Morgunblaðið - 28.09.1989, Síða 30
3Q
MQRGUNB.LApiP. FIMMTUDAGUR 28, SEPTEMBER 1989
Skortur á fóstrum
viðvarandi vandamál
SKORTUR á fóstrum er viðvarandi vandamál á Akureyri og víða á
dagheimilum er einungis forstöðumaðurinn fóstrumenntaður. Langir
biðlistar eru hins vegar af ófaglærðu fólki sem gjarnan vill vinna á
dagheimilunum og hefur sá biðlisti aldrei verið jafn langur.
Sigríður M. Jóhannsdóttir dag-
vistarfulltrúi Akureyrarbæjar sagði
að á fjórum heimilum sé einungis
um að ræða að forstöðumaðurinn
sé fóstrumenntaður, en einnig er
gert ráð fyrir tveimur fóstrum á
hvetju heimili auk forstöðumanns.
„Það gengur ekki vel að fá fóstr-
ur til starfa út á landsbyggðinni
og það munar um hveija þá fóstru
sem hættir störfum hér. Það er
mikil lægð núna og lítil viðbrögð
þegar auglýst er eftir fóstrum,"
sagði Sigríður.
Síðasta vetur varð nokkur um-
ræða um fóstruliða, í kjölfar þess
að Verkmenntaskólinn sótti um
heimild til að hefja slíkt nám. Starf
fóstruliða var skilgreint sem eins-
konar millistig milli fóstru og ófag-
lærðs starfsmanns. Sigríður sagði
að fóstruliðar hentuðu ekki sériega
vel á landsbyggðinni, en gætu kom-
ið sér vel á Reykjavíkursvæðinu þar
sem erfiðlega gengi að fá ófaglært
starfsfólk. Á Akureyri væri hins
vegar langur biðlisti ófaglærðs
starfsfólks sem fýsti að vinna á
dagheimilum og leikskólum og því
væru aðstæður allt aðrar. „Ef til
þessa fóstruliðanáms hefði komið
má búast við að landsbyggðin yrði
fóstrulaus með tímanum, hér yrðu
eingöngu fóstruliðar, sem ekki búa
yfir nægilegri faglegri menntun.
Við höfum mikið af góðu fólki inni
á okkar dagvistum og það væri
heppilegra að styrkja það til fóstru-
náms.“
Hvað biðlista barna á dagheimii-
in varðar, sagði Sigríður að svo til
væri búið að tæma lista 2-6 ára
barna, þ.e. þeirra sem rétt eiga á
plássi á dagvistum Akureyrarbæjar.
Hins vegar vantaði vöggustofu fyr-
ir hina yngri og skóladagheimili
fyrir 6-10 ára börn, en það væri
þólitísk ákvörðun að 2-6 ára börn
hefðu forgang á dagvistir.
Múrhúð á syðri turni
Akureyrarkirkju farin
að springa
MÚRHÚÐ á syðri turni Akureyrarkirkju er farin
að springa talsvert, en ný múrhúð var sett á kirkj-
una fyrir þremur árum.
Gestur Jónsson, sem er í viðgerðamelnd Akur-
eyrarkirkju sagði að rætt hefði verið um að silan-
húða kirkjuna til að veija hana skemmdum. Sprung-
urnar eru einkum áberandi í rigningu og kemur
þá glögglega í ljós hversu illa suðurturninn er far-
inn. Einnig er talsvert sprangið á kórhúsinu, en á
öðrum hlutum kirkjunnar hefiir ekki orðið vart við
sprungur.
Akureyrarkirkja á 50 ára afinæli á næsta ári og
af því tilefni verður farið út í miklar viðgerðir á
kirkjunni, m.a. verður hún máluð innan og gólf
hennar lagfært.
í byijun næsta mánaðar verður flóðlýsing sett
upp við kirkjuna, en vegna tafa á afgreiðslu á ljósa-
búnaði hefur ekki verið hægt að selja lýsinguna upp
fyrr. Von er á ljósabúnaði til Akureyrar um mánaða-
mótin og verður honum þá komið fyrir þannig að
kirkjan verði böðuð ljósum innan skamms.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Krossanesverksmiðjan:
Þriggja ára vinnu við endur-
bætur lýkur í nóvember
Tveir bátar leita að síld fyrir verksmiðjuna.
Nv vprclim
■ 1J I UIU
Tilboð:
2 lítrar Coca Cola kr. 99,-
1V2 lífer kr. 91,-
Verslunin Þorpið,
Móasíðu 1.
REIKNAÐ er með að endurbót-
um i Krossanesi yúki einhvem
tíma i nóvember, en unnið hefur
verið við að bæta húsa- og tækja-
kost verksmiðjunnar þijú undan-
farin ár. Síðustu tækin, sekkja-
búnaðurinn, koma til landsins
fljótlega. Tveir bátar eru nú á
vegum Krossanesverksmiðjunn-
ar að leita síldar, Guðmundur
Kristinn Su og Heiðrún EA.
Nú er unnið að því að setja upp
nýtt mjölblöndunar- og sekkjakerfi,
jafnframt því sem verið er að rífa
gamla mjölhúsið, en nýja húsið er
byggt utan um það gamla. Geir
Zoega framkvæmdastjóri Krossa-
nesverksmiðjunnar sagði að nýja
kerfið yrði brátt tilbúið og um leið
og hráefni berst til verksmiðjunnar
verður nýja kerfið tengt. Geir sagði
a6 gamla kerfið væri svo gott sem
ónýtt, en það var sett upp notað
fyrir fjölmörgum árum.
Búið er að setja upp átta síló,
sem samtals taka eitt þúsund tonn
af mjöli.
Guðmundur Kristinn SU-404 frá
Fáskrúðsfírði fór út fyrir helgi í
leit að síld á austfjörðunum, en
ætlunin er að landa á Krossanesi.
I gær höfðu þeir á Guðmundi
Kristni ekki orðið varir við veiðan-
legar torfur. Annar bátur á vegum
m
■ -
wkm IICrhhI WÍmk mí imm
® llp t'* imm MM ,=lkj 2
11
11
1 B
. 15.900
Við endurtökum ævintýrið frá þvi í fyrra
og bjóðum tvær dagsferðir til Glasgow
4. og 18. nóvember nk.
Brottför fró Akureyri er kl. 07.00.
Komutími fró Glasgow er kl. 23.00.
Mórgunblaðið/Rúnar Þór
Starfsmenn Krossanesverksmiðjunnar sjá nú Iram á að endurbótum
á húsakynnum verksmiðjunnar ljúki, en gert er ráð fyrir að allt
verði klappað og klárt í nóvember. Samhliða öðrum störfum vinna
starfsmenn við að rífa gamla mjölhúsið, sem hið nýja var byggt utan
verksmiðjunnar hyggst einnig leita
síldar, en það er Heiðrún EA-28 frá
Árskógsströnd. Samkvæmt þeim
upplýsingum sem Geir hafði var
talið líklegt að skipið tæki stefnuna
eitthvað vestur á bóginn.
„Um þétta leyti í fyrra vorum
við byijaðir að bræða, en þó hófst
bræðsla ekki af krafti fyrr en í
nóvember,“ sagði Geir. Fyrsta lönd-
un hjá Krossanesi var fyrir rúmum
mánuði, er tvö færeysk skip lönd-
uðu um 400 tonnum, en síðan hafa
þeir Krossanesmenn beðið spenntir
eftir að sjá meira hráefni.
Ný flotbryggja tek-
in í notkun á Dalvík
NÝ flotbryggja var tekin I notkun á Dalvík þann 22. september sl. Þar
rúmast 20 bátar og er bryggjan smíðuð á Ísafírði af Vélsmiöjunni Þór
hf. Fullbúin kostar bryggjan um 5 milljónir króna.
Eigendur smábáta á Dalvík hafa skemmtilegan svip á höfnina.
M54
saea
Innifalið í verði er:
Flug Akureyri - Glasgow - Akureyri
Akstur að og frá flugvelli í Glasgow
Sameiginleg aðstða á hótel í Glasgow
FERÐASKRIFSTOFA
AKUREYRAR
RÁDHÚSTORGI 3 - SÍMI 25000.
mm
lengi búið við þrengsli í Dalvíkurhöfn
og þegar „litla bryggjan“ var rifin
nú í ágúst þótti hafnaryfirvöldum
ekki annað fært en að grípa til ein-
hverra aðgerða til að ráða bót á að-
stöðuleysi trillueigenda. Samið var
um kaupin í júlímánuði og uppsetn-
ing hófst um miðjan september.
Þetta er fyrsta bryggja sinnar teg-
undar á Norðurlandi sett saman úr
plasteiningum og út frá þeim ganga
svokallaðir „fingur" sem mynda
hverri trillu sérstakan bás. Hvert
pláss er leigt til ársins og kostar það
40.000 krónur. Flotbryggjan liggur
í norður frá smábátagarði og setur
I ár hefur verið framkvæmt fyrir
26 milljónir króna við Dalvíkurhöfn
og er það stærsta verkefni á Dalvík
á þessu ári. Unnið var við dýpkun
hafnarinnar í júní og júlí og voru þá
grafnir út úr höfninni tæpir 48 þús-
und rúmmetrar af efni. Þetta var
orðin mjög brýn framkvæmd því
stærri skip áttu erfitt með að at-
hafna sig innan hafnar, en umferð
um hana hefur aukist mjög á undanf-
örnum árum. í athugun er að hefja
á næsta ári framkvæmdir við gijót-
vörn og breikkun norðurgarðs.
Fréttaritari