Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1989 ttCEAAIin Ást er ... ... eins og flug á töfra- teppi. TM Reg U.S. Pat OH.—all rights reserved ® 1989 Los Angeles Times Syndicate Viltu ekki heyra hvernig leikurinn fór ...? Það var eitthvað af fólki hér milli kaffi- og matar- hlés... SONG- SIGUR puTiSur orö (5 Til Velvakanda. þft má lesa í Velvakanda bréf li ^jalla um trúarleg efni. Það er feulega gleðiefni að fólki leyfist [ tjá sig opinberlega um trúmál, í eins og við vitum, er ekki all- Iðar um slíkt frelsi að ræða. Tlsið er vissulega sá frumréttur Guð gaf manninum er hann Ihonum fijálsan vilja. Því skyld- Jvið meta frelsið að verðleikum. ■tt ber að líta, að það veldur Ikristnum manni hryggðar er kles greinar sem beinast gegn |eða jafnvel Guði sjálfum. En ¥r maður hefur rétt til að tjá sína. Er kristnum manni, l hálærðum, unnt að sann- Vhvem mann? Jafnvel Jesú ■ókst þetta ekki. Eigum við kja? Ég held ekki. Kristnum kr að tjá öðrum sannfær- ^Því vil ég segja í fyrsta L*r þeirrar skoðunar, að maður, sem hugleiðir ksem Jesús, sem var álitinn. ^ir smiður, kom. til leiðar á bil tveimur árum ævi \ stendur frammi fyrir undur- 'nlegri ráðgátu. Hér á ég ekki Vigöngu við hinn mikla fjölda kris- i manna í heiminum í dag, held- [miklu fremur allt það er Jesús •ði og kenndi á opinberunarárum kum tveimur þar til dauða hans upprisu bar að höndum. En V?al_ annarra orða, erum við ÍLVel hó-avn að við séum um: „Ert þú sonur Guðs?“ Jesús svaraði játandi. "Er ekki svo, að Biblían, og þá sérstaklega bækur Gamla testamentisins, skapa ákveð- in vandamál, og kalla fram ýmsar spurningar? Víst er það svo. Aug- ljóst er, að sérkenni þessara rita, einkum og sér í lagi rita Gamla testamentisins, gera það að verk- um, að við þörfnumst ákveðins kannivalds. Þetta kennivald gaf Jesús okkur, fyrst í postulunum, undir leiðsögn Péturs, og síðan í biskupunum, undir leiðsögn páfans. Undir öruggri stjóm þessara skip- stjóra hefur fari kirkjunnar verið farsællega stýrt gegnum brotsjói 19 alda samkvæmt orðum Jesú í Mt. 28:20. í þijú hundruð ár flaut blóð píslarvottanna og varð að sæði nýrra kristinna manna, eins og Tertullianus (2. öld) komst að orði. Erfíðari viðfangs urðu árásimar á kenningu kirkjunnar. Því reyndist nauðsynlegt að móta kennisetning- amar í endanlegt form. Þetta átti ekki síst við um Kristsfræðina. Kenninguna var þá að fínna í munn- legri geymd og einnig í viðurkennd- um ritum kirkjunnar. Árið 381 komu fulltrúar kirkjunnar saman á kirkjuþingi í Konstantínópel. Þar var sett fram opinberlega sá kenn- ing, að heilagur andi sé sama eðlis og Guð faðirx>g Guð sonur. í öllum þessum langvarandi deilum studdist kirkjjin við kenningu postulanna eins og hún bjj^^yj^jigunni og hjá kirkj^ Páls postula, sem hann „hreinsí Harðasta hríðin gegn Biblíunni v þó á tímum upplýsingarinnar á I öld til 19. aldar. Þessar árásir t ust í því, að Biblían var ýrl skýrð út frá sjónarmiðum skyil mishyggju, fijálslyndis, guðleyl eða sjónarmiðum þróunar og fél^F hyggju. Þýsk nákvæmni og frjT skarpskyggni hefðu eflaustj skipi kirkjunnar og með þyT veldinu, ef slíkt hefði á anjf verið framkvæmanlegt á stóð á því, að svo reyji vera? Jesús -sagði: „Sjá^ yður alla daga, allt til e ar“ (Mt. 28:20). Að lokum, þessi spuminjl um við ef til vill að leita hjárj| hjá einhveijum nýjum spámamB dæmis Múhameð, eða þá einhv* um spámanni sfðustu alda? svörum þessari spumingu Pétri: „Herra, til hvers ættum 'l að fara? Þú hefur orð eilífs lífs, I vér trúum og vitum að þú ert hil heilagi Guðs“. 0g Pétur gaf þea yfírlýsingu frammi fyrir ráði a " prestanna, öldunganna og fræ mannanna í Jerúsalem: „Ekkíj annað nafn er mönnum gefíð \ víða veröld, sem getur frelsað c (P 4:12). Já, höllum okkur að^f um, sem gaf líf sitt af fúsunl fijálsum vilja og hefur sannað 11 okkur hver hann er; sonurJ~ Og einnig skulum við fe^ Kennivald páfa Til Velvakanda. Það hendir stöku sinnum þegar list einhvers berst mannbtil eyrna að maður fer að velta því fyrir sér hvort viðkomandi listamaður sé á réttri hillu í lífinu eða hvort einhver önnur listgrein hefði hentað við- komandi betur. Eða að viðkomandi hefði ef til vill betur orðið verka- maður í víngarði drottins. En venju- lega er það svo að hæfileikar við- komandi koma berlega í ljós fyrr en varir og það sýnir sig að hann hefur leynt á sér í upphafi og hrós- ar maður þá happi yfir því að hafa fengið eitthvað þægilegt og upp- byggilegt fyrir sálina og tilgangur- inn hafi helgað meðalið þegar allt kom til alls. Ég tók að hugleiða þetta stuttu eftir að ég byrjaði að hlusta á söng Hólmfríði S. Benediktsdóttur við undirleik David B. Thompson í Norræna húsinu hinn 15. október. Fyrstu tvö lögin, Ljóðaljóð' og Vetrarrósir, fannst mér hún fara fremur þokkalega með en mér kom samt í hug að hún hefði getað valið raddgerð sinni mun betri feng. En fyrr en varði náði hún sér, að mér fannst, óvænt á strik í Gígj- unni eftir Sigfús Einarsson og ég taldi mig þá skilja að tvö fyrri verk- in hefðu verið valin með það fyrir augum að falla fyllilega að getu og næmum smekk listakonunnar sjálfrar. Enda gerði ég mér fulla grein fyrir því stuttu áður en tón- leikunum lauk að ég hafði hitt nagl- ann á höfuðið. Ég heyrði listakon- una syngja fremur erfitt verk eftir Kurt Weil úr Street scene frá árinu 1947 og söngverk úr óperunni Ara- bella eftir R. Strauss. í þessum vei'kum fannst mér söngkonan fylli- lega gefa til kynna list sína á ótvíræðan og eftirminnilegan máta. Mér fannst komið, séð og sigrað. Mér fannst söngkonan hafa það framyfir marga aðra söngvara, sem ég hef hlustað á fyrr og síðar, að hafa tilfinningu af guðs náð fyrir því að geta valið sérhvert verk þannig að fyllilega féll að söngstíl og náttúrugetu hverju sinni. Hún tvinnaði saman einkar listilega sér- hveiju verki á söngskrá sinni sem gaf þessum tónleikum það gildi að nálgast það besta og vera um leið skemmtilega í einfaldleik sínum. Gunnar Sverrisson Kæri Velvakandi. Sr. Jón Habets skrifar grein í Velvakanda 26. þ.m. Þar segir hann m.a.: „Þetta kennivald gaf Jesús okkur fyrst í postulunum, undir leið- sögn Péturs, og síðan í biskupum, undir leiðsögn páfans.“ Nú vil ég góðfúslega spyrja sr. Jón: Hvar stendur í Biblíunni um þetta kenni- vald páfans? Var ekki kristniboðs- skipun Jesú gefin til allra lærisveina hans, og gildir hún ekki í dag, sem annað er fram gekk af hans munni? Það eiga allir, sem trúa á Jesú, að vitna um hann: „Minnist orðsins, sem ég hefi talað til yðar,“ Jóh. 15:20, „En þér skuluð og vitni bera,“ Jóh. 15:27. Höldum svo fast við skipun Drottins er hljóðar svo: „Farið því og kristnið allar ,þjóðir.“ Það er fyrsta atriðið að boða fólki guðsorð svo það megi taka á móti því, eins og sagt er frá í Post. 2:41 „Þeir, sem þá veittu orði hans viðtöku voru skírðir." (Niðurdýfingarskírn.) Annað atriðið er því að „skíra þá, sem trúa, í nafni föðurins, sonarins og hins heilaga anda.“ Samanber einnig það sem stendur í Postula- sögunni þegar hirðmaðurinn er að tala við Filipus og óskar eftir skírn hjá honum. Þá segir Filipus: „Ef þú trúir af öllu hjarta, er það heim- ilt. Og hann svaraði og sagði: Ég trúi að Jesús Kristur sé guðs- sonurinn.“ Og hann lét vagninn standa við. Og þeir stigu báðir nið- ur í vatnið, Filipus og hirðmaður- inn, og hann skírði hann“ Post. 8:36-38. Þriðja atriðið er svo: „Ken- nið þeim að halda allt það, sem ég hefi boðið yður.“ Það er hlutverk lærisveina Krists. „Fræðið og áminnið hver annan,“ segir postul- inn. Slíkum gefur svo Jesús þetta dásamlega fyrirheit: „Og sjá ég er með yður alla daga allt til enda veraldarinnar," Matt 28:19-20. „Því annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem lagður er, sem er Jes- ús Kristur." 1. Kor. 3:11. „Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ósviknu mjólk [orði Guðs] til þess að þér af henni getið dafnað til hjálpræðis, ef þér hafið smakkað hvað Drottinn er góður. Komið til hans, hins lifandi steins, sem að sönnu var útskúfað af mönnum, en er hjá Guði útvalinn og dýrmætur og látið sjálfir upp- byggjast sem lifandi steinar í and- legt hús, til heilags prestafélags, til að frambera andlegar fórnir, Guði velþóknanlegar fyrir Jesúm Krist.“ Sigfús B. Valdimarsson HÖGNI HREKKVÍSI „GÆTlR&U FLOGtlST Á D'AL'iTIP F*/RR 'A kvölpim?/" Víkverji skrifar Kunningi Víkvetja íhugar að stækka við sig húsnæði og bíður nú í frægri biðröð lánsumsækjenda hjá Húsnæðisstofnun. Þegar hann las í fréttum að nýtt húsbréfakerfi ætti að taka gildi 15. nóvember nk. ákvað hann að leggja leið sína til Húsnæðis- stofnunar og kanna möguleika sína á því að ganga inn í þetta nýja kerfí og fá um það upplýsingar. I stuttu máli sagt var það eins og að ganga á vegg. Engar upplýsingar var að fá á upplýsingamiðstöð (!) stofnunarinn- ar, það eina sem bauðst var orðfá og rýr auglýsing sem svaraði engri þeitra spuminga sem bmnnu á vör- um hans. Spurði hann þá hvort hægt væri að fá viðtal hjá einhvetjum í stofnuninni setn svarað gæti spurn- ingum varðandi húsbréfakerfið. Nei, var svarið, og mátti greina undrun í röddihni yfir þessati framhleypni. Víkvetji hefur átt talsverð viðskipti við Húsnæðisstofnun og sömuleiðis margir kunningjar hans. Það er nán- ast einróma álit allra þessara manna, að þjónusta stofnunarinnar sé af- skaplega léleg. Víkvetja finnst að upplýsingamiðlun til væntanlegra húskaupenda eða sejjenda varðandi húsbréfakerfið sé mjög mikilvæg og skilur alls ekki þá tréhestaafstöðu að neita að veita upplýsingar fyrr en ketfið tekur gildi. XXX Yíkvetji ræddi á fimmtudag nýút- komið hefti frá upplýsingaþjón- ustu landbúnaðarins, þar sem ýmis orð og heiti, sem em þeim töm sem um landbúnað ræða, em skýrð. í þessu sambandi kom Víkvetja í hug, að hann sá eitt sinn sænska bók, þar sem ýmis hugtök, orð og heiti vom útskýrð á einfaldan en þó fullnægj- andi hátt fyrir almenningi. í sömu bók var gerð grein fyrir ýmsum ríkis- stofnunum, samtökum og félögum, til að greiða fyrir aðgangi almenn- ings. Víkvetja finnst full þörf á slíkum upplýsingum á Islandi. Hvað gera menn á Hagstofu íslands? Hvað et' lánskjaravísitala? Hver er munur- inn á BHM og BSRB? Eiga menn að kvarta við Verðlagsstofnun eða neytendasamtök þegar mönnum finnst á rétt þeirra gengið í viðskipt- um? Hvenær eiga böm rétt á ókeyp- is tannviðgerðum? Og svo framvegis. Bók sem svaraði slíkum spumingum ætti ríkið að gefa út og dreifa á öll heimili í landinu. Það er skylda stjóm- valda í lýðræðisríki að halda þegnum landsins vel upplýstum. XXX IA nýútkomnu Tungutaki, tímariti Árna Böðvarssonar málfarsráðu- nautar Ríkisútvarpsins, bendir hann á þá áráttu sveitarstjómarmanna að láta nöfn sveitarfélaga fela í sér orð- in knupstaðuv eða bæv. „Það er eins og mönnum finnist merki um eins konar sjálfstæði sveitarfélaga að láta nafn þess enda á orði af þessu tagi,“ segir Árni. Þetta hefur sérstaklega verið áberandi þegar hreppar fá kaupstaðarréttindi, t.d. heitir Selfoss Selfosskaupstaður. Árni bendir m.a. á að eðlilegra hefði verið að láta Mosfellshrepp heita Mosfell þegar kaupstaðan-éttindi fengust, en ekki Mosfellsbæ. Þessi athugasemd Árna finnst Víkvetja réttmæt, þó hún hefði mátt koma fyrr fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.