Morgunblaðið - 28.09.1989, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1989
35
Læknar Landspítalans sinna
vöktum á Fæðingarheimilinu
FÆÐINGALÆKNAR Landspít-
alans hafa tekið að sér að sinna
vaktþjónustu á Fæðingarheimil-
inu, samkvæmt samkomulagi
sem Landspítalinn og Borg-
arspítalinn hafa gert með sér.
Fæðingarheimilið verður eftir
sem áður rekið á vegum
Mest óánægja
með verð á
kindakjöti
I nýlegri könnun Neytenda-
samtakanna kom kindakjöt verst
út af búvörum hvað álit á verði
snertir, tæpum 89% þeirra sem
tóku afstöðu þótti verðið ekki
nógu hagstætt.
Missagt var um þetta í frétt sem
birtist í blaðinu í gær um könnunina
og formannaráðstefnu Neytenda-
samtakanna.
Næstmest óánægja reyndist vera
með verð á kjúklingum, þá mjólk.
En svínakjöt kom best út hvað þetta
varðar, þó töldu 70% verðið á því
ekki nægilega hagstætt.
Þeir sem spurðir voru í könnun-
inni voru mun ánægðari með gæði
landbúnaðarafurða en verð. Rúm
92% þeirra sem afstöðu tóku voru
ánægð með mjólkina, ríflega 60%
töldu kartöflur nógu góðar og komu
þær lakast út. Þar á eftir fylgdi
kindakjöt, tæp 62% sögðu gæði
þess nógu mikil.
Reykjavíkurborgar, en sam-
komulagið er liður í að efla starf-
semi Fæðingarheimilisins.
Gunnlaugur Snædal, yfirlæknir
kvennadeildar Landspítalans, sagði
að Borgarspítalinn hefði farið fram
á það við fæðingalækna Landspítal-
ans að þeir aðstoðuðu við nauðsyn-
lega læknisþjónustu á Fæðingar-
heimilinu. Samkomulagið gildir í
fyrstunni til áramóta og verður þá
væntanlega endurskoðað með tilliti
til aukinna umsvifa heimilisins.
Aðeins eru nýtt tíu rúm sem stend-
ur á Fæðingarheimilinu og fer
starfsemi aðeins fram á einni hæð
af þremur í húsinu. „Við væntum
þess að^stórefla Fæðingarheimilið
auk þess sem mjög náin samvinna
verður á milli þess og fæðingadeild-
ar Landspítalans. Það stórvex sam-
vinna á milli þessara stofnana, sem
er auðvitað mjög ánægjuleg þró-
un,“ sagði Gunnlaugur.
Hann sagði að engar ákvarðanir
lægju fyrir um rekstur Fæðingar-
heimilsins eftir þennan umtalaða
reynslutíma, sem næði til áramóta.
Að svo stöddu væri gert ráð fyrir
Fæðingarheimilinu í höndum
Reykjavíkurborgar, en ótímabært
væri að ræða um hvort þeirri til-
högun yrði breytt. Það væri
pólitískt mál, sem hann gæti ekki
tjáð sig um. Gunnlaugur taldi víst
að öll starfsemi Fæðingarheimilsins
yrði opnuð upp úr áramótum.
Gunnlaugur sagði að Landspítal-
inn hefði enga möguleika á að taka
við öllum þeim fæðingum, sem yrðu
Meðferðarheimili fyrir vímuefhaneytendur:
Viðbrögð ríkisins
valda vonbrigðum
- segir formaður Krýsuvíkursamtakanna
SIGURLÍNA Davíðsdóttir, for-
maður Krýsuvíkursamtakanna,
segir að það valdi samtökunum
miklum vonbrigðum, að tilboði
þeirra um að reka meðferðar-
heimili fyrir unga vímuefiianeyt-
endur í samvinnu við stjórnvöld
haíí verið hafiiað. Samtökin verði
nú að finna aðrar leiðir til að fjár-
magna rekstur heimilisins í
Krýsuvík.
Krýsuvíkursamtökin gerðu sam-
starfsnefnd í áfengis- og fíkniefna-
málum tilboð um að koma á fót
meðferðarheimili fyrir unga vímu-
efnaneytendur í Krýsuvík og sjá um
þjálfun starfsfólks þar, ef ríkið tæki
að sér að greiða kostnað við rekstur
þess. Ríkisstjórnin hafnaði þessu
tilboði fyrir nokkru og ákvað að
setja frekar á stofn heimili af þessu
tagi á Kjalarnesi. Sagði Guðmundur
Bjamason, heilbrigðisráðherra, að
ástæður þess væru meðal annars,
að mikil uppbygging væri eftir í
Krýsuvík, samgöngur þangað væru
erfiðar og rekstrarkostnaður með-
. ferðarheimilis þar yrði meiri en
heimilis sem staðsett væri á Kjalar-
nesi.
Sigurlína Davíðsdóttir, formaður
Krýsuvíkursamtakanna, segir þessa
niðurstöðu valda vonbrigðum. Sam-
tökin hefðu átt í viðræðum við
stjórnvöld í tvö ár og miðað allar
áætlanir við tilboðið, sem þau hefðu
lagt fram, þannig að ekki hefði
verið leitað annarra leiða til að fjár-
magna reksturinn. Það yrði hins
vegar gert nú. Meðal annars hefði
verið rætt við dómsmálaráðherra
um að þeir sem afplána ættu dóma
á Litla Hrauni ættu þess kost að
afplána þá frekar í Krýsuvík, enda
væri þar í flestum tilvikum um
vímuefnaneytendur að ræða. Enn
fremur væri fulltrúi samtakanna
á höfuðborgarsvæðinu ef þeim héldi
áfram að fjölga. Full þörf væri á
að Fæðingarheimilið væri rekið
áfram. Einn læknir Landspítalans
verður á dagvakt á virkum dögum
ásamt þeim Guðjóni Guðnasyni yfir-
lækni Fæðingarheimilisins og Beni-
dikt Sveinssyni fæðingarlækni þar.
Síðan myndu læknar kvennadeildar
Landspítalans alfarið taka að sér
vaktþjónustu á Fæðingarheimilinu
á kvöldin og um helgar.
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
Sveinn Einarson, yfirhleðslumaður við sæluhúsið á Steingríms-
fjarðarheiði.
Lionsklúbbur Hólmavíkur:
Sæluhús á Steingríms-
Qarðarheiði endurbyggt
Laugarhóii, Bjamaríírði.
LIONSKLÚBBUR Hólmavíkur
hóf starf sitt í ágúst að þessu
sinni. Var haldinn fúndur vegna
þess að starf hófst við að endur-
byggja sæluhúsið á Steingríms-
fjarðarheiði. Þá var einnig hald-
inn stjórnarfundur, þar sem skip-
að var í starfsnefiidir vetrarins
og starfið skipulagt.
Hlaðna sæluhúsið efst á
Steingrímsfjarðarheiði var síðast
endurbyggt árið 1923. Var það þá
illa farið. Að þessu sinni hafði þak
þess fokið af og voru veggir og
annað einnig illa farið. Síðustu helg-
ina í ágúst mættu svo félagar í
klúbbnum til vinnu uppi á heiði og
var þá lokið við að endurhlaða vegg-
ina og hreinsa tóftina að mestu. Á
sunnudaginn 27. ágúst var svo boð-
aður fundur í klúbbnum til að taka,
ákvarðanir um framhaldið. Var
ákveðið að reisa húsið með rekavið
og klæða þak með timbri og pappa
en þekja síðan með torfi. I fram-
gafli hússins, sem snýr að vegi, er
svo hlaðinn veggur og hurð, en
timbur í risi ásamt glugga. Var
síðan unnið fyrstu vikuna í septem-
ber og siðustu daga ágúst við að
koma þaki á húsið og að öðrum
frágangi. Lögðu þar margir Lions-
menn hönd á plóginn.
Upphaf þessa að sæluhúsið var
tekið á verkefnaskrá Lionsklúbbs
Hólmavíkur, var að Gísli Sigur-
björnsson, forstjóri elli- og hjúkr-
unarheimilisins Grundar í
Reykjavík, hafði stofnað sjóð við
Búnaðarbankann á Hólmavík til
viðhalds hússins. Stefán Gíslason
sveitarstjóri benti stjórninni á að
þarna væri þarft verk að vinna, en
svo fauk þak hússins af og það var
komið í mikla niðurníðslu. Á síðast-
liðnu ári var svo ákveðið að vinna
þetta verk við fyrsta tækifæri. Út-
vegaði Stefán þá hleðslumann,
Svein Einarsson á Egilsstöðum, til
verksins. Kom hann og skoðaði
aðstæður nú í ágúst, tók verkið að
sér og hófst handa. Var kallað á
Lionsmenn til aðstoðar honum
síðustu helgina í ágúst og hleðslu
lokið um þá helgi. Þá var Páll
Traustason á Grund í Strandasýslu
fenginn til að hjálpa honum við að
koma þakinu á húsið og var því
lokið með aðstoð nokkurra Lions-
manna laugardaginn 2. september.
Er þá aðeins eftir að setja tréverk
í framgafl þess og svefnbekk og
innréttingu inni.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
Lionsklúbbur á íslandi hefur starf
sitt á ágústmánuði og sendir frá
sér starfsskýrslu fyrir fundi og störf
þann mánuð.
Formaður Lionsklúbbs Hólma-
víkur er Þórsteinn Sigfússon en
með honum í stjórn eru Úlfar Páls-
son ritari og Magnús H. Magnússon
gjaldkeri. Varaformaður er Sigurð-
ur H. Þorsteinsson.
- SHÞ
nú staddur í Svíðþjóð, þar sem hann
ætti í viðræðum við fulltrúa heil-
brigðis- og dómsmála, sem sýnt
hefðu starfi þeirra áhuga.
Sigurlína sagði að einangrun
staðarins væri ein af ástæðunum
fyrirþví að samtökin teldu Krýsuvík
heppilegan stað fyrir stofnun af
þessu tagi og jafnvel þótt þarna
væri snjóþungt væri það vandamál
ekki óyfirstíganlegt. Hún taldi að
kostnaður við að gera upp húsið
hefði heldur ekki átt að koma i veg
fyrir að ríkið gengi að tilboði sam-
takanna. Húsið væri nú að verða
tilbúið og hingað til hefði ekki ver-
ið leitað eftir ríkisstyrk vegna þess.
Stjórn Lionsklúbbs Hólmavíkur frá vinstri; Úlfar Pálsson, Þorsteinn Sigfússon og Magnús H. Magnússon.
Skagaströnd:
Nýjar leiguíbúðir teknar í notkun
Skagaströnd.
TVÆR leiguíbúðir af fimm, sem
Höfðahreppur hefúr látið
byggja undanfarið ár, voru af-
hentar leigjendum 31. ágúst sl.
íbúðirnar sem þá voru teknar í
notkun eru Qögurra herbergja
og 106 fm að stærð, brúttó.
Byggingarkostnaður hvorrar
íbúðar fyrir sig er um 5,7 milljón-
ir króna. Verktaki við byggingu
.
íbúðanna var Eðvarð Hallgrímsson
byggingameistari á Skagaströnd.
Hinar þrjár leiguíbúðirnar sem
Höfðahreppur lætur byggja verða
afhentar innan skamms en þar er
um að ræða tveggja, þriggja og
fjögurra herbergja íbúðir. Bygg-
ingárfyrirtækið Stígandi hf. á
Blönduósi er verktaki að þeim
íbúðum. - Ó.B.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Magnús afhendir Dagbjörtu Bæringsdóttur lykil að leiguibúðinni.
Magnús Jónsson oddviti Höfðahrepps afhendir Guðrúnu Berndsen
lykilinn að nýju leiguíbúðinni.