Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 27
MÓRGUNBLAÐIÐ LAÚGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1:989 27 fclk í fréttum SKAUTADANS Witt snjallari en nokkru sinni fyrr Austur Þýska skautadrottningin Katarina Witt hefur lagt keppniss- kóna á hilluna fyrir þó nokkru, en þessi snjallasta skautakona seinni tíma hefur þó engu gleymt og þvert á móti virðist henni hafa ( farið fram ef það var þá hægt. Þetta sýndi hún fyrir skömmu á al- þjóðlegri listdanssýningu sem haldin var í Olympíuhöllinni í Múnchen. Þar var Witt stjarna sýningarinnar og fór á kostum. Var snilld henn- ar slík að fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna. Witt vakti á sínum tíma ekki aðeins athygli fyrir snilld sína, heldur og djarfan klæðaburð og gekk sú tilhneiging hennar svo langt að ai- þjóðlegum lögum um klæðaburð í skautadanskeppni var breytt. Engin slík lög ná yfir Katarinu lengur þar sem hún er hætt að keppa og eins '1 og sjá má af myndinni hefur hún kastað frá sér keppnisklæðunum og farið að sama heygarðshorninu og áður. "— Katarina Witt, snjallari en nokkru sinni SKARTGRIPIR íslenskur gullsmiður vek- ur athygli í Danmörku Idanska dagblaðinu Politiken birt- ist nýlega grein um íslenska gull- smiðinn Pétur Tryggva Hjálmars- son. Tilefnið var sýning á skartgrip- um og skúlptúrum listamannsins sem opnuð var 26. október sl. í Gallerí Skag í Kaupmannahöfn. Lokið er miklu lofsorði á Pétur Tryggva í Politiken og sagt að hann hafi fyrst vakið alþjóðlega athygli fyrir framlag sitt á sýningunni Danish Design í Japan 1987. Pétur Tryggvi lærði gullsmíðar af föður sínum Hjálmari Torfasyni sem hefur í 30 ár, starfað við iðn- ina. Hann lærði við Gullsmíðahá- skólann í Kaupmannahöfn og að námi loknu settti hann upp verslun í Reykjavík. Á síðasta ári flutti hann til Kaupmannahafnar. í upphafi greinarinnar segir að hönnun Péturs Tryggva beri vott um agaðan frumleika og til að halda við sköpunargáfunni reyni hann stöðugt fyrir sér með ný efni, verk- efni og tækni. Á sýningu Péturs Tryggva eru skartgripir úr gulli, silfri og dýrum steinum og í fáeinum gripum hefur hann fellt inn búta úr ryðguðu járni. Á sýningunni eni einnig skúlptúrar úr ryðguðu járni og steypu og hefur danska verktakasambandið fest Pétur Tryggvi ásamt föður sínum Hjálmari Torfasyni á verk- stæði þess síðarnefnda. En guldsmed med stor originalitet Islandske Petur Tryggvi Hjalmarsson i Kobenhavn kaup á einum sýningarmunanna. í greininni í Politiken segir að listmunir Péturs Tryggva endur- spegli íslenska náttúru. Listmunirn- ir séu einfaldir að gerð, með skörp og hreinleg form auk þess sem andstæður og dulúð séu ríkjandi í list Péturs Tryggva. Askriftarsiminn er 83033 fíöm xmm WZ^ÍL tlÚlLLLCHlLliGiZdL LV LLLiLL£Z AL Frábærir sðngvarar og dansarar með Rósu Ingðltsdóttur í broddi fylkingar fara á kostum í einni litríkustu söngskemmtun sem sett hefur verið á svið ^°wyWú5i<' Miðasala og borðapantanir ísíma 687111. Shyrtilegur klæðnaður (gallaklæðnaður bannaður) DANSAÐ A FJORUM STOÐUM: Aðalsalur - Stjórnin Norðursalur - Hljómsveit Axels Einarssonar Café Island - Karl Möller og Andrea Gylfa Ásbyrgi - Hljómsveit Hauks Morthens Hótel ísland - stærsti skemmtistaðurinn á íslantfi fá ER-FAGURT Síðasta sýning í kvöid Rómantísk upprifjun 45 ára söngferils Hauks Morthens í nýjustu salarkynnum Hotels íslands „Ásbyrgi“ Et,\n fflá ®'ssa tiábstu Vivölúsluíiú- Matse' dlW- AðoI«lí«r- iSSsM, Eflirréttir. Kontekttrife Sœlkcrais cðakaffi»^!Íl ÍTCh'iWhh Miðasala og borðapantanir ísíma 687111. mmwm 5 SALIR - EITTHVAÐ FYRIR ALLA i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.