Morgunblaðið - 28.09.1989, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundssor’.
Heilsumál
I dag ætla ég að fialla um
heilsumál Tvíburans (21. maí
- 20. júní) og þá líkamshluta
sem sagt er að hann stjórni
og útfrá því sjúkdóma sem
honum er hætt við að fá. Nú
sem áður þarf að hafa í huga
að hver maður á sér nokkur
stjörnumerki sem einnig hafa
sitt að segja hvað varðar
heilsumál. Tvíburi sem hefur
t.d. Tungl í Krabba getur
einnig verið veikur fyrir í
þeim líkamshluta sem Krabb-
inn stjórnar, eða maganum.
Tvíburinn
Heimur Tvíburans er heimur
hreyfingar. Hann kemur og
fer og skoðanir hans breytast
eftir því sem nýjar upplýsing-
ar koma fram í dagsljósið.
Tvíburinn er ekki fastur í
viðhorfum sínum, þolir ekki
að vera bundinn niður og
forðast vanabindingu og end-
urtekningar eins og heitan
eldinn. Tvíburinn er félags-
lyndur og þarf ijölbreytni í
félagslegt umhverfi sitt.
Leiðindi
Tvíburinn getur auðveldlega
orðið þunglyndur ef orku
hans eru settar of þröngar
skorður. Þegar hann eldist
geta þróast hjá honum geð-
rænir sjúkdómar sem rekja
má til leiðinda. Ef Tvíburinn
hreyfir sig ekki og hefur ijöl-
breytileika í daglegu lífi sínu,
verður hann slappur, orkulít-
ill og jafnvel veikur.
Lungu
Tvíburinn er viðkvæmur í
lungum og hættir til að fá
lungnakvef, berkla, asma eða
eiga í erfiðleikum með öndun
á annan hátt. Hreint loftslag
er mikilvægt fyrir hann, og
er t.d. sagt í erlendum
stjörnuspekibókum 'að tært
fjallaloft eigi vei við Tvíbura
og þá sérstaklega ef hann
er slappur til heilsunnar.
Tvíburinn ætti að gæta þess
að fara reglulega í hressandi
göngutúra eða stinga höfðinu
út um gluggann og teyga í
sig hreint loftið.
Taugakerfi
Taugakerfi Tvíburans er oft
viðkvæmt, og meðal hugsan-
legra kvilla má nefna tauga-
þreytu, taugabólgur og aðra
kvilla sem tengjast tauga-
kerfinu. Ástæðan fyrir því
er oft sú að Tvíburinn tekur
of margt fyrir í einu og á
jafnframt erfitt með að
slappa af og hvíla sig. Jóga-
leikfími og hugleiðsla, sem
m.a. gengur út á það að róa
hugann er t.d. góð fyrir
Tvíbura. Hugsun Tvíburans
er oft of athafnasöm og því
fær hann ekki hvíld þó hann
reyni að hvílast.
Hendur
Auk lungna og taugakerfis
stjórnar Tvíburinn höndum,
handleggjum og öxlum.
Hann á því til að vera við-
kvæmur í þessum líkams-
hlutum. Nudd getur hjálpað
og sömuleiðis er gott fyrir
hann að gera æfingar sem
liðka fingur og hendur.
Hugarró
Tvö algeng vandamál
Tvíbura eru leiðindi og eirð-
arleysi. Ef hann hefur ekki
nóg að gera verður hann
þungur. Ef hann hefur of
mörg járn i eldinum verður
hann stressaður og fer úr
einu í annað. Hann þarf að
finna jafnvægi þama á milli:
Gæta þess að hafa fólk í
kringum sig og hafa nóg að
gera en jafnframt að læra
sjálfsaga og þróa með sér
tækni sem hjálpar honum að
róa .hugann .og slappæ af.t -
GARPUR
X ZJÓ&ft/ / S/CÓG/NUA4
EtJDALAOSA ...
EG £ve EKKJ /nED„TAPA£> 06
FOMD/D "DEILP FVPJR TýNDAN
/cörr- - en FVEsrAD die>eeuð
/COMlN. . SANG/D / E/EINN
&AG-B/,
KON6ULD/N \/id
VtSSULEGA, UA/LElD
OS ÞÓSý’NU? /vtér?
KONUNELEGA LEiTAR-
SK'í/fZSLU! ,
3/7
Iliiiiiiii GRETTIR
ÓFAAUCJB AF þu! GOÐA J ÉG> S TEL.
VESK/ þESSARAF O ÚFU- AP'ASTAR.
B/eéF/ /HEOTÖLDU-Oó HON HeVNliT
VERA SÚ SeM R/EOUR
AAlK 1
HVABER þETTAf
f jHÖFUNDA.þÖMUNT
BetNi/JGAR. Tyþ frjZrx A a9í
HalL
VÁ, P<5 PI r óuo ÆÐISLE&A
OT AE> PON JOHNSOH ER
EINS CX3 KENGÚRA
V/Ð HLIÐ/NA
'A MÉR.
TOMMI OG JENNI
SMAFOLK
THIS GIRL CALLS ON THE PHONE ,.MV 5I5TER AN5WER5.. THE 6IRLTELL5 5ALLV.THAT she's an olp frienp of aáine... i c D H0LJ CAN THATBE? I PON'T HAVE ANV0LP FRIENP5..I PON'T EVEN HAVE ANV NEW FRIENP5.. I PON'T UNPER5TANP...
Q. -n s c <B (/> 3 Q. 2 m 5
Þessi stelpa hringir og systir mín Hvernig getur það verið? Ég á enga
svarar og stelpan segir Snúllu að gamla vini... ég á ekki heldur
hún sé gamall vinur minn. neina nýja vini. Ég skil þetta ekki.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
' Þegar valið stendur á milli
tveggja leiða sem virðast jafn
líklegar til árangurs, láta flestir
fegurðarskynið ráða valinu. í
þessu tilfelli er glæsilegri leiðin
líka örlítið betri:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ G6
V Á65
♦ ÁDG32
♦ 875
Suður
♦ ÁK
*7
♦ 87654 + ÁK642
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 tígull
Pass . 2 tíglar Pass 3 lauf
Pass 4 tíglar Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Útspil: hjartakóngur.
Lauftapari er yfiivofandi og
svo er það spurningin um tígul-
kónginn. Einn möguleiki er að
svína fyrir kónginn, sem gefur
klippt og skorið 50% vinningslík-
ur.
Annar möguleikinn er að
hreinsa upp hliðarlitina og taka
tígulás. Hjarta er þá trompað í
öðrum slag og tígli spilað upp á
ás. Detti kóngurinn ekki, er
hjarta aftur trompað, ÁK í laufi
spilað og síðan tígli. Með þess-
ari spilamennsku verður trompið
að vera 2-1, sem það er í 78%
tilvika. Þar af er tígúlkóngurinn
blankur í 26% tilvika, en því til
viðbótar vinnst spilið ef sá sem
á Kx í tígli á ekki fleiri en tvö
lauf, enda neyðist hann þá til
að spila út í tvöfalda eyðu. Og
hver er tíðnin á því? Rétt rúm-
lega 26%, því það er sennilegra
að sá sem er lengri í tígli sé
styttri í laufi!
Flókinn útreikningur, en þeg-
ar lipp er staðið gefur þessi
spilamennska u.þ.b.53-4% vinn-
ingslíkur, eins og lesandinn vissi
allan tímann!
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stórmótinu í Biel í Sviss í
sumar kom þessi staða upp í skák
stórmeistaranna Tony Miles
(2.570), sem nú teflir fyrir Banda-
ríkin, og Ivan Sokolov, (2.525)
Júgóslavíu, sem hafði svart og
átti leik. Svarti tókst nú að not-
færa sér fálmkennda uppstiilingu
hvíta liðsins og vinna peð með
fléttu:
16. - Be4!, 17. fee4 - lxe4, 18.
De2 — Bxd6, 19. Rxd6 — Dxd6,
20. Hadl - Dh6, 21. Kgl - d6,
22. Hd4 — e3! og með peði meira
og hagstæðari stöðu varð svarti
ekki skotaskuld úr því að vinna
skákina. Þessi skák var tefld í
síðustu umferð og þýddí það að
Sokolov náði þriðja sæti á mótinu,
með 8 v., en Miles deildi fjórða
sætinu með Hort með 7v. Sovét-
mennirnir Ivanchuk, 21 árs með
2.660 stig og Polugajevsky, 55
ára með 2.585 stig, deildu hins
vegar með sér efsta sætinu, hiutu
9 v.