Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 23
esei aaaö'rao .1 5iuda(iumk!J8 i/iÉ/liqaATOAJK\CUQ?OV GIQ/uiaKUOflOM §s ATVINNURAD- OG SMÁAUGLÝSINGAR A TVINNUAUGL ÝSINGAR Iðnþróunarfélag Kópavogs Iðnþróunarfélag Kópavogs auglýsir eftir framkvæmda- stjóra. Starfið felur í sér daglegan rekstur skrifstofu fé- lagsins og umsjón með verkefnum. Oskað er eftir manni með menntun í viðskiptafræði eða verk/tæknifræði, sgm getur starfað sjálfstætt. Hj úkrunarfr æðingar - sjúkraliðar Borgarspítalinn áformar að opna nýja 27 rúma deild, B-4, í nóvember nk. Lausar eru til umsóknar stöður hjúkruna- rfræðinga og sjúkraliða. Snyrtivörur Auglýst er eftir snyrtifræðingi eða áhugamanneskju um snyrtivörur í deildarskipta sérvöruverzlun annars vegar og stórmarkað með sérstaka snyrtivörudeild hins vegar. I boði er góð vinnuaðstaða, en æskilegur aldur er frá 20-45 ára. Um heils- og hálfsdagstörf er að ræða og jafnvel breytilegan vinnutíma. Landsmót skáta Landsmót skáta 1990, Ulfljótsvatni óskar að ræða fram- kvæmdastjóra í hálfa stöðu frá áramótum til 1. ágúst 1990 og bryta í einn mánuð frá 15. júní-15. júlí 1990. Báðir starfsmennirnir þurfa að sitja fundi Landsmóts- nefndar hálfsmánaðarlega frá og með 1. október 1989. Barnapössun í Bandar íkj unum Barngóð/ur aðili óskast á bandarískt heimili í New York til að gæta að fjórum börnum ásamt léttum húsverkum. Skilyrði er, að viðkomandi tali ensku. Innifalið er fæði og húsnæði ásamt einhverjum launum. Hluthafafimdur í Steinullarverksmiðjunni Hluthafafundur í Steinullarverksmiðjunni hf. verður hald- inn 9. október nk. í Safnahúsinu á Sauðárkróki. A dag- skrá eru tillögur stjórnar annars vegar um hækkun hlut- afjáp um kr. 91.593.700 og hins vegar um breytingar á samþykktum félagsins um aukinn meiri hluta atkvæða til ákvörðunar um hlutafjáraukningu og um heimild til að halda stjórnarfundi símleiðis. SMÁAUGL ÝSINGAR Landnámsganga Útivist efnir í dag til ferðar í Þórsmörk-Goðaland. Lagt verður af stað kl. 8.00 árdegis og stansað 3-4 klst. í Mörkinni. Þetta er síðasta dagsferðin í Þórsmörk í ár á vegum Útivistar. Kl. 10,30 verður farin Landnámsganga á Laugarbakka og Þóroddsstaði, en það er létt láglendis- ganga um Ölfus. Kl. 13.00 verður svo farið á Kotströnd- Þóroddsstaði og sameinazt sú ganga morgungöngunni. Farið í Grindaskörð Perðafélag Islands gengst fyrir tveimur dagsferðum. Önnur hefst kl. 10,30. Þá verður farið í Grindaskörð, Kistufell og Vatnsskarð. Hin er í Hrútagjá og á Fjallið eina og hefst kl. 13,00. I þeirri fyrri verður ekið inn á Bláfjallaveginn og gengið þaðan um Grindaskörð á Kistu- fellið og síðan niður í Vatnsskarð. í þeirri síðari verður ekið inn á Krísuvíkurveginn og gengið þaðan. Það er ferð, sem öll fjölskyldan á að geta tekið þátt í. Hvert renna iðgjöld launþega á Skagafjarðarsvæðinu Lífeyrissjóður fjöldi % Lífeyrissjóður stéttarfélaga í Skagafirði 670 41,5% Lífeyrissjóður opinberra starfsmanna 350 21,7% Samvinnulífeyrissjóðurinn 236 14,6% Lífeyrissj. verslunarf. á Norðurl. vestra 226 14,0% Lífeyrissjóður sjómanna 39 2,4% Eftirlaunasjóður banka 31 1,9% Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna 16 1,0% Lífeyrissjóður verslunarmanna 13 0,8% Aðrir, ótilgreindir 34 2,1% Samtals 1615 100% Greiðendur til Lífeyrissjóðs bænda eru 364 samkvæmt upplýsingum afurðastöðva, og eru þeir ekki taldir með í könnun þessari. Mbl./GÓI Niðurstöður könnunar um greiðslur til lífeyrissjóða á SkagaQarðarsvæðinu Sauðárkrókur: Efla þarf lífeyris- sjóði í heimabyggð 41,5% iðgjalda eru greidd til heimasjóðsins en 58,5% til sjóða utan svæðisins Sauðárkróki. ÁRSFUNDUR Lífeyrissjóðs stéttarfélaga í Skagafirði var haldinn á Sauðárkróki ný- lega. Að sjóðnum standa Verkamannafélag- ið Fram á Sauðárkróki, Verkalýðsfélagið Arsæll Hofsósi, Iðnsveinafélag Skagafjarðar og Verslunarinannafélag Skagaljarðar. Á fundinum voru lagðir fram reikningar árs- ins 1988, en samkvæmt þeim voru iðgjalda- tekjur 42,7 millj., afborganir útlána 18,6 millj., vaxtatekjur og verðbætur 44,2 millj., en 12,8 millj. þegar búið er að reikna gjöld vegna verðbreytinga. Keypt voru skulda- bréf samtals fyrir um 41 milljón, rekstrar- gjöld með- afskriftum voru 4,3 millj. og greiddur lífeyrir 4,8 millj. Lífeyrir frá sjóðnum er nú greiddur til rúmlega 90 ein- staklinga. Skrifstofa sjóðsins er rekin í samvinnu við Verkamanna- félagið Fram, og eru starfsmenn þrír í rúmlega tveim stöðugildum. Um síðustu áramót var hrein eign sjóðsins 253,5 millj., og hafði hækk- að um 78,2 millj. á milli ára. Stjórn sjóðsins skipa: Agnes Gamalíels- dóttir og Alexander Jónsson frá verkalýðsfélögunum, en frá sam- tökum atvinnurekenda þeir Árni Guðmundsson og Þorbjöm Ámason. Á fundinum var reglugerð sjóðs- ins breytt í þá vera að heimila kaup á hlutabréfum í fyrirtækjum. Er það eins og margir lífeyrissjóðir hafa verið að gera að undanförnu. í framhaldi af þessari samþykkt var ákveðið að kaupa hlutabréf í Al- þýðubankanum hf. Þá var á fundinum gerð grein fyrir könnun sem starfsfólk sjóðsins hefur gert á því hvert iðgjöld laun- þega á Skagaijarðarsvæðinu renna. Þar kom í ljós að 41,5% eru greidd til heimasjóðsins en 58,5% til sjóða sem era utan svæðisins. Vegna 'þessara niðurstaðna samþykkti fundurinn ályktun, þar sem segir m.a.: „Ársfundur Lífeyrissjóðs stéttar- félaga í Skagafirði, haldinn 11. september 1989, áréttar að megin- hlutverk lífeyrissjóðanna er að greiða elli-, örorku-, maka- og barnalífeyri. Leggur fundurinn áherslu á í því sambandi, þýðingu samhjálparinnar sem felst í áhættu- lífeyrinum. Leggja verður áherslu á ávöxtun á eignum sjóðanna, að hún sé ætíð sem best og sé þannig í stakk búin að sinna hlutverki sínu. Fundurinn bendir á að jafnframt lífeyrisgreiðslum hafa sjóðirnir þýð- ingarmiklu hlutverki að gegna, hver í sinni heimabyggð. Er því áríðandi að sköpuð séu sem best skilyrði til ávöxtunar þar, og að þeir geti á þann hátt orðið til stuðnings at- vinnulífinu og þar með afkomu sjóð- félaganna. Þessum tveim markmið- um má ná með því að hafa sem öflugastan lífeyrissjóð sem miðast við landfræðilega afmarkað svæði. í slíka sjóði ættu að minnsta kosti allir á samningssviði ASÍ að greiða. Fundurinn telur nauðsynlegt að unnið verði nú þegar að fjölgun sjóðfélaga í Lífeyrissjóði stéttarfé- laga í Skagafirði, þeim eina sjóði sem starfar hér á svæðinu. Felur fundurinn stjórn sjóðsins að taka upp nauðsynlegar viðræður í því sambandi." Könnun sú sem starfsfólk lífeyr- issjóðsins gerði nær til 1384 laun- þega á Sauðárkróki, en til 1615 launþega á öllu svæðinu. Stuðst var við síðustu skilagreinar sem sjóðn- um höfðu borist, og fengnar voru upplýsingar símleiðis frá mörgum vinnustöðum. - BB Grundarfj örður: Næg atvinna framað áramótum Á GRUNDARFIRÐI hefúr verið mjög gott atvinnuástand það sem af er þessu ári og fyrirsjáanlegt að næg vinna verði fram að ára- mótum, þótt hún minnki eitthvað. Togararnir Runólfur og Keilir sem Sæfang gerir út eiga það mikið eftir af botnfiskkvóta að gert er ráð fyrir fullri vinnslu fram til áramóta. Hins vegar er togarinn Krossnes, sem Hraðfrystihús Grandarfjarðar gerir út langt komið með sinn kvóta og mun rækju- vinnsla verða hjá HG í vetur, sem hefur í för með sér fækkun starfs- fólks. Hjá Soffaníasi Cecilssyni verður rækja og skel unnin. Nú er verið að ljúka byggingu íþróttahúss sem vígt verður í októ- , ber, en engar nýjar stórfram- kvæmdir era fyrirhugaðar í bygg-- ingariðnaði á næstunni og fá ný verkefni fyrir iðnaðarmenn auk þess sem erfið staða margra fyrir- tækja veldur því að þar hefur verið dregið úr viðhaldsverkefnum. Tré- smiðja Guðmundur Friðrikssonar mun þó hafa næg verkefni fram á næsta vor en þar hafa menn einkum sérhæft sig í smíði sumarhúsa. Ein til tvær kennarastöður eru lausar hjá grunnskólanum. Ragnheiður Flateyri: Togarinn stoppar í okt- óber vegna kvótaleysis TOGARINN Gyllir ÍS 220 er bú- inn með kvótann sinn nú um miðjan mánuðinn og verður stopp til áramóta. Unnið verður að viðgerðum og endurbótum hér heima í stoppinu. Heftir þetta veruleg áhrif fyrir byggðalagið. Eiríkur Finnur Greipsson verk- fræðingur hjá Hjálmi hf. sagði í samtali við Morgunblaðið að þrátt fyrir stopp togarans yrði haldið uppi 8 tíma vinnu hjá fiskvinnsl- unni með afla af tveimur minni bátum ásamt Vísi ÍS 225, 83ja tonna bát, sem Útgerðarfélagið keypti af Hjallanesi hf., dótturfyrir- tæki Kaupfélgs Önfirðinga, og hét áður Sif. Um 30 aðkomuverkamenn bæði innlendir og erlendir vinna hjá fyrir- tækinu í vetur fyrir utan heimafólk. Tvö önnur fiskvinnslufyrirtæki era starfandi á Flateyri. Era það Kamb- ur hf. og Snæfell hf. og eru ástand og horfur þar mjög góðar, en þó hefur borið við skorti á fiski nú undanfarið vegna gæftaleysis. Að öðra leyti' eru menn bjartsýnir svo framarlega sem gefur á sjóinn. Magnea

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.