Morgunblaðið - 04.11.1989, Side 16
?t
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NOVEMBER 1989
4-
Sovétríkin:
*
Ahorfendur taka KGB á
beinið í sjónvarpsþætti
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA öryggislögreglan, KGB, sem annast hluta njósnastarfsem-
innar erlendis en aðallega hefur innanlandsöryggi á sinni könnu,
hefur siðustu mánuði staðið að herferð til að bæta drungalega ímynd
sína í hugum almennings. Hámarki náði herferðin á fímmtudags-
kvöld með 90 mínútna sjónvarpsþætti þar sem þrír hershöfðingjar
og tveir ofúrstar úr þjónustunni sátu fyrir svörum í beinni útsend-
ingu og almenningur fékk að bera fram spurningar símleiðis. Spurn-
ingarnar voru margar afar beinskeyttar og opinskáar en sama er
ekki hægt að segja um öll svörin. Er spurt var hvort það væri bráð-
nauðsynlegt að vera kynþokkafúllur og kunna hvílubrögð til fúlln-
ustu til að verða góður njósnari hliðruðu mennirnir sér við að svara,
vandræðalegir á svip.
Undanfarna mánuði hafa blöð
birt viðtöl við KGB-menn þar sem
gert er lítið úr þætti öryggislögregl-
unnar í að bæla niður andóf gegn
stjómvöldum og fylgjast með upp-
reisnarseggjum en því meiri áhersla
lögð á baráttuna gegn hermdar-
verkum um allan heim, fíkniefna-
sölu og glæpaflokkum. Foringjamir
sögðu aðspurðir að KGB hefði ekki
sent andófsmenn á geðsjúkrahús.
„Þegar fólk var þvingað til slíkrar
vistar var það ákveðið af dómstól-
um,“ sagði Alexander Karbajnov
ofursti. Hann var háttsettur hjá
fimmtu deild lögreglunnar er ann-
Nicaragua:
Mikil sókn hafin
gegn kontra-liðum
Santo Domingo. Reuter.
DANIEL Or-
tega, forseti
Nicaragua,
sagði á fimmtu-
dag að stjórnar-
her Iandsins
hefðu hafið
mikla sókn
gegn kontra-
skæruliðum en
að markmið hennar væri að koma
á friði í landinu.
Ortega sagði að sóknin tengdist
viðræðum stríðsaðiljanna, sem
áformaðar eru í höfuðstöðvum Sam-
einuðu þjóðanna í New York á mánu-
dag og þriðjudag. Kontra-liðar hafa
fallist á viðræðumar, en auk þeirra
taka fulltrúar eftirlitsnefndar Sam-
einuðu þjóðanna og Samtaka
Ameríkuríkja þátt í þeim.
Herforingjar í Managua sögðu að
stjórnarherinn hefði hafið sókn í níu
hémðum í Norður- og Austur-Nic-
aragua. Bílalestir fluttu í gær her-
menn og hergögn til þorpsins Santo
Domingo, sem er um 120 km frá
höfuðborginni. Lestin var á leiðinni
til Chantales-héraðs í Mið-Nic-
aragua, þar sem stjórnarherinn
hyggur á árásir á kontra-liða. „Við
höfum fengið fyrirmæli frá stjórn-
inni um að fara ekki af svæðinu
fyrr en tryggt verður að ekki verði
ráðist meir á samyrkjubú, að vegir
haldist opnir og að bændumir fái
að lifa í friði,“ sagði Francisco Torr-
entos höfuðsmaður við fréttamenn.
Oscar Arias, forseti Costa Rica,
sem átti mestan þátt í að móta frið-
aráætlun Mið-Ameríkuríkja, for-
dæmdi þá ákvörðun sandinista-
stjómarinnar að aflýsa vopnahléi,
sem staðið hafði í 19 mánuði.
.1 r A
GM-VETRASÞJONUSTA
Gildistími 1. nóv. - 1. des
1. Mótorþvottur
2. Víftureim athuguð
3. RafgeYmasambönd hreinsuð
4. Loftsía athuguð
5. Skiptumkerti
6. Skipt um platínur
7. Skipt um bensínsíu
8. Hreínsað úr blöndungi
9. Kveikjutímí stilltur
10. Hleðslamæld
11. Kælikerfi þrýstiprófað
12. Frostþolmælt
13. Ljós Yfirfarin og stillt
14. Þurrkur og rúðusprautur athugaðar
15. Smurt í lamir og læsingar
16. Undirvagn og slitfletir athugaðir
1989
Verð með söluskatti:
4cy1. kr. 3.900
6cyl. kr. 4.400
8 cyL kr. 4.700
Athugiö:
Ábyrgö tekin ó allri vinnu og varahlutum.
Varahlutir ekkl innifaldlr f ofangr. veröi.
TÖKUM FLESTAR GERÐIR BÍLA í VETRARSKOÐUN
BÍLVANGURst=
hofðabakka 9 SÍMAS 68 55 39 og 68 73 00
aðist baráttu gegn hugmyndafræði-
leþ-um glæpum, þ. e. pólitískar of-
sóknir. Deildin hefur nú verið lögð
niður að sögn yfirvalda en margir
áhorfendur, sem rætt var við eftir
þáttinn, voru vantrúaðir á að ekki
væri lengur gerðar skýrslur um
hegðun almennra borgara. Karbaj-
nov neitaði því aðspurður að KGB
berðist gegn Hare Khrisna-hreyf-
ingunni og sagði lögregluna ekkert
fást við tmarhreyfingar, hvorki nú
eða fyrr í sögu sinni og myndi ekki
taka að sér slík verkefni.
Vaídímír Kijútskov, æðsti yfir-
maður KGB, viðurkenndi fyrr í vik-
unni að fimmta deild Iögreglunnar
hefði gerst „sek um mistök“ en
sagði glasnost og aukið lýðræði
hafa breytt mörgu í stárfi stofnun-
arinnar. Síðastliðið mánudagskvöld
efndi hópur fólks til mótmælavöku
við aðalstöðvar KGB í Moskvu en
þar er m.a. Ljúbjanka-fangelsið ill-
ræmda og hélt fólkið á kertaljósum
til minningar um fómarlömb lög-
reglunnar. KGB sendi frá sér yfír-
lýsingu þar sem sagði að fulltrúar
stofnunarinnar hefðu átt „hrein-
skilnar viðræður" við þátttakend-
urna. Jafnframt firrti hún sig allri
ábyrgð á því að mótmæli af svipuð-
um toga vom brotin á bak aftur
annars staðar í borginni sama
kvöld.
Reuter
Vonsviknir kolanámamenn
Verkföll kolanámamanna í Vorkuta í norðurhluta Síberíu breiddust
út í gær og náði vinnustöðvunin til tólf náma af þrettán. Um 26.000
manns taka þátt í verkföllunum. Námamennimir efndu til fundar í
gær og fóm þess á leit við sovésku stjómina að hún sendi nefnd til
Vorkula til að ræða kröfur þeirra. Á myndinni má sjá nokkra von-
svikna fundarmenn er ljóst var að stjórnin myndi ekki svara erindinu.
Þingkosníngar í Grikklandi:
Sósíalistar vilja sam-
starf við kommúnista
Aþenu. Reuter, The Daily Telegraph.
MELINA Mercouri, fyrrum menningarmálaráðherra Grikklands,
sagði á blaðamannafimdi í Aþenu í gær að sósíalistar vildu mynda
samsteypustjóm með kommúnistum eftir þingkosningarnar, sem
fram fara á morgun, sunnudag. Kommúnistar sátu í fráfarandi stjóm
með hægri mönnum en stjórain var mynduð eftir kosningaraar í
júní til þess að unnt væri að rannsaka spillingu í valdatíð Andreas
Papandreous, fyrrum forsætisráðherra
Melina Mercouri, sem sögð er
einn helsti ráðgjafi Papandreous,
sagði að einungis kæmi til greina
að ganga til samstarfs við kommún-
ista eftir kosningarnar. Hún gagn-
rýndi hins vegar leiðtoga kommún-
ista harðlega fyrir að hafa myndað
stjórn með Nýja.lýðræðisflokknum,
flokki hægri maiina í Grikklandi.
Ríkisstjórnin beitti sér fyrir rann-
sókn á spillingu í átta ára valdatíð
Papandreous og mun hann ásamt
fjórum fyrrum ráðherrum í ríkis-
stjórn hans þurfa að svara til saka
frammi fyrir sérstökum dómstóli.
Sagði Melina Mercouri að ríkis-
stjórnin hefði verið mynduð í þeim
tilgangi einum að koma höggi á
ast að finna lausn á þeim fjölmörgu
vandamálum sem við blöstu. Eitt
helsta stefnumál hægri manna er
að hert verði mjög barátta gegn
starfsemi skipulagðra hryðjuverka-
hópa. Auk spillingar sósíalista-
stjórnarinnar hefur hryðjuverka-
starfsemi borið einna hæst í kosn-
ingabaráttunni. Fyrir um tveimur
vikum var Mitsotakis sýnt banatil-
ræði og er talið að þar hafi samtök-
in „17 nóvember" verið að verki.
Félagar í samtökunum hafa myrt
14 manns á undanförnum 14 árum
og síðasta fórnarlamb þeirra var
Pavlas Bacoyannis, tengdasonur
Mitsotakis. Herferð sú sem hægri
menn hafa boðað hefur fært þeim
nokkurt fylgi einkum frá kommún-
istum. Þannig hefur tónskaldið
' fræga Mikis Theodorakis, lýst yfir
stuðningi við Nýja lýðræðisflokkinn
en hann fylgdi áður kommúnistum
að málum.
Skoðanakannanir hafa verið
nokkuð misvísandi en gefa þó til
kynna að hægri menn vinni á en
að fylgisaukningin nægi tæpast til
að tryggja þeim meirihluta. Flokk-
inn vantaði sex menn eftir kosning-
arnar í júní til að ná hreinum meiri-
hluta en 300 fulltrúar sitja á þingi.
Svo virðist sem Sósíalistaflokkurinn
haldi sínu en flokkurinn missti
meirihluta á þingi í síðustu kosning-
um.
ROSE:
Sósíalistaflokk Papandreous.
Kommúnistar hafa hins vegar
sett það sem skilyrði fyrir sam-
starfi við sósíalista að Papandreou
verði útilokaður frá frekari þátttöku
í grískum stjórnmálum.
Hægri menn stefna að hreinum
meirihluta á þingi. Konstantin Mit-
sotakis, leiðtogi Nýja lýðræðis-
flokksins, sagði í viðtali við Reut-
ers-fréttastofuna að nauðsynlegt
væri að koma á auknum stöðugleika
í grískum stjómmálum ætti að tak-
Rúmenar þversum
í umhverfismálum
Sofia. Reutcr.
RÚMENAR komu í gær í veg fyrir samþykkt um umhverfismál á
ráðstefiiunni um öryggi og samvinnu í Evrópu (ROSE), sem hald-
in er í Sofia í Búlgaríu. Reyndu Sovétmenn og aðrir að tala um
fyrir þeim en án árangurs.
Ættfræðiþjönustan
Kynnið ykkur þjónustuna:
Ættfræðinámskeið, ættrakning
(ættartölur og niðjatöl), leit að
týndum ættmennum og önnur
upplýsingaöflun, sala ættfræði-
bóka og hjálpargagna í ættfræði.
Sími27101
Andstaða Rúmena getur gert að
engu umhverfismálasamþykktina
en það, sem þeir setja fyrir sig, er,
að í henni segir, að einstaklingar
og óopinber félagasamtök hafi rétt
lil að taka þátt í umræðum um
umhverfismál. Á fimmtudag skor-
uðu Sovétmenn á Rúmena að sam-
þykkja yfirlýsinguna og haft er eft-
ir heimildum, að Todor Zhivkov,
forseti Búlgaríu, hafi reynt að fá
Nicolae' Ceausescu Rúmeníuforseta
til að skipta um skoðun.
Að ráðstefnunni standa öll Evr-
ópuríkin nema Albanía og Banda-
ríkin og Kanada eiga þar einnig
fulltrúa. í umhverfismálasamþykkt-
inni er aðallega fjallað um þrennt:
Mengun í ám og vötnum, meðferð
hættulegra efna og hvernig unnt
er að koma í veg fyrir, að iðnaðar-
slys í einu landi hafi skaðleg áhrif
í öðru.