Morgunblaðið - 28.09.1989, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR .28. SEPTEMBER 1989
Philexfrance 89
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
Eins og þeir vita, sem lesa þessa
þætti um frímerki, hefur verið reynt
að segja frá þeim frímerkjasýning-
um, þar sem íslenzkir safnarar
koma við sögu. Um tíma hefur leg-
ið hjá mér stutt greinargerð frá
umboðsmanni PHILEXF RANCE
89 hér á landi, Hálfdani Helgasyni,
en nokkrir íslenzkir safnarar tóku
þátt í þeirri sýningu. Verður nú
sagt örlítið frá sýningunni og rakið
hið helzta úr téðri greinargerð.
Franskir frímerkjasafnarar komu
þessari alHeimssýningu á laggirnar
ásamt póststjórn sinni og nefndu
PHILEXFRANCE 89. Notuðu þeir
það tilefni, að 200 ár voru liðin frá
frönsku stjórnarbyltingunni, en
hennar var minnzt af Frökkum í
júlímánuði síðastliðnum með mikl-
um glæsibrag, svo sem öllum er enn
í fersku minni. Sýningin var haldin
dagana 7.-17. júlí í geysimikilli sýn-
ingarhöll, Parc des Expositions de
Paris, og engu til sparað að gera
hana sem glæsilegasta. Voru sýn-
ingarrammar tæplega 5.000 tals-
ins, en í hvetjum ramma eru að
jafnaði 16 albúmblöð. Hér hafa
gestir því haft fyrir augum um
80.000 blöð til að virða fyrir sér,
og það hefur tekið drjúgan tíma
að skoða þó ekki hafi verið nema
brot af öllu þessu mikla efni.
Vegleg sýningarskrá í tveimur
bindum var gefin út, og minnist ég
ekki að hafa séð jafnfallega skrá
áður. Því miður geta ekki aðrir
notið hennar að fullu en þeir, sem
hafa franska tungu á valdi sínu.
Vissulega hefði farið vel á því, að
ei tthvað af efni hennar hefði birzt
t.d. á ensku, en stórveldin líta öll
stórt á sig og vilja nota sem mest
sína eigin tungu..
Að sögn Hálfdans var sýningin
öll hin glæsilegasta. Skipulag allt
var með afbrigðum gott, og margar
nýjungar litu þar dagsins ljós. Al-
menningi gafst m.a. kostur á að
nota tölvur til ýmiss konar leikja
og spurninga. Þá mátti með tölvum
fá upplýsingar um öll söfnin og
hvar þau væri að finna í sýningar-
höllinni. Þá var þarna í fyrsta skipti
hægt að nota tölvur til að skrifa
og senda sérprentuð bréfspjöld.
Segir Hálfdan, að langar biðraðir
gesta hafi hvern dag myndazt til
þess að komast að tölvunum í þessu
skyni.
Sýningin var afar vel sótt þrátt
fyrir afbragðsveður í París þessa
daga. Er jafnvel ekki ólíklegt, að
hinn mikli hiti hafi einmitt stuðlað
að mikilli aðsókn, þar sem menn
hafi þá kosið að komast í skugga
innan dyra. Þegar sýningin var nær
hálfnuð höfðu að jafnaði um 30
þúsund manns komið á degi hvetj-
um.
Póststjórnir 47 ríkja sýndu
frímerkjaefni í sérdeild, og var
íslenzka póstjórnin í þeim hópi. Þá
var einnig að venju sérstök sýning-
ardeild dómara, og voru 26 söfn í
henni.
í samkeppnisdeild ' sýndu 812
safnarar mörg frábær söfn. Segja
má, að keppni milli safnara harðni
stöðugt. Fjórir safnarar úr okkar
röðum tóku þátt í þessum leik, og
hafði hver þeirra fimm ramma til
umráða. Hálfdan Helgason sýndi
islenzk bréfspjöld frá 1879-1920,
en það safn er orðið vel þekkt bæði
hér heima og erlendis. Fyrir það
fékk hann gyllt silfurverðlaun. Páll
H. Ásgeirsson sýndi íslenzkan flug-
póst frá 1928-1945, en það safn
er einnig vel þekkt. Hlaut það gyllt
silfur. Hjalti Jóhannesson sýndi
safn sitt af íslenzkum póststimpl-
um, en það safn hefur einnig víða
fárið. Fyrir það voru Hjalta dæmd
silfurverðlaun. Sigurður P. Gests-
kon sýndi safn sitt af norska póst-
horninu frá 1872-1908. Það safn
hafði í fy rsta skipti verið sýnt er-
lendis á NORDIU 1989 í Noregi í
júní sl. og þá fengið bronsverðlaun.
Nú voru því veitt silfruð bronsverð-
laun. Verður að telja það mjög góð-
PHILiEX
m
RANCE
an árangur, þar sem hér var um
alheimssýningu að ræða.
Söludeildir 63 póststjórna voru á
PHILEXFRANCE 89, og um 180
frímerkjakaupmenn voru með sölu-
bása. Var að jafnaði þröng á þingi
í kringum þessar söludeildfr, enda
eru kaup og sala frímerkja og ann-
ars frímerkjaefnis orðin snar þáttur
á öllum stærri frímerkjasýningum.
Mjög vel var búið að fréttamönn-
um og þeim, sem skrifa um frímerki
í blöð og tímarit. Höfðu þeir sér-
staka fréttamiðstöð til afnota með
öllum fjarskiptabúnaði.
Lesendur Mbl. hafa vafalaust
tekið eftir tilkynningu um það, að
greinar þurfi að vera sem stytztar,
ef nokkur von á að vera til þess,
að þær fáist birtar í blaðinu. Þessi
frímerkjaþáttur fer engan veginn
varhluta af þessari ráðstöfun. Verð-
ur því fyrst um sinn a. m.k. reynt
að stilla lengd hans í hóf. Þá eru
föstudagar og laugardagar svo
ásetnir, að ekki er tryggt, að þætt-
irnir birtist á laugardögum, svo sem
venja hefur verið alllengi. Síðasti
þáttur kom t.d. á þriðjudegi.
Ali pepperoni . . . hefurðu smakkað eitthvað hetra?
W ú er komið á
11 markað nýtt og
enn betra Soda-
Stream. Bragðteg-
undimar eru þrjár:
Cola, Límonaði og
Appelsín, með og án
sykurs.
SPARIÐ
Veist þú að 0,5 1 af
Soda-Stream kosta
u.þ.b.
14 kr.*
*Miðad við algengt verð í húðum.
SOL