Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 23
23 MQIiGL'NtíLAÐIÐ LAUGAEDAGIXR .4,. N.QVEMBER 1989 -------------------------------------------------------- Minning: * Jólmmm Asta Björns dóttir frá Stóru-Giljá Fædd 22. apríl 1909 Dáin 28. október 1989 Hafriarstjórn Hafiiarfjarðar: Löndimarbann erlendra skipa verði afiiumið Jóhanna Ásta Björnsdóttir var fædd á Kornsá í Vatnsdal í Húna- vatnssýslu. Faðir hennar, Björn Þórarinn Jóhannsson, hafði áður dvalið í Hindisvík á Vatnsnesi og var því góður kunningsskapur með honum og ömmu minni, Ástríði Helgu Sigurðardóttur, er þar var fædd og upp alin. Móður Jóhönnu, Guðrún Magnúsdóttir, missti snemma heilsuna og kom með Jóhönnu, þá á fyrsta ári í heim- sókn til Ástríðar ömmu, sem þá var búsett á Beinakeldu en flutti ári síðar að Stóru-Giljá. Ástríður hafði, er hér var komið, verið ekkja í 8 ár og haft á sínu framfæri 8 börn, það elsta 15 ára og það yngsta var nokkurra mánaða er hún missti bónda sinn, Erlend Eysteinsson frá Orrastöðum. Ástríður lét sig ekki muna um að bæta á sig barni. Mér er sagt að hún hafi boðið þá hjálp ótilkvödd, og það var mikil gæfa bæði fyrir hana sjálfa og einnig fyrir okkur systkinin er löngum dvöldu á Stóru-Giljá. Ég sem þetta rita er fædd á Stóru-Giljá í skjóli Ástríðar ömmu. Þá var Jóhanna 9 ára og svaf hjá ömmu. Fyrstu samskipti okkar Jóhönnu voru þau, að mér er sagt, að hún klæddi köttinn í fötin sem ég nýfædd átti að skrýðast. Þetta vakti mikinn hlátur því kötturinn var skringilegur mjög í reifum og allir vildu sjá hann ekki síður en nýfæðinginn. Jóhanna var á Stóru-Giljá þegar ég 5 ára gömul var send þangað í sveit. Sumarið er langt fyrir 5 ára barn fjarri foreldrum sínum enda þótt allir séru góðir og hug- ulsamir gagnvart því. Þegar heim kom um haustið spurði móðir mín: „Hver gerði nú mest fyrir þig í sumar heima á Giljá?“ „Hún Jóa,“ var svarið, „hún vinnur mest af öllum“. Bragð er að þá barnið finn- ur segir máltækið, en þetta barna- lega svar segir mikla sögu. Já, hún Jóhanna tók til hendi hvar sem var og hvenær sem þörf gei'ðist. Ástríður, fóstra Jóhönnu, lá lengi rúmföst áður en yfir lauk. Jóhanna hjúkraði henni og hirti um hana á allan máta og taldi það aldreieftir sér. Ekkert af barnabörnum Ástríðar hefði gert þetta betur eða jafn vel. Eitt sinn sem oftar kom ég að Stóru-Giljá þegar Ástríður amma var lögst í kör, eins og kallað er. Sagði ég þá við Jó- hönnu: „Leiðist þér ekki að dvelja hér að vetrinum og langar þig ekki til að læra eitthvað meira?“ „Nei,“ svaraði Jóhanna, „ég get ekki farið að heiman frá mömmu eins og hún er orðin og hún þarf á minni aðstoð að halda. Hún tók mig að sér þegar ég þurfti á að halda og nú er það hún sem þarf mín með.“ Þessu svari gleymi ég aldrei og aldrei hefi ég þakkað sem vert væri þessari góðu konu, henni Jóhönnu Björnsdóttur. Öll störf sem hún hefur tekið að sér hefur hún unnið af stakri vandvirkni og trúmennsku og allir sem kynntust henni virtu hana og þótti vænt um hana. Eg er þakklát fyrir allar móttök- urnar sem við hlutum er við kom- um að Stóru-Giljá, öll sporin sem hún átti um það stóra hús. Hún tilheyrði þessu heimili og. þessu fólki sem ég minnist þaðan og án hennar hefði koma að Giljá misst ljóma sinn að miklu leyti. Jóhanna lærði hússtjórn og matreiðslu bæði við Kvennaskól- ann á Blönduósi og í Húsmæðra- kennaraskólanum í Reykjavík. Hún stundaði kennslu í matreiðslu um árabil, fyrst á Kvennaskólan- . um á Blönduósi og síðar á Hús- mæðraskólanum á Löngumýri. Einnig vann hún á hótelum að sumrinu. Jóhanna var ein af þeim . fáu sem ætíð veitti öðrum margs- konar stuðning og gjafir. Hún veitti meira en hún þáði. Að loknu ævistarfi mun Jó- hanna hvílast við hlið Ástríðar ömmu, sem var henni bæði móðir og faðir. Þær munu sofa saman í kirkjugarðinum á Þingeyrum í Húnavatnssýslu. Blessuð sé minning þeirra. Emnia Hansen Jóhanna Ásta Björnsdóttir, hús- stjórnarkennari frá Stóru-Giljá í Húnaþingi, er látin. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu, Austurbrún 2 í Reykjavík, 28. október. Með henni er horfin mæt kona, en góð minning um hana lifir meðal vina. Jóhanna var matreiðslukennari hjá mér við Húsmæðraskólann á Löngumýri í mörg ár. Hún sinnti störfum sínum af samviskusemi og fórnfýsi og hugs- aði ekki um að „fullheimta daglaun að kveldi" né krefjast greiðslu fyrír aukavinnu. Störf hennar voru unnin í kærleika og trúfesti. Hún var nem- endum sínum góður vinur og reynd- ist þeim best sem mest þurftu. Jóhanna var góðum gáfum gædd, hafði ákveðnar skoðanir á ýmsum málum -í þjóðfélaginu og hélt þeim fram af rökstuddri festu. Hún var listræn í eðli sínu. Þeir hæfileikar nutu sín sannarlega í gerð veislu- borða. Hún hafði yndi af góðri tón- list og naut vel fegurðar í til- verunni, fegurðar sem fáir veita ef til vill athygli. Hún var höfðingi í lund og oft gjöful um efni fram. Ég þakka ágætri konu margra ára samstarf og trygga vináttu. Gleði og Guðs friður umvefji hana á ókomnum tímum. Iugibjörg Jóhanns- dóttir ft'á Löngumýri, Skjóli, Reykjavík. Á sólríkum septemberdegi fyrir rúmum fjörutíu árum hittumst við hér í Reykjavík, flórtán stúlkur sem vorum að hefja nám í Húsmæðra- skóla íslands sem þá var settur í þriðja sinn. Skólinn var þá til húsa í Háskóla íslands og skólastjórinn, Helga Sigurðardóttir, lagði okkur lífsreglurnar í námi og skólastarfi. Þessi nemendahópur sem átti eftir að deila daglegri önn og gáskafullum gleðistundum innan veggja skólans næstuárin var víðs vegar af landinu, á ólíkum aldri og með mismundandi undirbúning. Sú elsta í hópnum, Jó- hanna Björnsdóttir, var á aldur við skólastjórann og rík að lífsreynslu og hyggjuviti. Samt undruðumst við hinar og dáðumst að dugnaði hennar og kjarki að leggja út í þetta nám, enda var það þá afar sjaldgæft sem nú er orðið alsiða, að fólk hefji nám í ýmsum skólum á öllum aldri. Jóhanna hafði stundað nám við Kvennaskólann á Blönduósi 1928— 1929 og unnið að margs konar heim- ilisstörfum og kom það henni að góðum notum í kennaranáminu. Að loknu námi í Húsmæðraskól- anum stundaði Jóhanna kennslu- störf. Hún var matreiðslukennari við Húsmæðraskólann á Blönduósi 1948-1952 og 1953-1954. Eftir það kenndi hún við Húsmæðraskól- ann á Löngumýri 1957—1976. Störf Jóhönnu einkenndust af samviskusemi, dugnaði og hjálpsemi. Hún leysti hvern vanda á fumlausan og hljóðlátan hátt og naut þar reynslu sinnar og mannkosta. Áuk kennslustarfa vann Jóhanna við mat- reiðslu, m.a. á hótelum, nokkur sum- ur. Kennsluáranna minnist Jóhanna jafnan með ánægju. Hún eignaðist góða vini í hópi kennara og nemenda sem héldu tryggð við hana ævilangt. Jóhanna fylgdist vel með fram- vindu mála í hússtjórnarfræðslu. Hún fór í námsferð til Noregs og sótti ljölda námskeiða. Einnig sótti hún fundi í fagfélagi sínu allt fram á síðasta dag. Eftir að Jóhanna lét af störfum fluttist hún til Reykjavíkur. Bjó hún lengst af í Austurbrún 2. Hún tók virkan þátt í félagsstarfi aldraðra á Noi'ðurbrún og naut þess að vinna að margs konar hannyrðum og blanda geði við góða félaga. Við skólasysturnar minnumst Jó- hönnu sem vammlausrar, góðviljaðr- at' og drenglyndrar manneskju og góðs félaga. Við áttum saman marg- ar ánægjulegar samverustundir í áranna rás, þá síðustu á næstliðnu vori þegar við héldum upp á útskrift- arafmæli hópsins og minntumst um leið 80 ára afmælis Jóhönnu okkar. Rifjuðust þá upp margar skemmti- legar minningar frá fyrri samveru- stundum. Við vottum vandamönnum og vin- um Jóhönnu samúð vegna fráfalls hennar og kveðjum kæra skólasystur með virðingu og þakklæti. Far þú i friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Skólasystur Hafiiarstjórn Hafnarfjarðar hefur sent frá sér ályktun þar sem m.a. eftirfarandi kemur fram: Þar sem ljóst má vera að íslenska landhelgin verður í bráð ekki færð út fyrir 200 mílur og þar sem fyrir liggja samningar við önnur ríki um skiptingu veiða á stærstu fiskistofn- um sem við eigum sameiginlega með öðrum þjóðum, telur hafnarstjórn Hafnarljarðar að tímabæit sé að afnema lög sem banna erlendum fiskiskipum að landa afla í íslenskum höfnum og sækja þangað þjónustu. Þar sem fyrirsjáanlegur er minnk- andi afli íslenskra fiskiskipa og ljóst má vera að með auknum útflutning' á óunnum fiski eiga íslenskar fisk- verkunarstöðvar í sífellt harðari samkeppni við útlendinga um hrá- efni, álítur hafnarstjórn að setja beri reglur sem banna að óunninn fiskur sé fluttur úr landi nema hann hafí fyrst verið seldur á íslenskum markaði. Það fyrirkomulag myndi bæta aðstöðu innlendra fiskkaup- enda, koma í veg fyrir óhagstæðar verðsveiflur á erlendum möi'kuðum, fjölga störfum hér á landi við sölu á ferskfiski og fljótlega leiða til þess að íslenskir fiskmarkaðir yt'ðu sam- eiginlega stærsti markaður í Evrópu. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR H. PROPPÉ, andaðist í London 2. nóvember. Ástráður Proppé, börn, tengdabörn og barnabörn. Maðurinn minn, FRAIMZ JEZORSKI klæðskeri, Njálsgötu 80, lést 1. nóvember. Fyrir hönd aðstandenda, Kristín Guðbrandsdóttir. + SIGRÍÐURJÓNSDÓTTIR frá ísafirði, Hrauntungu 43, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlfð, fimmtudaginn 2. nóv- ember. Sigríður Pétursdóttir og fjölskylda. + Eiginmaður minn, JÓHANNES JÓNSSON vélstjóri, Gunnarsbraut 28, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum fimmtudaginn 2. nóvember. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbjörg K. Arndal. + Móðir min og amma okkar, SIGRÍÐUR A. NJÁLSDÓTTIR, er andaðist 28. október verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. nóvember kl. 13.30. Rósa Petra Jensdóttir, Ingibjörg S. Karlsdóttir, Sigurbjörg K. Karlsdóttir, Svanhildur Karlsdóttir og fjölskyldur. RAD/A UGL YSINGAR i^i Sjálfstæðisfélag ^ Garðabæjar Sjálfstæðisfélag Garðabæjar heldur 30 ára afmælishátið sína i Garða- holti laugardaginn 11. nóvember nk. Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 19.30. Stutt ávörp verða flutt. Meðal skemmtiatriða er söngur Sigrúnar Hjálmtýsdóttur. Veislustjóri verður Pálmar Ólason. Allir sjálfstæðismenn í Garðabæ og Bessastaðahreppi eru hvattir til að mæta. Nánari upplýsingar um hátíðina veita Andrés í síma 657578, Ólöf í síma 656799 og Guðmundur í 656057. Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar. Aðalfundur kjördæmis- ráðs Vesturlands Aðalfundur kjörkæmisráðs sjálfstæðisfé- laganna á Vesturlandi verður haldinn á Hlöðum á Hvalfjarðarströnd laugardaginn 18. nóvember nk. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Ávarp: Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins. Aðalfundur hefst kl. 10.30. Sjálfstæðismenn f Hafnarfirði Skoðanakönnun vegna fyrirhugaðs prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fer fram laugardaginn 4. nóvember milli kl. 10 og 14 í Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu 29. Stuðningsmönnum flokksins gefst þar kostur á að tilnefna skriflega 5 nöfn í prófkjörið skv. 3. gr. reglna um prófkjör, B-lið um hugmynda- banka. Prófkjörið sjálft fer fram 2. og 3. desember og verður auglýst síðar. Kjörnefnd. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.