Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 34
MORGCMiLADII) FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1989 Peter Bröste, Hlíf og Ebbi Mörk. BJARTSÝNISVERÐLAUN Hlíf Svavarsdóttir heiðruð BRUÐHJON VIKUNNAR Hefla nýjan lífskafla með hjónabandi Brúðhjón vikunnar að þessu sinni eru Þóra Lind Karlsdóttir og Salomon Viðar Reynisson til heimilis að Frostafold 6 í Reykjavík. Þóra Lind er 26 ára heimavinnandi hús- móðir, en Salomon er 28 ára gam- all vélvirki. Börn þeirra þrjú eru Svavar Örn, Gylfi Snær og Reynir Viðar, 8, 5 og 2 ára gamtir. „Við erum búin að vera lengi erlendis, í Færeyjum og Israel, og ákváðum að þegar við kæmum heim myndum við hefja nýjan kafla í lífi okkar. Hætta flakkinu, flytja í nýja íbúð og gifta okkur. Nú hefur það geng- ið eftir,“ segir Þóra. Þau hafa þekkst í sjö ár, en byijuðu að vera saman í ársbyijun 1984. 27 ágúst það ár opinberuðu þau trúlofun sína, þá stödd í Vaglaskógi. Og upp á dag 1989 voru þau gefin saman í Viðey- jarkirkju af sr. Þóri Stephensen. „Það kom ekki annar til greina, hann er fjölskyldupresturinn, skýrði tvo strákanna og fermdi mig,“ segir Þóra. Stóri dagurinn hófst á því að Þóra fór í snyrtingu og hárgreiðslu, en Salomon sá þá um að skreyta Subarúinn. Um hádegisbilið snæddu þau saman hádegisverð og um það bil klukkan eitt sigldu þau út í Við- ey, Þóra með brúðarkjólinn kirfilega hulinn sjónum brúð- gumans. Hálftvö komu gestimir og að þeim mættum var eftir engu að bíða, at- höfnin fór fram og gekk hið besta. Meðal efnis var orgelleikur og lék austurrískur orgelleikari úr Háteigs- kirkju lagið Plate d’amour að athöfn lokinni. „Við vorum svo heppin, að veðrið var dásamlegt, sól og blíða, og voru allir úti við um stund eftir athöfn- ina. Þá voru teknar margar myndir, en við erum öll frekar grett á mynd- unum vegna sólarinnar," segja þau. En svo lá leiðin aftur til meginlands- ins og í foreldrahús Salomons, en þar var haldin 70-manna veisla og gjafirnar hióðust upp. Meðal annars fengu þau olíumálverk af Viðey eft- ir einn besta vin þeirra og styttuna „Andlit Ástarinnar" frá starfsfélög- um Salomons. Að veislu lokinni hurfu brúðhjónin til síns heima og áttu góða kvöld- HARGREIÐSLA Draumurinn að vinna í Frakklandi eða Los Angeles Hlíf Svavarsdóttir hlaut nýlega hin svokölluðu Bjartsýnisverð- laun Bröste sem veitt eru árlega til norræns listamanns . Þetta er ann- ars í níunda skiptið sem þessi verð- laun eru veitt, en þeim fylgir ávísun upp á 30.000 danskar krónur. At- höfnin fór fram í ráðhúsi Lyngby í Danmörku og fyrir hönd Bröste af- henti Ebbi Mörk Hlíf ávísunina og rósabúnt. Mörk þessi er ballet- og leiklistargagnrýnandi danska blaðs- ins Politiken. Bröste tilgreinir ýmsar forsendur fyrir vali Hiífar. Til að byija með sé hún drífandi og skapandi kraftur í íslenskum ballet sem eigi sér ekki langa hefð hérlendis. Þá hafi hún hlotið „Petrusjka“-verðlaunin á norr- ænu balletdansmóti í Osló í mai á síðasta ári. í texta sem Bröste lét frá sér fara vegna afhendingar verðlaunanna að þessu sinni segir að þau megi skoða sem útrétta hendi til íslenskra lista- manna og þeirrar bjartsýni sem ein- kenni þá í heild séð. Og á sama tíma eigi verðlaunin að efla tengsl íslenskra og danskra listamanna. Tvítug stúlka, Selma Guð- björnsdóttir, hefur getið sér gott orð við einhvern strangasta hárgreiðsluskóla sem fyrirfinnst, Pivot Point í Chicago í Banda- ríkjunum. Að loknu 11 mánaða námi stendur hún með pálmann í höndunum, 7000 dollara styrk til að fara í kennaranám í hágæða- skóla. í janúar hefst sú skólaganga og atvinnumöguleikarnir biða við hvert fótmál með slíkt nám að baki sér. Selma á ekki langt að sækja hágreiðsluhæfileika sína, faðir hennar ,Dúddi, er einn af þekktustu hárgreiðslumönnum þessa lands. „Ég, er auðvitað mjög glöð yfir Morgunblaðið/Bjami Selma Guðbjörnsdóttir á hár- greiðslustofunni „Hjá Dúdda“. því hversu vel þetta gekk allt sam- an, en það var mikil reynsla að standa í þessu. Ekki síst þar sem skólinn er ótrúlega strangur. Sem dæmi um það má nefna, að reikn- að er með að nemendur ljúki nám- inu á 1560 klukkutundum á 10 mánaða tímabili. Fari menn fram yfir það, borga þeir 5 til 8 dollara með sér fyrir hveija klukkustund sem þeir fara umfram kvótann. Mæti menn eina mínútu of seint þá er tekinn af manni hálftími og mæti menn fimm mínútum of seint er tekinn klukkutími. Svo verður allt að vera hreint og snjóhvítt. Ef skórnir eru skítugir verður maður að fara úrtíma, kaupa skóá- burð og hreinsa skóna, auk þess að missa tíma. Ef það sést brún spenna í hárinu verður hún að hverfa og hvit að koma í hennar stað. Og ef maður gleymir nafn- spjaldinu sínu verður maður að kaupa nýtt. Þannig mætti áfram telja. En á móti kemur að kennslan er meiri háttar,“ segir, Selma. Pivot Point rekur skóla um heim allan, til dæmis í Bandaríkjunum, Italíu, Japan og Ástralíu. Styrkn- um fylgir samningur um að vinna fyrir Pivot Point í þijú ár að loknu kennaranáminu. Selma segir það fara þannig fram, að fyrst að lo- knu kennaranáminu fylgi. menn vönum kennara í kennslustundum, en taki svo við og sjái um kennsl- una einir. Bæði sé um bóklegt- og verklegt nám að ræða. En hvað tekur svo við? „Ég vil einhvern tíman koma heim og vinna, en æðsti draumur- inn er að vinna við hárgreiðslu í Frakklandi eða Los Angeles," seg- ir Selma Guðbjörnsdóttir. j PlanPerfect j 16 klst. hnitmiðað og vandað námskeið í notkun g hins aðgengilega töflureiknisins PlanPerfect. Leiðbeinandi. Andrés Sigurðsson. Tími: 10., 11., 12. og 13. okt. kl. 13 - 17 1 I 1 1 Tölvufræðslan Borgartúni 28, sími 687590 I .J VEISTU AÐ IsfjLANDS- Náma Landsbankans er þjónusta sem léttir undir með námsmönnum. VISA-kort# BANKANUM ER NÁMA affhending skjala vegna LÍN, sveigjanlegri afborganir lána, 100.000 króna FYRIRl NAMSFOLK. námsstyrkur og hátt námslokalán er meðal |»ess sem sækja má í Námuna. [ Náman er ný fjármálaþjónusta í Landsbankanum, sérstaklega ætl- uð námsfólki frá 18 ára aldri. Því ekki að hefjast handa nú þegar og sækja í námu Landsbankans. Með því að skapa þér gott orð í Landsbankanum - þó í litlu sé, leggurðu grunninn að fjárhagslega öruggri framtíð. Allar nánari upplýsing- ar, fúslega veittar í næsta Landsbanka. Við bjóðum námsfólk velkomið. Nýttu þér námuna. IANPSBANKI í S L A N D S N • A • M • A • N ( 4 i i I (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.