Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1989 Sameig-narfyrirtæki íslands og Ungverjalands stofnað: Hugsanlega upphafið að víðtæku samstarfi Iiúdapest. Frá Oddnýju Björgfviiisdóttur, FYRSTA sameig'narfyrirtæki ís- lands og Austur-Evrópuríkis var stofnað við hátíðlega athöfn í salarkynnum ungverska verslun- arráðsins í gærmorgun. Nýja fyr- irtækið Geoterm er hlutafélag og skiptist hlutaíjáreign til helm- blaðamanni Morgunblaösins inga. Að isienska hlutanum standa ráðgjafafyrirtækin Virk- ir-Orkint og íslenska þróunarfé- lagið. Hlutaféð er 1,2 milljónir ungverskra fórinta. Ungverskir eigendur eru samvinnufyrirtæk- ið Geotermal sem sérhæfír sig í Loðnuflotinn leitar enn að stórri loðnu LOÐNUFLOTINN leitar nú að stórri loðnu við Vestfirði og norður af Kolbeinsey. Um 10 skip voru á miðunum við Kolbeinsey aðfara- nótt föstudags en þar virðist ekki vera verulegt magn af stórri loðnu. Þar sem hnúfubakur fylgir oft loðnunni var ætlunin að flugvél Landhelgisgæslunnar leitaði að þessari hvalategund við hafísrönd- ina á föstudag en fresta varð leit- inni vegna lélegra skilyrða. VEÐUR Albert GK landaði um 500 tonn- um af loðnu á Siglufirði á föstudag og Kap II. VE fór þá með 500 tonn af loðnu til Vestmannaeyja en skip- in fengu aflann við Kolbeinsey. ráðgjöf og nýtingu á jarðvarma og nokkrir stjórnendur þess. Athöfnin í gærmorgun hófst með ræðu framkvæmdastjóra ung- verska verslunarráðsins en að svo búnu talaði Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra. Hann sagði samninginn merkan áfanga í sam- skiptum ríkjanna tveggja. Báðar þjóðirnar byggju yfír mikilvægum auðlindum sem nú hefði tekist sam- starf um að nýta. Þá afhenti utanríkisráðherra framkvæmdastjóra Geotermal, Jeno Balogh, stofnframlagið fyrir hönd hinna íslensku aðila. Svavar Jónatansson stjórnarformaður Virkis-Orkint rakti aðdraganda að stofnun fyrirtækisins og sagði að ef til vill væri hér um ræða upphaf að víðtæku samstarfi milli ríkjanna sem næði víða um heim. Þau verk- efni sem þegar lægju fyrir væru hitaveituframkvæmdir í sex ung- ^ tT -# •# Heimild: Veðurstofa islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) í DAG kl. 12.00: VEÐURHORFUR íDAG, 4. NÓVEMBER: YFIRLIT í GÆR: Búist er við stormi á Noröurdjúpi, Suðurdjúpi og Suðvesturdjúpi. Um 300 km vestsuðvestur af Reykjanesi er 983ja mb lægð sem mun fara austur með suðurströndinni í nótt en vax- andi 987 mb lægð fyrir austan land hreyfist norður. í nótt fer að kólna, fyrst vestantil á landinu. SPÁ: Norðanátt, víða allhvöss, snjókoma eða éljagangur norðan- lands, slydda á Austurlandi en léttir smám saman til sunnanlands. Kólnandi veður. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðan- og norðaust- anátt, allhvöss víða norðanlands, en hægari annars staðar. Bjart- ast sunnan- og suðaustanlands en víða él eða slydduél í öðrum landshlutum. Hiti um frostmark. x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * •JQ Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El = Poka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —þ Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma. hiti veður Akureyri -4 léttskýjað Reykjavík 2 slydda Bergen 12 rigning Helsinkl 4 skýjað Kaupmannah. 8 rigning Narssarssuaq +8 snjókoma Nuuk +7 skýjað Osló 8 rigning Stokkhólmur 9 skýjað Þórshöfn 7 súld > Algarve 18 léttskýjað ' Amsterdam 12 léttskýjað Barcelona 18 hálfskýjað Berlin 9 rigning Chicago -s-6 léttskýjað Feneyjar 13 þokumóða Frankfurt 12 rigning Glasgow 11 skúrir Hamborg 11 skýjað Las Palmas 24 léttskýjað London 12 skýjað Los Angeles 14 heiðskírt Lúxemborg 9 alskýjað Madrid 12 léttskýjað Malaga 20 skýjað Mallorca 21 skýjað Montreal 4 rigning New York 10 rigning Orlando 17 léttskýjað Parfs 11 skýjað Róm 21 hálfskýjað Vín 12 þokumóða Washington 9 rigning Winnipeg r9 snjókoma Interfoto r hj "... . - ■■SrlWlMHlsliC, Frá undirritun samningsins í Ungverjalandi í gærmorgun. verskum borgum og stefnt væri að byggingu heilsuhótela. Síðastur tal- aði Jeno Balogh, sem ásamt Sva- vari er framkvæmdastjóri hins ný- stofnaða fyrirtækis. Hann taldi að verið væri að leggja réttan grund- völl að framtíðinni þar sem hefð- bundinn orkukostnaður myndi stór- hækka á næstu árum. í öllum ræðunum var lýst mikilli ánægju með ákvörðun Norræna fjárfestingabankans að fjármagna þessar framkvæmdir að veruíegu leyti. Undir samninginn skrifuðu framkvæmdastjórar nýja fyrirtæk- isins ásamt Gunnlaugi Sigmnunds- syni og Heimi Hannessyni. Fyrr í vikunni lýsti Guyila Horn, utanríkisráðherra Ungveijalands, því yfir að Ungvetjar stefndu nú að vestrænu markaðskerfi, engin önnur leið væri fær til að koma efnahagslífinu á réttan kjöl. „Náin samvinna við íslendinga er okkur mikils virði, ekki einungis að þessu leyti, heldur fysir okkur einnig að kynnast lýðræðishefðinni á íslandi," sagði ráðherrann. 13% hækkun í nýj- um virkjanasamningi SAMNINGAR tókust í fyrrinótt um nýjan virkjanasamning og á fundi í gærkveldi átti að bera hann upp til samþykkis eða synjunar meðal starfsmanna Við Blönduvirkjun. Auk þeirra þurfa trúnaðarráð verka- lýðsfélaga á því svæði sem virkjað er að samþykkja sanmingana og framkvæmdastjórnir landssambanda iðnaðarmanna. Samningurinn felur í sér 13% launahækkun frá gildistöku, en hann gildir frá 16. október og er til tveggja ára. Þá taka laun samkvæmt honum breytingum í samræmi við launa- breytingar hjá öðrum launþegum, en miðað er við átta kjara samninga verka-, iðnaðar-, og tækjamanna. Taki þrennir samningar breytingum hefur það áhrif í sömu veru á virkj- anasamninginn. í þessari 13% hækkun er innifalin hækkun á staðaruppbót og ferðapen- ingum. Benedikt Davíðsson, formað- ur Sambands byggingarmanna, sagði að í því fælist viðurkenning á að laun til fjalla ættu að vera hærri en í heimabyggð, eins og verið hefði við virkjanaframkvæmdir á Tungn- ársvæðinu. Undanfarið hefði þetta bil minnkað, en það væri reynt að leiðrétta það með þessum samning- um. Fiskiþing: Þorsteinn og Guðjón A. kjörnir til forystu ÞORSTEINN Gíslason, fiskimálastjóri, var einróma endurkjörinn til þess starfa til fjögurra ára á Fiskiþingi í gær. Guðjón A. Kristjáns- son, forseti FFSÍ, var þá einnig einróma kjörinn varafiskimálastjóri. Þorsteinn Gíslason hefur gegnt stöðu fiskimálastjóra síðan Már Elís- son lét af því og varð framkvæmda- stjóri Fiskveiðasjóðs. Guðjón tekur hins vegar við af Jóni Páli Halldórs- syni, framkvæmdastjóra Norðurt- angans á ísafirði, en hann gaf ekki kost á sér til starfans nú. Þá voru 10 manns kosnir í stjórn Fiskifélagsins. Þeir eru Aðalsteinn Valdimarsson, Eskifirði, Kristján Ásgeirsson, Húsavík, Reynír Traustason, Flateyri, Sævar Frið- þjófsson, Hellissandi, Eiríkur Tóm- asson, Grindavík, Hjörtur Her- mannsson, Vestmannaeyjum, Sigur- björn Svavarsson, Reykjavík, Kristj- án Ingibergsson, Keflavík, Tómas Þorvaldsson, Grindavík, Stefán Run- ólfsson, Stokkseyri og Árni Bene- diktsson, Reykjavík. Umræður um fiskveiðisljórnun: „Sælla að gefa en þiggja“ ÞAÐ vakti nokkra kátínu meðal FiskiþingsfiiIItrúa í umræðunni um fiskveiðstjórnun í gær, að útgerðarmenn í hópi þeirra greiddu atkvæði gegn tillögu um breytingu á fyrstu grein núgildandi laga um stjórnun fiskveiða. Samkvæmt tillögunni átti fyrsta setning laganna að hljóða svo: „Nytjastofnar á íslandsmiðum eru sameign útgerðarmanna", ekki íslenzku þjóðarinnar eins og stendur í lög- unum. Tillögu þessa fluttu þeir Reynir Traustason frá Flateyri og Kristj- án Ingibergsson úr Keflavík. Til- laga þeirra var flutt sem táknræn mótmæli við álitsgerð sjávarút- vegsnefndar þingsins, sem þeim þótti full höll undir útgerðarmenn enda þar gert ráð fyrir úthlutun aflakvóta til skipanna. Einar K. Guðfinnson frá Bol- ungarvík var einn þeirra, sem atkvæði greiddu gegn tillögunni og skýrði afstöðu sína með tilvitn- un úr Biblíunni: „Sælla er að gefa en þiggja“. Reynir lagðist gegn ályktunum sjávarútvegsnefndar um stuðning við frumvarpsdrög um stjórnun fiskveiða með ákveðnum breytingum og greiddi atkvæði gegn þeim öllum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.