Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 24
MORGUjNBjLASIÐ lAl-’OAKUAGUR 4. NÓVfiMBER 1989,- 24 Minning: Jón A. Guðmunds■ son frá Bóndhól Fæddur 12. febrúar 1926 Dáinn 26. október 1989 Það er einn fallegasti dagur haustsins, sól skín í heiði, landið skartar sínu fegursta og býr sig undir vetrarkomu. Skyndilegur skuggi. Fregnin um að Jón i Bónd- hól sé dáinn. Það er erfitt að sætta sig við að lífsglaður maður skuli skyndilega kallaður á burt fyrir ald- ur fram. Bærinn Bóndhóll stendur skammt fyrir ofan Borgarnes, og á land að Hvítá. Þar ólst Jón upp og tók við búi af föður sínum. Hann kvæntist Svövu Finnsdóttur frá Eskiholti árið 1960, þeim varð þriggja barna auðið. Þau eru Krist- björn, Guðmunda og Jóhanna, þau eru öll búin að festa ráð sitt og eni barnabömin orðin sex. Jón tók við góðu búi af föður sínum, sem hann og Svava gerðu enn betrá. Þau hafa smátt og smátt byggt upp ailan húsakost. Fyrst var byggt við íbúðarhúsið, þá reist stór hlaða og síðan myndarlegt fjós. Jón stýrði búi sínu af öryggi og festu, tók ekki ákvarðanir nema að vel íhuguðu máli. Hann var fram- sýnn maður og fylgdist vel með allri tæknivæðingu og nýjungum í búskaparháttum, hann var líka fljótur að tileinka sér þær. Þrátt fyrir að Jón hefði í ýmsu að snúast á sínu stóra búi var hann ávallt reiðubúinn að rétta nágrönnum hjálparhönd, væri eftir því leitað. Það var mörgum bóndanum undr- unarefni hvað oft voru til mikil og góð hey í Bóndhól, enda var það ekki óalgengt á fyrri hluta búskap- arára Jóns að sjá menn fara með heyvagna hlaðna heyi frá Bóndhól. Það var alltaf sjálfsagt mál frá Jóns hendi að aðstoða bændur ef þeir urðu heylausir eða heylitlir á vorin. Þegar Svava og Jón hófu búskap var undirritaður smástrákur í sveit hjá afa sínum og ömmu í Eski- holti. Ég man hvað mér þótti alltaf gaman að koma í h'eimsókn til þeirra í Bóndhól. Stundum fékk ég að dvelja nokkra daga og fór þá með Jóni út á Hvítá að vitja um netin. Þetta voru ævintýraferðir og margar fallegar minningar tengjast þeim. Eitt sinn man ég að við vorum staddir úti á á, og Jón hafði orð á því að einn lax væri að sleppa. Á sömu stundu hvarf önnur hönd hans upp að öxl niður í ána og upp kom hann með stærðar lax. Eg skil það naumast enn í dag hvernig það er hægt að góma svo sterkan og hálan fisk með höndunum einum. En Jón var hraustur og óvenju sterkur. Hann lét sig heldur ekki muna um að bera fjóra fulla mjólkurbrúsa, tvo í hvorri hendi út í mjólkurkæl- inn. Jón var prúður maður, en glað- vær, hrókur alls fagnaðar á manna- mótum. Hann hafði gaman af að rekja ættir manna og var ótrúlega fróður um þau málefni. Hann var góður heim að sækja, gestrisinn, kurteis og ræðinn. Hann hafði dá- læti á börnum, og hafði gaman af að glettast við þau. Hann hafði sérstakt lag á að láta þau finna að þau gerðu gagn með störfum sínum. Afabörnin voru honum auðvitað sérstaklega kær. Önnur börn voru líka aufúsugestir á heimili Svövu og Jóns. Eldri dóttir mín hefur feng- ið að dvelja þar stund og stund og haft mikla gleði og þroska af. Fyr- ir það er þakkað og allar góðar stundir. Jóni féll aldrei verk úr hendi, enda er Bóndhól eitt af myndar- legri býlum þessa héraðs og þótt víðar væri leitað. Nú síðast í haust var hann að byggja enn eitt húsið, ásamt Kristbirni syni sínum, sem hafði í auknum mæli komið inn í búreksturinn með föður sínum. Þeir höfðu nánast lokið við tengibygg- ingu milli gömlu hlöðunnar og fjóss- ins. Byggingarvinnuna stundaði hann í hjáverkum, því hann vann fulla vinnu í sláturhúsinu í Borgar- nesi. Hann veiktist í vinnu að morgni 25. október. Sólarhring seinna var hann allur. Elsku Svava mín, ég og fjöl- skylda mín sendum þér og börnun- um þínum, tengdabörnunum og litlu barnabömunum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð styrki ykkur í sorg ykkar. Blessuð sé minning Jóns Guð- mundssonar í Bóndhól. - Finnur Logi Jóhannsson Deyr fé, deyja frsendur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Hinn 26. október sl. lést í sjúkra- húsi Akraness Jón Abraham Guð- mundsson bóndi í Bóndhól, 63 ára að aldri. Andlát hans bar snöggt að og ekkert varð við ráðið. Sólar- hring eftir að hann kom á sjúkra- húsið var hann allur. Enn hefur því verið höggvið skarð í hóp samferða- fólksins þegar hraustur maður í fullu fjöri hefur verið kallaður til verka á öðrum vettvangi. Jón var mikill maður að vexti, víkingur til allra verka, hagur smið- ur, fróðleiksfús, ræðinn og glettinn auk þess var hann fróður um liðna tíma og lét sig varða varðveislu fornminja. Hann var vinur vina sinna, í návist hans fólst öryggi og festa og slíkum mönnum er gott að hafa kynnst. Jón fæddist 12. febrúar 1926 í Reykjavík og var einn þriggja bama þeirra hjóna Guðmundar Þorvaldar Gíslasonar og seinni konu hans, Guðfinnu Einarsdóttur, sem fluttust að Bóndhóli í Borgarhreppi árið 1935. Þar átti Jón heima alla tíð síðan og sjálfur var hann bóndinn frá árinu 1960. Bóndhóll stendur við Borgar- fjörðinn norðanverðan og verður að teljast landkostajörð þótt ekki sé hún stór. Þar eru góðar grasnytjar á engjum og í dag er mestur hluti landareignarinnar þar fyrir utan ræktuð tún. Ber það vott um hversu mikill dugnaðarforkur og búhöldur Jóní Bóndhól var. Laxveiði hefur löngum verið drjúg í Hvítá og við þá atvinnugrein lagði bóndinn í Bóndhól alúð og var manna best að sér um allt er lýtur að hegðan laxins og árinnar. Af þeirri'þekk- ingu miðlaði hann til nágranna sinna og naut trausts í því sem öðru. Af laxaflanum fóru vinir hans heldur ekki varhluta þar sem ár- visst var að hann skenkti þeim ný- fenginn og spegilfagran lax í soðið. Arið 1960 kvæntist Jón sinni mætu konu, Svövu Finnsdóttur frá Eskiholti í Borgarhreppi. Þau eign- uðust þijú börn. Elstur er Krist- björn, fæddur 1961, og hefur hann . nú í nokkur ár búið með föður sínum á föðurleifðinni. Hans kona er Þór- hildur S. Þorgrímsdóttir og eiga þau þijá unga syni. Næst er Guðmunda Guðfinna, fædd 1964, gift Hannesi Heiðarssyni og eiga þau tvö börn. Yngst er Jóhanna María, fædd 1967, og er hennar maður Jón 'Sig- urðsson og eiga þau eina dóttur. Þeim hjónum hefur ætíð búnast vel enda samheldni þeirra einstök um hvað eina, sem að búskapnum vikur. Umgengni utan húss sem innan ber vott um hagsýni, smekk- vísi og listfengi húsbændanna. Hin seinustu ár byggði Jón upp ásamt syni sínum peningshús í Bóndhól og áður hafði hann endurbætt íbúð- arhúsið. Öll þau verk eru vönduð vel og unnin af miklum hagleik. Á jörðinni er í dag stundaður hefð- bundinn og dugmikill búskapur þar sem nótt er lögð við dag við verkin. Sé nánar vikið að manninum Jóni Guðmundssyni í Bóndhól verð- ur hans minnst í huga undirritaðrar og hennar nánustu sem nágrannans sem alltaf var hægt að leita til og Þórunn Páls- dóttir — Minning Fædd 5. september 1896 Dáin 27. október 1989 Þeim fækkar nú ört sem fæddir voru á síðustu öld. Hún Þórunn Pálsdóttir húsfreyja í Norðurhjá- léigu í Álftaveri lést í hjúkrunar- heimilinu Ljósheimum á Selfossi hinn 27. október sl. Hún fæddist á Jórvíkurhryggjum í Álftaveri 5. september 1896 og var því 93ja ára er hún lést. Foreldrar Þórunnar voru Páll Símonarson, bóndi í Jórvík, f. 1836 á Kirkjubæjarklaustri, d. 1906 í Jórvík, og síðari kona hans. Hildur Runólfsdóttir, f. 1859 í Skálmarbæ, d. 1925 í Jórvík. Síðari maður Hild- ar og fóstri Þórunnar var Böðvar Þorláksson, f. 1863 í Mið-Ásum, d. 1930 ( Jórvík. Þórunn átti 7 hálfsystkini og 4 alsystkini og lifði hún þau öll. Al- systkini Þórunnar voru: Kristján, bóndi í Skaftárdal, Guðlaug og Símon sem þjuggu á Mýrum og Guðrún, sem lést á 1. ári. Þórunn giftist hinn 17. nóvember, 1917, Jóni Gíslasyni síðar bónda og al- þingismanni í Norðurhjáleigu, sem fæddur var 11. janúar 1896, dáinn 2. apríl 1975. Þau bjuggu í Norður- hjáleigu allan sinn búskap. Jón var sonur hjónanna Gísla Magnússonar hreppstjóra, f. 1862 í Jórvík, d. 1953 í Norðurhjáleigu, og Þóru Brynjólfsdóttur, f. 1862 í Hraun- gerði, d. 1947 í Norðurhjáleigu. Þórunn og Jón eignuðust 13 börn og eru 12 þeirra á lífi. Þau eru: Þórhildur, húsfreyja í Kópavogi, gift Kjartani Sveinssyni frá Vík í Myrdal. Þau eiga 5 börn. Júlíus, bóndi í Norðurhjáleigu, kvæntur Arndísi Salvarsdóttur frá Reykjar- firði við ísafjarðardjúp. Þau eignuð- ust 8 börn. Gísli, símastarfsmaður í Mosfellsbæ, kvæntur Svövu Jó- hannesdóttur frá Heijólfsstöðum í Álftaveri. Þau eiga 3 dætur. Pálína, húsfreyja í Vestmannaeyjum, gift Ragnari Bjarnasyni frá Norðfirði. Þau eiga 2 dætur. Böðvar, bóndi í Norðurhjáleigu, ókvæntur. Sigurð- ur, bóndi í Kastalabrekku í Ása- hreppi, kvæntur Steinunni Sveins- dóttur frá Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri. Þau eignuðust 8 börn. Guðlaug dó skömmu eftir fæðingu. Guðlaugur, bóndi á Voðmúlastöðum í Austur-Landeyjum, kvæntur Sæ- björgu Tyrfingsdöttur frá Lækjart- úni í Ásahreppi. Þau eiga 3 börn. Jón, vélvirki í Mosfellsbæ, kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur frá Þverspyrnu í Hrunamannahreppi. Þau eignuð- ust 5 syni. Fanney, húsfreyja á Selfossi, gift Hergeiri Kristgeirs- syni. Þau eiga 4 börn. Sigrún, hús- freyja á Selfossi, gift Stefáni Ár- manni Þórðarsyni frá Vík í Mýrdal. Þau eiga 5 börn. Sigþór, bóndi á Ási í Ásahreppi, kvæntur Gerði Óskarsdóttur frá Varmadal á Rang- árvöllum. Þau eiga 4 dætur. Jónas, bóndi í Kálfholti í Ásahreppi, kvæntur Sigrúnu ísleifsdóttur frá Ekru á Rangárvöllum. Þau eiga 4 börn. Svo sem marka má af slíkum bamafjölda var margt um manninn í Norðurhjáleigu á búskaparárum Þórunnar. Hún annaðist líka tengdaforeldra sína, sem dóu bæði í Norðurhjáleigu háöldruð- Þórunn naut þó aðstoðar tengdamóður sinnar við heimilisverkin meðan kraftar hennar entust. Gestrisni er Álftveringum í blóð borin og Norðurhjáleiguheimilið var engin undantekning frá því. Sóst var eftir að koma börnum og ungl- ingum þangað til sumardvalar og munu oft hafa verið um 20 manns í heimili þegar flest var. Má því næiri geta að mikið hefur verið lagt á húsmóður á slíku heimili því auk þess að heimilið var stórt var mikill gestagangur. Þar v.ar aðsetur oddvita og hreppstjóra um áratugi og meðan enn var ferðast á hestum þá gistu austanmenn á bæjunum í Álftaveri og þá ekki síður í Norður- hjáleigu en annars staðar. Álftaverið liggur að sjó þar sem hvað flest skipsströnd hafa orðið við Island. Oft þurfti að búa heima- menn til leitar og björgunarstarfa þegar veður voru vond og fréttir bárust af strandi. Þá þurfti líka að taka á móti hröktum sjómönnum sem björguðust og líkum þeirra sem farist höfðu í sjóslysum. Þetta mæddi á heimilunum og jók verkin sem nóg voru þó fyrir. Öllu þessu tók hún Þórunn með sama jafnaðargeðinu og hún tók sér ekki hvíld fyrr en öllum verkum vat- lokið og flestir ef ekki allir aðrir gengnir til náða. Þá kom sér vel hversu létt hún var í lund og lífsglöð, en það var hún með ein- dæmum allt til hins síðasta. Þórunn og Jón bjuggu í Norðurhjáleigu þar til Jón lést árið 1975, en síðan hef- ur hún búið þar með Böðvari syni sínum. Enginn fær umflúið ellina. Á síðasta ári var heilsu Þórunnar svo komið að hún varð að fara á sjúkrastofnun. Hún dvaldist á Ljós- heimum, hjúkrunarheimili aldraðra á Selfossi, þar sem hún hlaut góða umönnun. Auðvitað leiddist henni og hana langaði heim. Það liggur í augum uppi að sá sem alla tíð hefur haft heilsu og aldrei fallið verk úr hendi verður fyrir áfalli þegar kraftana þrýtur, en henni var íjóst að þetta varð ekki umflúið. Löngu og giftusömu dagsverki er lokið og það hefur skilið mikið eftir. Þórunn kveður nú yfír 130 afkomendur, sem vonandi halda merki henni, góðvild, glaðlyndi og iðjusemi á lofti. Ég naut þess í nærri þrjá áratugi að vera samferðamaður Þórunnar og tel mig hafa haft af því mikið gagn. Hún horfði til hins bjarta í tilverunni og lét ekki tálsýnir blekkja sig. Hún er í hópi hinna ógleymanlegu sem maður kynnist á lífsleiðinni. Blessuð sé minning Þórunnar Pálsdóttur. Hergeir Kristgeirsson Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tfð. Margs er að minnast, margs er að sakna, Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem) í dag verður til grafar borin elskuleg amma okkar, Þórunn Páls- dóttir. Hún var fædd 5. september 1896 og dó 27. október síðastliðinn og var því orðin 93 ára er hún Iést. Ung kom hún frá Jórvík að Norð- urhjáleigu í Álftaveri sem átti eftir að verða hennar framtíðarheimili. Þar kynntist hún afa okkar, Brynj- t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát ög útför mannsins míns og föður okkar, HJALTA GUNNLAUGSSONAR. Fyrir hönd ættingja, Valný Tómasdóttir, Nina Hjaltadóttir, Þorsteinn Hjaltason. alltaf var hægt að eiga samvinnu við. Átti það jafnt við um heyann- irnar, um tamningu og meðferð hrossa, um laxveiði í Hvítá, um við- skipti á kettlingum, á eggjum, blómum og rabarbara. I öllu þessu sat vinátta, glaðværð og greiðvikni í fyrirrúmi og af því nutu allir, bæði ungir sem aldnir því mikill barnavinur var Jón og hafði ein- hveija þá hæfileika til að bera, að börnin löðuðust að honum og dáðu sem hetju. Átti það jafnt við um afkomendur hans sjálfs og okkar hinna sem fjær stöndum. í dreifbýli og annars staðar er góð sambúð þegnanna, samvinna þeirra og umhyggja hver fyrir öðr- úm undirstaða öryggis og vellíðan. Þetta á við um heimilin í Bóndhól og á Beigalda þar sem ævinlega hafa á milli verið vináttubönd og svo um verða um ókomna tíð. Nú þegar Jón í Bóndhól er geng- inn er það huggun syrgjendum að honum auðnaðist gott og fagurt líf, sem bar ríkan ávöxt. Hann heldur- áfram að lifa í verkum sínum sem og minningin um elskulegan eigin- mann, heimilisföður, föður, afa, vin og nágranna. Frá Beigaldafólkinu fylgir innileg ólfi Jóni Gíslasyni. Saman eignuð- ust þau 13 börn og komust 12 þeirra til fullorðinsára og eru þau öll á lífi; Auðvelt er að gera sér í hugar- lund að oft hefur verið ærinn starfi á svo mannmörgu heimili, ekki síst þegar hafðar eru í huga þær að- stæður sem fólk bjó við á þessum árum. En amma hafði þá aðdáunar- verðu eiginleika að sjá alltaf björtu hliðarnar á tilverunni og ekki síður þær spaugilegu. Þessi létta lund, iðjusemi og þrautsegja áttu sinn þátt í því hve vel henni lét að tak- ast á við lífið. Þá var trúin ekki síður snar þátt- ur í lífi ömmu og sást það best á erfiðum stundum. Þá snart það mann djúpt að sjá hversu mikil og sönn trú hennar var. Margar góðar minningar eigum við um ömmu og er okkur sérstak- lega minnisstætt þegar hún varð 90 ára og vel flestir afkomendur hennar komu saman í Norðurhjá- leigu. Þá var það hún, þessi 90 ára skörungur, sem kvaddi sér hljóðs og þakkaði gestum fyrir komuna þennan dag sem varð bæði henni og okkur ógleymanlegur. Þar feng- um við svo greinilega að sjá og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.