Morgunblaðið - 04.11.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4, NÓVEMBER 1989
7
Verðkönnun Verðlagsstofiiunar:
30-40% verðmun-
ur á hjólbörðum
VERÐLAGSSTOFNUN heftir kannað verð á vetrarhjólbörðum hjá
18 fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu sem selja vetrarhjólbarða.
Þar afvoru 16 hjólbarðaverkstæði. í fréttatilkynningu Verðlagsstofh-
unar segir að helstu niðurstöður könnunarinnar hafi verið eftirfar-
andi:
„Verðmunur á hjólbörðum af
sömu tegund var yfirleitt lítil milli
sölustaða og í mörgum tiifeilum
voru hjólbarðar sömu tegundar á
sama verði allstaðar þar sem þeir
voru til sölu.
Verðmunur milli tegunda á sömu
stærð af hjólbörðum var töluverður.
Ef eingöngu er miðað við nýja hjól-
barða var verðmunur á dýrustu og
ódýrustu tegund á milli 30 og 40%.
Ef sólaðir hjólbarðar eru teknir
með, var munur á ódýrustu tegund
sólaðra hjólbarða og dýrustu tegund
nýrra í kringum 100%.
Bjarni Hólm-
grímsson:
Krefst
skaðabóta
frá ríkinu
BJARNI Hólmgrímsson, fyrrum
stjórnarmaður í Kaupfélagi Sval-
barðseyrar, hefur krafist skaða-
bóta vegna dóms vegna víxil-
skuldar frá árinu 1985. Bjarni var
einn þriggja ábyrgðarmanna fyrir
finim milljóna króna víxli sem
kaupfélagið fékk hjá Iðnaðar-
bankanum. Þessi upphæð er nú
orðin að tíu milljónum. Fái Bjarni
ekki bætur hyggst lögfræðingur
hans, Björgvin Þorsteinsson,
höfðu mál á hendur Frey Ófeigs-
syni, dómara, og Ólafi Ragnari
Grímssyni, fjármálaráðherra.
Að sögn Björgvins áritaði Freyr
áskoninarstefnu sem var ekki birt
Bjarna með nægum fyrirvara. Auk
þess hafi víxilréttur verið fyrndur.
Hann segir einnig að Bjarni hafi
ekki vitað af dómnum og því rann
áfrýjunarfrestur út án þess að hann
næði að áfrýja.
Björgvin bíður eftir svari frá fjár-
málaráðuneytinu og sagði að ráðu-
neytið myndi ganga frá málinu en
að öðru kosti færi það fyrir dóm —
beint ti! Hæstaréttar — enda gilda
sérstakar reglur um mál af þessu
tagi.
Verð á hjólbarðaskiptingu, um-
felgun og jafnvægisstiliingu á íjór-
um hjólbörðum var svipað á öllum
þeim hjólbarðaverkstæðum sem
könnunin náði til, eða í kringum
3.300 krónur.
Tónlistarfélagið:
Margreta Havarinen og
Collin Hansen með tónleika
Á tónleikum Tónlistarfélagsins í dag, laugardaginn 4. nóvember,
kl. 14.30 í Islensku óperunni munu finnsk-rússneska sópransöng-
konan Margreta Haverinen og eiginmaður hennar, Collin Hansen
píanóleikari, flytja lög eftir Brahms, Duparc, Liszt og Tsjajkovskíj.
Margreta Haverinen óperu-
söngkona.
Margreta Haverinen dvelur hér
á landi næstu vikur, því hún mun
syngja titilhlutverkið í „Tosca“
eftir Puccini, sem sett verður upp
um miðjan mánuðinn í íslensku
óperunni. Sýning þessi er sam-
vinnuverkefni íslensku og norsku
óperanna. Margreta er eftirsótt
um allan heim bæði á konsertpall
sem á óperusviði.
Miðasala á tónleikana er í ís-
lensku óperunni.
Borgarstjóri
Bremerhaven
í heimsókn
HR. Uwe Beckmeyer, borgar-
stjóri í Bremen í Þýzkalandi, er
nú staddur hér á landi til við-
ræðna við ísienzk stjórnvöld og
hagsmunaaðila vegna væntanlegs
fiskútflutnings til Bremerhaven.
Beckmeyer dvelst hér á landi til
sunnudags. í för með honum er fimm
manna sendinefnd,' sem_ mun eiga
viðræður við Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra,
Samband íslenzkra fiskframleiðenda
og Landssamband íslenzkra útvegs-
manna.
Nítjánda til tuttugasta þessa mán-
aðar mun dr. Irmgard Adam-Sch-
waetzer, ráðuneytisstjóri þýzka ut-
anríkisráðuneytisins, dvelja á ís-
landi. Samkvæmt fréttatilkynningu
frá þýzka sendiráðinu hefur hún
sýnt málefnum foryptu íslands innan
EFTA síðari hluta árs 1989 sérstak-
an áhuga. Þá hefui' hún áhuga á
væntanlegum fundi utanríkisráð-
herra Evrópubandalagsins og EFTA,
sem fram fer í desember næstkom-
andi.
VETRAR
FERÐIR\
UTSYN - URVAL
89/90
SERFERÐIR
KANARIEYJAR Vikulegar broltfarir um London.
Beint flug 18. des., 8. jan., 29. jan., 19, feb., 12. mars,
2. apríl og 16. apríl. Glæsilegir gististaðir, frábærir far-
arstjórar. Verð frá kr. 72.400,- í 3 vikur 8. janúar, þrír
saman í íbúð á Broncemar. TRYGGIÐ YKKUR SÆTI í TÍMA.
GLASGOW 25. nóvember í 3 nætur.
Verð kr. 23.850 pr. mann í 2ja manna herbergi.
LONDON 24. nóvember í 2 nætur. Verð kr. 30.580
pr. mann í 2ja manna herbergi.
TRIER 30. nóvember í 4 nætur, 7. des. í
3 nætur. Verð frá kr. 35.700 pr. mann í 2ja manna
herbergi í 3 nætur. íslenskur fararsljóri.
ROYAL SMITHFIELD SHOW í London 1.des-
ember í 6 nætur. Verð kr. 40.450 pr. mann í 2ja manna
herbergi.
BORGARPAKKAR
LONDON, GLASGOW, KAUPMANNAHÖFN,
LUXEMBORG, FRANKFURT, HAMBORG OG AMSTERDAM.
SOLARFERÐIR I ALLAN VETUR
Bjóðum í allan vetur ferðir til Kanaríeyja, Flórída,
Kýpur og Costa Del Sol.
JOLAFERDIR
THAILAND 16. desember í 18 nætur. Dvalið á
Pattaya ströndinni og í Bangkok. Verð kr. 136.340 pr.
mann í 2ja manna herbergi. Innifalið: Flug, gisting, morg-
unverður, áramótakvöldverðúr, allur flutningur og tvær
skoðunarferðir.
FLÓRÍDA 19. desember í 13 nætur.
Dvalið í Orlando og á St. Petersburg ströndinni.
Verð frá kr. 64.700, miðað við 5 í stórum íbúðum.
Innifalið: Flug og gisting.
COSTA DELSOL 20. desember í 15 nætur.Verð
frá kr. 63.020, miðað við 2 í studíóíbúð á Benal Beach.
KANARÍEYJAR 18 . desember í 3 vikur. Gisting á
nskuströndinni og á Mas Palomas. Verð frá kr. 83.400,
miðað við 3 í íbúð á Broncemar.
FLUG OG BÍLL í LUXEMBURG
OG FRANKFURT
• Fyrir viðskiptamanninn á leið á sýningar.
• Fyrir skíðamenn á leið í Alpana
Bílar sérstaklega útbúnir.
Verðdæmi: Kr. 29.000 pr. mann, miðað við 5 manns
í eina viku í Ford Escort.
SKÍÐAFERÐIR
Bjóðum í vetur skíóaferðir til Kitzbuhl, Mayrhofen, Zell
am See og Badgastein í Austurríki.
Gerum tilboð í ferðir hópa af öllum stærðum, bæði utanlands og innan.
Öll verð miðast við staðgreióslu.
Upplýsingar hjá skrifstofum okkar í Reykjavík og hjá umboðsmönnum okkar um land allt.
FERÐASKRIFSTOFAN URVAL
- folk sem kunn sitt fai>!
Pósthússtrœti 13 - Sifni 26900.
pd 14o |' o! o íT o' ^ a | ojfojtí
jjpf jy
HéI 1
UTSYN
Irrtiasknfstofan [ Ysýn hf
Álfabakka 16 • Sími 91 -60-30-60 • Austurstræti 17 ■ Sími 91 -2-66-11
Bæjarhrauni 16 • Hafnarfiröi • Simi91-65-23-66
Stillhoiti 16 ■ Akranesi • Simi 93-1-17-99
IPP