Morgunblaðið - 28.09.1989, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDÁGUR 28. SEPTEMBER 1989
Afínæliskveðja:
Þuríður Briem,
Reyðarfirði
Það er ljúft og skylt að senda
henni Þuríði Briem beztu velfarn-
aðaróskir á þessum tímamótum
með vermandi þökk fyrir veitular
stundir.
Vinátta okkar nær ansi mörg ár
aftur og óneitanlega minnir það á
hve örskotshratt líður stund og hve
margar eru þær minningavörður
sem vert væri að staldra við, þegar
horft er svo langa leið til baka.
Þegar sem unglingur man ég
hana fyrst og þó er hún þá minnis-
stæðust sem unga hagyrta konan
í „Aldrei gleymist Austurland“ þar
sem ljóst var að létt lék stakan á
tungu með ákveðinni myndauðgi
og ærinni hlýju til alls sem anda
dregur. Þessi hlýja hjartans hefur
svo orðið einkenni hennar í allri
vináttu okkar ásamt þeim góðu eig-
inleikum öðrum sem henni eru gefn-
ir.
Þuríður er skemmtilega glögg
og greind kona, sem sannarlega
hefði átt í æsku að sækja fram til
meiri mennta, en mennt er ekki
aðeins í skóla sótt, því mennt er
manngildi háð og af sannri hugar-
mennt á hún ærinn sjóð, — skýr í
orði og skoðanaföst.
Löngum hafa bækur verið at-
hvarf hennar og yndi, ljóðelska
hennar og leikni í meðferð málsins
hafa eðlilega laðað hana að ljóðum
og sögum og sjálf hefur hún alltaf
á stopulum stundum gripið til þess
að festa á blað hugsanir sínar í
bundnu máli sem óbundnu.
Þar er af ærnum hagleik haldið
á penna, þó hógværð hennar hindri
það að ég fari nánar út í þá sálma.
Ég get þó ekki stillt mig að líta til
baka til árlegra stórhátíða okkar
Reyðfirðinga — þorrablótanna —
þar sem Þuríður var hinn glaði
gefandi góðra ljóða, sem leikandi
létt var að raula, svo vel féllu þorra-
bragir hennar að hveiju því lagi,
er hún hafði af smekkvísi valið sér
hveiju sinni.
Atvikin hafa því hagað svo að
ég gerðist býsna kunnugur fjöl-
skyldu hennar allri. Gísli maður
hennar varð traustur og góður vin-
ur, sem með bjartsýni, áræði og
dugnaði sínum geislaði lífskrafti út
frá sér, þó heilsan stæði höllum
fæti löngum. Börnum hennar
kenndi ég öllum og kær urðu þau
mér, þó samskipti og vinátta yrðu
verðmest og dýrust við dóttur henn-
ar Katrínu og hennar fólk. Og sjálf
er Þuríður hinn einlægi vinur vina
sinna, sem svo undur er gott að
eiga við fund, mannbætandi og
frískandi í senn. Það er mikill auð-
ur fólginn í samfylgd slíks fólks.
Hress í bragði með bros á vör
ber hún með sér þekkan þokka hins
vorbjarta viðmóts, sem ætíð bjarm-
ar af og þar sem einlægni opins
huga er öðru fremur einkennið.
Hún er kona fríð með rösklegt
fas og hefur skilað æviverki sínu
vel og dyggilega.
Við hjónin eigum margs góðs að
minnast í tengslum við þau mætu
hjón Þuríði og Gísla heitinn, en
minnisstæðust verður síðdegisstund
í sumarhúsinu þeirra sunnan við
fjörð, þar sem elskusemi beggja
umvafði okkur, þar sem glettni og
glaðværð áttu öndvegi. Við eigum
svo alltof fáar slíkar yndisstundir,
sem merla svo bjartar í minning-
unni.
Þetta átti aldrei að vera annað
en örstutt árnaðarkveðja með hug-
umhlýrri þökk.
Rétt skal tæpt á örfáum atriðum
er varða ævihlaup hennar hingað til.
Þuríður er fædd að Eyjum í
Breiðdal eystra. Foreldrar hennar
voru hjónin Kristín Hannesdóttir
og Ólafur Haraldsson Briem, sem
þar bjuggu.
Reyðarfjörður hefur hins vegar
verið heimkynni hennar allt frá því
að þau gengu í hjónaband hún og
Gísli Þórólfsson frá Sjólyst, útgerð-
armaður og síldarsaltandi um ára-
bil heima á Reyðarfirði.
Þar áttu þau hjón fallegt og hlý-
legt heimili, þar sem gestrisnin góð
einkenndi allt. Gísli er látinn fyrir
nokkrum árum. Börn þeirra fjögur
eru:
Kristinn fulltrúi hjá VR á Reyðar-
firði, Katrín húsmóðir á Eskifírði,
Þórólfur kaupfélagsstjóri á Sauðár-
króki og Dagbjört húsmóðir á Sléttu
í Reyðarfirði. Má með sanni segja
að þau hjón hafi barnalán haft.
Þuríði sendum við hjónin svo ein-
lægar árnaðaróskir í tilefni tíma-
mótanna. Hún er enn ung í okkar
vitund, ennþá gefandi með sínu
glaða viðmóti og vonandi verða árin
henni áfram góð og gjöful. Hjartans
þakkir okkar fyrir ágæta samfylgd.
Megi framtíðin verða farsæl og gift-
urík um ókomin ár.
Helgi Seljan
Til greinahöfunda
Aldrei hcfúr meira aðsent efni
borizt Morgunblaðinu en nú og
því eru það cindregin tilmæli
ritstjóra blaðsins til þeirra, sem
óska birtingar á greinum, að
þeir stytti mál sitt mjög. Æski-
legt er, að greinar verði að jafh-
aði ekki lengri en 2-3 blöð að
stærð A4 í aðra hverja línu.
Þeir, sem óska birtingar á
lengri greinum, verða beðnir um
að stytta þær. Ef greinahöfundar
telja það ckki hægt, geta þeir
búizt við verulegum töfúm á birt-
ingu.
Minningar- og
aftnælisgreinar
Af sömu ástæðum eru það ein-
dregin tilmæli ritstjóra Morgun-
blaðsins til þeirra, sem rita minn-
ingar- og afmælisgreinar í blaðið,
að reynt verði að forðast endur-
tekningar eins og kostur er, þegar
tvær eða fleiri greinar eru skrifað-
ar um sama einstakling. Þá verða
aðeins leyfðar stuttar tilvitnanir í
áður birt ljóð inni í textanum.
Almennt verður ekki birtur lengri
texti en sem svarar einni blaðsíðu
eða fimm dálkum í blaðinu ásamt
mynd um hvern einstakling. Ef
meira mál berst verður það látið
bíða næsta eða næstu daga.
Ræður
Töluvert er um það, að Morgun-
blaðið sé beðið um að birta ræð-
ur, sem haldnar eru á fundum,
ráðstefnum eða öðrum manna-
mótum. Morgunblaðið mun ekki
geta orðið við slíkum óskum nema
í undantekningartilvikum.
Ritstj.
Helgin framundan
P^7aRH°lt| 20 S/'/Vl/ 23JJ
Meiriháttar skemmtun á fjórum hæðum
föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 22-03
WaterEnd Jazz Men
dixílandband
Frábærir listamenn frá Þýskalandi
29. og 30..september.
Aðeins þessa einu helgi á 2. hæð.
ROKKSVEÍt
RÚNARS JÚLÍUSSONAR
MANNAKORN
PÁLMl GUNNARSSON, MAGNÚS EIRÍKSSON
OG FÉLAGAR
HLJÓMSVEITIN SAM
BANDID
RÍÓ TRÍÓ
skemmta kl. 22
Opnum kl. 19 fyrir matargesti
Marg rómaður matseðill - Borðapantanir í síma
2 90 9 8
Á næstunni
Ríó Tríó
skemmtirföstudagskvöld
6. okt. og laugardags-
kvöld 7. okt. á 2. hæð.
STÓR-FLUGUR
Gunnars Þórðarsonar
Perlur íslenskrartónlistar.
Kynnir: Þo rg e i r Ástva I dsso n .
Frumsýning 13.október.
Bessi Bjarnason, SagaJónsdóttir,
Kjartan Bjargmundsson,Júlíus Brjánsson,
ásamt dönsurum frá Auði Haralds
sýna sápuóperuna
á 3. hæð. ^
Frumsýning 6. okt.
2. sýn. 7. okt.
3. sýn. 13. okt.
4. sýn. 14. okt.
Hljómsveit
Ingimars Eydal skemmtir:
6. okt. - 7. okt. - 13. okt. - 14. okt.
Aldurstakmark 25 ára — Snyrtilegur klæðnaður.
Sami miði gildir á allar hæðir.