Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NOVEMBER 1989
15
Almenna bókafélagið gef-
ur út á þriðja tug bóka
ALMENNA bókafélagið gefur út á þriðja tug bóka nú fyrir þessi
jól. Þar á meðal er skáldsaga, smásögur, ljóðabækur og fjórar endur-
minningarbækur svo eitthvað sé nefnt.
Kristján Kristjánsson sendir frá
sér skáldsöguna Minningar elds.
Auk þess koma út smásögusöfnin
Stórir brúnir vængir, eftir Svein-
björn I. Baldvinsson og Þegar það
gerist, eftir Hrafn Gunnlaugsson.
Siðferði í stjórnmál-
um og skattar til um-
ræðu á fimdi Hvatar
ALMENNUR félagsfiindur var
haldinn í Hvöt, félagi sjálfstæð-
iskvenna, í Valhöll þann 28.
október. Ræðumaður var
Þuríður Pálsdóttir söngkona,
sem kjörin var í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins á siðasta
landsfundi. I erindi sínu fjall-
aði Þuríður um siðferði í
stjórnmálum og skattamál.
Erindi hennar fékk góðar und-
irtektir og margar konur tóku
til máls og beindu spurningum
til ræðumanns.
í ályktun, sem fundurinn sam-
þykkti, er mótmælt þeim hug-
myndum, sem uppi eru um að
flytja dagvistarmál frá mennta-
málaráðuneytinu til félagsmála-
ráðuneytisins. Þar segir að mikil-
vægt sé að stuðla að framþróun
dagvistarmála og auka tengsl
milli leikskóla og grunnskóla inn-
an menntakerfisins. Ekki sé rétt
að líta á dagvistarmál sem fé-
lagslegt úrræði, heldur sé um að
ræða tilboð um þjónustu, sem
70 til 80% 3ja til 5 ára barna í
Reykjavík njóta nú.
„Með nýju lögunum um verka-
Þuríður Pálsdóttir flutti fram-
söguerindi á Hvatarfimdinum.
skiptingu ríkis og sveitarfélaga
eru dagvistarmál flutt algjörlega
til sveitarfélaganna. Því átelur
fundurinn harðlega þau vinnu-
brögð félagsmálaráðherra, að
ekki skuli haft samráð við sveit-
arfélögin, þ.m.t. stærsta sveitar-
félag landsins, Reykjavík, um
þessi mál,“ segir í ályktuninni.
Basar
á Hrafnistu
Handunnir munirtil sölu í dag frá kl. 13.30-17.00
og Máudag frá 10.00-15.00.
Heimilisfólk Hrafnistu
í Reykjavík.
Aðrar ljóðabækur eru Stundir úr
lífi stafrófsins, eftir Sigmund Erni
Rúnarsson, Frostdinglar, eftir Birg1
ittu Jónsdóttur, Einleikur á regn-
boga, eftir Steinunni Ásmundsdótt-
ur auk Nýrra skáldskaparmál,a:
Ljóðabók 1989, sem er safn greina
um íslenska samtímaljóðlist.
Skýrt og skorinort nefnast end-
urminningar Sverris Hermannsson-
ar skráðar af Indriða G. Þorsteins-
syni og viðtalsbók Páls Líndal við
Lúðvík Hjálmtýsson heitir Á götum
Reykjavíkur.
Illugi Jökulsson segii' sögu
íslensku stórmeistaranna í bókinni
Meistarar skákborðsins.
Fjórar sagnfræðilegar bækur
koma út. Þær eru:
Snorri á Húsafelli. Saga frá 18.
öld, eftir Þórunni Valdimarsdóttur.
Orrustuskipið Bismark, eftir
Burkhard Freiherr von Múllen-
heim-Rechberg í þýðingu Halldórs
Vilhjálmssonar.
íslenskur söguatlas. Aðalhöfund-
ar eru Árni Daníel Júlíusson og Jón
Ólafur ísberg. Aðrir höfundar eru
Hulda Sigtryggsdóttir, Haukur Jó-
hannson og Viðar Hreinsson.
Textaritstjóri er Helgi Skúli Kjart-
ansson.
Þýddar skáldsögur eru tvær. Á
faraldsfæti, eftir Anne Tyler í þýð-
ingu Magneu J. Matthíasdóttur og
Makedóníuklukkan, eftir Knud H.
Thomsen, íslenskuð af Jóhönnu S.
Sigþórsdóttur.
Auk þess gefur Almenna bókafé-
lagið út hljóðsnældur með Egils
sögu og Fjóskettinum Jáum í sam-
vinnu við Blindrafélagið.
Eitt af verkum Veturliða Gunnarssonar.
Veturliði Gunnarsson
sýnir í Listasafiii ASÍ
Myndlistarsýning málarans Veturliða Gunnarssonar verður opnuð
í Listasafiii ASÍ í dag, laugardaginn 4. nóvember klukkan 15.
Veturliði Gunnarsson sýnir
krítarmyndir sem opna sýn inn í
síkvika veröld þorps og strandar.
Veturliði hefur gengið langar
fjörur og rissað andartaksstemmn-
ingar við úfinn sjó. Mottó hans í
myndsmíðinni eru orð úr „Þorpinu"
eftir Jón úr Vör. „Enginn slítur þau
bönd sem hann er bundinn heima-
högum sínum. Móðir þín fylgir þér
á götu, er þú leggur af stað út í
heiminn, en þorpið fer með þér alla
leið.“
Veturliði er fæddur á Suðureyri
við Súgandaflörð árið 1926. Hann
var við nám í Handíðaskólanum.
Þá kenndu þar þeir Kurt Zier og
Jón Engilberts. Síðan fór Veturliði
með fyrstu ferð eftir stríð með
Dronning Alexandríne til Kaup-
mannahafnar. Þar var hann á kon-
unglegum listaháskóla hjá prófess-
orunum Ivarsen og Lundström,
einnig í grafíska skólanum hjá Per-
mild (og Rosengreen)
Hann sótti einkatíma hjá Jóni
Stefánssyni og síðan einkaskóla
ásamt Karli Kvaran hjá Rostrup við
Statens Museum for kunst. Boyje-
sen var fyrrum kennari meistara
Kjarvals á Akademíinu.
Veturliði hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum. Eftir Veturliða eru verk
á fjölmörgum listasöfnum. Veturliði
er einn af stofnendum félagsins
íslensk grafík, sem stofnað var
1954. Sýning Veturliða verður opin
alla virka daga klukkan 16-20 og
um helgar klukkan 14-20. Sýning-
unni lýkur 19. nóvember.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Svemr
20 ára afimælissýning Islenskrar grafíkur stendur yfír í Norræna
húsinu til 19. nóvember.
íslensk grafík:
20 ára aftnælissýning
TUTTUGU ára aftnælissýning íslenskrar grafíkur verður opnuð laug-
ardaginn 4. nóvember í Norræna húsinu en félagið var endurreist
árið 1969. Á sýningunni eru verk eftir 27 félagsmenn.
I tilefni afmælisárs hefur félagið út. Bæði sýningarskrá og
jafnframt staðið að útgáfu sýning- grafíkmappa verða til sýnis á sam-
arskrár þar sem upplýsingar er að ’sýningu félagsins í Norræna hús-
finna um hvern hinna 46 meðlima inu.
félagsins. Auk þess hefur sjötta Sýningin verður opin daglega kl."
grafíkmappa félagsins verið gefin 14—19. Henni lýkur 19. nóvember.
Skreytingameistarar Blómavals
hafa að undanförnu lagt nótt við dag
og útkoman er nýog
yicesiiey blómadeild. HAUSTT1LBO&
Þurrskreytinqar i.r j. 3 og litandi skreytingar í ótrúlegu úrvali. w
Sjón er sögu ríkari. Blómstrandi nfivemberkaktus
— kr. 398,-
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70
1IIIIIBIieI I 6 1 II B|»« I llllKllllfBKIIIIIKItBII