Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 11

Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 11
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1989 eftir Ásgeir Sverrisson Nafnið og þó einkum skammstöflin þess hefur hingað til nægt til að hræða líftóruna úr sovéskum ríkisborgurum og það ekki að ástæðulausu. Sagt er að starfsmönnum stofhunarinnar sé ekkerf. heilagt enda gilda hefðbundin viðmið ekki í þeirri atvinnugrein sem þeir stunda. Á Vesturlöndum er stofnun þessi alræmd enda er starfsemi hennar talin ógnun við lýðræðið og öryggi þeirra þjóða sem valið hafa sér annað stjórnkerfí en það sem kommúnistar innleiddu í Sovétríkjunum. Þar í landi er stofiiun þessi ríki í ríkinu og ræður yfir her sem að líkindum telur eina og hálfa milljón manna. Starfsmennirnir eru sagðir vera um 500.000 og fullvíst má telja að einhveijir þeirra þiggja laun fyrir að dvelja hér á landi. „Öryggismálanefhd ríkisins" er að sönnu ekki sérlega ógnvekjandi nafn og nefhdin sú á ekkert sameiginlegt með þeirri sem íslenska ríkið starfrækir að Laugavegi 26. Höfuðstöðvar sovésku öryggismálanefhdarinnar eru í risastórri byggingu við Dzerzhinskíj-torg í miðborg Moskvu. Á rússnesku nefnist öryggismálanefnd ríkisins Komítet Gosudarstvennoj Bezopasností, sem segir mönnum vafalaust heldur lítið en skammstöfunin KGB ætti að hljóma kunnuglega. myndir um friðhelgi einkalífsins. Starfsemi KGB hefur á hinn bóginn aldrei talist til gamanmála í Sov- étríkjunum. Völd mannannna við Dzerzhinskíj-torg hafa frá upphafi verið óskoruð. Reynt hefur verið að dylja þessi völd eins og glögglega kemur fram í nafninu „öryggismála- nefnd“ sem gefur til kynna að stofn- unin heyri undir eitthvert ráðuneytið. Svo er ekki, stofnunin er öldungis sjálfstæð. Undir KGB heyrir sjálf- stæður her, innanríkisherinn, en til hans teljast sveitir óeirðalögreglu og landamærasveitir. Þessum herafla hefur m.a. verið beitt til að brjóta á bak aftur mótmælaaðgerðir þjóðern- issinna. Því hefur verið haldið fram að allt að ein og hálf milljón manna heyri undir þennan sérstaka her sem ætlað er að tryggja innra öryggi ríkisins. KGB fylgist grannt með ferðum og gerðum sovéskra andófsmanna en hermt er að sérstök deild innan öryggismálanefndarinnar hafi haft hugmyndafræðileg málefni og þar með andóf á sinni könnu. Mönnum ber saman um að miklar breytingar hafi átt sér stað á þessu sviði frá því Míkhaíl Sergejevítsj Gorbatsjov hófst til valda í Sovétríkjunum. Þann- ig var þremur mjög þekktum andófs- mönnum sleppt úr haldi árið 1986. Andrei Sakharov fékk að flytjast aftur til Moskvu eftir að hafa dvalið í útlegð undir eftirliti KGB í borginni Gorkíj. Júrí Orlov var sleppt úr haldi en hann hafði m.a. unnið sér það til óhelgi að stofna samtök sem ætlað var að fylgjast með því að Sovét- stjómin virti mannréttindaákvæði Helsinki-sáttmálans og Anatolíj Sjar- anskíj, sem KGB hafði haft í haldi í 12 ár var sleppt og fékk leyfi til að flytjast frá Sovétríkjunum. Að auki er það verkefni liðsmanna KGB að halda uppi eftirliti með öllum þeim og öllu því sem talið er hugsan- leg ógnun við öryggi Sovétríkjanna. Mun sérstök stjómardeiid, deild númer tvö, hafa þetta verkefni með höndum. Fram til þessa hafa útlend- ingar, ekki síst fréttamenn, verið taldir til þessa hóps. lessaður vertu, þeir eru alls staðar,“ sagði ungur en að sönnu lífsreyndur erlendur fararstjóri | við þann er þetta ritar er við tókum tal saman á hóteli einu í Moskvu-borg á síðasta ári. Nokkrum dögum áður hafði greinar- höfundur fengið að kynnast starfsaö- ferðum KGB lítillega þegar öryggis- verðir á Sjermetjevo-flugvelli stálu segulbandsspólum, brutu forláta hár- greiðu hans í tvennt og muldu verkja- töflumar dýrmætu yfir svörtu jakka- fötin áður en taskan var flutt inn í flugstöðvarbygginguna. Kunnáttu- menn segja að KGB skiiji oft eftir sig þess háttar „nafnspjöld". Fararstjórinn hló lengi og innilega er minnst var á skruðninga og truf- lanir í símtækinu á hótelherberginu þegar hugmyndin var sú að koma fréttum til íslands og kannaðist vel við útvarpstæki, sem skyndilega fóru í gang án þess að á þeim hefði verið kveikt. „í hvert skipti sem ég kem hingað fæ ég yfirleitt sama herberg- ið og síðast eða a.m.k. herbergi á sömu hæð. Þannig getur KGB auð- veldlega fylgst með þeim sem þeir hafa sérstakan áhuga á, hlerað bæði herbergið og símann. Maður venst þessu,“ bætti hann við. Haft hefur verið á orði að einung- is lyftumar virki á sovéskum hótelum en menn gleyma þá gjaman að nefna öryggisgæsluna sem er í öldungis bráðfínu lagi. Fylgst er vandlega með öllum þeim sem inn koma og hafi menn ekki tilskilin skilríki er þeim vísað á dyr. Sömu skilríki eru síðan afhent desjúrnajunni, stúlku sem vaktar hveija hæð. Hún skráir komu- og brottfarartíma og afhendir herbergislykla. Desjúmajumar era misjafnlega liðlegar en allar neita þær því að vera félagar í Kommúni- staflokki Sovétríkjanna. Sjálfstæð stofiiun Þetta er sú hlið öryggiseftirlitsins sem blasir við ferðamanninum í Moskvu-borg og verður í endurminn- ingunni fyrst og fremst spaugileg hafí menn ekki full háleitar hug- Umsvif erlendis Njósnir í víðtækasta skilningi þess orðs, öryggisgæsla og eftirlit með sendiráðsmönnum eru helstu verk- efní KGB erlendis. Hlutur iðnaðar- og ábatanjósna mun í seinni tíð hafa vaxið í samræmi við umbótaáform valdhafa í Sovétríkjunum en hemað- amjósnir eru sagðar hafa minnkað að sama skapi. Umsvif sovéskra sendiráðsmanna eru mjög mismikil í hinum ýmsu löndum og raunar getur verið fróðlegt að bera þau saman. Þannig segja heimildarmenn á Filippseyjum að sovéskir stjórnarer- indrekar þar láti eins lítið á sér bera og nokkur kostur er. Þetta kemur á óvart þar sem á Filippseyjum er að finna mikilvægustu herstöðvar Bandaríkjamanna í þessum heims- hluta. Umsvif sovéska sendiráðsins hér á landi eru umtalsverð svo sem al- kunna er og tæpast þarf að íjölyrða um hernaðarlegt mikilvægi landsins. Hér á landi búa að jafnaði rúmlega 80 sovéskir ríkisborgarar en 17 þeirra rnunu_ skráðir sem erlendir sendimenn. Átta bandarískir sendi- menn era hér á landi en tæplega 40 bandarískir ríkisborgarar munu búa hér og era þá makar og börn starfs- manna sendiráðsins með talin. Hinn mikli fjöldi sovéskra ríkis- borgara hér á landi hefur vakið furðu margra erlendra gesta sem til ís- lands koma. Miklar breytingar hafa átt sér stað á sviði utanríkisviðskipta í Sovétríkjunum frá því Gorbatsjov var kjörinn aðalritari kommúnista- flokksins árið 1985. Stofnun sú sem fór með viðskipti við útlönd hefur verið lögð niður en völdin hafa verið færð I hendur stjómvalda og fyrir- tækja í lýðveldunum 15. Hugmyndin er augljóslega sú að draga úr mið- stýringu og afskiptum embættis- manna. Áhrif þessara breytinga munu raunar enn ekki hafa komið fyllilega fram í viðskiptum íslendinga og Sovétmanna, alltjent hafa stjóm- völd í Moskvu enn ekki séð ástæðu til að fækka sendimönnum hér á landi eftir því sem næst verður kom- ist. Dæmalaus blaða- mannafundur En nú herma fréttir að umbóta- andvarinn sem leikið hefur um Sov- étríkin frá því Míkhaíl S. Gorbatsjov komst til valda hafi náð að smeygja sér inn um dymar við Dzerzhinskíj- torg. Raunar segja erlendir fréttarit- arar í Moskvu að hafin sé herferð til að bæta ímynd leyniþjónustunnar illræmdu. Þánnig voru fréttamenn á dögunum kvaddir á blaðamannafund í alþjóðlegu blaðamannamiðstöðinni við bakka Moskvu-fljóts þar sem helstu ráðamenn KGB boðuðu breyt- ingar á starfsháttum stofnunarinnar. Fundur þessi þótti dæmalaus en merkilegust þótti tæplega klukku- stundar löng mynd sem gerð hefur verið um stofnunina og nefnist „KGB á voram dögum“. Þess má geta í framhjáhlaupi að erlendar sjónvarps- stöðvar geta tryggt sér sýningarrétt- inn fyrir rúmar sex milljónir íslenskra króna. í myndinni era áhorfendur leiddir um höfuðstöðvamar við Dzerz- hinskíj-torg og sýndar eru æfingar liðsmanna KGB. Þá munu vera óborganleg atriði sem tekin era upp í eldhúsi Lefortovo-fangelsis þar sem kokkurinn á staðnum upplýsir að fangarnir geti valið um grænmetis- rétt eða kjötrétt á degi hveijum. Leiðsögumaðurinn bragðar á einum réttinum, snýr sér að myndavélinni og lýsir yfir því að svona góðan mat Hermenn úr innanríkishernum, sem heyrir undir KGB, handtaka Jyóðernissinna í sovétlýðveldinu Uzbekístan. búi eiginkona hans ekki til. Kim Philby, frægasti njósnari KGB og að líkindum einn sá mikilvægasti, sést í íbúð sinni í Moskvu en í öðru atriði ræðir ekkja hans, Rufa, við Júrí Modín sem var tengiliður KGB við Philby. Loks eru sýndar myndir frá jarðarför Philbys í Moskvu á síðasta ári. Á fundinum með erlendu blaða- mönnunum í Moskvu minntist Júrí Modín Philbys með eftirfarandi orð- um: „Philby var alúðlegt glæsi- menni, heiðarlegur og vanrækti aldr- ei skyldu sína. í upphafi var hann ekki neitt, hann var blaðamað- ur. . .“ Raunverulegar breytingar? „Myndin „KGB á vorum dögum“ vakti fyrst og fremst kátínu meðal viðstaddra,“ sagði Wolfgang Koydl, Útifundur í Gorkíj-garði í Moskvu. Á spjaldinu lengst til vinstri segir: „Engar pólitískar handtökur11. Á spjaldinu sem stúlkan hægra megin á myndinni heldur á er þess krafíst að Ljúbíjanka-fangelsinu, sem er í höfúðstöðvunum við Dzerzhinskíj-torg verði breytt í safii til minningar um fórnarlömb ógnarsljórna fyrri tíma í Sovétríkjunum. Maðurinn fyrir miðju krefst þess hins vegar að tékkneska andófsmanninum Vaclav Havel verði sleppt úr haldi í Prag en stjórnvöld þar hafa hundsað umbótastefhu Míkhaíls S. Gorbatsjovs. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1989 Vladímír Kijútsjkov, yfirmaður KGB, hefur verið mjög áberandi í herferð þessari. Kijútsjkov var á dögunum gerður að fullgildum félaga í stjórnmálaráði kommúnistaflokks- ins og sögðu viðmælendur Morgun- blaðsins í Moskvu að svo snöggur frami heyrði til undantekninga í Sov- étríkjunum. Kijútsjkov hefði átt sæti í miðstjórn flokksins og því hefði verið eðlilegt að hann yrði gerður að félaga í stjórnmálaráðinu án at- kvæðisréttar. Kijútsjkov hefur komið fram í sjónvarpi og ritað fjölda greina. í mynd Novostí-fréttastof- unnar kemur hann fram og ræðir um áhrif perestrojku og glasnost á starfsemi KGB. Haft hefur verið eft- ir Kijútsjkov að fimmta stjórnardeild KGB hafi verið lögð niður en deild sú hefur m.a. farið með málefni and- ófsmanna og njósnað um þá. Þessa illræmdu deild stofnaði Júrí An- dropov, fyrrum Sovétleiðtogi og vel- gjörðarmaður Gorbatsjovs á sínum tíma en áður en Andropov var kjör- inn aðalritari Kommúnistaflokks Sovétríkjanna stjórnaði hann KGB. Erlendum blaðamönnum í Moskvu ' hefur ekki tekist að sannreyna hvort deildin hafi í raun og veru verið lögð af. Á hinu nýja fulltrúaþingi Sov- étríkjanna hafa verið uppi kröfur um að höfuðstöðvar KGB verði fluttar úr miðborginni í eitthvert úthverfið þar sem minna beri á þeim. Tals- menn KGB, þ.á m. ígor Prelín, taka þunglega í það. „Siíkt myndi hafa í för með sér of mikla röskun á starf- semi hinna ýmsu deilda auk þess sem færa þyrfti allan fjarskiptabúnaðinn úr stað. Það er einfaldlega óger- iegt,“ sagði hann á blaðamannafund- inum dæmalausa. Ummæli þessi þykja gefa til kynna að þrátt fyrir allt tal um breytingar standi ekki til að raska hefðbundinni starfsemi sov- ésku öryggismálanefndarinnar. Fjöl- margir vestrænir embættismenn og sérfræðingar hafa látið svipaðar efa- semdir í ijós. Þekktur sovéskur mannréttindafrömuður sem býr í Moskvu vildi segja þetta eitt er Morg- unblaðið leitaði eftir skoðun hans: „Hér hefur ekkert breyst." Hluti höfuðstöðva KGB við Dzerzhinskíj-torg. Innfellda myndin er af núverandi yfirmanni sovésku leyniþjónustunnar, Vladimír Krjútsjkov, sem nýverið var gerður að fullgildum félaga í stjórnmálaráði sovéska kommúnistaflokksins. Sovétríkjanna og verkefni fréttastof- unnar hefur ávallt og ævinlega verið það að koma áróðri á framfæri og að fegra ímynd Sovétríkjanna á er- lendum vettvangi. Þeir vilja selja erlendum sjónvarpsstöðvum myndina og fá greitt í gjaldeyri.“ Nýtt hlutverk Wolfgang Koydl sagðT og greini- legt að KGB vildi einnig bæta ímynd sína í Sovétríkjunum. Birtar hefðu verið greinar um starfsemi KGB jafnt nú á tímum sem áður. í sumum þeirra væri stofnunin að leita eftir samstarfi við óbreytta borgara. „KGB hefur í vaxandi mæli tekið að sér að beijast gegn glæpastarfsemi og dreifingu eiturlyfja og lögð hefur verið áhersla á þetta nýja hlutverk stofnunarinnar í fjölmiðlum." Peter Conradi, fréttaritari Reut- ers-fréttastofunnar í Moskvu tók í sama streng. „Menn telja sig sjá ákveðnar breytingar en jafnframt þykir sýnt að hér sé á ferðinni skipu- lögð áróðursherferð til að bæta ímynd KGB. Látið er að því liggja að liðsmenn KGB sinni nú öðrum verkefnum og að stofnunin vilji eiga samstarf við erlendar stofnanir til að hefta starfsemi alþjóðlegra eitur- lyfjasala o.s.frv. Ég held að mat manna á því hvort hér er um raun- verulegar breytingar að ræða eða ekki hljóti að ráðast af því hvort menn trúa því að umbótastefnan hafi getið af sér raunverulegar breyt- ingar í Sovétríkjunum." yfirmaður Moskvu-skrifstofu vest- ur-þýsku fréttastofunnar Deutsche- -Presse Agentur (dpa), í símaviðtali við Morgunblaðið. „Ég efast um að breytingar þær sem talsmenn KGB hafa verið að boða séu raunveraleg- ar. Að mínu mati vilja yfirmenn KGB láta líta svo út að gerðar hafi verið umbætur á allri starfsemi stofnunar- innar. Þeir hafa lagt ríka áherslu á að bæta ímynd sína. Þannig halda þeir því statt og stöðugt fram að enginn þeirra sem starfar á vegum KGB um þessar mundir hafi tekið þátt í ofsóknunum á flórða og fimmta áratugnum. Vitaskuld er ekki hægt að sannreyna þessa fullyrðingu. Þeg- ar þeir voru spurðir um kúgun þá sem andófsmenn sættu á sjöunda og áttunda áratugnum og állt þar til á síðustu árum var svarið það að KGB hefði ekki brotið nein lög sem þá voru í gildi í Sovétríkjunum. Raunar sagði einn þeirra sem kom fram á fundinum, Igor Prelín, yfirforingi í KGB, að lög þessi væru enn í gildi. Prelín var mjög áberandi á blaða- mannafundinum. Hann kvaðst hafa tekið við stöðu blaðafulitrúa KGB en sú staða er vitaskuld nýjung hér í Sovétríkjunum" (sjá rammagrein á opnunni). Wolfgáng Koydl kvaðst telja að KGB vildi bæði bæta ímynd sína erlendis og innan Sovétríkjanna. „Novostí-fréttastofan framleiddi myndina „KGB á vorum dögum“ en fréttastofan er sögð vera nátengd KGB. Novostí starfar einungis utan U SAMTAL VIÐ BLAÐAFULL TRÚA KGB í MOSKVU UHHI Viljum ræda einslega vió vini okkar ÞAÐ vakti almenna undrun í Moskvu er erlendum fréttamönnum var á dögunum skýrt frá því að sovéska leyniþjónustan, KGB, hefði opnað upplýsingaskrifstofú. Helsti blaðafúlltrúi ®rX8’&ismálanefiidarinnar en svo neftiist stofiiunin á rússnesku er Igor Prelín sem kvaðst hafa verið foringi í KGB í 14 ár. Morgunblaðið ákvað að nýta sér þessa nýju þjónustu og fer samtalið hér á eftir: Talsamband við útlönd. - Góðan dag, þetta er á Morgunblaðinu. Ég ætla að panta samtal við Moskvu, síminn er 224 48 48. ' — Er þetta íslenska sendiráðið? Á ég að biðja um einhvern sérstakan? — Nei, ég held ég fái bara núme- rið. Þetta er í höfuðstöðvum KGB. — Moskva, gjörðu svo vel. — Góðan dag. Ég er blaðamaður og hringi frá Islandi. Gæti ég feng- ið að tala við blaðafulltrúann ígor Prelín? — Við tölum bara rússnesku hér. — Ég kann mjög lítið í rússnesku. Talið þér ensku eða þýsku? — Talaðu rússnesku, við tölum aðeins rússnesku. — Gæti ég fengið að tala við ein- hvern sem talar ensku? — Hér talar enginn ensku. — Ég vii fá að tala við einhvern sem talar ensku. — (Hiátur.) Ég vil ekki tala ensku. — Þú talar þá ensku. Þakka þér fyrir. Gæti ég fengið að tala við ígor Prelín? — Það er ígor Prelín sem talar. — Undursamlegt. Ég viidi gjarnan fá að spyija þig nokkurra spurn- inga um þær stórkostlegu breyting- ar sem nú munu eiga sér stað inn- an öryggismálanefndar Sovétríkj- anna? — Við veitum ekki slíkar upplýs- ingar í gegnum síma. Það er vinnu- regla hjá okkur. — Því miður sé ég mér ekki fært að koma tii Moskvu núna og við höfum ekki fréttaritara þar. Mig vantar almennar upplýsingar ekki nákvæmar lýsingar á starfsaðferð- um KGB. Og mig fýsir einnig að vita hvemig brejdingarnar koma til með að snerta litlar þjóðir eins og íslendinga. — Fáðu einhvern í símann sem talar rússnesku. — Hér talar enginn rússnesku, þvi miður, og ég þarf að ljúka við grein mína. — Við erum tilbúnir til að bíða eftir þér í Moskvu. — Ég kemst því miður ekki til Moskvu og ég get varla lært málið á leiðinni. Mig vantar almennar upplýsingar . . . eiga sér stað innan nefndarinnar? — Þú átt við nefndina okkar? — Já. — Viljirðu fá slíkar uppiýsingar ráðlegg ég þér að skrifa okkur bréf og við munum svara spurning- um þínum. Þú getur einnig reynt að biðja sendiráðið okkar um hjálp eða íslenska sendiráðið í Moskvu. Við megum ekki veita neinar upp- lýsingar i gegnum símann. Ég get því rniður ekki hjálpað þér. — Ég get ekki beðið svo lengi, rit- stjórinn bíður eftir greininni. — Þú getur líka sent okkur bréf. Heimilisfangið er: KGB, Moskvu, almenn deild. Þú getur skrifað á hvaða tungumáli sem er. — Segðu mér, til hvers hafið þið þennan síma og blaðafulitrúa ef þið megið ekki veita neinar uppiýs- ingar? — Sko, sjáðu til. Málið er það að í þessum síma getum við veitt svör við þeim spurningum sem við get- um svarað í gegnum símann. En við megum ekki veita upplýsingar af þessum toga í gegnum síma. Ástæðan er sú að símalínurnar eru ekki alltaf í lagi. . . — Ég kannast við það. — Og við viljum koma í veg fyrir mistök. Við viljum ekki gefa rang- ar upplýsingar og við viljum koma í veg fyrir misskilning. Þú getur sent okkur spurningarnar. — Herra Vasílíev. Ég gerði ná- kvæmlega þetta einu sinni. Ég sendi sovéskum embættismanni spurningalista og fékk svörin þremur mánuðum síðar. — Nei, nei. Hugsanlega hefur þetta tekið svona langan tíma fyrir nokkrum árum en nú á tímum tek- ur þetta kannski viku eða svo. — Hafið þið telex-tæki? — Nei, því miður ekki enn. Við fáum bráðum telex og meira að segja líka telefax-tæki. — Þú svaraðir ekki spurningunni. Hvers vegna konar spurningum getið þið svarað? — Við getum ekki svarað margvis- legum spurningum sem snerta umsvif nefndarinnar. — Ég er ekki að falast eftir slíkum uppiýsingum. . . — Við veitum upplýsingar þegar við getum rætt einslega við vini okkar. — Ég hef verið að kynna mér þess- ar mikilvægu breytingar innan KGB og svo vilt þú ekki hjáipa mér þegar ég hyggst skrifa um þær. — Halló. — Og þú svaraðir ekki spurning- unni. Hvers vegna starfrækið þið upplýsingaskrifstofu? — Halló. — Hvers konar spurningum megið þið svara? — Hailó. Hér sá Sergej Vasílíev ekki ástæðu til að hafa samtal þetta lengra og lagði á enda var umræðu- efnið ef til vill tæmt. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná sambandi við hann á ný. — Ég skil ekki. Ég kann lítið í ensku. Fáðu einhvern sem talar rússnesku. — Þú talar mjög góða ensku og ég veit að þú getur svarað mér. — Ef þú hringir eftir hálftíma verður félagi minn hér og hann talar mjög góða ensku. — Þá það. Þakka þér fyrir. Ég hringi eftir hálftíma. — Góðan dag. Ég hringi frá Is- landi. Gæti ég fengið að tala við ígor Prelín? — Halló, Halló. Mjög gaman að heyra í þér. — Já, einmitt það, takk, sömuleið- is. yið hvern tala ég með leyfi? — Ég heiti Sergej Vasílíev. — Sæll. Ég er að reyna að kynna mér þær miklu breytingar sem nú

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.