Morgunblaðið - 01.10.1989, Síða 22

Morgunblaðið - 01.10.1989, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ VERÖLD/HLAÐVARPINN SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1989 Hvar er veðrið? EITT frægasta og áþreifanleg- asta sérkenni Englands er veð- rið; í daglegu tali einfaldlega kallað „enska veðrið“. Nafnið kallar fram í huga fólks minning- ar um gráa daga, sem einkenn- ast af rigningu og dumbungi, mistri og skýsprengdum himni. Veðrinu er kennt um skaplyndi eyjaskeggja og lífsstíl, grámyglu hversdagsleikans, og jafnvel um hið heimóttalega og litlausa í listalífi þjóðarinnar, þegar slíkt birtist. Því andinn rúmist ekki í lágskýjuðu landi. Skáld og lista- menn þjóðarinnar líta í rómatík sinni í suðurátt, til heitari og bjartari landa, þar sem sólin skín í heiði, litimir blómstra og mannlífið iðar og listamenn og andans jöfrar hugsa stórt. En nú hefur enska veðrið verið týnt í ár. Og afleiðingarnar hafa ekki látið á sér standa. Suð- rænn, útlendur léttleiki hefur grip- ið um sig. Fólk sprangar léttklætt um götumar og dettur ekki í hug að nokkurn tíma rigni aftur. Hvít húðin æpir á móti dýrðinni og fá- læti norðursins er kastað. Allt í einu á þjóðin ekki vatnsbirgðir til að svala þorstanum, kyngir kyn- slóðagömlum þjóðaríg og drekkur marga lítra af frönsku vatni dag hvern. Og enn lækkar í vatnsbólum svo að garðræktunarþjóðinni er bannað að vökva blómin sín og trén, sem það elskar betur og leng- ur en hvert annað. Það er líklega stærsta fómin. En ekki fyrir alla. Maður nokkur í Cornwall virti uppáhaldstréð sitt meira heldur en landlægt vökvun- arbann og fannst lítið að borga 20 þúsund krónur í sekt til að halda því á lífi. Kvaðst mundi gera hið sama aftur. Og ekki eru það aðeins mennirnir sem taka fjörkipp og klípa sig í hvert sinn sem þeir líta til sólar, heldur hefur náttúran tek- ið nokkur feilspor í gleðidansi sínum. Ráðvillt blóm sprungu út í ótíma og vetrarhimininn fylltist af fagnaðarhljóm fugla sem gleymdu sér um stund, því fuglaskörum sem venjulega flýja eyjuna yfir vetrar- mánuðina hugnaðist hið milda loftslag svo vel að þeir hunsuðu árlegu fardagana. En nýja veðrið hefur skaðað gamla siði. Regnhlífin, hið óijúfan- lega tákn Lundúnaborgar, virkaði líklega í fyrsta sinn fáránleg í því hlutverki sínu, þegar henni og aus- andi rigningu var ætlað að tákna England á hátíðarskrúðgöngu á Bastilludaginn í París. Þann fjórt- ánda júlí 1989 höfðu allir í London nefnilega steingleymt því að regnhlíf hefði nokkuð með daglegt líf þeirra að gera. Svona geta klisj- ur úrelst á nokkrum nóttum. En nú haustar. Vonandi láta æðri máttarvöldin breytinguna til hins venjulega tíðarfars ganga hægt fýrir sig, svo að embættis- menn hafi ráðrúm til að fara í gamalkunnu teinóttu fötin sín og setja grafsvarta kúluhattinn upp. Og ekki síst til að gefa borgarbúum tóm til að finna regnhlífina og ónot- uðu orðin, svo hægt sé að fara að tala um veðrið á nýjan leik. Upp komast svik um síðir... Tveir slökkviliðsmcnn í Boston voru reknir úr starfi fyrir skemmstu fyrir að villa á sér heimildir. Þeim þótti súrt í broti að þurfa að sætaþeim örlögum eftir tíu ára starf í slökkviliðinu og áfrýjuðu brottrekstrinum til dómstóla,cn allt kom fyrir ekki: hvítu tvíburabræðurnir Philip og Paul Malone voru reknir fyrir að halda því fram að þeir væru svartir og þeir skyldu ekki endurráðnir til slökkviliðsins._______ Bræðumir Malone sóttu fyrst um að verða slökkviliðsmenn árið 1975,en voru ekki ráðnir vegna slælegrar frammistöðu á prófi, sem lagt er fyrir alla umsækjendur um opinber störf. Aðhöfðust þeir ekk- ert meðan jörðin rann eftir braut sinni tvo hringi umhverfis sólu, en árið 1977 gerðu þeir aðra atlögu að slökkviliðinu. Enn var árangur þeirra á prófinu ófullnægjandi. Malone-bræður höfðu hins vegar svarað því til í umsóknum sínum að þeir væru svartir á hörund og fengu því starfann í krafti reglu- gerðar, sem sett var árið 1975 og veitir minnihlutahópum forgang þegar sótt er um starf hjá hinu opinbera. Þannig var nefnilega mál með vexti, sögðu þeir, að móðir þeirra hafði frætt þá á því milli þess sem þeir tóku prófin að lang- amma þeirra hefði verið svört. Engar athugasemdir voru gerðar við tilkall þeirra til að vera svartir og árið 1978 tóku þeir tii starfa. Þeir börðust við elda í dyrum og dyngjum og björguðu köttum úr tijám. Lá kyrrt um litarhátt þeirra í áratug. En þar kom að frama- girnd Malone-bræðra varð þeim að falli. Þeir ákváðu að fara fram á stöðuhækkun í slökkviliðinu og þurftu þá að gangast undir annað próf. Að þessu sinni stóðu þeir sig með afbrigðum vel og skýrslur um þá voru afhentar yfirmanni slökkvi- liðs Boston til úrskurðar um það hvort þeim skyldi veitt stöðuhækk- un. Slökkviliðsstjórinn varð agn- dofa þegar hann sá í skýrslum að hinir bleikskinna bræður voru sagðir svartir á hörund. Hann ák- vað að við svo búið yrði ekki unað, skaut málinu til yfirvalda í Massac- husetts og bræðrunum var vikið úr starfi. Dómarinn sem skar úr um áfrýj- un þeirra sagði í úrskurði sínum að óyggjandi sannanir lægju fyrir því að Malone-bræður hefðu ekki haldið fram svörtum litarhætti sínum í góðri trú: Það var hins vegar þeirra hagur að grípa til allra bragða til þess að reyna að tryggja sér vinnu í slökkviliðinu. Þeir sýndu ekki fram á að þeir væru svartir og þaðan af síður hegðuðu þeir sér eins og svertingjar í samskiptum við annað fóík, sagði dómarinn. Mál þetta hefur dregið dilk á eftir sér. Ray Flynn, borgarstjóri Boston, fyrirskipaði rannsókn á starfsmannahaldi í slökkviliði, lög- reglu og skólum til að komast að því hvort fleiri hefðu haldið því fram að þeir tilheyrðu minnihluta- hópi til að krækja sér í stöðu. Eng- inn lögregluþjónn virtist sigla und- ir fölsku flaggi. Skólayfirvöld gripu til þrotlausra málalenginga og drekktu rannsókninni í skrif- finnsku. Mál ellefu slökkviliðs- manna, sem sögðust vera af suð- ur-amerískum uppruna, hafa verið til rannsóknar. Sjö gátu sannað uppruna sinn, en sögðu upp starfi sínu frekar en að sæta rannsókn. En svartir sauðir á borð við Mal- one-bræður hafa ekki fundist. Sjón er sögu Við sluppum með skrekkinn — og hvílíkt Guðslán. Fellibylurinn Hugo stefndi um tíma á Florida og fólk hér úti á ströndinni, sem er álíka langt frá okkur og íbúar Selfoss og Hellu eru frá Reykjavík, var farið að negla fyrir glugga á húsum sínum og fjarlægja báta sína eða reyra þá niður. En svo breytti Hugo Iítillega um stefnu og skall á strönd Suður-Karólínu, gerði þar ótrúlegan usla og skildi þar eftir sig sömu slóð dauða og eyðileggingar og á Leward-eyjum, Virgin-eyjum og Purerto Rico, 21 maður lá í valnum í Karólínuríkj- unum og Virginíu. Sumt af þessu gerðist eftir að einn af fréttamönn- um Morgunblaðsins hringdi í mig og bað mig að hætta að senda fréttir af fellibylnum, því hannværi víst búinn! Hann fékk hjá mér símanúmer formanna tveggja Islendingafélaga. Eg vona að hann hafi ekki haflt upp á neinum Islendingi sem I þessu lenti. Það er einnig harla ólíklegt því fiest svæðin sem Hugo fór yfir urðu síma- sambandslaus og verða það allt upp í tvær vikur eftir áhlaupið. Eg þekkti þennan hugsanagang fréttamannsins, því ég hafði gerst sekur um hið sama meðan ég var í erlendum fréttaskrifum á íslandi. En kominn á fellibyljaslóð- ir skynja ég og sé eyðileggingar- mátt fellibylja. Ég bjó í Denver í fyrra, þegar Gilbert gekk yfir eyjar sunnan Kúbu, yfir Yucatan-skaga og flatlendið í Mexikó fyrir botni Mexíkóflóans, og fylgdist með hon- um í sjónvarpsfréttum. Hann varð hundruðum manna að bana - margfalt fleirum en Hugo - en samt náði hann ekki eins miklum tökum á okkur og Hugo. Ég var í ör- uggri fjarlægð frá Gilbert. En um tíma stefni Hugo á svæðið þar sem ég bý nú - jafnvel húsið okkar. Við fylgdumst því með honum „af lífi og sál“. Þegar hann skall á borg- inni Charleston í S-Karólínu. Um miðnætti aðfaranótt 22. sept. var hér 23°C hiti, góð birta frá hálfu tungli og stjömubjartur himinn! Krumlur Hugos voru í um það bil 300 km fjarlægð en hér varð hans ekki vart. Við sluppum en dauðinn og eyðilegginin var eins og í seiling- arfjarlægð. Mér er fullljóst, að ef hann hefði gengið hér yfir, hefði lítið farið fyrir þremur himinháum furutijám sem eru á lóð hússins þar sem við búum. Þau virðast ríkari sterk — ég næ ekki utan um stofna þeirra allra — en svona tijám kippti Hugo upp með rótum í þúsunda- tali í Karólínu. í fallinu brutu þau hús, lögðu saman bíla, slitu raf- magns- og símalínur og ollu öðrum skaða. Fyrif einhveija tilviljun gerðist þetta þar en ekki hér. Ég held að margir íslendingar misskilji fellibyli - haldi jafnvel að það sé einhver aumingjaháttur fólks á eyjum í Karíbahafi og Bandaríkjunum eða hvar sem þá ber nú að landi, að gera svona mikið veður út af þessu; hús þess séu bara illa byggð og það geti sjálfu sér um kennt. Þó margt sé illa byggt og hrófl- að upp, aðallega heimkynni fátækl- inganna, þá er þetta mikil einföldun og herfilegur misskilningur. í felli- byl felst meira afl en nokkur mað- ur getur gert sér í hugarlund. Menn standa gapandi af undrun eftirá, þegar þeir líta yfir dauða- og eyðileggingarslóð fellibyljanna. Að þessu sinni fengu menn tveggja sólarhringa frest, allt var reyrt niður og birgt sem menn höfðu tök á að binda eða treysta. Hundruð þúsunda manna héldu eða voru fluttir til öruggari staða. Hvernig hefði verið umhorfs, ef ekkert hefði verið að gert? Það er ekkert sem stenst mátt fellibylja af þessari eyðileggingargráðu. Maðurinn stendur enn ráðþrota gagnvart náttúruhamförunum. Hús, brýr og dreifingarkerfi vatns og rafmagns, sem hafa staðið af sé öll veður um áratugaskeið, eru eins og eldspýtnamannvirki, þegar fellibylina ber að. Slóð þeirra er mjó, - en samt of breið. Margir sleppa - en þeir sem verða á leið fellibyljanna tapa miklu - stundum bæði aleigunni og lífinu líka. í Karólínuríkjunum verður rafmagn ekki komið á allsstaðar fyrr en eftir 3-4 vikur. Og hugsið ykkur að lifa á heitum slóðum, þar sem kæling húsa, geymsla matvæla og aðrar lífsnauðsynjar byggjast á raforku. Flóðin sem fellibylir valda eru annar kapítuli. Ég þekki einn íslending sem missti aleigu sína, hús og innbú, í fellibyl. Hann og kona hans óðu í land með börnin sín á bakinu. Þessi maður gat ekki hugsað sé að búa lengur á strönd þar sem von væri á fellibyl. Óttinn við fellibyli hverfur aldrei úr bijósti hans. Ég held að aðeins jarðskjálft- ar og eldgos á íslandi jafnist á við fellibylji á suðlægum slóðum. Þeir koma skyndilega, þegar þeir líoma, þeir standa stutt — en hvílík eyðileggingarspor. Það tekur vikur, mánuði og jafnvel ár að byggja upp og bæta skaðann. Hugo varð nær 50 manns að bana — það tjón verður aldrei bætt. Eignatjón er mælt í milljörðum dollara — þremur milljörðum dollara bara í Karólínuríkjunum. Svona veður koma sem betur fer ekki á Islandi eða norðurslóðum, þó oft blási þar vel. Fárviðri þar eru ekki eins snögg og skörp, en vara lengur og gera öðru vísi usla og reyna sannar- lega á þolrifin. Sumir græða á fellibyljum t.d. krossviðarsalar, trésmiðir o.fl. Sjónvarpsmenn ætluðu að lýsa gangi mála þegar Hugo bar að landi í S-Karólínu. Allt fór það fyr- ir ofan garð og neðan og varð varla lýsing á öðru en hvernig frétta- manninum var innanbijósts, hvern- ig honum tókst að standa í lengstu lög og annað er að honum vék. Þeir reyndu en tókst ekki. Mynda- vélar og orð gátu ekki sýnt fólki veðurofsann og afleiðingar hans í náttmyrkri og 200 km vindhraða á klukkustund. En þegar aftur árlaði og birti blasti eyðileggingin við. Hún sýndi okkur hversu óendan- lega litlir mennirnir eru gagnvart ógnarmætti náttúrunnar — Iíka blaða- og fréttamenn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.