Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ.SyNNUDAGUR 1. OK|,TÓBER 1989 Margrét Hermanns- Auðardóttir hef ur raskað viðteknum hugmyndum manna um landném íslands og hefur margt að athuga við það hvernig við hugum að fortíð okkar Morgunblaðið/Bjami Margrét Hermanns- Auðardóttir gangi nokkuð í mót „ríkjandi sögu- skoðun", þurftir þú að herða upp hugann áður en þú settir þær fram? „Já, auðvitað þurfti maður það en það var bará að bíta á jaxlinn og halda áfram. Auðvitað voru stundir þegar það var ansi mikið álag sem hafði áhrif á mann sjálfan og einnig fjölskyldu og nánasta umhverfi.“ — Erum við íslendingar „kreddu- fastir“, staðnaðir í okkar sögulegu fræðum? „Við getum verið það. Ég held því fram að íslensk fornleifafræði hafi staðnað, sé engan veginn í takt við fornleifafræði í nágrannalöndunum. Þegar unnið er að rannsóknum eru ekki notaðar til viðmiðunar og stuðn- ings þær aldursgreiningaraðferðir sem standa til boða. Ef það væri gert færum við kannski að sjá öðru- vísi niðurstöður heldur en við höfum fengið hingað til. Það er líka merki um stöðnun eða frekar hnignun að fornleifar hafa verið eyðilagar í mikl- um mæli undanfarna áratugi vegna alls kyns framkvæmda. Það er merki um stöðnun þegar ekki er veitt fé í að skrá þær minjar sem vitað er um. Það er merki um stöðnun þegar fólk tilkynnir um minjafundi og því er lítt eða ekki sinnt og ekki til að ýta undir áhuga almennings. íslensk fornleifafræði býr við kröpp kjör. Til hennar er litlu fé varið og tæpast skilningur á öðru en að rannsaka höfðingjasetur. Flest- ar þjóðir leggja metnað sinn í að grafast fyrir um uppruna sinn með því að styrkja stöðu eigin fornleifa- fræði og telja hana homstein allar menningarviðleitni." — En þurfum við nokkuð að grafa fyrir upprunanum, segja ekki Ari fróði og Landnáma ágætlega frá honum? „Þannig hugsa eflaust sagnfræð- ingar. En það stendur ekki allt í varðveittum miðaldaritum. Kannski stendur ýmislegt þar sem okkur af- komendunum var ætlað að trúa. Nútímamaðurinn gleymir því oft að á fyrri tímum fóru skriftir og völd hönd í hönd. Ritun Landnámabókar tengist ákveðnum valdahagsmunum. Við erum alin upp við þessa ákveðnu ;sögu um Ingólf og landnámið og þess vegna hefur kannski verið tak- markaður áhugi á því að hlúa að þróun fomleifafræðinnar. Hvað snertir fornleifafræðina er stað- reyndin sú að við erum mjög illa sett í samanburði við aðrar þjóðir. Hér höfum við enga fornleifafræðistofn- un tii að skipuleggja rannsóknir og veita faglegan stuðning, bjarga forn- leifum og skrá þær. Það þarf að auka rannsóknir um allt ísland, ekki bara tilfallandi fornleifagröft í Reykjavík, þegar þarf að reisa ein- hver mannvirki. Að vísu taka ný þjóð- minjalög gildi um næstu áramót en það er hætt við að allt framtak fari í nauðsynlegar en kostnaðarsamar viðgerðir á steinsteypunni í Þjóð- minjasafni. 600 milljónir hafa verið nefndar. Það var einmitt vegna þessa sem ég taldi og tel að það væri mikil- vægt að koma fornleifavörslunni og rannsóknum fyrir í sjálfstæðri ein- ingu eða stofnun. Það eru sárafáar stöður í landinu fyrir fomleifafræðinga, t.d. bara ein auglýst staða í Þjóðminjasafni. Þetta er ekki bara spurning um fjármuni, þetta er líka spurning um að styðja þá sem hafa hug og þor að fást við rannsóknir. Ég hef iðulega reynt að leita stuðnings hjá Þjóðminjasafni en oftast án árangurs og ég er ekki ein um það.“ — Þetta er hvöss gagnrýni sem þú hefur reyndar orðað áður, hver eru viðbrögðin? ; „Undanfarin ár hefur mikill tími af minni hálfu farið í lagastríð, þ.e.a.s. endurskoðun þjóðminjalag- '• anna og þar hef ég látið í mér heyra ' við misjafnar undirtektir. Það er oft notað í deilum á Islandi að drepa ( umræðunni á dreif; að ráðast á per- sónu fólks. Það hefur heyrst að ég , sé haldin menntahroka og annarri óáran sem manni er sjaldnast gefið ' tækifæri til að mæta á ærlegan hátt.“ — Hefur þú engar áhyggjur af því að þínar niðurstöður verði gripn- ar á lofti og e.t.v. notaðar miður fræðilega til að rökstyðja einhvers konar uppmnakenningar. Aður en þú veist af verði kominn einhver sér- vitringur með háþróaða hug- arsmíði,„ímyndunarbyggð“, og rökstyðji hana með tilvísun til þinna kenninga? „Ég verð náttúrulega að taka af- stöðu til slíkra skrifa ef þau skyldu koma.“ Fortíð í nútíð — Hvað ertu að fást við og rann- saka núna? „Ég gegni nú rannsóknarstöðu í fornleifafræði við Háskóla íslands. Ég hef fengið Vísindasjóðsstyrk til að vinna forkannanir á verslunar- staðnum á Gásum við Hörgárósa norður í Eyjafirði og hef um það samvinnu við aðila í Noregi sem vilja kanna hvernig verslunin hér tengist' versluninni í Björgvin. Við vitum í raun og veru sáralítið um hvað var verslað framan af. Og í tengslum við þær rannsóknir kanna ég með Þor- birni Friðrikssyni efnafræðingi hvernig jámvinnsla og seljabúskapur hafi hugsanlega haft áhrif á verslun- ina hér á landi. Einnig er ætlunin að reyna að sjá hvaða áhrif brenni- steinstakan í Mývatnssveit hafði á verslunina er fram í sótti.“ — Ritaðar heimildir segja ekki allt. Segðu mér. Heldurðu að land- námsmennirnir hafi búið jafn flott og sögualdarbærinn gefur tilefni til að ætla? „Hörður Ágústsson hefur unnið mikið og gott starf en ég efast um að það hafi verið svona vel þiljað og hátt til lofts í Stangarbænum.“ — Ertu „fagidjót" hefur þú önnur áhugamál en fornleifafræðina? „Eg hef áhuga á tónlist, stunda laugarnar og ferðast en þar verður að játa að ég tek fagið með mér. Dóttirin hefur sagst ætla að verða allt annað en fornleifafræðingur enda langþreytt á því að skoða forn- leifar og gömul mannvirki." • • BILAÞVOTTASTOÐ Til sölu vandaðasta fáanlega bílaþvottavél | frá Kleindienst í V-Þýzkalandi. Vélin þvær allar stærðir af bílum, frá stærstu rútum til minnsta Mini. Vélinni fylgir útbúnaður til undirvagns- þvottar. Af sérstökum ástæðum verður vélin seld á hálfvirði. Uppl. í síma 91-17678 kl. 16-20. TVEIR MÁNUÐIR TIL STEFNU Frestur til að skila inn handritum í árlega samkeppni Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka rennur út þann 30. nóvember 1989. Verðlaunin verða afhent í Fimmta sinn næsta vor og mun verðlaunabókin þá koma út hjá bókaútgáfu Vöku-Helgafells. íslensku barnabókaverðlaunin 1990 nema 150.000 krónum auk þess sem höfundur verðlaunabókarinnar fær greidd höfundarlaun fyrir verkið samkvæmt samningi Rithöfundasambands Islands og Félags íslenskra bókaútgefenda. Að sjóðnum standa bókaútgáfan Vaka-Helgafell, fjöl- skylda Ármanns Kr. Einarssonar, rithöfundar, Barna- bókaráðið (íslandsdeild IBBY-samtakanna, Barna- vinafélagið Sumargjöf og menntamálaráðuneytið. Dómnefnd mun velja verðlaunasöguna úr þeim hand- ritum sem berast. Ekki eru sett nein mörk varðandi lengd sagnanna og einungis við það miðað að efnið hæfi börnum og unglingum. Óskað er eftir að hand- rit séu send í ábyrgðarpósti og utanáskriftin er: Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka Vaka-Helgafell Síðumúla 29 108 Reykjavík Sögumar skulu merktar dulnefni, en rétt nafn höfundar látið fylgja í lokuðu umslagi. Allar nánari upplýsingar æru veittar hjá útgáfunni í síma (91) 6 88 300. Nú eru einungis tveir mánuðir til stefnu. Stjórn Verð- launasjóðsins vill því hvetja höfunda barnabóka til að senda handrit í samkeppni og efla þar með veg íslenskra barnabóka. Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka Þú svalar lestrarþörf dagsins á^3um Moggans!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.