Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1989
't
Ferðamálaráð og Útflutningsráð:
Ráðherra telur tor-
merki á sameiningu
Steingrímur J. Sigfusson samgönguráðherra segir að hugmyndir
um aukið samstarf Ferðamálaráðs íslands og Útflutningsráðs íslands
séu allrar athygli verðar, en hann telji ýmis tormerki á sameiningu
þessara aðila. Hann segir hugmyndir þar að lútandi ekki vera ættað-
ar frá samgönguráðuneytinu, og það hafi ekki tekið þátt í viðræðum
um þetta.
Greint hefur verið frá því að
undanfarið hafi staðið yfir viðræður
fulltrúa Ferðamálaráðs og Útflutn-
ingsráðs um að sameina skrifstofur
ráðanna. „Ég hef ekki kynnt mér
röksemdimar fyrir þessu. Það ligg-
ur í hlutarins eðli að Útflutnings-
ráði ber samkvæmt lögum að koma
á auknu samstarfi aðila sem eru
að efla útflutning og jafnvel þjón-
ustu af því tagi sem hér um ræðir.
Ég held að það þurfi að skoða þetta
mjög vandlega áður en teknar eru
nokkrar ákvarðanir í þessum efn-
um, auk þess að það er vilji Al-
þingis sém ræður. Bæði Ferðamála-
ráð og Útflutningsráð eru grunduð
á lögum frá Alþingi, og það er ein-
faldlega ekki á valdi stjómarmanna
á hvorugum staðnum að breyta
þessu þó vilji þeirra standi til þess.
Þarna er fyrst og fremst um að
ræða hugmyndir fulltrúa í fráfar-
andi Ferðamálaráði, sem að sjálf-
sögðu hafa allan rétt til að setja
sín sjónarmið fram, og hafa vænt-
anlega viljað gera það áður en skip-
unartími ráðsins rynni út,“ sagði
Steingrímur.
Hrossakjötssala til Japans:
Erfiðleikar varðandi
áfi*amhaldandi sölu
Minna um fitusprengt kjöt en áætlað var
KOMIÐ hefur í ljós að hlutfall fitusprengds hrossakjöts, sem Félag
hrossabænda og búvörudeild Sambandsins hafa samið um sölu á við
japanska aðila, er mun minna en búist hafði verið við. Að sögn
Halldórs Gunnarssonar, formanns markaðsnefndar Félags hrossa-
bænda, hefur þetta erfiðleika í for með sér varðandi áframhaldandi
afsetningu á þennan markað. Þegar hafa verið send 11 tonn af
hrossakjöti til Japans, en það er'A hluti af áætlaðri sölu þangað í haust.
Gert var ráð fyrir að selja fítu-
sprengt kjöt til Japans af samtals
5-600 hrossum, en samkvæmt
samningum hrossabænda og bú-
vörudeildarinnar við Japani fengust
um 260 krónur fyrir kílóið, sem er
mun hærra verð heldur en fæst
fyrir kjötið hér á landi.
„Nú er verið að slátra hrossum
af Suðurlandi, en eftir þá slátrun
er ekki hægt að lofa sölu á nema
um 10% af því kjöti sem ekki er
nægilega fitusprengt, og það sem
fellur utan þeirra marka verður
selt í umboðsverslun hjá sláturleyf-
ishöfum. Það hefur komið okkur
mjög á óvart að þó hrossin séu feit
þá er það ekki trygging fyrir því
að kjötið sé fitusprengt,“ sagði
Halldór.
Að sögn Halldórs hafa hrossa-
bændur ákveðið að hækka ekki
verð á hrossakjöti í samræmi við
það sem heimilað var við verðlagn-
ingu á búvöru um síðustu mánaða-
mót. Hann sagði ástæðuna fyrir því
vera hve miklar niðurgreiðslur væru
á kindakjöti og þá spennu sem ríkti
á kjötmarkaðnum hér á landi. „Þá
höfum við ekki getað fengið því
framgengt að heildsölu- og smá-
söluálagning á hrossakjöt verði
lækkuð, og því treystum við okkur
ekki til að hækka verðið."
Verkalýðsfélög og fyrirtæki
setja á stofii heilsumiðstöð:
Breyta á lífsstíl fólks
til heilbrigðari vegar
NOKKUR fyrirtæki og verkalýðsfélög hafa sameinast um að setja
á stofn heilsumiðstöð fyrir félagsmenn og starfsmenn. Markmiðið
með miðstöðinni er að vinna að „heilsuhvatningu", þ.e. reynt
verður að breyta lífsstíl fólks til heilbrigðari vegar. Haldin verða
námskeið, unnið að fræðslu- og áróðursmálum, og boðið upp á
endurhæfingarþjónustu fyrir fólk sem hefur misst heilsu. Einnig
er steftit að því að hluti starfsins fari fram í fyrirtækjunum sjálf-
um. Þar verði t.d. skipulögð vinnustaðaleikfimi, aðstoðað við að
bæta vinnuaðstöðu og veittar Ieiðbeiningar varðandi vinnustelling-
ar, reykbindindi o.fl.. Er steftit að
ar heljist í byijun næsta árs.
Péturs A. Maack, frá sjúkra-
sjóði Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, og Grímur Sæ-
mundsen, læknir, sem unnið hafa
að undirbúningi þessa máls, lögðu
í samtali við Morgunblaðið áherslu
á að ekki væri verið að setja á
stofn líkamsræktarstöð, þó að
líkamsþjálfun yrði einn af mörg-
um þáttum starfseminnar, heldur
heilsu- og forvarnarstöð sem hefði
miklu víðtækari markmið.
Stofnað hefur verið eignar-
haldsfyrirtæki, Máttur hf., sem
keypt hefur um eitt þúsund fer-
metra húsnæði í Nútíðarhúsinu í
Skeifunni. Mun það fyrirtæki
þvi að starfsemi miðstöðvannn-
leigja húsnæðið þeim aðila er sjá
mun um reksturinn á miðstöð-
inni. Eru samningaviðræður langt
komnar við Heilsugarðinn um að
taka að sér rekstrarábyrgð á mið-
stöðinni.
Þau stéttarfélög sern þegar
hafa tekið ákvörðun um að vera
með í þessu verkefni eru Verslun-
armannafélag Reykjavíkur og
Iðja, félag verksmiðjufólks í
Reykjavík, en hugsanleg þátttaka
er nú einnig til umræðu í öðrum
stéttarfélögum. Fyrirtækin sem
eru með frá upphafi eru Sjóvá-
Almennar, BM Vallá, yffilfell,
Hampiðjan, Sjóklæðagerð íslands,
Bílfarmur af fiski út fyrir veg
Selfossi.
LITLU munaði að illa færi við
Þrengslavegamót í Svínahrauni
í gærkvöldi þegar Qaðrabúnað-
ur brotnaði undir fiskflutn-
ingabíl á leið frá Þorlákshöfti
til Reykjavíkur. Farmur bilsins
hallaðist verulega og ekki
þurfti mikið til að bíllinn færi
á hliðina.
Bönd héldu fiskikössunum á
palli bílsins en farmurinn hallaðist
út fyrir bílpallinn. Ökumaður
bílsins og aðstoðarmaður höfðu
hröð handtök við að lagfæra það
sem fór úrskeiðis. Þeir skáru á
böndin sem héldu kassastæðunum
og felldu þær út af bílpallinum
eina af annarri og út fyrir veg.
Fiskurinn var svo tíndur upp í
kassana aftur og í stór ker og
fluttur á öðrum vörubíl til
Reykjavíkur
— Sig. Jóns.
Félagsmálastoftiun:
Sífellt fleiri leita aðstoðar
Annarrar aukaflárveitingar líklega þörf
SKJÓLSTÆÐINGUM Félagsmálastoftiunar Reykjavíkurborgar hefúr
Ijölgað um 27% það sem af er ári miðað við sama tímabil í fyrra.
Utgjöld ■stofnunarinnar í krónum talið hafa aukist um 64% sé miðað
við verðlag hvors árs fyrstu átta mánuðina. Gísli Pétursson fjármála-
sljóri Félagsmálastoftiunar segir líklegt að sækja þurfi um aukaQár-
veitingu í annað sinn á árinu.
Gísli segir að fjölgun skjólstæð-
inga hljóti að stafa af breyttum
þjóðfélagsaðstæðum, fyrst og
fremst atvinnuleysi. I ársbyijun
hafi aukningin milli ára verið 17%
en stöðugt bæst við hana síðan.
Fyrstu átta mánuði síðasta árs hafí
Félagsmálastofnun veitt 1400
manns aðstoð sem kostaði tæpar
84 milljónir króna. Á sama tímabili
Morgunblaðið/Bjarni
Grímur Sæmundsen, læknir, og
Pétur A. Maack, sjúkrasjóði
VR, fyrir utan Nútíðarhúsið í
Faxafeni.
Heilsugarðurinn, Fönn, Prent-
smiðjan Oddi, Þýsk-íslenska, Nói-
Síríus og Securitas.
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR sagði að verkalýðshreyfíngin
hefði tvímælalaust skyldum að
gegna á þessu sviði. „Heilsan er
hluti af kjörum fólks og er sjúkra-
sjóðunum best varið til fyrirbyggj-
andi starfs.“ Lýður Friðjónsson,
forstjóri Vífilfells, sagði að þar
sem svona starfsemi hefði verið
tekin upp erlendis hefði hún skilað
sér í minni veikindum starfs-
manna. „Við höfum því litið á
þetta sem mál er muni ekki bara
kosta okkur peninga heldur einnig
skila sér í formi færri veikinda-
daga og ánægðara starfsfólks,"
sagði Lýður.
í ár hafi verið hjálpað upp á sakir
hjá 1800 einstaklingum fyrir ríflega
137 milljónir. Sé reiknað með fram-
færsluvísitölu verði raunaukning á
útborgaðri fjárhagsaðstoð um 40%
milli ára.
Fjárveiting borgarinnar á þessu
ári til Félagsmálastofnunar nam
hátt í 180 milljónum króna. Sótt
var um aukafjárveitingu síðastliðið
vor þegar sýnt þótti að áætlun
stæðist ekki og þá fengust 48 millj-
ónir. Gísli kveðst nú þurfa að skoða
stöðu mála í nýju ljósi, líklega þurfi
að sækja aftur um aukafjárveit-
ingu.
HALLDÓR V. Sigurðsson, ríkis-
endurskoðandi, segist ekki vita
annað dæmi þess að ráðherra
hafi keypt áfengi á kostnaðar-
verði til að halda einstaklingi
veislu eins og fram hefúr komið
að Jón Baldvin Hannibalsson,
þáverandi fjármálaráðherra, hafi
gert, er Ingólfúr Margeirsson,
ritstjóri Alþýðublaðsins, varð fer-
tugur í maí á síðasta ári.
Yfirskoðunarmenn ríkisreikninga
völttu athygli Ríkisendurskoðunar á
málinu og kröfðust rannsóknar á
því og sagði Halldór V. Sigurðsson
að hann myndi á næstunni eiga
fund með yfirskoðunarmönnum um
svarbréf ráðherrans og að því loknu
yrði ákveðið hvort ráðherrann yrði
krafinn um endurgreiðslu á and-
virði áfengisins sem samkvæmt
þágildandi verðskrá ÁTVR hefði átt
að kosta 58.400 krónur. Ráðuneytið
greiddi hins vegar einungis 18.280
krónur fyrir áfengið, þar sem það
„Til Félagsmálastofnunar leitar
margs konar fólk,“ segir Gísli.
„Þetta er fólk sem misst hefur at-
vinnu og fólk sem getur ekki fram-
fleytt sér við ríkjandi aðstæður, eins
og einstæðar mæður sem leigja
húsnæði á almennum markaði og
eiga rétt á hjálp við að borga húsa-
leigu.
Það er alltaf nokkuð um að vísa
þurfí fólki frá, til að mynda þeim
sem leita til stofnunarinnar um al-
menn lán vegna greiðsluerfiðleika
af húsbyggingu. Vinnureglurnar
sem fylgt er við afgreiðslu umsókna
eru nokkuð flóknar.
Ríkissjóður endurgreiðir það sem
stofnunin borgar útlendingum sem
hingað hafa komið vegna gylliboða
um atvinnu og enga fengið. Tölu-
vert var um þetta á fyrri hluta árs
og Svíar sérstaklega áberandi."
var á kostnaðarverði. Um var að
ræða 100 flöskur af freyðivíni og
tvær flöskur af vodka, tvær af gini
og tvær af viskíi.
Reykhólasveit:
11.300 tonnaf
þangi á land
Miðhúsum.
ÞRÁTT fyrir óhagstætt veðurfar
hefiir Þörungaverksmiðjan
gengið allvel í sumar, segir Páll
Asgeirsson framkvæmdastjóri
Þörungaverksmiðjunnar hf. á
Reykhólum.
A land hafa borist um 11.300
tonn af blautu þangi en það gerir
um 3.200 tonn af þangmjöli. Skila-
verð til verksmiðjunnar er um 23
krónur á tonn að meðaltali.
- Sveinn
Ríkisendurskoðandi:
Áfengiskaup utanríkis-
ráðherra eru einsdæmi