Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 17
Þýsku ríkin: Hugsanleg samein- ing afitur á dagskrá Trier. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SAMA hversu Þjóðveijum er mikið í nöp við að litið sé á þá sem „spurningn" þá er það staðreynd að „þýska spurningin“ hefur vakn- að til lífsins á ný. Þeir atburðir sem að undanförnu hafa átt sér stað í Austur-Þýskalandi og sá möguleiki að pólitískar umbætur kunni að verða þar á næstu árum hefur leitt til þess að spumingin um hugsanlega sameiningu þýsku ríkjanna er aftur komin á dagskrá, ekki bara í Vestur-Þýskalandi heldur einnig hjá ríkissljórnum flestra vestrænna ríkja. Hugsunin um sameinað Þýska- land veldur ekki óskiptum fögnuði á þessum stöðum því ýmsir ná- grannar Þýskalands, sérstaklega Frakkar, óttast að hinn gífurlegi efnahagslegi styrkur slíks ríkis myndi ekki verða til þess að treysta stöðugleikann í Evrópu. Vestur- Þýskaland er nú þegar með um fjórðung af þjóðarframleiðslu Evr- ópubandaiagsins. Yrðu yfirráð Þjóðverja ekki algjör er við þetta myndi bætast framleiðni um sext- án milljóna harðduglegra Þjóð- vetja? „Þjóðvetjar eru ágætir,“ heyrist stundum hvíslað, „en þeir eru bara því miður allt of margir.“ Gorbatsjov og þýska spilið En það er ekki bara efnahags- legur óstöðugleiki sem menn óttast heldur einnig pólitískur óvissa sem af sameiningu ríkjanna kynni að hljótast. Á ráðstefnu sem Konrad Adenauer-stofnunin í Bonn gekkst fyrir á dögunum sagði Gerhard Stoltenberg, varnarmálaráðherra Vestur-Þýskalands, að Þjóðvetjar myndu ekki fara neinar sérleiðir í austurátt. Þjóðvetjar ættu heima í vestri. Þessi ummæli ráðherrans urðu tilefni nokkurra umræðna á ráðstefnunni og létu þar margir í ljós þann ótta að Míkhaíl Gorbatsj- ov, Sovétleiðtogi, kynnt að bjóða Þjóðvetjum sameiningu með því skilyrði að hið sameinaða Þýska- land yrði hlutlaust. Sagði William G. Hyland, ritstjóri tímaritsins Foreign Affairs og virtur sérfræð- ingur í málefnum Þýskalands, að sniðugasti leikurinn sem Gorbatsj- ov ætti væri að spila út þýska spilinu. Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, og ráðgjafi hans, Horst Teltschik, komu einnig á ráðstefnunni inn á sameiningu þýsku ríkjanna. Kom hjá þeim fram sú skoðun vestur-þýsku stjórnarinnar að þýska spurningin kynni að verða .lykilmál varðandi umbótaþróuniná í Austur-Evrópu. Ætti tvímælalaust að tengja þessa þróun hugsanlegri sameiningu Þýskalands og leggja áherslu á mannréttindi og sjálfsákvörðunar- rétt þjóða. Réttindi bandamanna í Vestur-Þýskalandi ber nú líka æ meira á umræðu um sjálfstæði landsins og réttindi bandamanna. Réttarstöðu Vestur-Þýskalands má rekja aftur til samnings, sem gerður var árið 1952 og tók gildi 1955, um samskipti Vestur-Þýska- lands og vestrænu bandamann- anna, Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands. Samkvæmt samn- ingnum, sem nefndur er annað- hvert „Þýskalands-samningurinn" eða „Bonn-samningurinn“, fékk Vestur-Þýskaland öll réttindi full- valda ríkis nema í málum er varða Berlín og „Þýskaland í heild“. Hvað Berlín varðar má nefna sem dæmi að enn þann dag í dag leyf- ist hinu vestur-þýska flugfélagi Lufthansa ekki að fljúga þangað. í samningnum er einnig gert ráð fyrir að Þýskaland sé ein heild og þá miðað við landamæri þýska ríkisins árið 1937, en hlutar þess eru nú innan landamæra Póllands og Sovétríkjanna. Samkvæmt Þýskalandssamningnum er það stefna þeirra ríkja sem að honum stóðu að sameina Þýskaland. Sam- kvæmt sama samningi verður það ekki gert nema með samþykki bandamanna. Á meðan ekki hefur verið gerður friðarsamningur fyrir Þýskaland í heild verður „þýska spurningin" áfram spurning. Italskarflísar Ótrúlegt úrval á veggi oggólf MARÁS, Ármúla 20, sími 39140. Opiðfrá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14.30. Opið í dag fró kl. 9-18 og ó morgun fró kl. 13-17 Glæsilegar baðinnréttingar á góðu verði. Aðeins 20% útbnrgun. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NOVEMBER 1989 f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.