Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 1

Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 1
96 SÍÐUR B/C 223. tbl. 77. áirg. SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1989 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Boga beitt á hreindýrin NORSKUR bogveiðimað- ur hefur að undanföruu dvalist við veiðar í grennd við Syðri- StraumQörð á Græn- Lmmbwm landi og hefur hann fellt eitt hreindýr. Hefur þessi veiðiskapur mælst illa fyrir á grænlenska landsþinginu. Frá þessu er greint í norska vikublaðinu Fiskur- en. Bogmaðurinn á hins _ vegar sína fylgjendur á Grænlandi. „Ég hreifst af skotfimi Norðmannsins,“ sagði Jan Thrysoi, lögreglumaður staðarins. „Það var mikill áhugi á meðal bæj- arbúa á þessum veiðiskap." Dönsk dagblöð í erfiðleikum Kaupmannahöfn. Frá N.J.Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. DÖNSKU dagblöðin eiga mörg hver á brattan að sækja um þessar mundir en verst er komið fyrir Det Fri Aktuelt og Kristeligt Dagblad. Hefur það fyrr- nefnda brugðist við vandanum með uppsögnum en það síðarnefhda er að hleypa af stokkunum landssöfhun sér til styrktar. Fyrir aðeins tveimur árum samþykkti danska alþýðusambandið að leggja Aktuelt til rúma þrjá miiljarða ísl. kr. en nú er svo komið, að sunnu- dagsblaðið er hætt að koma út og upp- lagið virka daga er minna en áður. „Lifi Kristeligt Dagblad“ er herópið í landssöfnun, sem blaðið gengst nú fyrir og er það ekki í fyrsta sinn, sem á það ráð er brugöið. Dýrt gaman New York. The Daily Telegraph. Aukin harka hefúr færst í baráttuna fyrir borgar- stjórakosningarnar í New York í nóvembermánuði. Annar firambjóðandinn, Rudolph Giuliani, þóttist hafa himin höndum tekið er þekktur grínisti og ákafur stuðningsmaður hans, James Mason að nafni, féttst á að gerast „hirðfífl" hans í kosningabaráttunni. Mason hefur nú verið gert að taka pok- ann sinn vegna ummæla sem hann lét falla um blökkumenn og gyðinga en David Dinkins, andstæðingur Giuliani, er blökkumaður. Mason sagði í blaðavið- tali að gyðingar væru fullir sektar- kenndar gagnvart blökkumönnum. „Gyðingar eiga við sjúklegt vandamál að stríða; ævinlega skulu þeir kjósa blökkumanninn þótt viðkomandi sé öld- ungis óhæfur,“ sagði grínistinn og bætti við að Dinkins væri „eins og svört fyrir- sæta í atvinnuleit". Telja margir, að Giuliani eigi nú titla möguleika á að sigra David Dinkins * __ __ Morffunblaðið/RAX FEAFFJALLI Fé rekið í sandstormi yfir úfið hraun norðan Heklu. Myndin var tekin er smalað var í fjállferð á Landmannaafrétti. Sjá grein um leitina „Hundrað Qalla smalar" á forsíðu C-blaðs. Ræða Virgilios Barcos, forseta Kólombíu, á allsherjarþingiriu: Þjóðir heims skipi sér í flokk í eiturlyfjastríðmu Sameinuðii þjóðunum. Reuter. „Eiturlyfjaskelfingin virðir engin landamæri, í þessu stríði finnst enginn griðastað- ur,“ sagði Virgilio Barco, forseti Kólombíu, í ræðu, sem hann flutti í fyrrakvötd á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Skoraði hann á allar þjóðir tieims að taka höndum sanian undir einum gunnfána í baráttunni við glæpalýðinn og risu fundar- menn þá úr sætum og fögnuðu lengi og innilega. Ber öllum saman um, að langt sé síðan jafn áhrifamikil ræða hafi verið flutt á þinginu. Stundin er upp runnin, þjóðir heims verða nú að ákveða hvar þær vilja skipa sér í flokk í þessu stríði. Við Kólombíumenn erum í fremstu víglínu, við getum ekki bar- ist með orðunum einum. Kólombískir þing- menn og borgarstjórar, tugir blaðamanna, þúsundir her- og lögreglumanna og tug- þúsundir óbreyttra borgara hafa fallið í valinn. Þetta hugrakka fólk má ekki hafa dáið til einskis. Réttlætum þessar fórnir með því að sigrast á bölvaldinum, eiturlyfj- unum og glæpalýðnum," sagði Barco og komst augljóslega við þegar hann fann fyr- ir samúð og hluttekningu fundarmanna. Barco lagði til, að allsheijarþingið boðaði til sérstaks fundar um eiturlyfjavandann og sagði, að fela ætti alþjóðlegri ráðherranefnd að skipuleggja samræmdar aðgerðir. Hann nefndi líka oft, að eiturlyfjasalarnir í Kólombíu nytu stuðnings ýmissa manna í Norður-Ameríku og Evrópu, fengju frá þeim vopn og efni til að vinna kókaín og aðstoð við að fela eiturgróðann. Sagði hann, að ganga yrði jafn hart að þessum mönnum og gengið væri að örsnauðum, kólombískum bændum, sem frarhfleyttu sér með kóka- rækt. Barco minnti'ejnnig á, að eiturbyrlararn- ir væru víðar en í Kólombíu. „Sumir þess- ara manna eru vissulega fæddir í landi mínu en þeir eru ekki Kólombíumenn nema að nafninu til. Þeir eru alþjóðlegir glæpamenn á flótta undan lögum og rétti. Þeir eiga hvergi heima.“ Mikil öryggisgæsla var viðhöfð þegar Barco flutti ræðuna. Sérþjálfaðar skyttur voru uppi á nálægum húsum og fjölmennur vörður fylgdi honum hvert fótmál. KG í andlitslyftmgu 10/11 LOTHAMS- mnm 12/13 UMÖNNUN GEGN ALNÆMl GÖNGUDEILD FYRIR ALNÆMISSJÚKLINGA SETT Á LAGGIRNAR 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.