Morgunblaðið - 28.09.1989, Page 1

Morgunblaðið - 28.09.1989, Page 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 220. tbl. 77. árg. FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ársfiindur Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins: Bush hvetur til auk- innar efhahagsað- stoðar við Pólveija Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti hvatti vestræn iðnríki til að veita Pólverjum meiri efhahagsaðstoð en þegar heftir verið ákveðin í ræðu sem hann hélt á ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins í Washington í gær. Ríkisstjórn Póllands fagnaði þessari yfirlýsingu og sagðist þurfa 500 milljónir dala (rúmlega 30 millj- arða ísl. króna) til að eiga fyrir nauðsynlegum innflutningi til við- bótar við lán að upphæð einn milljarður dala sem sljórnin er nú að reyna að semja um við vestrænar íjármálastofnanir. George Bush Bush sagði að stjórnmálalegar og efnahagslegar umbætur í Pól- landi og öðrum Austur-Evrópuríkj- um gæfu vestrænum lýðræðisríkj- um sögulegt tækifæri. „Bandaríkin og bandamenn þeirra hafa þegar ákveðið að koma Pólveij- um til hjálpar. En betur má ef duga skal. Þörfin vex, Samstaða heldur nú um stjórnvölinn og við eigum mik- ið í húfi að umbæturnar takist.“ Bush til- greindi ekki nánar í hveiju frekari aðstoð ætti að felast en sagði að Pólveijar fengju ekki ijárhags- stuðning nema þeir ynnu að efna- hagsumbótum í samráði við Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn. Fyrr í suim ar hét Bush Pólveijum 100 milljóna dala aðstoð sem mörgum þótti í minna lagi. Leszek Balcerowicz, fjármála- ráðherra Póllands, hefur átt við- ræður við sex af fjármálaráðherr- um sjö helstu iðnríkja heims á árs- fundinum í Washington til að ræða leiðir til að bjarga efnahag Pól- lands. Hann hefur farið fram á að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Al- þjóðabankinn veiti Pólveijum eins milljarðs dala lán til að beijast við verðbólgu. Erlendar skuldir Pól- veija eru nú 40 milljarðar dala. Samkvæmt þýsku fréttastofunni dpa nema endurgreiðslur og vextir af þessum lánum 2,2 milljörðum dala fram til ársloka 1990. Á þriðjudag lagði framkvæmda- stjórn Evrópubandalagsins til að bandalagið veitti Pólveijum 300 milljóna dala lán. í gær fór pólska ríkisstjórnin þess á leit að hún fengi 500 milljóna dala lán til að standa undir brýnustu þörfum fram að áramótum eins og innflutningi á matvælum og lyfjum. Verði óskir -pólskra stjórnvalda uppfylltar má búast við að hún fái efnahagsað- stoð og lán á næstunni að upphæð 2,7 milljarðar dala. Papandreou verst ásökunum Reuter Andreas Papandreou, fyrrum forsætisráðherra Grikklands, flutti ræðu í gríska þinginu í gær þar sem hann varðist ásökunum um aðild að Qármálamisferli tengdu svonefndum Krítarbanka. Eignaði hann ásakanirnar „hugsjúkum svindlara" og þvertók fyrir glæpsamlegt athæfi af sinni hálfú. Hins vegar sagðist hann bera pólitíska ábyrgð á hneykslinu. Myndin var tekin er hann yfirgaf þinghúsið í fylgd eiginkonu sinnar, Dimitru Liani. St]’órnarskrárbreytingar samþykktar í Slóveníu: Ottast að ríkj asamband Júgóslavíu liðist í sundur Ljúbljana, Júgóslavíu. Reuter. ÞVERT á aðvaranir júgóslavn- eskra yfirvalda samþykkti þing Slóveníu í gærkvöldi breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins sem fela í sér að leiðtogar þess taka sér rétt til þess að segja það úr ríkjasambandi Júgóslavíu. Eftir næturlangan neyðarfúnd í fyrri- nótt samþykkti miðstjórn komm- únistaflokks Júgóslavíu áskorun til þingmanna Slóveníu með 97 atkvæðum gegn 40. Þar sagði að fyrirhuguð stjórnarskrár- breyting gæti leitt til þess að ríkjasambandið liðaðist í sundur. Sambandsstjórn landsins, sam- bandsþingið og yfirmenn sameig- Norðmemi ræða við Banda- ríkj’amenn um hvalveiðar Ósló. Frá Runc Timbcrlid, fréttaritara Morgunklaðsins. NORSKA ríkisstjórnin vinnur nú að því að fá Bandaríkjastjórn til að breyta afstöðu sinni til hvalveiða í atvinnuskyni. Hafa þau Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra, Thorvald Stoltenberg utanríkisráðherra og Johan Jörgen Holst varnarmálaráðherra átt viðræður við bandaríska ráðamenn um þetta mál og þar á meðal við George Bush forseta. Stoltenberg tók málið upp á fundi með Robert Mosbacher, við- skiptaráðherra Bandaríkjanna, og James Baker utanríkisráðherra en Gro færði það í tal við Bush í hádegisverðarboði, sem hann hélt frammámönnum í sendinefndum ýmissa landa hjá Sameinuðu þjóð- unum. Þá hefur einnig verið haft samband við John Sununu, skrif- stofustjóra Hvíta hússins, og áhrifamenn meðal bandarískra umhverfisverndarmanna. Stoltenberg segist vongóður um, að viðræðurnar beri árangur og Mosbacher viðskiptaráðherra segir, að Bandaríkjastjórn ætli að skoða hug sinn til hvalveiðanna á nýjan leik. „Það skiptir okkur Norðmenn miklu að koma því á framfæri, að það er nauðsynlegt að viðhalda vistfræðilegu jafn- vægi í sjónum,“ sagði Stoltenberg. Norsk stjórnvöld hafa auk þessa á pijónunum mikla upplýs- ingaherferð í þeim aðildarríkjum Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem hafa verið andvíg veiðunum, og verður nefnd embættismanna og sér- fræðinga falið að sjá um það. Eru það einkum hrefnuveiðarnar, sem Norðmenn vilja stunda áfram. Hágsmunasamtök í norskum sjávarútvegi eru mjög ánægð með þetta framtak stjórnvalda og von- ast til að geta hafið veiðarnar strax á næsta ári. inlegs herafla landsins vöruðu einnig við breytingunni. Jafnframt samþykkti þingið stjórnarskrárbreytingu sem bannar sambandsstjórninni í Belgrað að senda hersveitir til Slóveníu eða lýsa yfir neyðarástandi þar nema með samþykki leiðtoga lýðveldisins. Allar þijár deildir þings Slóveníu samþykktu stjómarskrárbreyting- una. Greiddu allir þingmenn nema einn henni atkvæði. Ákvörðunin er talin eiga eftii að ógna ríkjasam- bandinu enn frekar og leiða til auk- ins óstöðugleika. Var hann ærinn fyrir vegna uppreisnar manna af albönsku þjóðerni í Kossovo og vegna efnahagskreppu. Janez Drnovsek, forseti Júgó- slavíu, sneri heim fyrr en áætlað var af Allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna til þess að vera viðstaddur þingfundi í Ljúbljana, höfuðborg Slóveníu. Hann er Slóveni og rauf samstöðu átta manna sambands- stjórnar Júgóslavíu með því að lýsa yfir stuðningi við stjórnarskrár- breytingarnar. í júgóslavneska ríkjasambandinu eru sex lýðveldi og tvö sjálfstjórnar- héruð. Er Slóvenía minnst lýðveld- anna en íbúar þar eru 2,1 milljónir. Það á landamæri að Austurríki og Ítalíu. Þar er stjórnmálafrelsi mest og efnahagsleg þróun er lengra á veg komin þar en í hinum lýðveldun- um. Hagfræðingar í Slóveníu eru hins vegar efins um að lýðveldið eigi framtíð sem sjálfstætt ríki þar sem það sé háð hráefnum frá öðrum hlutum Júgóslavíu. Sovétmenn fá að skoða Thule-stöðina Kaupmaniiahörn. Frá N.J. Bruun, frctla- ritara Morgunblaðsins. DANSKA stjórnin er reiðubúin að leyfa Sovétmönnum að heimsækja ratsjárstöðina I Thule á Grænl- andi, að sögn Uffe Ellemann- Jensens utanríkisráðherra Dana. Sovéski utanríkisráðherrann, Edú- ard Shevardnadze, hefur gefið í skyn að stjórn hans muni leggja niður umdeilda ratsjárstöð í Krasnojarsk í Síberíu án þess að fara fram á tilslök- un af hálfu Vesturveldanna. Hins vegar lýsti ráðherrann áhyggjum Sovétmanna vegna stöðvanna . á Grænlandi og í Bretlandi og hafa Bandaríkjamenn heitið því að ræða þessi mál við áðurnefnda bandamenn sína. James Baker utanríkisráðherra segir að Danir og Bretar verði að leyfa Sovétmönnum að kynna sér Thule-stöðina og ratsjárstöðina í Fyllingsdale í Bretlandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.