989
3
C
ss
33
an Freyja og Kögurás, fyrirtæki
smábátaeiganda, og ættu þessi fyr-
irtæki að hafa nægan fisk út árið,
ef vel er á málum haldið. Togarinn
Elín Þorbjarnardóttir á eftir svolít-
inn kvóta og Sigurvonin var á drag-
nót í sumar og er nú hætt vegna
kvótaleysis, það sem eftir er geyma
þeir fram í nóvember, því þá fer
hún á línuveiðar. Talandi um kvóta
sem er mál málanna í dag, hef ég
gott dæmi um mismun. Hér er 15
tonna bátur Ingimar Magnússon ÍS
650 sem tveir harðduglegir menn
eiga og gera út. Þessi bátur er með
það lítinn kvóta að hann verður að
liggja bundinn við bryggju hálft
árið í senn. En svo er verið að
smíða fjöldann allan af bátum sem
eru mældir 9,9 tonn, en eru jafn-
stórir ef ekki stærri sumir hveijir
en þessi umræddi bátur er. Þessir
9,9 t bátar mega fiska eins og þeir
geta. Þetta hef ég aldrei heyrt þá
menn tala um sem mest ropa útaf
smábátunum."
Hvernig leggst veturinn í þig?
„Það má segja að, það sé alltaf
vetur, en hann leggst þannig í mig
að það verður að mestu autt fram
að áramótum, síðan verður mikill
snjór“, sagði Jói að lokum og tendr-
aði í pípunni sinni áður en hann
hvarf út á hafnarkant, þar sem
nokkrir trillukarlar voru að ræða
málin.
Það endar með því að
maður flýr land ef
efhahagsástandið batnar
ekki.
Síðasti Súgfirðingurinn sem
fréttaritari ræddi við var Jens Dan-
íel Holm. Jens er 29 ára gamall og
er húsgagnasmiður að mennt. Hann
er svo að segja nýkominn heim er-
lendis frá. Og fyrsta spurningin
var: hvar hefurðu alið manninn?
„Ég hef verið í Bandaríkjunum frá
því í bytjun nóvember í haust. Þar
þekki ég fólk sem ég ákvað að heim-
sækja og ástæðan fyrir því að ég
var svo lengi var aðallega sú að
þar var ódýrt að versla í matinn
Og svo var ég í ódýru húsnæði.
Þetta var nú allt í lagi, ekkert neitt
æðislega spennandi, borgin er mjög
stór og umferðin þarna er hrein
geðveiki. Ef þú ert ekki á bíl, getur
það tekið þig allan daginn að kom-
ast í bæinn. Maður er ótrúlega lítill
í svona stórri borg, maður er eigin-
lega ekki neitt. Aður en ég kom
heim fór ég til Florida og Orlando
og var þar í nokkrar vikur. Ég kom
heim 9. júlí og skellti mér beint á
handfærin. Það var gott að koma
heim í heiðan dalinn þar sem allt
var nær óbreytt frá því ég fór það-
an. Stuttu eftir heimkomuna fór ég
með félaga mínum í mánaðarreisu
til Costa del Sol og síðan til Amst-
erdám. Þannig að mitt sumarfrí er
búið í ár.“ Hvað hyggstu fyrir í
vetur? „Nú, það er að vinna og
borga skuldir eins og við öll erum
að gera. Vinnan bíður og ætli ég
verði ekki við smíðar í vetur, það
er nóg að gera í því hér. Annars
er framtíðin alveg óráðin hjá mér
það verður að ráðast með tímanum
hvað verður ofaná. Mér finnst efna-
hagsástandið hér á íslandi ekki
bjóða upp á það að fólk geti lifað
sómasamlegu lífi, nema það þræli
sér út dag og nótt. Ríkisstjórnin
verður að fara að gera eitthvað
róttækt í byggðastefnu og kvóta-
málum ef það skeður ekki fljótlega
að þá er alveg eins gott að taka
. pokann og drífa sig burt af klakan-
um.“ Ertu að segja að þú sért að
flýja land? „Það endar með því að
maður gerir það ef efnahagsástand-
ið batnar ekki. Ég hef áhuga á að
heimsækja Ástralíu og jafnyel að
vinna þar. Ég þekki nokkra íslend-
inga sem búa þar og láta þeir vel
af dvölinni. Fagmenntað fólk á auð-
velt með að fá þar vinnu og hver
veit nema maður sæki um atvinnu-
leyfi þar á næsta ári.“ Áhugamál?
„Það hefur farið lítið fyrir þeim
vegna þessara ferðalaga, en þegar
ég hef tíma, þá tek ég kassagítar-
inn og munnhörpuna og spila dá-
lítið fyrir sjálfan mig.“ Þannig að
það má segja að þú hafir komið frá
Hollywood á handfæraveiðar? „Eig-
um við ekki að segja það“, sagði
Jens Holm að lokum.
Róbert Schmidt
SHUSIÐ
’cedc霗
Gömlu dansarnir
með Reyni Jónassyni og -
hljómsveit
í kvöld frá kl. 21 -01.
Nú eigið þið dansgólfið. Samkvæmis-, gömlu
og nýju dansarnir í kvöld frá kl. 21 -01.
Frábær tónlist undir stjórn
Sigurðar Björgvinssonar og Stefáns P.
Nú mæta allir sem elska að dansa.
Skemmdarverk í vegamálum
- hvers vegna rís Steingrímur Sigfusson
öndverður gegn jarðgöngum undir Hvalfjörð?
Til Velvakanda.
Járnblendifélagið og Sements-
verksmiðja Ríkisins hafa boðist til
að gera jarðgöng undir Hvalfjörð
hinu opinbera að kostnaðarlausu.
Menn skyldu nú ætla að ríkisstjórn
íslands tæki tveim höndum svo
einstæðu kostaboði. Nei, aldeilis
ekki! Steingrímur Sigfússon þver-
ast við sem versti durtur, hefur
þegar tafið framgang þessa mikla
nytjamáls í heilt ár, virðist helst
vilja svæfa það að fullu og öllu.
Hér eru stórir hagsmunir í húfi.
Sparnaður myndi nema miljörðum
á næstu árum: Minni bensíneyðsla
(leiðin styttist um ca. 130 km fram
og aftur), minna slit ökutækja,
stytting aksturstíma (um hálfan
annan tíma, fram og aftur) auk
annars hagræðis. Þannig myndu
sparast fleiri miljarðar í erlendum
gjaldeyri og hefði einhvern tíma
þótt enginn smáræðis búhnykkur.
Um tveir þriðju til þrír fjórðu
íslensku þjóðarinnar búa beggja
vegna Hvalfjarðar. Þeir munu
kunna Steingrími Sigfússyni litlar
þakkir - ekki síst þeir sem þurfa
oft að aka þessa leið, ef til vill 50
til 100 sinnum á ári.
Til Velvakanda.
Að gefnu tilefni, vegna skrifa
Bjarnþórs Aðalsteinssonar í dálki
þínum þann 13. september sl.,
óskar fyrirtækið eftir að eftirfar-
andi verði birt í Velvakanda.
Eurocard-gullkortahafar eru
allir aukaaðilar að IAPA, sem eru
alþjóðasamtök flugfarþega. Þetta
veitir þeim rétt til afsláttar af
hótelverði og af leigugjaldi bíla-
leiga, en þeir þurfa að fylgja þeim
reglum sem settar eru af IAPA
til þess að fá þennan afslátt. Öllum
Eurocard-gullkortahöfum er á
hveiju ári send bókin „Eurocard
En hver er orsök þessarar end-
emislegu afstöðu ráðherra Al-
þýðubandalagsins? Liggur Hval-
fjörður ef til vill of nærri
Reykjavík? Slikur fjandskapur
mun ekki gleymast við næstu
kosningar!
Gull“, sem er „IAPA hotel bene-
fits directoiy“. I þessari bók er
tekið nákvæmlega fram hver af-
sláttur er og hvað beri að gera til
þess að hann verði veittur.
í tilviki Bjarnþórs þá fylgdi
hann ekki þeim reglum sem settar
eru og þar af leiðandi fékk hann
ekki afslátt. Á bls. 17 í fyrr-
nefndri bók eru leiðbeiningar um
það hvernig staðið skuli að pöntun
á bílaleigubíl til þess að öðlast
afslátt.
F.h. Eurocard á íslandi,
Gunnar R. Bæringsson
Ekill
Eurocard-gullkort veita afslátt